Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1999, Page 17
MÁNUDAGUR 18. JANÚAR 1999
17
Fréttir
Ólafur Halldórsson hjá Vestra hf. og Ágúst Gíslason, framkvæmdastjóri Ágústs og Flosa ehf., undirrita verksamn-
ing um uppsetningu þróunarseturs. DV-mynd Hörður
50 ára frystihús á ísafirði loks tekið í fulla notkun:
Verður þróunarsetur
DV ísafirði:
Nýlega var undirritaður samning-
ur um innréttingu á Þróunarsetri í
Vestrahúsinu á ísafírði. Ólafur Hall-
dórsson undirritaði samninginn fyrir
hönd Vestra hf. en Ágúst Gíslason fyr-
ir hönd verktakans, Ágústs og Flosa
ehf.
Ráðgert er að verkinu ljúki i byij-
un júní og vonast menn til að geta
vígt þróunarsetrið 17. júni. Þrír aðilar
buðu í verkið en tilboð Ágústs og
Flosa ehf. var lægst og hljóðaði upp á
44.942.939 krónur sem er 93,4% af
kostnaðaráætlun.
Þama er um merkilegt ffamtak að
ræða sem mun stuðla að því að ýmsir
rannsóknar- og þjónustuaðilar í at-
vinnuþróunarmálum á Vestfjörðum
komist undir sama þak. Fjórðungs-
samband Vestfirðinga og síðan Þróun-
arfélag Vestfjarða höfðu verið með
hugmyndir á pijónunum um langt
skeið um að reyna að koma starfsemi
eins og Þróunarfélaginu, Rannsókna-
stofnun fiskiðnaðarins, Hafrann-
sóknastofhun og fleiri aðilum undir
sama þak til að samnýta megi krafta.
Stjóm Vestra hf. ákvað síðan að láta
hanna í húsakynnum sínum (ísfirð-
ingshúsinu á ísafirði) þróunarsetur á
sinn kostnað.
Vestri hf. hefur gert leigusamning
við notendur Þróunarmiðstöðvar til
10 ára. Elísabet Gunnarsdóttir, arki-
tekt á ísafirði, hefúr hannað setrið í
samvinnu við Tækniþjónustu Vest-
flarða og þá sem koma til með að nota
það.
Hluti þess húsnæðis sem nú er haf-
ist handa við að innrétta hefúr aldrei
verið í raunverulegri notkun síðan
húsið var tekið i gagnið sem stærsta
fiskvinnsluhús á Vestfiörðum árið
1957. Það var togarafélagið ísfirðingur
sem lét reisa húsið en félagið gerði út
togarana Isborgu og Sólborgu.
Hlutafélagið Vestri keypti húsið af
ríkissjóði nokkrum árum eftir að
starfsemi togarafélagsins lagðist af á
sjöunda áratugnum. Síðan hefúr hús-
ið verið leigt til ýmissar starfsemi,
svo sem iðnskóla. Þá hefúr húsið líka
verið leigt undir heildsölu, skipaaf-
greiðslu, rannsóknarstofnun fiskiðn-
aðarins, Rauða krossinn, saltfisk-
vinnslu, frystigeymslur og ýmsa aðra
starfsemi. -HKr.
ísing og óþægindi
DV, Hólmavík:
Um áramótin urðu verulegar raf-
magnstruflanir á veitusvæði Orkubús
Vestfiarða í nágrenni Hólmavíkur.
Ekkert stórtjón varð en óþægindi tals-
verð. Einkum voru það íbúar Ámes-
hrepps sem lentu í rafmagnsleysi.
Þessu olii norðaustan bálviðri sem
gerði þann 30. desember með frost-
leysu en lítilli úrkomu á láglendi en
ísingarveðri þegar hærra dró í landið.
Telja starfsmenn að sums staðar hafi
línur verið 20 sm í þvermál og jafnvel
meira á stöku stað.
Á Trékyliisheiði fór línan niður úr
mörgum staurum af þessum sökum.
Á Tröllatunguheiði milli Tungusveit-
ar og Geiradals byijaði ísingin rétt
ofan við Múlann skammt frá bænum
Tröllatungu og var samfelld nokkurra
kílómetra leið suður fyrir Laugavatn.
Einnig varð bilun sunnan fiaila.
Mikið mæddi á starfsmönnum eins
og oft er undir svipuðum kringum-
stæðum og fengu sumir um sólar-
hringstöm við viðgerðir. Það óvenju-
lega gerðist að þessu sinni eftir að
komið var bhðveður og straum hafði
verið hleypt á að starfsmenn á heim-
leið í myrkri á véifákum sinum eftir
Tröllatunguheiði sáu þegar lina slitn-
aði. Að sögn þeirra sem næstir vom
var bláleitur blossinn svo mikill að
hann lýsti upp stórt svæði. Sá sem
næstur var sagði að þetta væri mesta
birta sem hann hefði nokkru sinni
séð. „Það var flott að sjá þetta,“ sagði
hann. Vom þá áramótin um garð
gengin. -Guðfinnur
ejFSjn • cjBSjn • Hjusjn • ujBSjp • cjBSjn * Bjnsjn Bicsjn • Bynsjn • upjsjn BiBSjn • BfBsjn • Epjsjn * Biusjn
Útsalan
-0* by'l",d*s
u af öllum skóm
13
2
skórinn
Póstsendum
Álfheimum 74, sími 581 2966 samdægurs J
útsala . útsala . útsala . útsala. útsala . útsala. útsala. útsala . útsala . útsala . útsala . útsala .útsala
Þriðjudagur 19. janúar
^VlSíV
Stjörnubíó
The Ugly (enskt tal)
Regnboginn
Kl. 5
Kl. 5
Kl. 6:45
Kl. 7
Kl. 9
Kl. 9
Kl. 11
Kl. 11:10
Out of the Present (enskur texti)
Funny Games (enskur texti)
Karakter (enskur texti)
The Mighty (enskttal)
Gabbeh (enskur texti)
Karakter
The General (enskttal)
Karakter (enskur texti)
Bioborgin
Kl. 4:50
Kl. 4.50
Kl. 6.55
Kl. 6:55
Kl. 9
Kl. 9
Kl. 11:10
Kl. 11:10
Eve's Bayou (enskttal)
Butcher Boy (enskttal)
Eve's Bayou (enskttal)
Butcher Boy (enskttal)
Eve's Bayou (enskttal)
Butcher Boy (enskttal)
Eve's Bayou (enskttal)
Butcher Boy (enskttal)
Haskolabio
Kl. 5
Kl. 5
Kl. 5
Kl. 7
Kl. 7
Kl. 7
Kl. 9
Kl. 11
Kl. 11:10
Welcome to the Dollhouse (ísl. texti)
Festen (ísl. texti)
Tango Lessons (enskttal)
Festen (ísl. texti)
Welcome to the Dollhouse (ísl. texti)
My Son the Fanatic (enskt tal)
Men With Guns (enskur texti)
Festen (ísl. texti)
Four Days in September (danskur texti)