Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1999, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1999, Blaðsíða 22
30 Michael Jordan Körfuknattleiksdýrlingurinn Michael Jordan tilkynnti í síð- ustu viku að hann ætlaði að leggja Nike-skóna sína á hill- una. Svekktir aðdáendur geta heimsótt opinbera heimasíðu kappans, http://jord- an.sportsline.com/ og rifjað upp helstu afrek Mikjáls. Netlist Ungur listamaður hefur sett upp heimasíðu þar sem búin eru til netlistaverk með því að skeyta saman myndum sem teknar eru með netmyndavél- um. Slóðin er http://emsh.calar- ts.edu/~alex/recycler.html Klósettsafn Klósett eiga sér langa hefð í , mannkynssögunni. Vefsíðan http://www.sula- bhtoiletmuse- jj' um.org/ rekur sögu klósettsins frá árinu 2.500 fyrir Krist og allt fram á okk- ' ar daga. Tölvubráfsefni Mörgum finnst gaman að búa til einskonar bréfsefni fyr- ir tölvupóstinn sem þeir senda. í því felst að láta neð- anmálsgreinar með speki af ýmsu tagi fylgja bréfunum. Safh slíkrar neðanmálsspeki er að fmna á slóðinni http://www.coolsig.com/ Ástarsögur Ýmsum finnst gaman að góðum ástarsögum og ekki sakar ef þær eru sannar. Slík- ar ástarsögur er einmitt að finna á heimasíöunni http://www.ember.org/ Jarðskjálftar Jarðskjálftar eru íslending- um hugleiknir, en fyrirbærin hrella fleiri en okkur hér uppi á klakanum. Á heimasíðunni http://quake.wr.usgs.gov/ er hægt að sjá hvar í heiminum jarðskjálftar hafa átt sér stað að undanfomu. Larry Flynt Klámkóngurinn Larry Flynt hefur verið svo frægur að endem- um að gerð var kvik- mynd um fyrirbærið á sínum tíma. Nú er hann enn í fréttum vegna herferðar gegn þing- mönnum repúblikana. Safn greina og annarra upplýsinga um Larry er að finna á slóð- inni http://www.flyn- treport.com/ Leikur ársins 1998: MÁNUDAGUR 18. JANÚAR 1999 Tölvuleikur ársins 1998 var án efa leikurinn Half-life, sem hannaö- ur var af Valve og gefinn út af Si- erra. Leikurinn fékk gríðarlega góða dóma í hveiju einasta tímariti sem tók hann til kosta og í kjölfarið varð hann einn söluhæsti leikur ársins. Leikurinn er fyrstu persónu skotleikur í ætt við Quake og Unr- eal. Fyrr á árinu hafði mikil um- ræða átt sér stað um það hvor væri betri Quake n eða Unreal, en um leið og Half-life kom út varð öll slík umræða hjóm eitt. Óumdeilanlegur oflarl beggja leikjanna var kominn fram á sjónarsviðið. Skotleikur með söguþræði En hvað er það sem gerir þennan leik svo sérstakan? í sjálfu sér er það ekkert eitt sem lætur hann bera af keppinautunum, heldur er það heildarmyndin sem er svo góð sem raun ber vitni. Fyrir það fyrsta er Half-life með skemmtilegum sögu- þræði, en slíkt hefur sárlega vantað í skotleikina hingað til. í Half-life er ekki nóg að hlaupa og drepa allt sem á vegi manns verður. Maður hittir nefnilega flölda persóna sem geta hjálpað manni á ýmsan hátt, t.d. með því aö opna hurðir eða skjóta niður óvini. Jafnframt spjalla þeir stundum við mann og veita manni innsýn í verk- efnin sem maður á að leysa. Eitt það alflottasta við leikinn er að ótal sinnum gengur maður inn í fyrirfram skrifaða atburðarás sem hægt er að fylgjast með eða jafnvel taka þátt í. Sem dæmi gengur mað- ur á einum stað inn í herbergi þar sem lafhræddur vísindamaður hleypur um. Skömmu síðar áttar maður sig á því hvað vakti skelf- ingu hans þegar risavaxin geimvera seilist inn um glugga og rífur hann til sín. Á öðrum gengur vinveittur hermaður til manns og segist þm-fa að vara mann við dálitlu. í sömu mund er hann skotinn í bakið og viðvörunin kemst ekki til skila. Nokkrum mínútum síðar áttar mað- ur sig á því hvað vesalings maður- inn hafði ætlað að segja, en þá er það um seinan. í raun má því segja að upplifun manns við spilun Half-life sé svipuð því að vera staddur í bíómynd - sem sjálf aðalsöguhetjan. Ný kynslóð örgjörva: Pentium III á markað í mars í síðustu viku tilkynnti Intel vél- búnaðarframleiðandinn, sem er leiðandi framleiðandi örgjörva fyrir PC-tölvur i heiminum, að ný kyn- slóð örgjörva frá fyrirtækinu kæmi á markaðinn í byijun mars á þessu ári. Pentium III mun gripurinn heita og að sögn Intel-manna mun hann hafa talsverðar breytingcir í fór með sér. Fyrstu útgáfur örgjörvans verða 450 og 500 megariða en áður en árið endar er áætlað að útgáfur sem verða yfir 600 megariða verði komn- ar á markað. Auk þess að verða öfl- ugri en þeir örgjörvar sem fyrir eru, verður Pentium III búinn um 70 auka margmiðlunarskipunum sem munu bæta frammistöðu hans við grafíkvinnslu og gera tölvunni kleift að sýna mun fleiri ramma á sekúndu en hægt er með þeim ör- gjörvum sem til eru í dag. Eftir að Pentium III kemur á markaðinn mun fyrirtækið byrja að fjarlægja Pentium II af markaðnum hægt og rólega. Talsmenn Intel sögðu jafnframt að fyrirtækið myndi passa sig á að nóg verði til af hugbúnaði sem geti nýtt sér þær nýjungar sem ör- gjörvinn býr yfir, um leið og hann kemur á markaðinn. Sú var ekki raunin þegar fyrirtækið kynnti Pentium MMX og Pentium II og ætl- ar Intel ekki að brenna sig á slíku aftur. Dæmi um frábært atriði í Half-iife: Þú kemur út úr klettagöngum og sérð þyrlu sprengja upp hluta af brú til að drepa geimveru sem reynir að fiýja í ofboði. Eftir að hafa murkað lífið úr geimverunni verða flugmenn þyrlunnar þín varir og þá ertu í vondum málum! Krefjandi andstæðingar Andstæðingum manns í Half-life má skipta í tvo hópa. Annars vegar eru geimverur af ýmsu tagi sem eru frekar vitgrannar en margar hverj- ar hafa yfir mjög skæðum vopnum að ráða. Hinn hópinn skipa hins vegar mennskir bandarískir her- menn sem vilja ráða þig af dögum vegna þess að þú veist of mikið. Hermennimir eru sennilega skæðustu og jafnframt skemmtileg- ustu andstæðingar sem hafa verið þróaðir í fyrstu persónu skotleik. Þeir eru oftast 2 til 4 saman í hóp og hegða sér ótrúlega skynsamlega. Þeir dreifa sér og reyna aö koma aftan að þér, skýla sér bak við hluti og veggi og forða sér ef hand- sprengjum er kastað í áttina að þeim. Jafhframt geta þeir kastað handsprengjum að þér og því er vonlaust að ætla að beijast við þá úr felum. Ákveðin herkænska er því nauðsynleg ef maður ætlar að lifa af stefnumót við hermennina. grafikina, en hún er mjög góð. Leik- urinn er byggður á Quake II grafík- vélinni, sem hefur verið verulega endurbætt og gerð mun flottari en í Quake II. Ekki nær leikurinn hins vegar mikilfenglegri grafík Unreal að gæðum, þó ekki muni miklu þar á. En er Half-life þá gallalaus? Ekki er alveg hægt að segja það. Undirrit- aður varð fyrir nokkrum vonbrigð- um með síðasta hluta leiksins sem gerist eftir að spil- arinn hefur verið sendur inn í aðra vídd til að klára verkefnið. Þar er að finna ógrynni af stökkþrautum sem minna mann frekar á Super Mario Bros heldur en þann stórkostlega leik sem maður hafði verið að spila nokkrum mínútum áður. í raun langaði mann bara aftur heim í gömlu góðu víddina til að stúta fleiri hermönnum. Jafnframt er leik- urinn alls ekki nægilega góður fyr- ir fjölspilun á Net- inu. Valve vinnur þó baki brotnu að því þessa dagana að bæta úr því og er von á skráarviðbót- um frá þeim á næstu dögum. En þetta eru litlir gallar á annars frá- bærum leik. Það er nefnilega ljóst að þeir Valve-menn hafa hér búið til leik sem allir leik- ir sem á eftir koma verða bomir saman við. Þeir hafa fært fyrstu persónu skotleikina upp á nýtt plan þar sem söguþráður, áhugaverðir andstæðingar og gagnvirkt um- hverfi skipta meira máli en blóðsút- hellingcirnar einar og sér. Þeir eiga skilinn stóran, votcm koss á kinnina frá öllum leikjaunnendum. -KJA Koss á kinnina Enn hefur ekki verið minnst á Disney mætir á svæðið í síðustu viku var opnuö netmiðstöö- in Go en það er Disney-fyrirtækiö sem á veg og vanda að henni. Tals- menn Disney segja aö fyrirtækið sé með þessu komið af fullum krafti í slaginn um netmiö- stöðvarnar. Vegna tengingar viö net- miöstööina Infos- eek, sem er aö stórum hluta í eigu Disney, hóf Go í raun starfsemi sína meö átta millj- ón skráöum meö- limum. Þaö þýöir aö Go er þegar orö- in ein af fimm stærstu netmið- stöövum heims og á góöa möguleika á aö skjóta þeirri vinsælustu, Ya- hool, ref fyrir rass í framtíöinni. Sony ekki skemmt Forsvarsmenn Sony hafa ekki verið mjög hressir eftir aö smáfyrirtækið Connectix kynnti PlayStation-hermi fyrir Macintosh fyrk skömmu. Hermir- inn mun gera mönnum kleift aö spila PlayStation leiki á Macintosh tölvum án þess aö þeir þurfi aö kaupa PlayStation leikjatölvuna sem Sony hefur einkaleyfi á aðframleiða. Heyrst hafa sögusagnir um aö Sony muni láta máliö fara fyrir dómstóla en enn hafa talsmenn fýrirtækisins ekki vilj- aö tilkynna neitt um máliö opinber- lega. Þeir sem til þekkja telja þó lík- legra aö fyrirtækin komist aö ein- hvers konar samkomulagi um fram- haldiö. ESi Táningur slær í gegn Sextán ára írskri stúlku, Söru Flann- ery, hefur veriö hampaö sem snill- ingi eftir aö hafa þróaö leið til aö dulkóöa upplýsing- ar á Netinu allt að 10 sinnum hraöar en þau kerfi sem notuð eru í dag. Líklegt þykir að ný- stárleg aöferð hennar veröi kom- in í almenna notk- un innan örfárra mánaöa. í kjölfar mikillar umfjöllun- ar um Söru hefur hún fengið fjölda bitastæöra at- vinnutilboða auk tilboöa frá háskól- um. Hún hyggst hins vegar ekki hagnast fjárhags- lega á uppfinningu sinni. „Það er gott aö deila hugmyndum sínum meö vís- indasamfélaginu. Ef ég myndi fá einkaleyfi á hugmyndinni væri ég aö hindra slíkt samstarf," segir Sarah. Tölvur gefa einkunnir í nokkrum bandarískum háskólum er byrjaö aö gera tilraunir með að láta tölvur fara yfir próf og ritgerðir nemenda. Hönnuöir sérstaks mats- forrits segja aö forritið sé mjög áreiö- anlegt og ýmsir kennarar sem hafa prófaö þaö hafa komist aö þeirri niö- urstööu aö það virki mjög vel í flest- um tilvikum. Aöalkostur slíkra forrita er aö sjálfsögöu gríðarlegur tíma- sparnaöur fyrir prófessora og aöstoö- armenn þeirra.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.