Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1999, Page 25

Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1999, Page 25
MÁNUDAGUR 18. JANÚAR 1999 * 33 * Líkamsklukkan rannsökuð: Skiptir miklu máli fyrir líkamann Rannsóknum á innra tímaskyni mannsins, líkamsklukkunni, fleygir fram um þessar mundir. Vísinda- menn við Massachusetts-spítala hafa nú komist að því að „genakerf- ið“ sem stjórnar innri hreyfmgum líkamsklukkunnar stjórni sennilega öllum helstu rytmum líkamans. Þessir rytmar eru t.d. hækkun og lækkun líkamshita og blóðþrýst- ings, flæði hormóna og stjórnun á svefni og vöku. „Við höldum að við höfum nú átt- að okkur í fyrsta sinn á því hvernig líkamsklukkan notar frumur til að hafa áhrif á starfsemi líkamans," segir Steven Reppert, einn þeirra sem standa að rannsókninni. Með þessu telja vísindamennirnir jafnframt að þeir hafi fundið ein- stakt fyrirbæri hjá frumum. „Við erum vanir því að frumur vinni eft- ir mjög stuttu tímaplani, sem mælist oftast ekki lengra en í örfáar sekúndur. Hérna erum við hins veg- ar búin að finna frumur sem vinna eftir 24 tíma plani,“ segir Reppert. Með áframhaldandi rannsóknum á þessu sviði telja vísindamennirnir að þeir geti fundið leiðir til að lækna ýmsa kvilla. Þar á meðal eru svefnörðugleikar af ýmsu tagi, en með því að átta sig betur á þvi hvernig líkamsklukkan virkar er liklegra að hægt verði að finna lausnir á slíkum vandamálum. Rami Ben-Moshe, forseti fyrirtækisins Sun-Mate Corp., heldur hér á Info- Mate útvarpstæki sem fyrirtæki hans framleiðir. Útvarpstækið, sem var til sýnis á raftækjaráðstefnu í Las Vegas í síðustu viku, er hægt að knýja ýmist með innbyggðri sólarrafhlöðu, með því að trekkja það upp, með því að tengja það við vindlingakveikjara bifreiðar eða með því að stinga því í samband á „venjulegan" hátt. Ben-Moshe segir að áhugi á útvarp- inu hafi aukist í kjölfar umfjöllunar um 2000-vandann í tölvum. Útvarpið hefur verið til sölu síðan í nóvember og kostar það 99 Bandaríkjadali (um 7.000 íslenskar krónur). Nanótækni er vísindagrein sem gengur m.a. út á að búa til örsmáar „vélar“ úr erfðaefni. Merkur áfangi í nanótækni: Búin til „vél" úr erfðaefni Vísindamönnum tókst fyrir skömmu aö byggja hlut sem hreyfist úr nokkrum einingum af erfðaefni (DNA). Þar með tók mannkynið skref í áttina að því að geta hannað örsmáar „vélar" sem munu í fram- tíðinni geta framkvæmt flókin verk- efni eins og að byggja rafrásir fyrir tölvur eða hreinsa stíflaðar æðar í heilanum. Hluturinn er eins og liðamót og hann bognar þegar hann kemst í snertingu við ákveðna efnalausn. Ekki er hann fyrirferðarmikill þvi stærð hans er einungis fjórir tíuþús- undustu af breidd mannshárs. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem slík „vél“ hefur verið búin til, en hins vegar er þessi DNA-vél mun betur úr garði gerð en þær sem áður hafa verið húnar til. Rannsóknarfólkið sem stendur að þessu verkefni vonast til að byggja í framtíðinni fleiri hluti úr erfðaefni. Þar á meðal er ætlunin að búa til „hendur" og „fingur" sem einhvern tímann væri hægt að setja á örsmátt vélmenni. Vísindagreinin sem hér um ræð- ir kallast „nanótækni" en þar er unnið að tækni með örsmáa hluti. Að sögn Daniels T. Colbert, eins þeirra sem stóðu að þróun DNA- hlutarins, er vísindagreinin svo ung að enn eru nokkrir áratugir í það að hægt verði að byggja nyt- samlegar vélar með tækninni. „Eins og er má líkja okkur við kornabörn sem eru að fá legókubba í hendurnar í fyrsta sinn,“ segir hann. „Við erum bara að prófa að halda á þeim og athuga hvort og hvernig hægt er að setja þá saman.“ Með rannsóknum á virkni líkamsklukkunnar má e.t.v. í framtíðinni ráða bug á vandræðum fólks varðandi svefnleysi eða óreglulegum svefni. Ij'D/ujjí !]iiiu!tjuw u jjij JjJ vl J J.dJJjá Hvervatnsbrúsi kostar395»vsk KtVMAVlli KftlAV'fk

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.