Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1999, Qupperneq 34

Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1999, Qupperneq 34
42 MÁNUDAGUR 18. JANÚAR 1999 Afmæli_______________ Jens Pálsson Jens R. Pálsson, biíreiöastjóri á Bifreiðastöð Reykjavíkur, Sogavegi 94, Reykjavík, er sjötíu og fimm ára í dag. Starfsferill Jens fæddist á Stóru-Völlum í Landsveit og ólst þar upp við almenn sveitastörf. Hann stundaði ýmis almenn störf í Landsveitinni en fluttist til Reykjavíkur og hóf leigubilaakstur hjá BSR 1945. Þar hefur hann verið leigubílstjóri síðan. Jens sat í stjóm Frama um skeið og hefur setið í stjóm Lánasjóðs BSR. Fjölskylda Jens kvæntist 20.8. 1951 Kristínu Jóhönnu Eiríksdóttur, f. 31.8. 1927, stuðningsfulltrúa og húsmóður. For- eldrar hennar: Eiríkur Magnússon, f. 7.7.1899, d. 23.9. 1981, bókbindari í Reykjavík, og k.h., Friðgerður Sig- urðardóttir, f. 25.3.1900, d. 20.3.1960, húsmóðir. Böm Jens og Kristínar: Sigríður Erla, f. 17.11. 1947, d. 22.4. 1980, búsett i Reykjavík en hún eignaðist tvo syni, Jens Reyni, f. 28.12. 1967, og Orra Frey, f. 4.1. 1974 en þeir ólust upp hjá Jens og Kristínu; Gerður, f. 28.11. 1948, tækniteiknari hjá Landsvirkjun, búsett í Reykjavík en maður hennar er Böðvar Bald- ursson verslunarmaður hjá Brimborg og eiga þrjú böm; Páll Reynir, f. 27.9. 1955, búsettur í Kaup- mannahöfii; Anna Bima, f. 17.12. 1958, hjúkrunarforstjóri við Landakotsspítala, búsett í Reykjavík en maður hennar er Stef- án S. Gunnarsson tæknifræðingur hjá Heimilistækjum og eiga þrjú böm; Eiríkur Bragi, f. 31.7. 1960, húsasmíðameistari í Kópavogi, en kona hans er Aðaiheiður Kjartans- dóttir framkvæmdastjóri og eiga þrjú böm. Systkini Jens: Jón, f. 20.1.1925, d. 12.8. 1958, síðast húsvörður í Reykjavík; Sigríður, f. 21.1. 1926, fyrrv. húsfreyja í Hvammi í Holtum, nú búsett á Hellu en maður hennar er Elimar Helgason og eiga þau eina dóttur; Óðinn, f. 7.2. 1927, fyrrv. verkstjóri, búsettur á Stóru-Völlum í Landsveit; Þór, f. 7.2. 1927, bílstjóri, búsettur að Rangá í Djúpárheppi; Vallaður, f. 16.4. 1928, sendibílstjóri í Reykja- vik, en kona hans er Ólöf Brandsdóttir og eignuð- ust þau þrjár dætur; Gunnur, f. 4.1. 1930, húsfreyja í Holtsmúla í Skagafirði, en maður hennar var Sigurður Ell- ertsson, nú látinn, og eignuðust þau fjögur böm; Þýðrún, f. 19.1. 1931, húsmóðir og starfsmaður við gæsluvelli í Reykjavík, en maður hennar er Sigurður V. Gunnarsson, þau eignuðust fjóra syni; Atli, f. 18.8. 1933, bílstjóri í Reykjavík, en kona hans er Margrét S. Einarsdótt- ir og eiga þau fióra syni; Ragnheið- ur, f. 18.8. 1933, húsfreyja á Breið- dalsvík, en maður hennar er Stefán Stefánsson og eiga þau þrjú böm; Ása, f. 19.1.1935, húsmóðir í Hafnar- firði, en hennar maður er Gunnar Gunnarsson og eiga þau fiögur böm; Guðrún, f. 9.6. 1938, húsmóðir á Hellu, en maður hennar er Stein- þór Runólfsson og eiga þau fiögur börn. Foreldrar Jens: Páll Jónsson, f. 10.1. 1890, d. 29.10. 1943, bóndi á Stóru-Völlum í Landsveit, og k.h., Sigriður Guðjónsdóttir, f. 9.8. 1900, d. 26.2.1988, húsfreyja. Þau bjuggu á Stóru-Völlum 1924-50 en Sigríður bjó síðan í Reykjavík. Ætt Páll átti sjö systkini og komust sex til fiúlorðinsára, Guðmundur, Þuríður, Torfi, Þorgils, Ingibjörg og Amgrímur. Páll var sonur Jóns Guðmundssonar, ráðsmanns á Keld- um og síðar b. á Ægisíðu, og Guð- rúnar Pálsdóttur. Foreldrar Jóns vom Guðmundur Brynjólfsson, b. á Keldum, og Þuríður Jónsdóttir. For- eldrar Guðrúnar voru Páll Guð- mundsson, b. á Selalæk, og Þuríður Þorgilsdóttir. Jens er að heiman. Jens R. Pálsson. Kristinn Alexandersson Kristinn R. Alexandersson, Ira- bakka 10, Reykjavík, er fimmtugur i dag. Starfsferill Kristinn fæddist í Reykjavik og ólst þar upp í Miðbænum. Hann var i Miðbæjarskólanum og Mela- skólanum og stundaði síðan nám við Gagnfræðaskóla Austurbæjar. Kristinn var sendisveinn hjá Pósti og sima á unglingsárunum og stundaði síðan almenn verka- mannastörf. Kristinn hóf störf sem starfsmað- ur við Sundlaugarnar í Laugardal 1960 og starfaði þar til 1972. Jafnframt öðrum störfum var Kristinn trommuleikari um árabil. Hann lék með ýmsum dans- hljómsveitum en lengst af með Hljómsveit Þorsteins Guðmunds- sonar frá Selfossi. Þá hefur Kristinn stundað listmálun frá unga aldri en hann hefur sinnt því töluvert nú síðustu árin að mála átthagamyndir eftir ljósmyndum. Fjölskylda Kristinn kvæntist 27.3. 1970 Sig- ríði Jónsdóttur, f. 27.11. 1932, húsmóður. Hún er dóttir Jóns Hjör- leifssonar, bónda, oddvita og sím- stöðvarstjóra í Skarðshlíð undir Austur-Eyjafiöllum, og Guðrúnar Sveinsdóttur húsfreyju. Böm Kristins og Sigríðar em Heiðar Kristinsson, f. 20.1. 1970, tölvufræöingur hjá Magnúsi Kjar- an, búsettur í Reykjavík; Marta Kristinsdóttir, f. 3.1. 1971, starfs- maður hjá Dagvist bama, búsett í Reykjavík, en sonur hennar er Kristinn Þór Steingrfrns- son, f. 1989. Stjúpdóttir Kristins er Guðrún Jóna og á hún einn son, Sigurð Jón. Kristinn er elstur fimm systkina sem öll eru á lífi. Systkini hans era: Ámi, f. 14.1. 1942, búsettur í Grímsnesi; Heiðar, f. 2.6. 1944, rafvirki á Selfossi; Sigrún, f. 21.11. 1945, starfsmaður hjá Sjálfs- björg í Reykjavík. Hálfbróðir Kristins er Þorsteinn Jóhannsson, f. 10.10.1950, starfsmaður hjá Mjólkurbúi Flóa- manna á Selfossi. Foreldrar Kristins era bæði látin en þau vom Alexander Reinholt Geirsson, f. í Litla-Lambhaga á Akranesi, 21.8. 1911, bifreiðarstjóri og síðar starfsmaður við Sogsvirkj- un, og f. k. h., Gestheiður Árnadóttir, f. í Reykja- vík, 8.6. 1919, húsmóðir. Ætt Foreldrar Alexanders voru Geir Jónsson, verkamaður, sjómaður og b. á Bjargi á Akranesi, og kona hans, Gróa Hall- dórsdóttir frá Reyni. Geir var sonur Jóns Guð- mundssonar skósmiðs og konu hans, Sigríðar Kristjánsdóttur. Foreldrar Gróu voru Halldór Ólafsson á Reyni og kona hans, Þorlaug Sigurðardóttir. Gestheiðxn var dóttir Áma Áma- sonar kirkjuvarðar og konu hans, Elísabetar Árnadóttur. Kristinn Alexandersson. Fréttir Með vífið í lúkunum: Lífleg sýning Leikfélags Selfoss Að frumsýningu lokinni, leikendum fagnað. allir leikendur hafi skilað sínu hlut- verki frábærlega vel þannig að leik- ritið sem heild var þannig að erfitt var að gera upp á milli hæfni leik- enda. Leikur Davíðs Kristjánssonar sem Stanley bar þó af öðrum að dómi undirritaðrar. Hraðinn var mikill og varð maður stundum að „spenna eyrun“ til að heyra til leik- aranna þegar hlátur gesta yfir- gnæfði rödd þefrra. Hér er um frá- bæra skemmtun að ræða sem ekki aðeins kitlar hláturtaugamar held- ur gengur mjög nærri því að kæfa þær. Á það við um leikritið allt þótt fyrri hlutinn hafi e.t.v. verið enn hlægilegri en eins og oft í forsum verður „vitleysan" meiri því lengra sem dregur. Sviðsmynd var sérlega vel útfærð og var greinilega gert mikið úr þeirri aðstöðu sem leikfé- lagið hefur í þessu fyrrverandi skólahúsi. -eh Your Wife og er mörgum aðdáend- um gamanleikrita kunnugt. Hér er um að ræða dæmigerðan farsa sem byggist á misskilningi á misskilning ofan. Leikritið fiallar um John Smith leigubílstjóra (Eyjólfur Pálmason) sem er „óvart“ kvæntur tveimur konum og tilrarm- ir hans til þess að koma sér hjá að upp um hann komist. Söguþráður- inn tekur á sig æ skrautlegri mynd- ir eftir því sem yfirhylming vinar hans, Stanleys (Davið Kristjánsson), og lygi beggja eykst þegar þeir reyna að koma í veg fyrir að eigin- konumar viti hvor af annami. Með hlutverk eiginkvennanna fara þær Guðrún Halla Jónsdóttir og Guðfinna Gunnarsdóttir og skila þær hlutverkunum með prýði þótt í farsanum hafi hlutur kvenna verið óneitanlega minni en karla. Sigur- geir Hilmar Friðþjófsson fór á kost- um í hlutverki Porterhouse en Sig- urgeir er kunnur leikari hér sunn- anlands. Hvergerðingurinn Stein- dór Gestsson lék tiltölulega lítið hlutverk sem homminn í farsanum en hann vakti einna mesta athygli og hlátim leikhússgesta. Segja má að DV, Hverageröi; Föstudaginn 8. janúar framsýndi Leikfélag Selfoss leikritið Með vífið í lúkunum eftir Ray Cooney. Á frummálinu nefnist leikritiðRun for Davíð Kristjánsson í hlutverki sínu sem Stanley í leikritinu Með vífið í lúkunum. DV-myndir eh Tll hamingju með afmælið 18. janúar 90 ára Kristján Guðbjartsson, Dvalarheimilinu Höfða. Akranesi. 85 ára Þórður Tómasson, Melabraut 24, Seltjarnamesi. 80 ára Jakob G. Pétursson kennari Silfúrgötu 6, Stykkishólmi. Sigurlaug Sveinsdóttir, Austurbyggð 17, Akureyri. 75 ára Gísli Auðunsson, Lindarbraut 2, Seltjamamesi. Snorri Guðlaugsson, Starmýri 1, Djúpavogi. 70 ára Guðsteinn Pálsson, Víghólastíg 17, Kópavogi. 60 ára Guðmundur Valdimarsson, Austurgötu 26, Hafnarfirði. 50 ára Ágúst Geirsson, Melbæ 29, Reykjavik. Ámi Skúli Gunnarsson, Hrafiihólum 6, Reykjavík. Guðrún Eyjólfsdóttir, Fljótaseli 14, Reykjavík. Ólöf Ólafsdóttir, Norðurbrún 4, Reykjavík. 40 ára Ármann Árnason, Ásgarði 5, Keflavík. Ámi Magnússon, Túngötu 18, Patreksffrði. Björk Baldursdóttir, Brjánsstöðum, Selfossi. Drtfa Áraadóttir, Uppsölum, Varmahlið. Haukur Geirmundsson, Barðaströnd 39, Seltjamamesi. Ingunn Anna Helgadóttir, Holtsgötu 6, Reykjavík. Oddrún Hulda Einarsdóttir, Fífuseli 39, Reykjavík. Ólafur Magnússon, Einholti 2 C, Akureyri. Sigríður Guðný Sverrisdóttir, Dvergabakka 14, Reykjavík. fs. www.visir.is FYRSTUR MEO FRETTIRNAR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.