Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1999, Page 40

Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.1999, Page 40
Vinningstölur laugardaginn: 17X10X16^25 32 FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Vinningar Fjöldi vinninga Vinnings- upphæð 1. 5 af 5 0 3.448.620 2. 4 af 5+S©’ 2 164.180 3. 4 af 5 59 9.600 4. 3 af 5 2.211 590 Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Markaðsmaður ársins: Valur Valsson tilnefndur Mörg beinbrot Nú þegar snjór og hálka er um allt eru beinbrot ótvíræðir fylgifisk- ar. Hlynur Þorsteinsson, læknir á slysavarðstofu Sjúkrahúss Reykja- víkur, sagði í gærkvöld að um helg- ina hefði verið frekar hátt hlutfall beinbrota. Mest er um handar-, úln- liðs- og ökklabrot. -SJ Allt hlutafé í KR rann út Útboð á hlutafé í Knattspymufélagi Reykjavíkur, KR-Sporti, er lokið. Allt hlutaféð seldist og fengu færri en vildu að sögn Jafets Ólafssonar sem sá um útboðið. Yfir þúsund manns skrif- uðu sig fyrir hlutafé. Segir Jafet ljóst að það verði að skerða hluti þeirra sem skrifuðu sig fyrir stærstu hlutunum. Alls voru 50 millj- ónir króna boðnar til sölu en hefði Jafet Olafsson. þurft að vera um 70 milljónir til að mæta eftirspurninni. Jafet sagði við DV í gærkvöld að meðal kaupenda hefðu verið bæði stuðningsmenn KR sem vildu með hlutafjárkaupum styrkja sitt félag en einnig fjárfestar sem litu á kaupin sem góða fjárfestingu. - En verða KR-ingar íslandsmeistarar út á þetta? „Það er nú kannski annað mál og óvarlegt að spá um það. Hlutafjár- útboðið eitt og sér hjálpar kannski ekki félaginu yfir þann erfiða hjalla," sagði Jafet Ólafsson. -SÁ 550 5555 MANUDAGUR 18. JANUAR 1999 Vcúur Valsson, bankastjóri fs- landsbanka, hefur verið tilnefndur af íslands hálfu til verðlaunanna markaðsmaður árs- ins á Norðurlönd- um. Valur Valsson staðfesti tilnefning- una í samtali við DV í gærkvöld. Einn íslendingur Valur Valsson, hefur áður hlotið bankastjóri Is- þessi verðlaun, Jón landsbanka.. óttar Ragnarsson, þáverandi sjónvarpsstjóri. Hann hlaut þau fyrir að koma Stöð 2 á fót. Verðlaunin eru veitt á vegum sam- taka norræns markaðsfólks en Val- ur er tilnefhdur til verðlaunanna af samtökunum ÍMARK sem aðild eiga að hinum norrænu samtökum. „Þetta er að verulegu leyti fólk- inu í bankanum öllum að þakka. Það er verið að veita starfsfólkinu viöurkenningu þó ég hafi verið til- nefndur sem persóna," sagði Valur við DV. -SÁ Snjóflóð féll á Birkihlíð: Glerbrotum rigndi yfir fólk Margrét Dögg Hilmarsdóttir, starfsmaður Húsdýragarðsins, veiðir veikan kóp upp úr Reykjavíkurhöfn sem menn í sjóbúð Slysavarnafélagsins höfðu komið auga á. A baki kópsins var kýli á stærð við handbolta sem sérfræðingar stóðu ráðþrota gagnvart. Var dýrið flutt í Húsdýragarðinn til frekari rannsókna. DV-mynd HH Snjóflóð féll úr hlíð fyrir ofan bæinn Birkihlíð í Ljósavatnsskarði um kl. 14.30 á laugardag. Þar búa hjónin Lára Svavarsdóttir og Frið- rik Steingrímsson ásamt börnum sínum. Rúða í stofunni sprakk og glerbrotum rigndi yfir heimilisfólk- ið. „Yngsti sonur okkar, sem er 7 ára, var frammi í eldhúsi og við heyrðum að þar sprakk rúða,“ seg- ir Lára. Enginn meiddist í atgang- inum. Mikill snjór kom inn í eldhúsið og reyndar líka inn í stofu. Véla- geymslan varð verst úti. Heyvinnu- tæki og dráttarvélar liggja eins og hráviði um allt. Búið er að bjóða fjölskyldunni áfallahjálp. Hún dvel- ur á næsta bæ, hjá foreldrum Láru. „Tíminn verður að leiða í ljós hvað við gerum en þetta er eitt- hvað sem við verðum að endur- skoða. Tvö snjóflóð hafa fallið á stuttum tíma en þaðþýðir breyttar forsendur.“ -SJ 26 hross lentu í snjóflóöi - tvö drápust: Lamandi tilfinning að koma að hrossunum 13-14 hross grófust í snjóflóði með þeim afleiðingum að 2 drápust og nokkur hlutu talsverð meiðsl við bæinn Kross, skammt sunnan Hofs- óss, snemma í gærmorgun. Samtals 26 hross voru á svæði þar sem um 700 metra breitt flóð féll niður að þjóðvegi. „Hrossin hafa öll lent í flóðinu en um helmingur þeirra hefur krafsað sig út eða lent ofan á því,“ sagði Ingibjörg Ólafsdóttir, ábúandi á Krossi. Hún sagði að aðkoman hefði verið skelflleg. Ingibjörg telur að flóðið hafi að líkindum fallið upp úr klukkan sex um morguninn. „Þegar vegagerðarmenn létu okk- ur vita um snjóflóðið, á milli klukk- an átta og nlu um morguninn, datt okkur strax í hug að hrossin hefðu orðið fyrir þvi, þau voru í þeirri línu því okkur var sagt að heyrúll- umar væru komnar niöur að vegin- um,“ sagði Ingibjörg. „Aðkoman var óskaplega ónotaleg. Maður varð hálflamaður að sjá skepnurnar svona.“ sagði Ingibjörg. „Sums staðar sá maður bara í lappir. Þar sem við sáum í höfuð reyndum við að moka frá vitum hrossanna. Svo var geng- ið í að moka þau upp. Hrossin voru mjög hrædd en róuðust og hættu að hneggja þegar við komum, fómm að hjálpa til og töluðum við þau. Þau voru orðin svo dofin, búin að fara langa vegalengd með flóðinu og í gegnum girðingcir. Við þurftum líka að klippa af þeim vira sem þau voru vafin í, sum talsvert blóðug.“ Ingibjörg sagði að björgunarað- gerðir hefðu staðið yfir, hjá sam- tals níu manns, til hádegis: „Maður veit ekkert um framtíð- ina hjá hrossunum, sum eru hölt.“ Þau hross sem lifðu voru rekin á góðan stað heima undir bænum. „Þau sem voru verst haldin vom sett inn,“ sagði Ingi- björg Ólafsdóttir. -Ótt Sáu bara lappir „Hrossin lágu undir snjónum en sum höfðu barist um og brotist út og stóðu yfir hinum hneggjandi," Ágreiningur um mannaráðningar hjá Reykjavíkurborg: Raðið an auglýsingar Tveir nýir starfsmenn, Halldóra Gunnarsdóttir og Vilhjálmur Kristjánsson, voru ráðnir til starfa hjá þróun- arsviði borgar- innar í síðustu viku án þess að störfin væru aug- lýst. Guðlaugur Þór Þórðarson, borgarfulltrúi minnihluta Sjálf- stæðisflokksins í borgarstjóm, gagnrýnir ráðningar. Guðlaugur Þór Þórðarson. þessar „Það var eitt af kosn- ingaloforðum R-jistans að auglýsa allar stöður hjá horginni. Það lof- orð hefur hann svikið eins og svo mörg önnur. Yfirstjómarbákn R- listans þentst út. Kostnaðurinn hefur aukist um 120 þúsund krón- ur hvern virkan dag á kjörtímabil- inu,“ sagöi Guðlaugur í við DV. Helgi Hjörvar, borgarfulltrúi R- listans, sagði við DV að á miðju síðasta kjörtímabili hefði R-listinn sett borginni starfsmannastefnu. í henni segi að stöður skuli að jafn- aði vera auglýstar en þar sé jafn- framt talað um að starfsmenn borgarinnar skuli eiga kost á framgangi I starfi. Hann segir að Halldóra sé starfsmaður borgar- innar sem hafi verið ráðin í sér- verkefni fyrir þremur árum og sé nú að flytjast til í starfi innan borgarinnar. Um Vilhjálm sé líkt farið. Hann hafi hátt á annað ár unnið að verkefn- Helgi Hjörvar. um fyrir borgina i árangursstjóm- un. Hann muni vinna á því sviði áfram sem fastráðinn í stað þess Veðrið á morgun: Afram frost Á morgun verður norðaustan- átt, allhvöss á Austfjörðum en víða kaldi eða stinningskaldi annars staðar. Snjókoma verður á Austfjörðum og él norðan til en skýjað og þurrt sunnanlands. Frost verður 2 til 7 stig. Veðrið í dag er á bls. 45. MERKILEGA MERKIVELIN brother pt-2qq Islenskir stafir Taska fylgir 8 leturgerðir, 6 stærðir 6, 9, 12, 18 mm borðar Prentar í 4 línur Aðeins kr. 6.995 1 Nýbýlavegi 28 Sími 554 4443 Veffang: www.if.is/rafport Maggi -gœði, úrval og gott verð * / 1 / / / / / / / / / / / / / / / / / /

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.