Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1999, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1999, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1999 Fréttir Stuttar fréttir dv íslendingur sem rak bar á Benidorm með óvæntan framburð í e-töflumáli Bretans: Sagðist hafa samið við lögregluna - hún hefði lofað sér að láta eigin mál niður falla ef „eitthvað stórt kæmi í staðinn“ „Þetta er oröið allt annað mál en við lögðum upp með,“ sagði Ragnheiður Harðar- dóttir, sækjandi í réttarhöld- um í gær í máli Bretans Kio Alexander Briggs sem er ákærður fyrir að flytja inn 2030 e-töflur sem voru inn- pakkaðar í Nike-tösku, inn- an um háskólaboli og jogg- ing-buxur, þegar hann kom til íslands í byijun septem- ber. Málið tók mjög óvænta stefhu, svo ekki sé meira sagt, þegar eitt aðalvitnið - íslenskur karlmaður á þrí- tugsaldri, sem rekið hefur bar í diskótekinu KU í Benidorm, sagði skyndilega - þvert ofan í rannsóknar- gögn málsins - að hann hefði gert samning við íslensku lögregluna í lok ágúst. Ef hann hjálpaði lögreglunni í þessu e-töflumáli myndi verða „hægt að semja“ um Fjórir lögreglumenn komu með Kio Briggs í réttarsalinn. Dagurinn í gær var ekki mjög óhag- stæður Bretanum. Hins vegar hallaði mjög á vitni sem var grunað á fyrri stigum málsins en ekki þóttu efni til að ákæra. DV-mynd Hilmar Þór hún myndi hafa þetta í huga í framtíðinni. „Ertu þá að meina að þú munir verða með fíkniefna- mál í framtíðinni?“ spurði sækjandinn þá, fremur hvasst. „Nei, nei,“ svaraði þá vitn- ið. Lögreglan mun að lík- indum neita Við þessi tíðindi gjör- breyttist andrúmsloftið í rétt- arsainum - að vitni hefði haft vitneskju um fíkniefni ytra (í höndum Briggs þegar hann var að pakka niður til ís- lands) og þannig nánast stuðlað að því - með því að lána Bretanum fyrir farmið- anum - að þau kæmust til ís- lands, aflt í þeim tflgangi að koma sér í mjúkinn hjá lögg- unni og fá eigin mál, í nútíð að láta fikniefnamál sem hann átti óafgreitt falla niður. Og reyndar væri lögreglan tilbúin að semja við hann um mál í framtíðinni. Allir í réttarsalnum urðu mjög undrandi að heyra þennan fram- burð. Helgi Jóhannesson, verjandi Briggs, tók þessi orð vitnisins óstinnt upp og hélt því fram að með þessu hefði myndast ásetningur hjá vitninu um að stuðla að því að stór sending af e-töflum yrði send til ís- lands. Lítum betur á málið. „Sóló“ í vitnastúku Þegar Kio Briggs var handtekinn í Leifsstöð sagðist hann hafa verið að koma hingaö sem ferðamaður. Hjá lögreglu sagöi hann síðan að hann hefði ætlað aö fá pláss á tog- ara. „Mér var sagt að nóg væri að fara niður á höfn og spyija um pláss,“ sagði Briggs um þetta í gær. - Spurður hvers vegna hann hefði ekki komið betur undirbúinn til landsins í þeim tilgangi að fara á fiskibát eða togara - hvorki með vinnuföt né peninga - örfáa peseta og innan við eitt hoflenskt gyllini, sagðist hann hafa talið sig vera með greiðslukort sem vinkona hans hefði heimilað honum að nota en það fannst ekki í fórum hans. Þrír ungir menn voru í upphafi grunaðir um að hafa staðið að innflutningnum með Kio Briggs. Þegar rannsókn lauk taldi ákæruvaldið hins vegar ekki sannanir fyrir hendi til að ákæra þá. Það var einn þessara manna sem kom mjög á óvart í rétt- arsalnum í gær. Hann kvaðst hafa séð Kio pakka e-töflunum niður, í húsnæði sem hann leyfði Bretanum að dvelja í áður en hann færi til Islands. Hann kvaðst líka hafa lánað honum fyrir farmiða. Síðan, kvöldið áður en Kio fór til íslands frá Alicante, kvaðst hann hafa hringt i vin sinn í lögregl- unni hér heima og síðan komist í samband við Ás- geir Karlsson hjá fikniefhadeUd- inni. Þeir hafi talið að hægt yrði að semja um að fikniefnamál á hendur þessum umrædda íslendingi yrði látið niöur faUa. „Er það málið sem dómur gekk í í seþtember,“ spurði þá sækjandinn. „Já, það er það,“ svaraði maðurinn og sagði jafnframt að lögreglan hefði sagt sér, eftir að Kio var hand- tekinn, að of seint hefði verið að láta málið faUa niður. Síðan sagði hann að lögreglan hefði lofað sér að eða framtíð, feUd niður. Þetta þýðir að leiða þarf ýmsa lögreglu- menn fyrir dóminn. Einnig er lík- legt að yfirheyra þurfi umrædda þremenninga aftur - íslendingana sem voru á Spáni þegar Briggs fór heim tU íslands. Ef lögreglan neitar að hafa samið við manninn mun framburður hans standa eftir sem mjög ótrúverðugur - kannski ekki síst í ljósi þess að hann er fyrrum grunaður maður í málinu. Eftir því sem DV kemst næst mun framburður lögreglumannanna verða á þá leið að lögreglan hefði ekki samið við íslendinginn eins og hann sagði frá í dómsalnum í gær. Vitnið mætti með lögmann sinn, HaUvarð Einvarðsson, fyrrum ríkis- saksóknara, í dómsalinn í gær. Mað- urinn fór tvisvar í vitnastúkuna - í síðara skiptið kom hann að eigin ósk. í ljósi þessara óvæntu atburða í gær var réttarhöldunum frestað tU 3. febrúar. Fá niðurgreitt vatn Heitt vatn frá NesjavaUaveitu fer að mestu tfl nágranna- hyggða Reykja- vikur og færa má rök fyrir því að Reykvíkingar niðurgreiði heitt vatn fyrir Hafnfirðinga. Þetta segir borgarstjórinn í ReykjavUc. Hann segir jafnframt að færa megi rök fyrir því að Reykvikingar hafi þannig niður- greitt heitt vatn fyrir Hafhfirð- inga frá því samningar um heita- vatnssölu Hitaveitu Reykjavikur voru undirritaðir árið 1973. Ríkis- útvarpið greindi frá. Ekið á hrossahóp Ökumaður Lödu missti stjórn á bifreið sinni í fyrradag á svokaU- aðri Gaulveijabæjarleið með þeim afleiðingum að hann keyrði inn í hóp hrossa. Ökumaðurinn meiddist ekki en aflífa þurfti tvö hross sem slösuðust mikið. BíU- inn er talinn mikið skemmdur eða ónýtur. Nýjungar í kjarasamningum VR Gunnar PáU Pálsson, forstöðu- maður hagdeUdar Verzlunar- mannafélags Reykjavíkur, leggur tíl í erindi sem hann flutti á kjaraþingi VR á laugardaginn að famar verði nýjar leiðir í næstu kjarasamningum verslunar- manna. Hann leggur tíl að launa- taxtar verði feUdir niður en áhersla lögð á hlutdeUd starfs- manna í hagnaði vegna fram- leiðniaukningar fyrirtækja með vinnustaðasamningum og launa- hækkanir með starfsmati. Morg- unblaöið greindi frá. Grænt framboð á Vestfjörðum Stoftifundur kjördæmisfé- lags Vinstri- hreyfingarinnar - græns fram- boðs í Vest- fjarðakjördæmi, var haldinn á ísafirði á sunnudaginn. Stoftifélagar eru um 30 og var Gunnar Sigurðsson í Bolungarvík kjörinn formaðm- félagsins. í fyrrakvöld var hald- inn almennur stjómmálafundur á Hótel ísafiröi þar sem Steingrím- ur J. Sigfússon og LUja Rafney Magnúsdóttur sátu fyrir svörum. Dótturfyrirtæki Landsbankans Landsbankinn hefur stofnað dótturfyrirtækið Landsbankann- Framtak. Því er meðal annars ætl- að að leiða saman áhættufjárfesta og fyrirtæki í leit að fjármunum. Ríkisútvarpið greindi frá. Harður árekstur á Smiðjuvegi Harður árekstur tveggja bUa varð í Kópavogi um níuleytiö í fyrrakvöld. Femt var flutt á slysa- deUd tU aðhlynningar en meiðsli vom ekki talin alvarleg. Flytja þurfti báða bílana í burtu með krana. Sr. Karl í annað sæti Sr. Karl V. Matthíasson, sóknarprestur í Grundarfirði, kemur tU með að skipa annað sæti framboðs- lista Samfylk- ingar vinstri manna á Vestfjörðum í komandi alþingiskosningum. Skessuhom greindi frá. Hraðakstur í göngunum Lögreglan í Reykjavík tók þrettán manns fyrir of hraðan akstur í Hvalfjarðargöngum í fyrrakvöld. Sá sem hraðast ók var á 111 kUómetra hraða á klukku- stimd en leyfilegur hámarkshraði í göngunum er 70 kUómetrar. Rík- isútvarpið greindi frá. -SJ/ GLM/DVÓ Sendiherrann Nú er farið að fær- ast fjör í pólitíkina. Framsóknarílokkur- inn í Reykjavík hélt prófkjör um síðustu helgi og rassskeUti Finn Ingólfsson vara- formann, þegar helm- ingur kjósenda ákvað að hafna varafor- manninum. Hann þakkaði fyrir sig með því að fagna úrslitun- um. Sverrir Hermanns- son stofnaði Frjáls- lynda flokkinn um helgina og þarf ekki á prófkosningum að halda. Sverri við- hafði rússnesku aö- ferðina og lét kjósa sig með öUum atkvæðum. Svo hefur hann lækni sem varaformann og dóttur sína sem ritara tU að hafa gát á fótgönguliðunum. í Samfylkingunni er fjörið að færast i aukana, enda prófkjör í aösigi. Þar eru margir kaUaðir en fáir útvaldir. Nema einn, sem bæði er kaUaður og útvalinn. Það er Kobbi stuð, nánar tUtekið Jakob Frímann Magnússon, sem Jón Baldvin sendi tU London sem sérlegan listráðunaut og óopinberan sendiherra og Kobbi sló í gegn með magabumbu- Dagfarí slætti konu sinnar eins og frægt varð. Jakob telur Lundúnadvölina og stuðið á Stuð- böUunum vera gott veganesti inn á þing, enda hefur það sannast á Áma Johnsen að menn sem hafa tóneyra eiga þangað erindi og eru í háveg- um hafðir meðal kjósenda. Sagt er að Kobbi sé arftaki Jóns Baldvins, sem að vísu hafði aldrei tóneyra, en var góður samt. Nú er Jón raunar fluttur tU Washington og orð- inn önnum kafinn sendiherra, þannig að Jón er farinn en Kobbi er kominn. Og kemur þá maður í manns stað. Jón Baldvin gerði hlé frá annasömum störfum sinum þar vestra og skrifaði lítið lettersbréf tU fyrri skjólstæðinga sinna í Alþýðuflokknum og heitir á þá að styðja Kobba í fótspor sín. Enda er Jakob stuðmaður upplagður sendi- herra í Washington, þegar Jón Baldvin lætur af störfum, sökum reynslu sinnar frá London. En fyrst er það þingið og ugglaust má telja Jak- ob öruggan með þingsæti, eftir að sjálfur sendi- herrann í Washington lætur svo lítið að mæla með honum, enda munar Jón ekki um að stýra sínu liöi og gerast kosningasmali úr fjarlægum löndum. Aðrir prófkjörsframbjóðendur hafa amast við þessum skrifum sendiherrans og haft er eftir Merði Ámasyni að hann hafi haldið að Jón Bald- vin væri upptekinn af því að styðja Leif heppna. En Mörður misskflur stöðuna. Kobbi er nefni- lega nokkurs konar Leifur heppni vorra daga. Báðir fóru þeir Leifur og Jakob í víking og námu . önnur lönd. En báðir sneru þeir heim, ekki satt! Leifur frá Vínlandi og Kobbi frá London. Og hvers vegna skyldi þá ekki sendiherrann í Washington senda nokkrum vinum sínum bréf um ágæti Jakobs og taka þátt í þeim stríðsdansi sem háður er imdir bumbuslætti Stuðmanna? Leif heppna á þing. Það eru skflaboðin að vest- an. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.