Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1999, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1999, Blaðsíða 7
ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1999 7 Fréttir 300 milljóna snjóflóöavarnargaröur kynntur á ísafirði: 16 metra hár og ætlað að verjast aftakaflóði Frá borgarafundinum á ísafirði á laugardag. Halldór Halldórsson bæjarstjóri heldur ræðu. DV-mynd Hörður Á laugardag var haldinn almenn- ur borgarafundur á Hótel Ísafírði og kynning á hugmyndum að snjó- flóðavömum í Seljalandsmúlanum við Skutulsfjörð. Áætlaður kostnað- ur við leiðigarð er um 300 milljónir króna og þar af yrði hlutur ísafjarð- arbæjar um 30 miiijónir. Einn helsti sérfræðingur við hönnun þessa mannvirkis er Ámi Jónsson hjá Hniti og sagði hann í samtali við blaðið að við hönnun þessa garðs væri verið að ganga út frá vömum gegn mögulegu aftakaflóði. Sagði hann þekkt að minnsta kosti tvö snjóflóð sem farið hefðu niður að Seljalandi, annað um aldamót en hitt féll þar árið 1947 og fór inn í húsið og skemmdi það. Garður sem hannaður hefur ver- ið fyrir Seljalandsmúlann yrði um 700 metrar að lengd. Gert er ráð fyr- ir að hann nái frá Seljalandi og yrði lagður í mjúkum sveig upp hlíðina og eftir öxlinni á Seljalandsmúlan- um og upp að bílaplaninu við Skíð- heima. Áð sögn Áma yrði garður- inn 16 metrar að hæð fyrir ofan Seljaland og upp undir núverandi skíðaveg, en hann færi niður í 13 metra hæð uppi við bílastæðin. Til samanburðar era vamargarðar fyr- ir ofan Flateyri hæstir um 20 metr- ar. Varðandi mat á raunverulegri hættu á snjóflóðum á svæðinu vitn- aði Ámi til orða Magnúsar Más veð- urfræðings sem sagði eitt sinn: Það sem aldrei hefur gerst, getur alltaf gerst aftur. Harðar gagnrýnisraddir komu fram á fundinum um fyrirhugaðan vamargarð, sér í lagi frá ábúandan- um á Seljalandi, Magna Guðmunds- syni, sem taldi slíkan garð ekki rétt- lætanlegan. Kristján B. Guðmunds- son, sem mikið hefur starfað að björgunarmálum á svæðinu, setti ofan í við ísfirðinga fyrir að gera lít- ið úr hættu á snjóflóðum í ljósi þriggja stórslysa af völdum snjó- flóða á liðnum árum. Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður tók nokk- uð í sama streng er hann benti fund- armönnum á að hafa það í huga þeg- ar þeir gagnrýndu vamaraðgerðir að langstærsti hluti banaslysa af völdum snjóflóða á íslandi á síðustu áratugum hefði einmitt orðið á Vestfiörðum þar sem um 40 manns hafa farist. Halldór Halldórsson bæjarstjóri segist finna fyrir skipt- um skoðunum fólks á gerð garðsins. Halldór sagði að byggð á Tungu- skeiði fyrir botni fiarðarins væri þó algjörlega háð því að garðurinn yrði að veruleika. Hann sagði varðandi raddir um að bæjarstjóm ætti að fara sér hægt í þessu máli að það yrði gert en fiögur ár væra liðin á þessu ári frá því bæjarstjóm sam- þykkti að fara í þá vinnu sem verið var að kynna á fundinum. Sagði Halldór að litlar líkur væru á að framkvæmdir við vamargarðinn gætu hafist á þessu ári. Engin ákvörðun hefði enn verið tekin og bæjarfuiltrúar vildu skoða málið mjög vel. HKr. Opel Astra '96, ek. 10 þús. km. Ásett verð: 1.190.000. Tilboðsverð: 1.090.000. Opel Astra '97, ek. 44 þús. km. Ásett verð: 1.190.000. Tilboðsverð: 990.000. Mazda 626 GLXi Luxus '98, ek. 15 þús. km. Ásett verð: 2.100.000. Tilboösverð: 1.890.000. Nissan Sunny stw 4x4 '95, ek. 109 þús. km. Ásett verð: 1.090.000. Tilboðsverð: 890.000. Peugeot405 '91, ek. 151 þús. Ásett verð: 590.000. Tilboðsverð: 490.000. Subaru Legacy stw '98, ek. 21 þús. km. Ásett verð: 2.190.000. Tilboðsverð: 1.950.000. Chrysler Neon '95, ek. 70 þús. km. Ásettverð: 1.190.000. Tilboðsverð: 990.000. Peugeot 306,4 d., '98, ek. 22 þús. km. Ásett verð: 1.250.000. Tilboðsverð: 1.100.000. Peugeot405SRi,'91 st., ek. 127 þús. km. Ásett verð: 790.000. Tilboðsverð: 650.000. M. Benz 500 SE '91. Ásettverð: 2.150.000. Tilboösverð: 1.850.000. VW Golf Variant st. '95. Ásett verð: 1.050.000. Tilboðsverð: 900.000. Hyundai Elantra st., ssk., ek. 66 þús. km. Ásett verð: 1.280.000. Tilboðsverð: 950.000. Suzuki Baleno '96, ek. 50 þús. km. Ásett verð: 980.000. Tilboðsverð: 890.000. Dodge Caravan '92, 7 manna, ek. 150 þús. km. Ásett verð: 1.280.000. Tilboðsverð: 1.090.000. Grand Cherokee Limited '93, ek. 160 þús. km. Ásett verð: 2.200.000. Tilboðsverð: 1.990.000. Grand Cherokee Limited Orvis '95, ek. 83 þús. km. Ásett verð: 3.200.000. Tilboðsverð: 2.900.000. NÝBÝLAVEG U R 2 • SÍMI 554 2600 • OPIÐ VIRKA DAGA 9-18 Bjóðum hagstæð lán til allt að 60 mán. VEXTIR FRÁ 5% Þú getur líka fengið Visa- eða Euro- raðgreiðslur. Opið virka daga frá kl. 9-18, laugardaga frá kl. 13-17.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.