Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1999, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1999, Blaðsíða 20
24 ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1999 Iþróttir unglinga Ósigraðar hjá Val í vetur - unnu síðast FH-stúlkur og hafa unnið alla átta leiki sína í vetur í 2. flokki Það slær enginn Valsstúlkum við í 2. flokki kvenna í vetur, eða allavega enn þá. Áttundi sigurinn i átta leikjum kom gegn FH á dögunum, 21-20, og hafa Valsstúlkur nú unnið báða leikina gegn FH í vetur. FH er þeirra helsti keppunautur ásamt Gróttu/KR en það má segja að þessi þrjú lið skeri sig nokkuð úr. Þannig eru liðin sem spiluðu til úrslita í fyrra hvergi sjáanleg nú, Stjaman situr á botninum og íslandsmeistarar Víkinga eru ekki með lið. Þaö er því ljóst aö þeir verja ekki titilinn í vetur og Valsstúlkur eru núna líklegastar til að taka við krúnunni. Leikur Vals og FH var vel leikinn og bauð upp á flestallt sem handboltinn hefur upp á að bjóða. Heimamenn í Val höfðu frumkvæðið aílan leikinn og leiddu 12-6 í háifleik. Valsstúllur urðu samt fyrir miklu áfalli í fyrri hálfleik er lykilmaður þeirra og byrjunarmaður í meistaraflokki, Hafrún Kristjánsadóttir, meiddist á ökkla. Hún gat ekki verið meira með í leiknum. Valur komst síðan í 16-8 en þá var sem FH-stúlkur færu að taka viö sér og á næstu 20 mínútum skoruðu þær 11 mörk gegn 3 og náðu að jafna leikinn í 19-19. Sigurmark Vals skoraði síðan Marín Sörens, sem er enn í 3. flokki en kom mjög sterk inn í lok þessa leiks og skoraði markið á síðustu sekúndum leiksins. Önnur sem er enn í 3. flokki en átti einnig stórleik var markvörðurinn Berglind Hansdóttir en annars má segja að frábær vörn beri Val langt. Valur hefur aðeins fengið á sig 132 mörk í 8 leikjum sem eru 16,5 mörk að meðaltali á sig í leik. Mörk FH komu þannig eiginlega öll úr hraðaupphlaupum eða vítaköstum en fá gegn fullskipaðri vöm Vals. Mörk Vals: Sigurlaug Rúnarsdóttir 7, Bjarney Bjamadóttir 3, Marin Sörens 3, Eygló Jónsdóttir 2, Ama Grímsdóttir 2, Þóra Helgadóttir 2, Hafrún Kristjánsdóttir 1. Berglind Hansdóttir varði 16 skot. Mörk FH: Þórdís Brynjólfsdóttir 7, Drífa Skúladóttir 3, Dagný Skúladóttir 3, Harpa Vífilsdóttir 3, Katrin Gunnarsdóttir 2, Guðrún Hólmgeirsdóttir 1. Nancy Jóhansdóttir varði 8 skot. -ÓÓJ Hið sterka 2. flokks lið Vals sem er enn ósigrað í vetur. Liðið er þannig skipað. Efri röð frá vinstri: Marín Sörens, Kolbrún Franklín, Kristfn Geirarðsdóttir, Heiður Baldursdóttir, Eva Dögg Benediktsdóttir, Þóra Helgadóttir og Bjarney Bjarnadóttir. Neðrr röð frá vinstri: Eygló Jónsdóttir, Anna M. Guðmunsdóttir, Sigurlaug Rúnarsdóttir og Arna Grímsdóttir, fyrirliði og stjórnandi sigursöngva. Á myndina vantar Hafrúnu Kristjánsdóttur. Þjálfari er Boris Abkachev. Úrslit leikja í 2. flokki kvenna Stjaman-Fram................0-10 Grótta/KR-ÍR...............24-11 Valur-Fjölnir..............23-11 Grótta/KR-Fram.............28-15 FH-Valur...................19-24 Fjölnir-Stjaman.............10-0 Stjaman-FH.................15-42 Völsungur-Stjaman .........14-13 FH-Grótta/KR ..............25-26 Fram-Fjölnir ..............11-10 Grótta/KR-Fjölnir .........41-14 FH-Völsungur ..............28-15 Valur-Völsungur ...........26-15 FH-Fram ...................34-18 Valur-Stjaman..............32-22 Grótta/KR-Valur ...........17-18 Fjölnir-FH .............FH vann Stjaman-Grótta/KR .........19-30 Völsungur-Fjölnir..........24-11 Fram-Valur ................11-39 Fjölnir-Valur..............18-36 Fram-Stjaman...............22-26 Valur-FH...................20-19 Staðan Valur 8 8 0 0 16 Grótta/KR 5 4 0 1 8 FH 7 4 0 2 8 Völsungur 4 2 0 2 4 Fram 6 2 0 4 4 Fjölnir 6 10 5 2 Stjarnan 7 10 6 2 Umsjón ÓskarÓ.Jónsson Myndir frá hinum æsispanndi leik Vals og FH f 2. flokki kvenna sem fram fór á dögunum. Lengst til vinstri reynir Marín Sörens að brjótast fram hjá þeim Katrínu Gunnarsdóttur og Drífu Skúladóttur, varnarmönnum FH. Marín sést hér síðan skora sigurmark sitt í leiknum aðeins nokkrum sekúndum fyrir leikslok með góðu gegnumbroti. Lengst til hægri skoraði markahæsti lelkmaður Vals, Siguriaug Rúnarsdóttir, eitt af sjö mörkum sínum en Sigurlaug lék mjög vel í leiknum. DV-myndir ÓÓJ Samstarf HK og Víkings: Sameinaðar stöndum vér Það er farið að aukast að félög vinni saman að ýmsum góðum mál- efnum og eitt skemmtilegt dæmi um það er samstarf Víkings og HK í að gera út sameiginlegt lið félaganna í 3. flokki kvenna i knattspymu. Þegar ljóst var að ekki næðist í nægilega margar stelpur til að æfa fyrir næsta sumar hjá báðum félögum var haft samband yfir Foss- vogslækinn en eins og menn vita eru félögin staðsett bæði í Fossvogs- dalnum, Víkingur Reykjavíkurmeg- in og HK Kópavogsmegin. Það að þessi lið séu hvort í sínu bæjarfélaginu gerir þessa samein- ingu enn þá skemmtilegri þar sem hið nýja lið í 3. flokki er löglegt í öll mót á höfuðborgarsvæðinu, bæði Reykjavíkurmót og Faxaflóamót. Kostur þessarar sameiningar er sá að þessar stelpur fá vettvang til að æfa og keppa á og enn fremur fá þær úr nógu af mótum að moða á þessu sumri. Ef ekki hefði orðið af þessari sam- einingu mætti telja víst aö hvoragt félagið hefði haldið úti liði næsta sumar en þess í stað fá stelpurnar nóg að gera í sumar. Hér má sjá hið nýja lið HK/Víkings í 3. flokki kvenna í knattspyrnu. Félögin hafa gert með sér eins árs samning um að halda úti sameiginlegum flokki. Á þessarri mynd má enn fremur sjá hinn nýja búning hins sameiginlega liðs.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.