Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1999, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1999, Page 13
ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1999 13 Einstæðir foreldrar þurfa líka að lifa „Fram hefur komið að fylgni er milli þjóðfélagsstöðu foreldra og heilsu- fars barna þeirra.“ - Myndin er úr myndasafni DV. skortir til þess pólitískan vilja. Við í samfylkingunni erum reiðu- búin að framkvæma slíka stefhu. Einstæðir foreldrar eiga skilið betri stjómarstefnu, en þá sem þeir búa við í dag. Ailir eiga rétt á að geta lifað með reisn. Jóhanna Sigurðardóttir Nýverið var vakin at- hygli á því að fjöldi ein- stæðra foreldra sem leita þarf fjárhagsað- stoðar hefur aukist verulega á sl. árum og er nú um þriðjungur þeirra sem leita sér framfærsluaðstoðar hjá Reykjavíkurborg. Á sama tima hefur fækk- að í öðram hópum sem þurfa aðstoð. Tekjur og framfærsla Framfærslukostnað- ur vegna bama 16 ára og eldri er mjög mikill. Könnun sem Félag ein- stæðra foreldra lét gera fyrir nokkrum árum sýndi að framfærslukostnaður barna á aldrinum 13-15 ára var þá áætlaður um 500 þús. kr. árlega. Algengar árstekjur einstæðra for- eldra eru 800 þúsund til ein millj- ón á ári. Einnig hefur verið bent á að einstæðir foreldrar fengu minni launahækkun á sl. ári en aðrir á vinnumarkaði. Hækkun atvinnutekna milli ár- anna 1996 og 1997 hjá einstæðum foreldrum var um 5% meðan hækkun annarra var um 7%. Fram hefur komið að fylgni er milli þjóðfélagsstöðu foreldra og heilsufars barna þeirra. Líka í því samhengi hlýtur það að vera alvar- legt umhugsunar- efni, að einstæðir foreldrar eru að stórum hluta lág- launafólk. Húsaleigubæt- ur og persónu- afsláttur Undirrituð hefur lagt fram á Alþingi tvö brýn mál sem verulega munu bæta hag einstæðra foreldra. Um er að ræða skattfrelsi húsaleigubóta og að einstæðum for- eldrum verði heim- ilt að nýta óráðstaf- aðan persónuafslátt barna sinna. Undirrituð ásamt fleiri þingmönn- um stjómarandstöðunnar hefur einnig óskað eftir að félagsmála- ráðherra flytji Alþingi skýrslu um kjör og að- búnað einstæðra foreldra, sem auðvelda á alla ákvarðantöku til að bæta hag þeirra. Áætla má að börn einstæðra foreldra á aldrin- um 16-19 ára séu um 5 þúsund og að kostnaður rík- issjóðs við að heimila einstæðum foreldrum að millifæra ónýttan persónuafslátt bama sinna kosti ríkissjóð um 400-500 m. kr. Með því að breyta útfærslu fjár- magnstekjuskatts, þannig að fjár- sterkir aðilar og stóreignamenn verði hinir raunverulegu greið- endur hans mætti auðveldlega ná í fjármagn til að tryggja þessar brýnu aðgerðir í þágu einstæðra foreldra. Núverandi ríkisstjórn Kjallarinn Jóhanna Sigurðardóttir alþingismaður Undirrituð hefur lagt fram á Al- þingi tvö brýn mál sem verulega munu bæta hag einstæðra for- eldra. Um er að ræða skattfrelsi húsaleigubóta og að einstæðum foreldrum verði heimilt að nýta óráðstafaðan persónuafslátt barna sinna.“ Refsingar við fíkniefnabrotum Ég hef ásamt Gísli Einarssyni lagt fram á Alþingi frumvarp um að herða refsingar við fikniefna- brotum sem eru eitt alvarlegasta vandamál nútímans. Við leggjum til að taka upp tveggja ára fang- elsi sem lágmarksrefsingu fyrir alvarleg flknefnabrot eins og stór- fellt smygl og sölu á eiturlyfjum. í núgildandi lögum er engin lág- marksrefsing. Við leggjum einnig til að hámarksrefsing fyrir alvarleg fíkni- efnabrot verði hækk- uð úr 10 árum í 12 ár. brot hérlendis er 6 ára fangelsi. Erlendis eru víða mun þyngri dómar við sölu og smygli á fíkni- efnum. Með frumvarpinu er vilji lög- gjafans gerður skýr fyrir dóm- stóla og almenning. Vitaskuld þarf að efla önnur úrræði eins og aukna fræðslu, forvarnir og með- ferðarúrræði ungmenna sem hafa ánetjast eiturlyfjum. Einnig er Vilji löggjafans gerður skýr Almenningur vill aðgerðir. Kannanir vísindamanna sýna að almenningur telur að fíkniefnabrot séu al- varlegust allra af- brota. Yfir 80% fólks telur að refsingar séu of vægar. Þjófnaðir og líkamsárásir hafa aukist verulega en refsingar hafa lítið breyst í 50 ár. Þyngsti dómur fyrir fikniefna- „Það á að svæla út stjórnendur og peningamennina á bak við eit- urlyfjaviðskiptin. Það þarf að taka forustu í baráttunni gegn þessum ófögnuði. Hertar refsing- argegn alvarlegum fíkniefnabrot- um eru hluti af árangursríkum að- gerðum.u brýnt að styrkja starf lögreglu, m.a. með auknu fjármagni til að berjast gegn eiturlyfjum. Auknar refsingar eru ekki alltaf besta úrræðið gegn glæpsamlegu at- hæfi en gagnvart fíknefnabrotum þarf að herða refsingar eins og gert er hjá öðrum þjóðum. Ungt fólk deyr Eiturlyfin verða sí- fellt hættulegri og brýnt er að grípa í taumana. Við bendum einnig á einfalda leið í frumvarpinu sem lið í baráttunni, þ.e. að á Keflavik- urflugvelli ætti að vekja sérstaka at- hygli á þungmn dómum við fíknefhasmygli en sambærileg- ar aðvaranir eru víða erlendis með góðum árangri. Margir þekkja áhrif eiturlyfja. Flestir unglingar þekkja afleiðingar þessa og sögur af félögunum. Margar fjölskyldur eiga um sárt aö binda. Fíölmargir íslendingar, Kjallarínn Agúst Einarsson alþingismaður einkum ungt fólk, hafa látið lifið af völdum eiturlyfja. Skipulagður at- vinnuvegur neð- anjarðar Velta íslenska eitur- lyfjamarkaðarins er 1 til 1,5 milljarðar kr. á ári. Það er meira en forseta- embættið, Hæstirétt- ur, Alþingi og for- sætisráðuneytið kosta samanlagt. Hér er um umfangs- mikinn og skipu- lagðan atvinnuveg að ræða og hann er allur neðanjarðar. Það á að svæla út stjómendur og peningamennina á bak við eit- urlyfjaviðskiptin. Það þarf að taka forustu í baráttunni gegn þessum ófögnuði. Hertar refsing- ar gegn alvarlegum fikniefnabrot- um eru hluti af árangursríkum aðgerðum. Ágúst Einarsson Með og á móti Er ávöxtun á verðbréfa- markaði að hrapa niður í 3-5%? Gera fjárfestar sig ánægða með slíka ávöxtun? Menn hafa ekkert val „Það er eiginlega ekki spurning um það hvað menn eru ánægðir með. Þetta er bara svona, og menn hafa ekkert val. Vextir eru að lækka. Ég held að jafnvel þessi 5% sem menn hafa reiknað með að verði lægst sé of hátt. Menn eru að tala um örugga ávÖXtun, ekki Þlnglsmaöur. áhættuávöxtun heldur eitthvað sem á að sitja eftir. Ég er ekkert endilega á því að ávöxtunin fari niður fyrir 5% en hins vegar er ég hlynntur auknum sparnaði. Fólk á að skoða það að spara meira. Sparnaöur hefur miklu meira gildi en bara það að gefa vexti. Fólk sem sparar verður svo miklu öruggara í lífi stnu - hjá þeim sem eru alltaf á núllinu má ekkert bregða út af. Málið er að það er afar hæpið að reikna með svona hárri ávöxtun eins og verið hefur undanfarin ár. Það gerist ekki yfir langan tíma og reynslan sýnir það að slíkt er mjög erfitt. Vextir eru að lækka á Verðbréfa- þingi. Á næstu árum verður gífur- lega mikið framboð af peningum. Lífeyrissjóðirnir einir og sér eru með 80 milljarða króna og það er gefið mál að það þrýstir vöxtunum niður.“ Sér hærri ávöxtunartölur „Menn tala um ávöxtunartölur á bilinu 3 til 5% á næstunni. Það eru tölur sem ég tel ótrúlegt að sjáist á næstu 5 árum. Ég sé að þær verða hærri. Fjárfestingar- kostum er skipt í þrjá flokka: innlend skulda- bréf, hlutabréf og erlend verð- bréf. Við VOram nnan nveinsson auövitað að sjá Vlösklptafræölngur. meðaltal upp á 20% á síðustu sex árum á hluta- bréfamarkaði en það gat ekki stað- ist til lengdar á meðan arðsemi fyr- irtækjanna var 5-10% og vöxtur lítill. Ávöxtunarkrafa skuldabréfa er komin niður í 4% raunvexti og minni breytingar þar fram undan en verið hafa. Erlendir verðbréfa- markaðir bjóða áhugaverð tæki- færi en áhættan getur verið mikil. Ég tel meðalarðsemi fara lækkandi en fyrirtækin á markaðnum eru fleiri og þar með aukast tækifærin. Alltaf eru til fyrirtæki sem skila viðunandí arðsemi. Menn þurfa að spekúlera í hlutabréfamarkaði og hlutabréfasjóðirnir eru í því að kanna þann markað. En svarið við spumingunni getur allt eins verið hvort fjárfestar eigi að leggjast í botnlausa neyslu í stað þess að spara, bara út af þvi að þeir sætta sig ekki við nokkra lækkun ávöxt- unar. Slíkt getur ekki talist hyggi- legt til langframa. Með skynsam- legri dreifingu fjárfestinga tel ég að menn nái mun hærri ávöxtun en 3-5%. Og skoði maður milljón sem er á 5% ávöxtun i 30 ár þá jýðir það 4,3 milljónir sem er hreint ekki slæm ávöxtun. Og menn ættu líka að skoða að ef vext- irair lækka þá vinnst margt. Minni verðbólga hefur fært okkur lægra verð á raftækjum, bílum og fleiru. Ávöxtunartalan ein og sér segir ekki alla söguna. Ég held að menn haldi áfram að spara. Hér er í raun um að ræða finan lífeyris- sjóð fyrir fólk.“ -JBP

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.