Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1999, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1999, Blaðsíða 36
I ■3 s ld < s v> O FRÉTTASKOTIO SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá I slma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö I hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1999 Grunnskóli Borgamess: Ógnaði kenn- ara með hnífi Nemandi í Grunnskólanum í Borgarnesi ógnaöi kennara með vasahnífi í lok kennslustundcir í gær. Nemandanum var vísaö tíma- bundiö úr skóla og mætir því ekki í dag. Samkvæmt upplýsingum DV varð fjöldi einstaklinga vitni að ógn- uninni, sem þó er ekki talin hafa at- vikast með þeim hætti að ætlun nemandans hafi beinlínis verið að beita vopninu. Engu að síður dró nemandinn upp hníf og beindi að kennara sínum. Kristján Gíslason skólastjóri sagði við DV í morgun að verið væri að vinna í málinu. -Ótt Bensínverð: Frekari lækkun Geir Magnússon, forstjóri Olíufé- lagsins hf„ sagði í morgun að frekari bensínlækkun væri hugsanleg á næst- tmni til viðbótar við þá 3,3% lækkun sem varð í ársbyrjun. Breytingar á heims- markaðsverði gæfu þó ekki tilefni til meiri lækkana en um nokkra aura á lítr- ann. Síðustu 12 mánuðina hefur útsölu- verð á bensíni lækkað um 9%. Sú mikla lækkun sem varð á heimsmark- aðsverði bensíns í nóvember hefur að mestu haldist. -SÁ Geir Magnús- son. Um 80 kg af pósti voru í pokunum sem fundust í bíl annars „bréfber- ans“. " „Bréfberarn- ir“ lögsóttir DV, Akureyri: „Það hlýtur að vera að mennimir verði lögsóttir," segir Guðlaugur Baldursson, stöðvarstjóri íslands- pósts á Akureyri, vegna máls mann- anna tveggja sem voru ráðnir til að bera út póst í bænum í desember en söfnuðu um 80 kg af pósti í bíl ann- ars mannsins eins og DV skýrði frá í gær. Guðlaugur sagðist eldd vita hvort íslandspóstur fengi á sig kær- ur vegna málsins. Pósturinn sem ^innihélt m.a. jólakort var borinn út í gær og fólk beðið afsökunar. -gk Umskipti urðu í gær í máli Bretans Kios Briggs, sem flutti 2030 e-töflur til íslands í september, þegar vitni, Islending- ur sem hefur rekið bar á Benidorm, sagðist hafa vitað um efnin áður en þau fóru til íslands og samið við lögregluna - um að eigin mál yrðu látin niður falla ef hann kjaftaði frá Bretanum. Sjá umfjöllun um það sem gerðist í dómsaln- um á blaðsíðu 4. DV-mynd Hilmar Þór íslenskur læknir: Fær milljarð i rannsóknarstyrk „Maður veit það aldrei hvort maður fer aftur heim, það yrði erfitt fyrir mig að vinna við svona stórverkefni á íslandi. Maður verð- ur ekki virkur alþjóð- lega séð nema með því að hafa þetta svona stórt,“ sagði Karl Tryggvason læknir í Kaupmanna- höfn í morgun. í gær tók hann við verð- launum Novo Nordisk sjóðsins, rúm- um eitt þúsund milljónum íslenskra króna, úr hendi Margrétar Þórhildar Danadrottningar. Þetta mun vera stærsti styrkur sem nokkur sjóður veitir til læknavísinda í heiminum nú. „Það er alveg klárt að upplýsingar úr íslenska gagnagrunninum munu í framtíðinni leysa ýmsar gátur sem læknavísindin glíma við í dag. Það er alveg sérstakt tækifæri fyrir ísland að koma sér fyrir sem stór aðili í vís- indasamfélagi heimsins," sagði Karl í morgun. Karl stjórnar 32 manna liði við Karolinska sjúkrahúsið í Stokkhólmi og stundar rannsóknir á sykursýki, sem þegar hafa leitt til umtalsverðrar niðurstöðu. -JBP Kolsvört skýrsla um aögerðaleysiö í málefnum Flateyringa: Nauðungaruppboðið fékk flýtimeðferð - svik bæjarstjórnar, segir Magnús Björgvinsson sem missti hús sitt „Við, fjölskylda mín og ég, fór- um mjög illa út úr þessu aðgerðar- leysi. Það var sama við hvern maður talaði, enginn gat svarað neinu,“ segir Magnús Björgvins- son sjómaður á Flateyri. Magnús er einn fómarlamba aðgerðaleysis opinberra aðila eftir snjóflóðið á Flateyri. Hús hans varð fyrir flóð- inu og eyðilagðist en hékk þó uppi. Hann hefúr síðan gengið þrauta- göngu milli Heródesar og Pílatus- ar í kerfínu og verið vísað fram og til baka án þess að fá neina niður- stöðu, hvað þá úrlausn. Svo fór að Húsnæðisstjórn hót- aði honum uppboði árið 1997. Þá sneri hann sér til bæjarstjóra ísa- fjarðarbæjar. „Hann vissi þá ekk- ert um málið né einusinni hvar eignin er,“ segir Magnús. Hann segist hafa æ ofan f æ leitað svara Magnús Björgvinsson ásamt Magn- úsi syni sínum. DV-mynd GS en verið vísað frá einum til annars innan félagsmálaráðuneytisins, þaðan í umhverfisráðuneytið þar sem sama sagan endurtók sig og koll af kolli. „Þetta var bara hring- ur og maður endaði að lokum á sama kallinum og maður byrjaði á, sem þá var kominn í sumarfrí. Það fór því svo að húsið fór á upp- boð án þess að við fengjum rönd við reist. Þeir meira að segja flýttu fyrir eins og þeir gátu svo uppboð- ið gæti farið fram. Bæjarstjómin gerði ekkert í málinu og því fór sem fór. Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri lofaði okkru að ganga í málið og flýta því að við fengjum bætur en han sveik það gjörsam- lega,“ segir Magnús. Aðspurður hvort sú gagnrýni á þessa framkomu gagnvart honum og öðrum Flateyringum í sömu Veðrið á morgun: Stormur fyrir sunnan og vestan Á morgun verður suðaustan hvassviðri eða stormur um landið sunnan- og vestanvert framan af degi en annars stinningskaldi eða allhvasst. Rigning eða slydda verð- ur sunnanlands og vestan á lág- lendi en dálitil slydda eða snjó- koma norðanlands og austan þegar líður á daginn. Hlánar á láglendi um mestallt land á morgun. Veðrið í dag er á bls. 37. stöðu sem vænta má í skýrslu Guð- jóns Petersens verði honum ein- hver hjálp í þessum þæfingi öllum svarar Magnús: „Veistu það að ég hef ekki lengur neina trú á kerfínu. Ég er búinn að tala við svo marga innan þess og reka mig á að það er ekki að marka orð af því sem þeir segja. Þeir lofa að hafa samband við mann, eins og t.d. ráðuneytis- stjóri forsætisráðuneytisins í febr- úar í fyrra. Hann hefur nú ekki « haft samband ennþá og það er að koma nýr febrúar. Maður er oft bú- inn að vera oft andvaka yfir þessu, en það er Það er ekki bara verald- legi þátturinn í þessu sem farið hef- ur illa með mann, heldur hefur þetta líka legið þungt á sálartetr- inu,“ segir Magnús Björgvinsson. Viðbrögð bæjarstjóra á bls. 2 -SÁ Maggí -gœði, úrval og gott verð MERKILEGA MERKIVELIN bíOther PT-550 ný vél tengjanleg við tölvu 8 leturgeröir, 8 stærðir, 15 leturútlit úrval strikamerkja 6 til 36 mm boröar prentar í 7 linur Nýbýlavegi 28 Sími 554 4443 Veffang: www.if.is/rafport

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.