Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1999, Blaðsíða 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1999
Neytendur
Bragöprófun á þorrabökkum:
Misjöfn gæði og
misjafnt innihald
- Kjarnafæði, Múlakaffi og SS bestir
Nú I upphafi þorra er
vel við hæfl að gæða sér
ýmsum þjóðlegum réttum
sem tengjast þessum mán-
uði. Mikið úrval er af alls
kyns tilbúnum þorramat
og súrmat í fotum fyrir
litlar og stórar fjölskyldur.
Neytendasíðan fékk
matgæðingana Sigmar B.
Hauksson og Dröfn Farest-
veit til að bragða á tilbún-
um þorramat frá átta fyrir-
tækjum. Fyrirtækin sem
voru með í könnuninni
eru Kjamafæði, Múlakaffi,
SS, Samkaup, Bónus, Goði,
KEA og kjötvinnslan í
Borgamesi. Matgæðing-
amir gáfu þorrabökkun-
um einkunnir frá einum
og upp í fimm þar sem 1
stig er gefíð fyrir mjög
vondan bakka, tvö fyrir
vondan, þrjú fyrir sæmi-
legan, fjögur fyrir góðan og
fimm fyrir mjög góðan.
Þar sem matgæðingamir
vom tveir að þessu sinni
var einkunnaskalinn frá tveimur og
upp í tíu.
Skýrt skal tekið fram að ekki er
tekið tillit til verðs bakkanna enda
er hér einungis um gæðakönnun að
ræða.
Kjarngóður bakki
Fyrst var prófaður bakki frá
Kjamafæði. Bakkinn frá Kjamafæði
fékk hæstu einkunn í könnuninni
ásamt bakkanum frá MúlakafEi og
súrmetisfötunni frá SS eða átta stig
sem þýðir gott.
Sigmar og Dröfn vom samstiga í
dómum sínum um Kjamafæði og
gáfu bakkanum hvort um sig fjögur
stig.
Sigmar sagði m.a. um bakkann:
„Nokkuð vel útilátinn bakki, úrval-
ið ágætt. Súrmaturinn olli þó von-
brigðum, var ekki nægjanlega súr
að mínu mati. Ágætur bakki en þó
athyglisvert að þar vantaði blóðmör
og lifrarpylsu.“
Dröfn var sammála Sigmari um
það að súrmeti væri ekki nægjan-
lega súrt hjá Kjamafæöi. Einnig
sagði Dröfn: „... hangikjötið of
pressað, eins og um álegg væri að
ræða. Hákarlinn var góður en dálít-
ið sérstakt að bera fram kartöflusal-
at með í bakkanum."
Klesstur bakki frá Bónusi
Næst var prófaður bakki frá Bón-
usi sem hlaut þrjú stig frá hvomm
miklu ánægðari með súr-
meti í fötu frá SS en með
súrmetið frá Goða.
Bæði gáfu SS-fötunni
fjögur stig eða samtals átta
stig. Dröfn sagði m.a.:
„Góður súr á nokkuð hefð-
bundum súrmat.“
Sigmar bætti við: „Ágætt
úrval af súrmat og súr-
bragðið hreint út sagt
ágætt.“
Bakkinn frá Múlakaffi,
sem kallaöur er hjóna-
bakki, fékk einnig samtals
átta stig hjá matgæðingun-
um.
Sigmari fannst bakkinn
vel útilátinn og lofa góðu.
Einnig fannst honum
hangikjötið fallegt og
bragðgott og súrmaturinn
ágætur.
Dröfn sagði um bakkann
frá Múlakaffi: „Fallegar
sneiðar og fjölbreytt úr-
val. Hákarlinn góður en
súrmetið mætti vera súr-
ara.“
Hrútspungar og eistu
Bakki frá kjötvinnslu Samkaups
fékk þrjú stig hjá Sigmari en fjögur
stig hjá Dröfn.
Sigmar sagði m.a. rnn bakkann:
„Hálf var þetta nú fátæklegt. Þó var
maturinn ágætlega súr. Bringukoll-
ar og lundabaggi var skást."
Næst var komið að bakka frá
Borgamesi. Sá bakki fékk tvö stig
frá Sigmari en þrjú stig frá Dröfn.
Sigmari fannst súrmaturinn hálf-
bragðlaus, grisasultan bragðlítil en
hangikjötið ágætt.
Dröfn fannst bakkinn m.a. snyrti-
legur en frekar bragðlaus.
Einkennileg samsetning
Bcikkinn frá KEA fékk samtals
fimm stig, tvö frá Sigmari en þijú
frá Dröfii.
Sigmar sagði m.a.: „Þetta var ein-
kennilega saman settur bakki. Þar
var m.a. sneið af úrbeinuðu lamba-
kjöti sem var grængrátt á litinn. Há-
karlinn var hins vegar blár á litinn
og alls ekki góður. Skástur var mag-
állinn.“
Dröfn fannst KEA-bakkinn ekki
bragðast „neitt sérstaklega vel“ og
tók einnig fram að lambakjötið
heföi veriö skrýtið á litinn.
Það er því ljóst að betra er að
vanda valið þegar halda á þorrablót
með vinum og ættingjum svo allir
fái eitthvað sem þeim líkar. -GLM
Dröfn fannst bakkinn frá Múlakaffi innihalda
góðan hákarl og vera snyrtilegur.
Sigmari fannst bakkinn frá Kjarnafæði m.a.
vera vel útilátinn og fjölbreyttur.
DV-myndir Pjetur
Þorramatur
Dröfn Sigmar Stjörnur samt.
Kjarnafæði ☆☆☆☆ ☆☆☆☆ ☆☆☆☆☆☆☆☆
Múlakaffi ☆☆☆☆ ☆☆☆☆ ☆☆☆☆☆☆☆☆
SS ☆☆☆☆ ☆☆☆☆ ☆☆☆☆☆☆☆☆
Samkaup ☆☆☆☆ ☆☆☆ ☆☆☆☆☆☆☆
Bónus ☆☆☆ ☆☆☆ ☆☆☆☆☆☆
KEA ☆☆☆ ☆☆☆ ☆☆☆☆☆
Goði ☆☆☆ ☆☆ ☆☆☆☆☆
Borgarnes ☆☆☆ ☆☆ ☆☆☆☆☆
HS3
matgæðingi eða samtals sex stig.
Dröfh fannst bakkinn ekki líta vel
út og sagði m.a.: „Sett í bakka og
lofttæmt sem verður til þess að mag-
állinn pressast niður í svínasultuna
og sviðasultuna. Svínasultan var
mjög lítið spennandi og magállinn
að mestu leyti fita.“
Sigmar sagði m.a. um Bónus-
bakkann: „Afar ólystugur, öllu
pressað saman í plastbakka. Súr-
meti bakkans var þó ágætt. í stuttu
máli sagt: útlitið ömurlegt en súr-
maturinn ágætur.“
Súrmeti í fötu
Því næst smökkuðu þau Sigmar
og Dröfn súrmat úr fötu frá Goða.
Sigmar gaf innihaldinu einungis tvö
stig en Dröfh var örlátari og gaf því
þrjú stig. Samtals fimm stig fyrir
Goðafötuna.
Sigmar var ekkert að skafa utan
af því og sagði m.a.: „Þetta var allt
saman afar ólystugt, hreint út sagt
hálfógeðslegt. Best var hrútspungar
og sviðasulta. Það verður þó að segj-
ast eins og er að ekki eru góð kaup
í þessari fötu.“
Dröfn var heldur ekki ánægð
með Goðafötuna og kvartaði m.a.
yfir því að lundabagginn í henni
væri allt of feitur.
Gott frá SS og Múlakaffi
Sigmar og Dröfn voru hins vegar
Köld lárperusúpa
Köld lárperusúpa er góð tilbreyt-
ing frá venjulegum þykkum hveiti-
súpum og hentar bæði sem forréttur
og eftirréttur.
Uppskrift:
Þrjár þroskaðar lárperur
1 msk. sítrónusafi
75 g niöurrifin gulrót
2 msk. þurrt sérri
20 g saxaður vorlaukur
2 bollar af kjúklingakrafti eða
tveir bollar af vatni með tveimur
kjúklingateningum út í
1 tsk. salt
Örlítið af tabasco-sósu
hrein jógúrt eða sýrður rjómi.
Aðferð:
Skerið lárperumar í tvennt, af-
hýðið og hreinsið steinana úr þeim.
Saxið þær síðan smátt og setjiö í
matvinnsluvél ásamt sítrónusafan-
um þar til allt er orðið að mauki.
Bætið síðan gulrótinni, sérríinu
og vorlauknum út í og maukið aftur
þar til allt er orðið mjúkt.
Hellið kjúklingaseyðinu í stóra
skál og hellið lárperublöndunni
saman við. Hrærið vel. Kryddið með
salti og tabascosósu. Setjið plast-
filmu yfir skálina og hafið hana i
kæli í nokkra tíma.
Hellið súpunni síðan í skálar og
setjið eina matskeið af sýrðum
rjóma eða jógúrt ofan á. Berið strax
fram. -GLM
Þessi kalda lárperusúpa
hentar bæði sem forréttur
og eftirréttur.
Kexkóngur
A sama tíma og Jakobi Bjöms-
syni, fyrrum bæjarstjóra á Ak-
ureyri, var hafnað í prófkjöri
Framsóknar, að sögn vegna þess að
hann tók upp á þvi
aö vatnsgreiða sér
svo fólk þekkti
hann ekki, skaust
annar og tiltölu-
lega óþekktur mað
ur upp á stjörnu
himin Framsókn-
ar nyrðra. Kex-
kóngurinn Daníel
Ámason hreppti annað sætið eftir
mikla haráttu þar sem hann fékk
því m.a. framgengt að kosið var ut-
an kjörstaðar í fyrirtæki hans,
Kexsmiöjunni á Akureyri, við litl-
ar vinsældir sumra keppinauta.
Nefndur Daníel er nánast óþekktur
samanborðið við Jakob en hefur
unnið sér traust meö þvi að gefa
kex i bunkum en græða samt á öllu
saman og síðan að kaupa í Plastos
í gegnum Akoplast, fyrirtæki sitt,
og fjölga störfum í þeim bransa fyr-
ir norðan. Og þá var hann heldur
ekkert að rugla fólk með því að
skipta fyrirvaralaust um útlit...
Stálin tvö
íþróttamenn ljósvakafjölmiðl-
anna og aðstoðarmenn þeirra í
beinum útsendingum af íþróttavið-
burðum fara oft geyst í málflutn-
ingi sínum, svo
geyst reyndar á
stundum að tungan
virðist talsvert á
undan huganum.
Ótalmörg gull-
kom þeirra hafa
oft verið tínd til,
m.a. hér í þess-
um dálki, enda af nógu að
taka. Guðmundur Torfason knatt-
spyrnuþjálfari bætti í saftiið um
helgina þegar hann aðstoðaði við
lýsingu á leik Liverpool og
Manchester United á Stöð 2. Guð
mundur og Valtýr Björn voru að
ræða málin áður en leikurinn hófst
og áttu greinilega von á góðri
skemmtun. Valtýr sagði að án efa
yrði um hörkuleik aö ræða. Guð-
mundur tók undir það og bætti við
að þarna mættust „stálin tvö“ og á
ýmsu mætti eiga von ...
Tækifæri úr greipum
Sjálfstæðismenn í Reykjavík
ákváðu um helgina að fara ótroðn-
ar slóðir og handraða á lista flokks-
ins fyrir kosningarnar í vor. Marg-
ir munu reiðari en
aðrir yfir því að
ekkert verði af
prófkjöri þar sem
þeir hafa lengi
gengið með þing-
mann í magan-
um. Þar ber helst
að nefna Hönnu
Kristjánsdóttur,
framkvæmdastjóra þingflokks sjálf-
stæðismanna, Guðlaug Þór Þórð-
arson borgarfulltrúa og Birgi Ár-
mannsson, fyrrum formann
Heimdallar. Sandkomi er tjáö að
Birgir hafi lengi vel undirbúiö þátt-
töku í prófkjöri í vor. Birgir haföi
hugað að þátttöku í prófkjöri fyrir
borgarstjómarkosningar og haföi
líka lengi áhuga á því að gefa kost
á sér sem formaður Sambands
ungra sjálfstæðismanna. Síðasta
tækifærið í bili er þá farið loksins
þegar Birgir ætlaði sér ffarn ...
Út í ystu myrkur
Hagyrðingamir
eru farnir að huga
að framboðsmál-
um. Eftirfarandi
fengum viö frá
Gunnari Gutt-
ormssyni, hróður
Hjörleifs.
Þjóö mfn, enn er stofn þinn styrkur,
þú stóöst af þér margan næðinginn.
Sendu í ár út í ystu myrkur
íliald, framsókn og „bræðinginn“.
Umsjón Haukur L. Hauksson
Netfang: sandkom @ff. is
Birnu