Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1999, Síða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1999, Síða 17
ÞRIÐJUDAGUR 26. JANÚAR 1999 17 Amtsbókasafnið á Akureyri var stofnað árið 1827 og er því 172 ára. Safnið er um leið héraðsskjalasafn og prent- skilasafn sem þýðir að allt sem prentað er á íslandi kem- ur þar inn. Safnið er jafnan fjölsótt, þangað sœkja sér margir „lesningu“ til að taka með heim, þar sitja nemenátur skólanna á Akureyri við lestur og upplýsingaöflun og á safnið koma einnig margir „grúskarar“ sem finna þar eitt og annað sem að notum kemur. Safnið býr við þröngan húsakost og hef- ur lengi staðið til að stœkka það, en það hefur dregist nokkuð, hvað sem veldur. Jón Hjaltason sagnfræðingur: „Andinn hér er mjög góöur.“ DV-mynd gk Þetta er mjög notendavænt safn - segir Jón Hjaltason, söguritari og sagnfræðingur Eg nota safnið mjög mikið. Á efri hæð þess hef ég smáskonsu fyrir mig og vinn þar að söguritun," segir Jón Hjaltason, sagn- fræðingur og söguritari. Jón hefur skrifað tvö bindi af Sögu Akureyrar og hóf fyrir um ári ritun þriðja bind- is sem nær yfir árin 1906 til 1930. „Ég tel að hér sé prýðisgóð að- staða. Það sem skiptir hins vegar mestu máli er viðmót þess fólks sem hér starfar. Starfsfólkið er allt af vilja gert til að aðstoða þá sem hing- að koma inn þannig að andinn hér í húsinu er mjög góður. Þetta er mjög notendavænt safn, ekki hvað síst vegna þess hversu gott starfsfólk er hér. Bókasafnið býr þröngt, en Héraðs- skjalasafnið býr afskaplega þröngt. Það er eiginlega orðið óviðunandi hvemig búið er að Héraðsskjalasafn- inu og það þarf að gera eitthvað til úrbóta í þeim efnum. Fyrir mann sem vinnur eins og ég geri má segja að það sé aldrei allt á einum stað, en það er varla hægt að ætlast til að hér sé meira en er. Þetta er mjög vel búið safn, enda eitt af prentskilasöfnum sem þýðir að inn á safnið kemur allt sem prentað er í íslenskum prent- smiðjum. Það er mjög einfalt fyrir mig að svara því að hér er mjög gott að vinna. Hér er aðgangur að tölvum og hægt að komast inn á Netið til að veiða gögn af öðrum söfhum, jafnvel erlendis frá ef þörf krefur. Ég er al- veg sannfærður um að fyrir mig að hafa þessa vinnuaðstöðu flýtir mjög verkinu, allt sem á þarf að halda er í seilingarfjarlægð," segir Jón. -gk Sverrir Björnsson við lestur á Amtsbókasafninu. DV-mynd gk Netið Einbeiting með eyrnatöppum - segir Sverrir Björnsson Ég kem hingað á safnið til að vinna við heima- verkefnin og reyni að komast hingað sem oft- ast,“ sagði Sverrir Bjömsson sem Tilveran hitti í lestrarsal Amtsbókasafnsins. Sverrir er nemandi á fyrsta ári í rekstrarfræði við Háskólann á Akmreyri. Sverrir segir að auk þess að hafa næði til lestrar noti hann gögn safnsins, sérstaklega þegar hann sé að vinna að ákveðnum verkefnum. „Ég fer þá hingað á safnið til að viða að mér gögnum, eða á háskólasafn- ið sem er uppi i Sólborg. Ég neita því ekki að það getur stundum verið erfitt að einbeita sér við lest- urinn í salnum en þegar eyrnatapparnir eru komnir á sinn stað er þetta allt í lagi. Maður sér að hingað koma nemendur úr öllum framhaldsskólunum til að lesa, úr Menntaskólanum, Verkmenntaskólan- og Háskólanum. Þá er alltaf eitt- hvað um að „grúskarar" séu hér að ná sér í einhverjar upplýsingar. Ég hugsa að ég sé hérna um það bil 8-10 klukkutíma í hverri viku að jafhaði. Þjónustan hér er mjög fín og fær alveg bestu einkunn,“ sagði Sverrir. -gk Hægt að fara á - sögðu fálagarnir Alexander og Ásbjörn Safn eins og Amtsbókasafnið er ekki bara fyrir fullorðna heldur sækir þangað fólk á öllum aldri. Unga fólkið kemur þó fyrst og fremst til að sækja sér bækur til að lesa, nú eða þá til að komast að- eins í tölvu, eins og félagamir Alexander Gíslason og Ásbjöm Sveinbjömsson sem báðir eru 10 ára og í Brekku skóla. „Við komum stundum hingað. Stundum skoðum við bækur og tökum bækur með okkur heim og strmdum fórum við í tölv- una. Þar er hægt að gera ýmislegt eins og að komast inn á Netið og þar er hægt að gera margt eins og t.d. að skoða teikni- myndir sem er mjög gaman. Við höfum mestan áhuga á spennubók- um og tökum stundum svoleiðis bækur til að fara með heim. Annars er mest gaman í tölvunni, við erum miklir tölvugrúskarar og það er skemmtilegra að „vera í tölvunni" en aö lesa bækur,“ sögðu þeir félagar. -gk Alexander og Ásbjörn líta í bæk- ur á Amtsbókasafninu. DV-mynd gk

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.