Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.1999, Síða 6
m a t u r
AMIGOS ★★★ Tryggvagötu 8, s. 5111333.
„Erfitt er aö spá fyrirfram í matreiösluna, sem er
upp og ofan." Opiö í hédeginu virka daga
11.30-14.00, kvöldin mén.-fim. 17.30-22.30,
fös.-sun. 17.30-23.30. Barinn er opinn til 1 á
virkum dögum en til 3 um helgar.
ARGENTÍNA ★★ Baróns-
stíg lla, s. 551 9555.
„Bæjarins besta steikhús
i hefur dalaö." Opiö
18-23.30 v.d., 18-3 um
_____ ; helgar.
ASÍA ★ Laugavegl 10, s. 562 6210. Opiö virka
daga 11.30-22 en 12-23 um helgar.
CAFÉ ÓPERA Lækjargötu 2, s. 522 9499.
CARPE DIEM Rauðarárstíg 18, s. 552 4555.
CARUSO -Hck Þlngholtsstr. 1, s. 562 7335.
„Þvert á íslenska veitingahefð hefur hin
rustalega notalegi Caruso batnað með
aldrinum." Opiö 11.30-14.00 og 18.00-23.00
virka daga. Föstudaga 11.30-14.00 og
18.00-24.00, laugard. 11.30-24.00 og
sunnud. 18.00-24.00.
CREOLE MEX ★★★★
Laugavegl 178, s. 553
4020. „Formúlan er líkleg
til árangurs, tveir eigendur,
annar I eldhúsi og hinn í
sal." Opiö 11.30-14 og
18-22 á virkum dögum en
18-23 um helgar.
EINAR BEN Veltusundl 1.
18-22.
5115 090. Opiö
GRILLIÐ ★★★★ Hótel Sögu v/Hagatorg, s.
5252 9960. „Glæsilegur útsýnissalur milli-
klassahótels með viröulegri og alúðlegri
þjónustu, samfara einum allra dýrasta matseðli
landsins." Opiö 12-14.30 og 19-22.30 virka
daga, 12-14.30 og 18-22 föstu- og laugardaga.
HARD ROCK CAFÉ ★★ Krlnglunni, s. 568
9888.
HÓTELHOLT ★★★★★ Bergstaðastrætl 37,
s. 552 5700. „Listasafnið á Hótel Holti ber f
matargerðarlist af öðrum veitingastofum lands-
ins." Opiö 12-14.30 og 19-22.30 virka daga,
12-14.30 og 18-22 föstu- og laugardaga.
HÓTEL ÓÐINSVÉ ★★ v/Óðinstorg, s. 552
5224. „Stundum góður matur og stundum ekki,
jafnvel í einni og sömu máltíö." Opiö 12-15 og
18-23 virka daga, 12-15 og 18-23.30 föstu- og
laugardaga.
HUMARHÚSIÐ ★★★ Amtmannsstíg 1, s.
561 3303. „Löngum og hugmyndarikum
matseöli fylgir matreiðsla í hæsta gæðaflokki
hér á landi" Opiö frá 12-14.30 og 18-23.
IÐNÓ ★★★ Vonarstrætl 3, s. 562 9700.
„Matreiðsla, sem stundum fer sínar eigin slóðir,
en nær sjaldan hæstu hæðum. Enginn réttur var
að neinu leyti misheppnaður, en fáir minnis-
stæðir." Opiö frá 12-14.30 og 18-23.
ÍTALÍA ★★ Laugavegi 11, s. 552 4630.
KÍNAHÚSIÐ ★★★★ Lækjargötu 8, s. 551
1014. „Kínahúsið er ein af helztu matarvinjum
miöbæjarins." Opiö 11.30-14.00 og 17.30-
22.00 virka daga, 16-23 laugardaga og 17-22
á sunnudögum.
KÍNAMÚRINN ★★★ Laugavegl 126, s. 562
2258
LAUGA-ÁS ★★★★★
Laugarásvegl 1, s. 553
1620. „Franskt bistró að
íslenskum hætti sem
dregur til sín hverfisbúa,
sem nenna ekki aö elda
f kvöld, barnaflölskyldur
utan úr bæ og ferða-
menn utan af landi og
frá útlöndum." Opiö
11-22 og 11-21 um
helgar.
LÆKJARBREKKA ★ Bankastrætl 2, s. 551
4430.
MADONNA ★★★ Rauðarárstíg 27-29, s. 893
4523 „Notaleg og næstum rómantfsk veitinga-
stofa með góðri þjónustu og framþærilegum ítal-
fumat fyrir lægsta verð, sem þekkist hér á
landi." Opiö virka daga 11.30-14.00 og 18.00-
23.00 og 17-23.30 um helgar.
2333. „Gamal-frönsk matreiðsla alla leiö yfir!
profiteroles og créme brulée." Opiö 18-22.30.
PASTA BASTA ★★★ Klapparstíg 38, s. 561
3131. „Ljúfir hrísgrjónaréttir og óteljandi tilbrigði
af góöum pöstum en litt skólað og of uppá-
þrengiandi þjónustufólk." Opiö 11.30-23 virka
daga og 11.30-24 um helgar. Barinn er opinn til
1 virka daga og til 3 um helgar.
Pedro Vazquez
teíknar fuglana
í Reykjavík:
eins og
Ijónin i Afríku
Pedro Vazquez er þrítugur
Spánverji, frá Galiciu-hluta
Spánar. Hann er mikill snjó-
brettaáhugamaður og kom til ís-
lands árið 1996 til að kynna sér
aðstæður í Bláfjöllum. Hann
brákaði sig á fæti og fór aft-
ur heim en var kominn
með íslandsbakt-
eríuna. Hingað kom
hann svo aftur sl. sumar
og er að spá í að setjast að, ætlar
að taka inntökupróf í MHÍ nú á
næstu vikum og hefja vonandi
nám þar næsta haust. Pedro hef-
ur myndskreytt snjóbretti og
brimbretti suður á Spáni og gert
plaköt fyrir brettamót en hér
hefur hann orðið hriflnn af
fuglum borgarinnar og er
farinn að teikna mynda-
sögur um þá.
„Ég er hrifinn af náttúr-
unni héma,“ segir Pedro.
„Mitt heimaland er fallegt
líka en þar er of margt fólk og
áreiti. Hér er gott næði. Stundum
fer ég út í móa til að fá frið og há-
lendið er líka fallegt og róandi. I
Reykjavík eru margar tegundir af
fuglum sem maður hafði bara séð
í ævintýrabókum. Ég fer oft niður
á höfn til að skoða fuglana. Fyrir
mér er þetta kannski svipað og
fyrir íslending sem sér ljón í Afr-
íku. Það eru auðvitað fuglar á
Spáni en þeir eru minni en þeir
sem eru hér. Þar eru svanirnir
bara í litlum görðum, umkringdir
girðingu, eins og þeir séu í fang-
elsi. Hér er þetta allt miklu villt-
ara.“
Eru fuglarnir í1
teiknimyndasögunum
meö einhver persónu-
einkenni?
„Já, þeir eru
hver með sitt einkenni.
Krían er t.d. róttæki gæinn og
lundinn er eins og gamall kenn-
ari, mjög afslappaður. Aðalfugl-
inn, stóri mávurinn, er flókinn
karakter sem borgar sig ekki að
tala of mikið um. Ég reyni aðeins
að lýsa karaktereinkennum ís-
lendinga, eins og ég sé þau, í
fuglunum. Núna er
ég að spá í að taka
svanina á Tjörn-
inni inn í sögum-
ar.“
Hvaö hefur kom-
iö þér mest á óvart
á íslandi, fyrir
utan fuglana?
„Það er margt,
fólkið er t.d. dálítið
kalt og allt öðru-
vísi en á Spáni.
Hér á fólk mjög
erfitt með að heils-
ast úti á götu og
hverfur inn í sig en
á Spáni hefur mað-
ur ekki undan að
heilsa: hæ, hæ í all-
ar áttir.“
-glh
veitingahús
Austur Indíafélagið:
Eitt er þurrt
og annað meyrt
Austur-Indíafélagið við hlið
Regnbogans við Hverfisgötu er
bezti matstaður austrænnar mat-
argerðar hér á landi, snyrtilegur
staður með kórréttri, en tilþrifa-
lítilli matreiðslu, sem stundum á
það til að láta þurran Tandoori-
kjúkling frá sér fara.
Tandoori-kjúklingur er krydd-
leginn í jógúrt og karríi áður en
hann er bakaður í leirofni, ein-
kennisréttur norðurhéraða Ind-
lands. Hann er bragðljúfur, en
nýtur sín ekki, nema hann sé
meyr, sem á að vera auðvelt. Þeim
mun meiri eru vonbrigðin, þegar
þetta bregzt.
Flest annað var gott, til dæmis
meyr og bragðsterkur Bagdað-
kjúklingur í kókossósu með döðl-
um og þurrkuðum ávöxtum, sem
gáfu réttinum sætubragð, bezti að-
alrétturinn. Skemmtilega eld-
sterkt var Vindaloo-lambakjöt frá
Goa með kartöflum og tómötum,
einn þekktasti réttur suðurhéraða
Indlands.
Papad eða Poppadum, grillað-
ar og stökkar brauðflögur, fóru
vel við Raita, ídýfu úr sýrðum
rjóma og smásaxaðri gúrku.
Einnig hæfðu þær þrenns konar
sultu, mildri úr koríander,
sterkri úr tamarind og milli-
sterkri úr lauk.
Chiche Sheeh Kabab var nafn
á aflangri, mjúkri og bragðgóðri
kjúklingapylsu, kryddaðri með
engifer, hvítlauk og koríander,
borin fram með paprikuþráðum í
sérstakri skál. Bezti forrétturinn
voru djúpsteiktar pagórur úr
söxuðum lauk og léttkrydduðu
kjúklingabaunadeigi, bornar
fram með mildri koríander-sultu.
Smáatriðin voru flest vönduð.
Nan-brauð var bakað á staðnum,
þynnra og betra en það, sem selt
er í stórmörkuðum. Pulao-hrís-
grjón voru hæfilega elduð. Hins
vegar fólst grænmeti dagsins í
ómerkilegum, sykurbrúnuðum
kartöflubitum. Indverskt kaffi
var gott, með kardimommukeim.
Matsalurinn er léttari og bjartari en áður, enda hefur
verið dregið frá gluggum. Slæðubreiður eru enn í lofti,
en skipt hefur verið um indverskar veggskreytingar til bóta,
málverk og tréstyttur.
Matsalurinn er léttari og bjart-
ari en áður, enda hefur verið
dregið frá gluggum. Slæðubreiður
eru enn í lofti, en skipt hefur ver-
ið um indverskar veggskreytingar
til bóta, málverk og tréstyttur.
Húsbúnaður er vandaður, einkum
renndir tréstólar, fínt parkett og
ljósir viðarbásar á miðju gólfi.
Kuldalegar glerplötur eru enn á
borðum, blúnduþurrkur eru úr
taui.
Austur-Indíafélagið er staður
meðalverðs. Aðalréttir kosta um
1700 krónur og þríréttað með kaffi
kostar 3200 krónur. Staðurinn er
eingöngu opinn á kvöldin.
Þjónusta var góð, en umbúnað-
ur hennar lakari en áður. Heitir
andlitsdúkar komu ekki lengur
eftir mat og reikningurinn var
handskrifaður. Róandi indversk
músik var, þegar við komum, en
vestræn graðhestamúsík, þegar
við fórum.
Jónas Kristjánsson
6
f Ó k U S 5. febrúar 1999