Dagblaðið Vísir - DV - 31.03.1999, Qupperneq 16
16
MIÐVIKUDAGUR 31. MARS 1999
MIÐVIKUDAGUR 31. MARS 1999
17
Iþróttir_____________________
Hilmar og Magnús
til Hildesheim
Hilmar Þórlindsson, stórskytta
Stjömumanna, og Magnús Agnar
Magnússon, línumaðurinn sterki úr
Gróttu/KR, fara til Þýskalands nú á
næstu dögum en þeim hefur veriö
boðið að skoða aðstæður hjá þýska
B-deildar liðinu Hildesheim. Félagið
er ofarlega í sínum riðli í B-deild-
inni en á ekki lengur möguleika að
fara upp en forráðamenn liðsins
ætla að styrkja það fyrir næsta
timabil.
Þá er Hilmar einnig með boð um
að koma og skoða sig um hjá danska
A-deildar liðinu Viborg og reiknar
Hilmar með að fara þangað eftir að
hafa dvalið í Þýskalandi.
„Ég ætla alla vega að skoða og sjá
hveming mér líst á en ég á eftir ár
eftir af samningi minum við Stjöm-
una,“ sagði Hilmar við DV eftir leik-
inn gegn FH-ingum í gærkvöldi.
Hilmar var að vonum mjög svekkt-
ur enda spáðu því margir að Stjaman
myndi loks brjóta ísinn og komast í
fyrsta skipti í undanúrslitin.
Fórum á taugum
„Við fómm einfaldlega á taugum
í seinni hálfleik. Vöm og mark-
varsla var í lagi en sóknin var hrein
hörmung. Ég trúði því svo sannar-
lega að við gætum farið áfram en
FH-ingar komu sterkir til baka eftir
að þeir létu svívirða sig hér í fyrsta
leiknum. Þeir sýndu mikinn karakt-
er og börðust eins og ljón fyrir
sigrinum. Það er bara eitthvað í
gengunum þama í Hafnarfirði,"
sagði Hilmar. -GH
Bland í poka
Stúlknalandsliöiö í handknattleik,
20 ára og yngri, tekur þátt i riðla-
keppni heimsmeistaramótsins um
páskana og er leikið i Kapiakrika í
Hafnarfirði. Leikið er við Finna á
fostudaginn langa, Slóvena á laugar-
dag og Ungverja á sunnudag. Leikir
íslands hefjast allir kl. 16 en fyrri
leikir hvers dags fara fram á sama
stað kl. 14 alla dagana.
Piltalandsliöiö, 21-árs og yngri, tek-
ur þátt i sams konar keppni í Slóvak-
íu sömu daga. Þar spilar það viö
Grikkland, Slóvakíu og Kýpur. Liðs-
skipanir piltaliðsins og stúlknaliðs-
ins er að finna á Visi.is.
Egyptar unnu óvæntan sigur á Belg-
um, 0-1, i vináttulandsleik í knatt-
spyrnu sem fram fór í Liege i gær-
kvöld. Hazem Imam skoraði markið.
Fylkismenn geta tryggt sér sæti i 1.
deild karla í handknattleik í kvöld,
eftir 20 ára fjarveru. Þeir taka á móti
Völsungi í Arbænum og komast upp
með sigri. Frítt er á leikinn.
Wolves sigraði Crewe, 3-0, í B-deild
ensku knattspymunnar i gærkvöld
og styrkti með því stöðu sína í 6. sæt-
inu.
Þýskt blaö skýrði frá því um helgina
að Guido Buchwald, sem þjálfar
knattspymulið Karls-
ruhe á næsta tíma-
bili, hefði leitað til
sins gamla vinar frá
Stuttgart, Ásgeirs
Sigurvinssonar, um
sóknarmann fyrir
næsta tímabil. Ásgeir
hefði bent Buchwald
á leikmann en hann
hefði meiðst og máliö væri því i bið-
stöðu í bili. Ljóst er að þama er átt
við Ríkharö Daöason hjá Viking
Stavanger í Noregi en áður hefur
komið fram að Stuttgart hefur áhuga
á honum.
NBA-DEILDIN
Charlotte-Boston............99-109
Atlanta-Detroit..............93-77
Orlando-New Jersey..........100-98
Cleveland-Toronto ..........91-101
Minnesota-Dallas.............98-78
New York-Indiana ............94-93
Chicago-Philadelphia.........91-81
SA Spurs-Seattle ............95-87
Milwaukee-Washington .... 107-105
Vancouver-Denver ...........101-87
LA Clippers-Houston ........95-104
Golden State-Portland .......93-90
Sacramento-Utah............104-101
Kristinn Björnsson á
fleygiferð í
stórsviginu í gær.
DV-myndir HKr
Skíðamót íslands á ísafirði:
„Sáttur viö
keyrsluna"
- Kristinn og Brynja meistarar í stórsvigi
DV, ísafirði:
Kristinn Bjömsson frá Ólafsfirði og
Brynja Þorsteinsdóttir frá Akureyri
sigraðu í stórsvigi karla og kvenna á
Skiðamóti íslands sem hófst í gær-
morgun eftir sólarhrings frestun
vegna veðurs.
„Ég er mjög sáttur viö keyrsluna,"
sagði Kristinn Björnsson við DV eftir
að Ijóst var að íslandsmeistaratitillinn
í stórsviginu var hans. Þetta var jafn-
framt FlS-mót og þar vann Aane Saet-
er frá Noregi en Kristinn varð annar
og Björgvin Björgvinsson frá Dalvík
þriðji.
„Það kom mér þó á óvart hvað þetta
gekk vel þar sem færið var frekar
mjúkt. Svo hef ég ekki verið að æfa
mikið stórsvig í vetur þannig að ég
var ekki alveg viss hvemig ég ætti að
takast á við þetta. Ég var heldur harð-
ur á snjónum í fyrri ferðinni reyndi að
vera aðeins mýkri í þeirri seinni, og
ég held að það hafi gengið betur. Ég
bjóst reyndar aldrei við að vinna
þetta.“
- Hvað með aðstöðuna á ísafirði?
„Hún er alveg meiri háttar og um-
gjöröin í kringum þetta mót er alveg
frábær. Það er ótrúlega vel staðið að
þessu móti og ísflrðingar mega vera al-
veg rosalega stoltir af þessu. Ég veit að
þeir eru búnir að vinna vel, þannig að
þetta hefur allt gengið upp. Ég vona
bara að veðrið leiki við menn næstu
daga, því það væri synd ef það eyði-
legði svona mótshald," sagði Kristinn
Bjömsson.
nógu sátt
Brynja Þorsteinsdóttir
varð fyrst íslensku
kvennanna í mark í
stórsviginu og varð
þar með íslandsmeist-
ari. Jafnhliða fór fram
FlS-mót þar sem
Emma Furuvik frá
Svíþjóð var með besta
tímann, næst á undan Brynju, en fjór-
ir erlendir keppendur tóku þátt. Dag-
ný L. Kristjánsdóttir varð þriðja.
„Ég er ekki nógu sátt við árangur-
inn. Ég ætlaði að vinna mótið, ekki
bara titilinn. Seinni ferðin var mjög
góð og brautin alveg frábær. Færið var
kannski ekki alveg nógu gott, en það
var samt gaman að þessu,“ sagði
Brynja við DV.
Hálfur íslendingur
Emma Furuvik keppti
fyrir hönd Svíþjóðar
en hún á íslenska móð-
ur.
„Það gekk bara vel,“
sagði Emma í samtali
við DV. „Brautin var
mjög fín, en samt mjúk og ég er ekki
vön slíkum aðstæðum.“
- Hefur þú keppt áður á íslandi?
„Nei, aldrei. Ég hef aldrei farið hér
á skíði. Ég hef samt mikið verið á ís-
landi. Ég hef unniö hér í þrjú sumur
og svo hef ég líka verið hér með
mömmu og pabba."
- Hefur þér ekki dottið í hug að
keppa fyrir ísland?
„Jú, ég hef aðeins velt því fyrir
mér,“ sagði þessi bráðhressa sænsk-
íslenska stúlka.
Haukur var langfyrstur
Haukur Eiríksson
frá Akureyri sigraði
með glæsibrag í 30 km
göngu karla í gær,
kom langfyrstur í
mark.
„Þetta var erfitt
meirihluta göngunnar
á meðan maður var að
vinna á sársaukanum. Maður hresstist
í lokin og átti þá ágæta þá göngu og ég
er ánægður með þetta.Þetta er topp-
braut en hún var þó erfið að því leyti
aö það er mikil vinna í henni, maður
fékk litla hvíld. Þetta var stöðug vinna
og miklar ýtingar og það reyndi virki-
lega á mann,“ sagði Haukur við DV.
Þóroddur Ingvarsson, Akureyri,
varð annar og Birkir Þór Stefánsson,
Húsavík, þriðji.
Stella meistari kvenna
„Þetta hafðist,"
sagði Stella Hjaltadótt-
ir irá ísafirði sem varö
ísiandsmeistari í 10
km göngu kvenna 17
ára og eldri. Stella
kemur nú aftur sem
sigurvegari og það eft-
ir margra ára hlé.
„Það var gott að hafa aðra á undan
til að elta. Þetta var erfiður hringur,
sérstaklega miðkaflinn uppi í Efri-
Skógi. Það var fint færi í heildina og
ég er alveg sátt við þetta," sagði Stella.
Sandra Dís Steinþórsdóttir, ísafirði,
varð önnur en Hanna Dögg Marons-
dóttir, Ólafsfirði, þriðja.
Baldur Helgi Ingvarsson frá Akur-
eyri sigraði í 15 km skíðagöngu 17-19
ára, Elías Sveinsson frá ísafirði sigr-
aði í 10 km göngu 55 ára og eldri,
Magnús Eiríksson frá Siglufírði sigr-
aði í 15 km göngu 45-54 ára og Birgir
Gunnarsson, Sauðárkróki, í 15 km
göngu 35-44 ára.
Keppni á mótinu átti að halda áfram
í morgun með svigi karla og kvenna.
Eftir hádegið eru síðan sex göngu-
greinar á dagskránni. Á morgun lýkur
mótinu síðan með alþjóðlegum mótum
karla og kvenna í stórsvigi og
boðgöngum karla og kvenna. -HKr/VS
Brynja ekki
íþróttir
Úkraína-Island:
Eyjólfur
á miðjuna
Eyjólfur Sverrisson hefur náð
sér af meiðslunum sem hann varð
fyrir í Andorra á laugardag og leik-
ur með landsliðinu í knattspymu
gegn Úkraínu í Kiev í dag.
Guðjón Þórðarson hefur gert
tvær breytingar á liðinu frá And-
orraleiknum og breytir því einnig
talsvert innbyrðis. Eyjólfur fer á
miðjuna, Láms Orri og Hermann
koma inn í staðinn fyrir Amar
Gunnlaugsson og Stefán Þ. Þórðar-
son og fara beint í vömina, Helgi
Sigurðsson fer í fremstu víglínu,
Þórður Guðjónsson verður fremsti
tengiliður og Brynjar Gunnarsson
kemur hægra megin á miðjuna.
Byrjunarliðið verður þannig skip-
að:
Markvörður: Birkir Kristinsson.
Vamarmenn: Auðun Helgason,
Lárus Orri Sigurðsson, Sigurður
Jónsson, Steinar Adolfsson, Her-
mann Hreiðarsson.
Tengiliðir: Brynjar Gunnarsson,
Eyjólfur Sverrisson, Rúnar Krisí-
insson, Þórður Guðjónsson.
Framherji: Helgi Sigurðsson.
Úkraínumenn eru efstir í riðlin-
um með 10 stig en Frakkland og Is-
land koma næst með 8. Þetta er því
geysilega þýðingarmikill leikur og
einn af úrslitaleikjum riðilsins eins
og staðan er í dag. -VS
Keflavík jafnaöi í Grindavík:
„Vorum
ferskari “
FH-ingar fögnuðu að vonum
gífurlega eftir sigurinn í
Garðabænum í gærkvöld.
Hetjan Magnús Árnason
markvörður er í miðjunni og
Hálfdán Þórðarson og Kristján
Arason faðma hann að sér.
DV-mynd E.ÓI.
DV, Grindavík:
„Vömin var virkilega léleg hjá
okkur í byrjun, en hægt og bítandi
fómm við að koma okkar hlutum
inn í leikinn og þá gekk okkur bet-
ur. Þeir vora orðnir þreyttir í lokin,
við skiptum meira inn á og mínir
menn vom ferskari á lokakaflanum.
Við fáum örugglega hörkuleik á
föstudaginn. Þetta er virkilega
skemmtilegt einvígi, mikil spenna
og barátta í leikmönnum, en það er
klárt að við ætlum ekki að tapa
tvisvar heima," sagði Sigurður Ingi-
mundarson, þjálfari Keflvíkinga, eft-
ir að lið hans hafði lagt Grindvík-
inga í Röstinni, 79-88, í öðrum leik
liðanna i undanúrslitum og jafnað
metin í 1-1.
Leikurinn var gríðarlega spenn-
andi, harður og hraður. Grindavík
byrjaði með látum, setti 12 stig áður
en Keflavík komst á blað eftir tæpar
4 mín. Leikurinn jafnaðist síðan en
lokakaflinn fyrir hlé var Grindvík-
inga og þeir leiddu með 47-38 í hálf-
Grindavík (47) 70
Njarðvík (38)88
12-0, 23-20, 30-31, 40-36, (47-38),
54-40, 58-53, 69-65, 69-80, 79-88.
Stig Grindavíkur: Warren Pee-
bles 22, Páll Axel Vilbergsson 19, Her-
bert Arnarson 16, Bergur Hinriksson
8, Pétur Guðmundsson 6, Guðlaugur
Eyjólfsson 5, Unndór Sigurðsson 3.
Stig Keflavíkur: Damon Johnson
28, Gunnar Einarsson 18, Falur Harð-
arson 15, Fannar Ólafsson 11, Hjörtur
Harðarson 5, Guðjón Skúlason 5,
Birgir Örn Birgisson 4, Sæmundur
Oddsson 2.
leik. Juku svo muninn í 16
stig í byrjun seinni hálfleiks
en þá vöknuðu gestimir til
lífsins, söxuðu jafnt og þétt á
forskotið og þegar staðan
var 69-65 lokuðu gestimir
vörninni alveg, skoruðu 15
stig í röð á 6 mín. kafla án
svars frá heimamönnum
sem virtust þá þreyttir og
óömggir.
Paul Denman lék ekki
með heimamönnum vegna
veikinda.
„Okkur gekk illa gegn
svæðisvörninni þeirra á
lokakaflanum, menn gerðu
ekki það sem fyrir þá hafði
verið lagt og því fór sem fór
en við vitum að við getum
gert mun betur en þetta. Á
fóstydaginn mætum við til
að spila af alvöru í 40 mínútur, ekki
33, og þá vinnum við leikinn," sagði
Einar Einarsson, þjálfari Grindvík-
inga.
_ -bb
Sljarnan (8)18
FH (9)23
0-2, 2-2, 4-4, 7-4, 8-6, (8-9), 9-9, 9-13,
10-12, 14-16, 15-20, 17-23, 18-23.
Mörk Stjömunnar: Konráð
Olavsson 6/3, Hilmar Þórlindsson
4/2, Jón Þórðarson 3, Aliaksand
Shamkuts 2, Rögnvaldur Johnsen 1,
Heiðmar Felixsson 1, Amar Péturs-
son 1.
Varin skot: Birkir í. Guömunds-
son 11, Ingvar Ragnarsson 5.
Mörk FH: Knútur Sigurösson 6/1,
Hálfdán Þórðarson 4, Guðjón Áma-
son 3, Lárus Long 3, Guðmundur Ped-
ersen 3/2, Gunnar Beinteinsson 2,
Valur Amarson 2/2.
Varin skot: Magnús Ámason 18/4.
Brottvlsanir: Stjaman 6 min.
(Amar Pétursson rautt spjald fyrir
brot undir lok leiksins), FH 8 mín.
Dómarar: Guðjón L. Sigurðsson
og Ólafur Haraldsson, sluppu í heild
vel frá erflðum leik.
Áhorfendur: Um 700, troðfullt
hús.
Maður leiksins: Magnús Áma-
son, FH.
var sterkari þegar FH vann oddaleikinn í Garðabæ
Vamarleikur og markvarsla á heims-
mælikvarða, sigurvilji, seigla og rík hand-
boltahefð færðu FH-ingum sæti í undanúr-
slitum 1. deildar karla i handknattleik eft-
ir öruggan og sætan sigur á Stjörnunni í
Garðabæ, 18-23, en þetta var oddaleikur
liðanna í 8-liða úrslitunum.
Griðarlegur fógnuður braust út í her-
búðum FH-inga og fjölmargra stuðnings-
manna þeirra en Stjömumenn sátu hnípn-
ir eftir. Enn einu sinni sátu Garðbæingar
eftir og í fimmta sinn féllu þeir úr 8-liða
úrslitunum eftir að hafa unnið fyrsta leik
i einvíginu. 3:2:1 vöm FH-inga var stór-
kostleg í leiknum og hún ásamt stórleik
Magnúsar í markinu lagði öðm fremur
grunninn að sigri FH. Kristján Arason var
akkerið í vöm Hafnfirðinganna. Hann
stjómaði vamarleiknum eins og hershöfð-
ingi og þeir Gunnar og Hálfdán sáu um að
draga vígtennurnar úr sóknarleik Stjörnu-
manna með því að klippa stórskyttumar
Hilmar og Heiðmar út úr leiknum.
Garðbæingum tókst aldrei að finna svar
við vamarafbrigði FH-inga og í síðari
hálfleik kiknuöu heimamenn undan press-
unni. Svekkelsi og pirringur gerði vart
við sig í herbúðum Garðbæinga og smátt
og smátt urðu Stjörnumenn að játa sig
sigraða. Að sama skapi efldust FH-ingar
við hverja raun. Þeir bmtu Stjörnumenn
niður með frábæmm vamarleik og léku
agað út allan leiktímann.
Kristján hefur náð miklu út úr liði FH í
vetur, kannski óvænt enda gerðu hand-
boltaspekingar ekki ráð fyrir að FH kæmist
í úrslit bikarkeppninnar og hvað þá í und-
anúrslit íslandsmótsins eftir slakt gengi í
upphafi móts. En Kristján og lærisveinar
hans hafa sótt hægt og bítandi í sig veðrið
og eftir að Kristján tók fram skóna að nýju
hefur vamarleikurinn gjörbreyst. FH-ingar
gáfu allt í þennan leik. Þeir börðust og
börðust og enn einu sinni fleytti seiglan og
karakterinn þeim áfram.
„Önnur eins vinnsla hefur varla sést
í svona varnarleik. Ég er rosalega stolt-
ur af strákunum. Það vora margir bún-
ir að afskrifa okkur en við héldum all-
an tímann haus og erum nú komnir í
undanúrslit. I þessum tveimur síðustu
leikjum erum við að klára þetta á frá-
bærum varnarleik og í þessum leik
náðum við að stöðva Hiimar og Heið-
mar. Nú fáum við nokkra daga hvíld
þar til að leikjunum gegn Fram kemur.
Það verður mjög erfitt en við ætlum
okkur að sjálfsögðu í úrslitin," sagði
Kristján Arason sem átti frábæran leik.
Enn eitt árið kveðja Stjömumenn í sár-
um. Fyrir mótið vom miklar væntingar
gerðar til liðsins enda vel mannað. Og
ekki var árangurinn i deildarkeppninni til
að slá á væntingamar. Annaö sætið var
staðreynd, margur Stjömumaðurinn
eygði nú von um að grýlan yrði kveðin í
kútinn og Stjaman kæmist upp úr 8-liða
úrslitunum i fyrsta sinn. En sú von breytt-
ist í martröð í Garðabænum í gærkvöldi.
Enginn efast um styrk Stjörnuliðsins en
þegar pressan var sem mest í leiknum i
gær þoldu leikmenn liðsins einfaldlega
ekki álagið og í stað þess að stappa stálinu
hver i annan fór hver að puða í sinu
horni. -GH
8-0, 8-7, 12-9 ,21-13, 21-21, 21-24,
25-24, 31-31, 36-35, 42-39, (45-45),
47-47, 55-47, 59-50, 64-52, 67-59, 72-63,
78-67, 83-73, 85-77, 86-84, 89-84.
Stig KFÍ: James Cason 33, Ráy
Carter 19, Mark Quashie 12, Baldur
Ingi Jónasson 11, Ólafur Ormsson 8,
Tómas Hermannsson 2.
Stig Njarðvikur: Brenton Birm-
ingham 36, Teitur Örlygsson 25, Frið-
rik Ragnarsson 12, Friðrik Stefánsson
9, Hermann Hauksson 3.
Isfirðingar jöfnuðu metin gegn Njarðvíkingum, 1-1:
Stóðust pressuna í lokin
DV, ísafirði:
ísfirðingar jöfnuðu metin gegn
Njarðvík, 1-1, í undanúrslitum úr-
valsdeildarinnar í körfubolta í gær-
kvöld með sigri, 89-84. Það þarf því
minnst fjóra leiki til að útkljá ein-
vígi liðanna. Það vantaði ekki
stemninguna á pallana því um 800
kolbrjálaðir ísfirðingar vom mætt-
ir til leiks og studdu sina merrn
með miklum sóma.
„Þetta var hörkuleikur, við héld-
um áætlun í fyrri hálfleiknum en
svo sigu þeir fram úr og náðu 13
stiga forystu I síöari hálfleik, þá
kom eitthvert óðagot á okkar lið og
við náðum of seint að minnka
muninn. Þrátt fyrir það spiluðum
við sóknina ágætlega en nýttum
bara ekki færin og því fór sem fór,“
sagði Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálf-
ari Njarðvíkur, eftir leikinn.
Fyrri hálfleikur var mjög fjörag-
ur og hraður. ísfirðingar byijuðu
betur og héldu forystuni fram und-
ir miöjan hálfleikinn. Þá náðu
Njarðvíkingar að jafna metin og
komast yfir. Eftir það skiptust lið-
in á að leiða og var staðan jöfn í
hálfleik.
Njarðvíkingar hittu afleitlega í
byrjun síðari hálfleiks og skoruðu
aðeins 2 stig á fyrstu 5 mínútunum.
ísfirðingar náðu mest 13 stiga for-
ystu. Njarðvíkingar náðu að klóra í
bakkann með pressuvöm á síðustu
2 mínútunum. En ísfirðingar höfðu
greinilega lært eitthvað af leiknum
í Njarðvík á dögunum og innbyrtu
góðan sigur.
Bestu menn ísfirðinga voru
Cason og Carter sem skoruðu 52 af
stigum heimamanna og hirtu fjöld-
an allan af fráköstum. Hjá Njarð-
vik var Brenton Birmingham yfir-
burðamaður. -AGA
Gunnar með
boð frá Brage
Gunnar Sigurðsson, sem stað-
ið hefur í marki
Eyjamanna í
knattspyrnu tvö
undanfarin ár,
kom heim frá Sví-
þjóð um helgina
með tilboð í
farteskinu frá
sænska B-deildar
liðinu Brage. Félagið varð í 4.
sæti í sínum riðli á síðustu leik-
tíð en hefur nú tekið stefnuna á
A-deildina.
„Ég á eftir að fara betur yfir
tilboðið og mun taka mér nokkra
daga í það. Mér leist vel á liðið
og ekki er verra að það kemur
frá gömlum vinabæ Vestmanna-
eyja,“ sagði Gunnar í samtali við
DV í gær. Gunnar staðfesti að fé-
lög hér heima hefðu rætt við sig
og það gæti alveg farið svo að
hann spilaði hér á landi í sumar
en eins og fram kom í DV á dög-
unum ákvað Gunnar að segja
skilið við lið ÍBV vegna óánægju
með vinnubröð þjálfarans
Birkir Kristinsson landsliðs-
markvörður mun leysa Gunnar
af hólmi en hann kemur til Eyja
í byrjun maí eftir dvöl hjá
Bolton. -GH
Framtíð Þor-
bergs óráðin
Samningur Þorbergs Aðal-
steinssonar, þjálf-
ara ÍBV í hand-
knattleik, rann út
eftir leikinn gegn
Haukum í fyrra-
kvöld en hann hef-
ur verið við stjóm-
völinn hjá Eyjalið-
inu undanfarin
þrjú ár.
„Framtíðin er óráðin hjá mér.
Ég ætla nú að mér gott frí frá
handboltanum og hugsa mitt
,mál. Ég hef ekki tekið neina
ákvörðun hvað ég geri og hvort
ég verð um kyrrt hér í Eyjum,"
sagði Þorbergur við DV.
Búast má við einhverjum
breytingum á liði ÍBV. Á þessari
stundu er ekki ljóst hverjar
breytingarnar verða en víst þyk-
ir að útlendingarnir tveir, sem
léku með liðinu í vetur, verði ör-
ugglega ekki áfram. -GH
Skellur í Kiev
íslenska 21-árs landsliðið I
knattspymu tapaði, 5-1, fyrir
Úkraínu í Kiev í gær í Evrópu-
keppninni.
Bjarni Guðjónsson kom Is-
landi yfir eftir 16 mínútur en Zu-
bov jafnaði á lokamínútu fyrri
hálfleiks. Oleinik (48. mínútu),
Balitsky (67.), Timoshchjuk (71.)
og Jashchjuk (88.) skomðu fyrir
heimamenn í síðari hálfleik.
ísland hefur þar með tapað öll-
um 4 leikjum sínum og er neðst
í riðlinum. Úkraina og Rússland
em með 9 stig, Frakkland 6 og
Armenía 3. -VS
Sigur á Ítalíu
Unglingalandsliðið í knatt-
spyrnu vann Slóvena, 1-0, á al-
þjóðlega mótinu á Ítalíu i gær.
Markið var sjálfsmark. ísland er
þar með komið með 4 stig eftir 2
fyrstu leikina en liðið byrjaði á
1-1 jafntefli við Belga. I dag mæt-
ir ísland liði Rúmena og Wales-
búum á morgun. -VS
Fráköst: Grindavík 36 (25 V., 11
S.), Keflavík 34 (21 V., 13 S.)
3ja stiga nýting: Grindavík 8/29,
Keflavík 7/23.
Vítanýting: Grindavík 15/16,
Keflavik 15/20.
Dómarar: Sigmundur Már Her-
bertsson og Kristján Möller.
Áhorfendur: Um 850, vel stemmd-
ir.
Maður leiksins: Damon John-
son, Keflavlk.
Fráköst: KFÍ 38, Njarðvik 30. 1
Vítanýting: KFÍ 16/28, Njarðvík
29/37.
3ja stiga nýting: KFÍ10/17, Njarð-
vík 5/24.
Dómarar: Jón H. Bender og Einar
Þ. Skarphéðinsson, ekki nógu sann-
færandi.
Áhorfendur: Um 800.
Maður leiksins: James Cason,
KFÍ.
Enski
laugardaga
kl. 13,00
Breyttur
lokunartími!
ítalski
laugardaga
kl. 13,55