Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1999, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.1999, Qupperneq 8
8 MIÐVKUDAGUR 7. APRÍL 1999 Nám í Danmörku Hjá Horsens Polytechnic bjóðum við upp á fleiri tegundir af tœknimenntun. Meðal annars: • tækniteiknun • landmælingartæknir • véltæknir • byggingaiðnfræðingur - byggingar- og framkvæmdalínu • byggingafræðingur með fjórum brautum: enskri, byggingar- og framkvæmdalínu Komió og fáið nánari upplýsingar: Kynningarfundur í Reykjavík 11. apríl kl. 15.00 á Radisson SAS. Hótel Sögu. Allir velkomnir Á fundinum munu kennaramir Ralf Jensen og Eli Ellendersen segja frá náminu. Jafnframt verða til staðar íslenskir byggingafræðingar menntaðir í Horsens. Þeir sem hafa áhuga geta haft samband við Ralf Jensen og Eli Ellendersen með því að hringja til Hótel Sögu frá 06.04 - 13.04.1999 eða leggja inn skilaboð. ■ Horsens Polytechnic Slotsgade 11 • DK-8700 Horsens • Denmark Tlf. +45 7625 5001 • Fax +45 7625 5100 E-mail:horstek@horstek.dk ■ http://www.horstek.dk Utlönd NATO hafnar vopnahléstillögum Milosevics: Tilboðinu svarað með sprengjum Vesturlönd höfnuðu f gær yfirlýs- ingu júgóslavneskra stjórnvalda um vopnahlé í Kosovo, kölluðu hana innantómt bellibragð og undirstrik- uðu svar sitt með frekari loftárásum í gærkvöld og nótt. Júgóslavíustjórn tilkynnti ein- hliða vopnahlé í tilefni páskahátíð- ar rétttrúanaðarkirkjunnar og tók það gildi í gærkvöld. Þá bauðst hún til að leyfa flóttamönnum frá Kosovo að snúa aftur til sins heima. Bill Clinton Bandaríkjaforseti ít- rekaði að Slobodan Milosevic Júgóslavíuforseti yrði að fallast á allar kröfur Atlantshafsbandalags- ins (NATO) um Kosovo. Rússar vora einir um að fagna til- boði stjómarherranna í Belgrad. Þeir sögðu það mikilvægt fyrir frið- arferlið og ekki ætti að láta slíkt tækifæri sér úr greipum ganga. Flóttamenn halda áfram að streyma frá Kosovo til nágranna- ríkjanna. Um fjörutíu þúsund flótta- menn sitja fastir við landamærin að Makedóníu. Aðbúnaður er afar slæmur en ástandið fer þó skán- andi, að því er Sören Jessen-Peter- sen, aðstoðarforstjóri Flóttamanna- stofnunar Sameinuðu þjóðanna, sagði fréttamönnum í Genf í gær. Endalausar raðir flóttamanna era við Jazince landamærastöðina á landamæram Kosovo og Makedón- íu. Að sögn starfsmanns hjálpar- samtaka á staðnum hieyptu júgóslavneskir landamæraverðir svo til engum í gegn í gær, nema þeim sem nauðsynlega þurftu á læknisaðstoð að halda. Dagana á undan höfðu Makedóníumenn lokað landamæranum. Sadako Ogata, yfirmaður Flótta- Albönsku flóttamennirnir frá Kosovo verða að gera sér að góðu að sofa úti undir beru lofti, eins og þessi gamla kona. Henni tókst að komast til nýrra flóttamannabúða nærri Skopje, höfuðborg Makedóníu. mannastofnunarinnar, sagði á neyð- arfundi meira en fimmtíu ríkis- stjórna og hjálparsamtaka, að þjóð- emishreinsanimar í Kosovo væra að öllum líkindum verri en þær sem vora stundaðar í Bosníu og öðram lýðveldum fyrram Júgóslavíu fyrr á þessum áratug. Utanríkisráðherra Þýskalands, Joschka Fischer, sagði í gær að Vesturveldin hefðu sannanir fyrir því að Júgóslavar hefðu fyrir löngu gert áætlanir um að hrekja al- banska íbúa Kosovo á brott. Aðgerð- in gekk undir nafninu Skeifan. Bandarísk stjórnvöld tilkynntu að þau ætluðu að flytja um tuttugu þúsund flóttamenn til flotastöðvar sinnar í Guantanamoflóa á Kúbu. Þar verða flóttamennirnir hafðir tímabundið á bak við gaddavírsgirð- ingar, í steikjandi hitabeltishita. K0S0V0BUAR A FLOTTA Þjóðir heims eru farnar að bjóða flótta- mþnnum frá Kosovo tfmabundlð hæli. Á síðustu tveimur vikum hafa nærri 400.000 Kosovobúar fariö á vergang BOÐ EÐA TILLOGUR UM HÆLI Þýskaland 40.000 c Bandar.20, 20, ý)- Tyrkl. ,000 000 í) )- Spánn 7- 10.000 )— Noregur 6.000 )— Danmörk 6.000 _)— Rúmenía 6.000 ^— Svíþjóð 5.500 }— Austurríki 5.000 )— Kanada 5.000 ^)— Grikkland 5.000 )— Ástralía 4.000 Portúgal 1.500 Bretland fjöldi ótilgreindur AÐALFUNDUR ✓ Aðalfundur Islenskra aðalverktaka hf. verður haldinn fimmtudaginn 15. apríl 1999 í Listasafni Islands og hefst fundurinn kl. 16.00 Dagskrá, endanlegar tillögur og reikningar félagsins munu liggja frammi á skrifstofum félagsins á Keflavíkurflugvelli og í Hátúni 6a, Reykjavík, hluthöfum til sýnis, viku fyrir aðalfund. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 14. gr. samþykkta félagsins. 2. Tillögur um breytingar á samþykktum félagsins:______ a) Heimilt verði að gefa út hlutabréf með rafrænum hætti í samræmi við lög nr. 131/1997. ________ b) Varamenn í stjóm verði tveir í stað fímm._____ c) Heimild til handa stjórn félagsins að kaupa alít að _______10% hlutafjár í félaginu sjálfu. ________ 3. Önnur mál, löglega upp borin. Aðgöngumiðar og fundargögn verða afhent á fundarstað í fundarbyijun. Stjórn íslenskra aðalverktaka hf. Flugmaðurinn Kætt kominn Flugmaður bandrísku F-117 Stealth orrustuþotunnar sem hrap- aði til jarðar í Serbíu fyrir tíu dög- um, segir litlu hafa munað að serbneskar hersveitir gómuðu hann. Samkvæmt heimildum banda- ríska flughersins hafðist maðurinn við í vegræsi í sex klukkustundir og allan tímann vora leitarsveitir á sveimi allt um kring. Á einum tíma- punktu var leitarhundur í aðeins 10 metra fjarlægð frá flugmanninum. Að sögn flugmannsins var óvissan óbærileg, hann vissi að hann var í nágrenni Belgrad, en ekkert um hvort honum yrði bjargað. Flugher- inn bjargaði manninum hins vegar en heimildarmenn þaðan hafa ekki enn viljað staðfesta að flugvélin hafi verið skotin niður. Rugova verði sleppt strax Utanríkirráðuneyti Bandaríkj- anna hefur skorað á stjómvöld í Belgrad að láta Ibrahim Rugova, leiðtoga Kosovo-Albana, lausan þeg- ar í stað. Þar með staðfestu Banda- ríkin að þau gruni Júgóslava um að halda Rugova föngnum. Sögusagnir hafa gengið um örlög Rugova og hann ýmist sagður í haldi Serba eöa jafnvel látinn. „Við vitum ekkert með vissu og jafnvel ekki hvort hann er á lífi,“ sagði talsmaður ráðuneytisins í gær. Fjölmiðlar í Júgóslavíu greindu frá því á mánudag að Rugova ynni í Belgrad að lausn Kosovomálsins Stuttar fréttir Aðstoö viö skipasmíðar Framkvæmdastjórn ESB hefur heimilað frönskum stjómvöldum að styrkja skipasmíðastöö sem smíðar skip fyrir frönsku Pólynesíu, með ákveðnum skilyrðum þó. Hætta á uppsögnum Karsten Hansen, fjármálaráð- herra Færeyja, segir að ríkið geti ekki tekið á sig frekari launahækk- anir og að hætt sé við að segja verði upp starfsfólki. Verkfall opinberra starfsmanna í Færeyjum hefur nú staðið í þijár vikur. Gore á Netið A1 Gore, varaforseti Bandaríkj- anna, var síðastur þeirra tólf kand- ídata sem hyggja á forsetaframboð á næsta ári, að opna heimasíðu. Þar með er kosningabarátta Gore hafin á vefn- um á slóðinni www.AlGore2000.com. Obuchi vinnur á Stuðningur japanskra kjósenda við ríkisstjóm Keizos Obuchis hefur nærri tvöfaldast á sex mánuðum, að því er fram kemur í nýrri könun. Grænlendingar kaupa Stærsta verslunarfyrirtæki Græn- lands, sjálf Grænlandsverslunin, hefur keypt fyrsta stórmarkað sinn í Dan- mörku sunnanverðri. Gangi rekstur- inn vel verða keyptar fleiri verslanir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.