Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1999, Qupperneq 4
MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 1999
Fréttir
Vandræðagangur utanrlkisráðuneytisins með Svavar Gestsson i Kanada:
Svavar skipaður aðal-
ræðismaður í skyndi
- fékk aðeins tveggja vikna dvalarleyfi sem sérlegur sendifulltrúi í Winnipeg
felli við hvort við
séum með útsendan
mann eða heiðursræð-
ismann eins og við höf-
um gert hingað til. Við
erum því eingöngu að
Stöðu Neils Bardals, aðalræðis-
manns íslands í Winnipeg, hefur
verið breytt af íslenska utanríkis-
ráðuneytinu, í því skyni að rýma
til fyrir Svavari Gestssyni. Svo
virðist sem íslenska utanríkisráðu-
neytið hafi, eftir að
Svavar var kominn til
Kanada, rekið sig á það
að kanadísk yfirvöld
samþykktu ekki að
taka á móti sendi-
manni frá íslandi til
aðseturs í Winnipeg,
en ekki í höfuðborg-
inni Ottawa. Þegar
þetta var komið í ljós
hafi utanríkisráðu-
neytið gripið til þess
ráðs að nánast svipta
hinn vel metna ræðis-
mann íslands í Gimli,
Neil Bardal, aðalræðis-
mannstitlinum í
Winnipeg og flytja
hann á herðar Svavari.
Með þessu móti fékk
Svavar stöðu ....
diplómats í Kanada, en Svernr Haukur Gunnlaugsson, raðu-
Neil Bardal var gerður neytisstjori utannkisraðuneyt.sms.
aðalræðismaður í heimaborg sinni
Gimli. Stórborgin Winnipeg er
ekki lengur á hans herðum, heldur
Svavars.
Sverrir Haukur Gunnlaugsson,
ráðuneytisstjóri utanríkisráðu-
neytisins, segir í samtali við DV
um þetta mál að breytingin á stöðu
Neils Bardals hafi ekki verið gerð
gegn vilja Bardals heldur hafi
hann sjálfur þvert á móti óskað eft-
ir henni. Aðspurður um hvort
Svavar hefði ekki getað verið í
Manitoba og sinnt þeim verkefnum
sem honum eru ætluð nema með
því að fá aðalræðismannstitil,
sagði Sverrir Haukur: „Þeir eru
með í Kanada ákveðið fyrirkomu-
lag á því hverjir megi vera útsend-
ir starfsmenn erlendra rikja. Sú
starfsemi miðast við það að vera
með útsenda starfsmenn í Ottawa
og/eða á aðalræðismannsskrifstof-
um vítt og breitt um Kanada. Þá
ræður viðkomandi þjóð, í þessu til-
Mikiö kveðjuhóf var haldið Svavari og Guðrúnu Ágústsdóttur konu hans þegar þau yfirgáfu hið
pólitíska svið og fluttu til Kanada.
Svavar Gestsson, skipaður sendi-
herra utanríkisþjónustunnar og ný-
útnefndur aðalræðismaður íslands í
Winnipeg.
fara eftir því fyrirkomulagi sem
við þurfum að gera miðað við ósk-
ir Kanadamanna," sagði ráðuneyt-
isstjóri.
Breytt staða
„Staða mín er breytt. Eina leiðin
til þess að við gætum fengið Svavar
viðurkenndan hér í Manitoba, var
að gera hann að aðalræðismanni.
Ég er enn aðalræðismaður, en fyrst
og fremst í Gimli frekar en
Winnipeg," sagði Neil Bardal í sam-
tali við DV. „Þetta er fyrst og fremst
spuming um nafngiftir og titla til að
koma til móts við viss formsatriði
stjómsýslunnar en ekki að lækka
einn né neinn í tign,“ sagði Neil
Bardal enn fremur.
Á dagskrá er að opna sendiráð í
Kanada eftir tvö ár. Þangað til
sendiráðið verður stofnað var upp-
haflega hugmyndin sú að Svavar
yrði sérlegur sendifulltrúi frá sendi-
DV-mynd E.OI.
ráðinu í Washington, með aðsetur í
Winnipeg í Manitobaríki, til að und-
irbúa hátíðarhöld vegna aldamót-
anna, minnast landafunda nor-
rænna manna í Vesturheimi og efla
tengsl íslands og Kanada, ekki síst
við afkomendur íslenskra landnema
þar á 19. öldinni. En þá kom babb í
bátinn því að samkvæmt reglum
Kanadamanna getur slíkur sérlegur
sendifulltrúi, eða special envoy,
ekki dvalið í landinu í heil tvö ár,
heldur einungis tvær vikur. Það
varð því að hafa hraðar hendur og
niðurstaðan var sú sem fyrr segir,
að útnefna Svavar í skyndi aðalræð-
ismann íslands í Winnipeg og forða
honum frá því að verða undirmaður
ræðismannsins þar, eða gerður aft-
urreka ella.
DV hefur reynt að ná tali af Hall-
dóri Ásgrímssyni utanríkisráðherra
vegna þessa máls, en án árangurs.
-SÁ
Sök sjónvarpsins
Nú er kosningabaráttan haf-
in, eftir því sem flokkarnir
segja, án þess þó að kjósendur
verði mikið varir við að kosn-
ingar séu í nánd. Nema þegar
flokkamir halda upp á það að
kosningar séu í nánd. Þannig
komu Samylkingarmenn sam-
an i Háskólabíói um síðustu
helgi og sungu svo hátt að eld-
varnakerfið gaf frá sér hættu-
merki. Davið Oddsson lét líka
sjá sig um helgina og innlegg
hans í kosningaslaginn var að
lesa eftir sig smásögu, sem
þótti fyndin. Halldór Ásgríms-
son er sömuleiðis að vekja at-
hygli á framboði sínu með því
heyja stríð niður í Júgóslavíu
og segja frá því að hann hafi verið að tala við Al-
bright, utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Eini
maðurinn sem talar um pólitíik er Sverrir Her-
mannsson og fyrir vikið er ekki á hann hlustað.
Á þriðjudag í síðustu viku hófúst almennar
stjómmálaumræður í sjónvarpinu, með þátttöku
nokkurra þungavigtarmanna í pólitíkinni. Ekki
tókst betur til en svo að áheyrendur sofnuðu
flestir undir umræðunni.
Nokkur gagnrýni hefur komið fram í kjölfar
þessa sjónvarpsþáttar og beinist hún aðallega að
þvi hversu daufleg þessi barátta og umræðan sé.
Ekki það að talsmenn flokkanna hafl ekki gert
sitt besta, heldur hafa þeir ekkert til að tala um
og svo hitt, sem er talin aðalskýringin á deyfð-
inni, að stjórnendur þáttarins, sjónvarpsmenn-
inrir og sjónvarpið sjálft, voru of daufír sjálfir.
Það er sem sé búið að finna sökudólginn í þess-
ari kosningabaráttu og fer vel á því að skella
skuldinni á þá sem í rauninni stjóma sijómmál-
unum og umræðunum í landinu og bera alla sök-
ina á slakri frammistöðu stjórnmálamannanna.
Frambjóöendur hafa sjálfsagt frá ýmsu aö segja
og margt um að deila og margar góðar tillögur í
farteskinu, en þeir bara komast ekki aö fyrir háif-
sofandi og meðvitundarlausum sjónvarpsmönn-
um, sem gera
allt til að
drepa umræð-
unniádreifog
gera hana
leiðinlega.
Verst er að
sjónvarps-
mennimir era
ekki sjálfir í
framboði, því
annars gætu
kjósendur láti
andúð sína á
þeim í ljós
með því að
kjósa þá ekki.
í staðinn
neyðumst til
að greiða þeim flokkum atkvæði sem hafa allt til
bmnns að bera til að gera þessa kosningabaráttu
líflega, en komast ekki að fyrir daufum sjón-
varpsmönnum.
Þar er illa farið með góð atkvæði og illa farið
með baráttuglaða frambjóðendur. En þeir geta þó
altént lesið smásögur til að hafa ofan af fyrir kjós-
endum í aðdraganda þessara kosninga. Nú eða
sungiö. Eða háð stríð á Balkanskaganum. Allt
nema tala um pólitík, sem enginn kemst upp með
vegna lélegrar frammistöðu sjónvarpsins. Sjón-
varpið er að eyðileggja kosningabaráttuna.
Dagfari
Innilegt faðmlag
Vel fór á með þeim Gisla Hjart-
arsyni, krata og núverandi Sam-
fyikingarmanni á ísafirði, og Gunn-
laugi Sigmundssyni, þingmanni
Framsóknar á Vestflörðum, i hófi
vegna endurvígslu
flugstöðvarinnar á
ísaftrði á dögun-
um. Svo innilegt
þótti faðmlag
þeirra félaga að
spumingar vökn-
uðu um hvort
Gísh væri á leið
á eftir sínum
gamla félaga úr AI-
þýðubandalaginu, Kristni H.
Gunnarssyni, yfir í Framsókn -
eða hvort Gunnlaugur væri farinn
að renna hýrum augum til Samfylk-
ingarinnar, þar sem Kristinn hefúr
nú yfirtekið toppstöðu Framsóknar
í kjördæminu....
Gild afsökun
Nú eru einungis
tæpar fjórar vikur
í kosningar og
skjálfti kominn í
frambjóðendur.
Hver af öðrum
dúkka þeir upp
þar sem fleiri en
einn og fleiri en
tveir koma saman, t.d. á
íþróttakappleikjum. Þannig mátti
sjá vetnisfrömuðinn Hjálmar
Ámason á leik Hauka og Aftureld-
ingar i úrshtakeppni handboltans á
dögunum. Þó bæði lið séu úr kjör-
dæmi Hjálmars er hvorugt úr
Reykjanesbæ, sem gefúr grunsemd-
um um atkvæðaveiðar byr undir
báða vængi. Það varpaði hins vegar
skugga á meintar veiðar að seuss-
nautum Hjálmars var visað úr húsi
vegna hegðunar. Hvað sem líður
áhuga þingmanna og þingmanns-
efha á handbolta, þá má segja aö
Þorgerður Gunnarsdóttir, sjálf-
stæðiskona í Hafnarfirði, hafi bestu
afsökunina fyrir að sjást meðal
áhorfenda á handboltaleikjum
næstu vikur. Hún er eiginkona
Kristjáns Arasonar, sem kominn
er í úrslit með liði sinu FH....
Moldin rýkur
í Víkurfréttum mátti í vikunni
sem leið lesa skorinorta lofgrein um
Hjálmar Ámason,
þingmann Fram-
sóknar. Fyrirsögnin
var: Verður er mað-
ur verka sinna. í
greininni em les-
endur hvattir til að
tryggja „duglegum
þingmanni" sæti
á Alþingi með því
að kjósa Framsóknar-
flokkinn í kosningunum í vor. Ekki
er þverfótað fyrir greinum sem
þessum um þessar mundir og ekk-
ert merkilegt þó þingmenn séu lof-
aðir í hástert af aðdáendum sínum.
En það sem þykir skjóta heldur
skökku við er að höfundur um-
ræddrar greinar er enginn annar en
Jón Gröndal, stórkrati úr Grinda-
vík. „Á dauða minum átti ég von,“
sagði góðvinur Sandkoms og fannst
moldin heldur betur
farin að rjúka í logn-
inu....
Helmingaskipti
Töluvert er um
það rætt þessa dag-
ana að Halldór J.
Kristjánsson, sá
er settist í stól
bankastjóra Lands-
bankans í kjölfar skandalmálanna
þar á bæ, muni brátt snúa aftur í
viöskiptaráðuneytið. Kemur helm-
ingaskiptareglan þar við sögu. Rætt
er um að Helga Jónsdóttir borgar-
ritari verði seðlabankastjóri, setjist
í stólinn hans Steingrlms Her-
mannssonar. En sjálfstæðismenn
gera þá kröfú til landsbankastjóra-
stöðunnar. Í því sambandi ber nafn
Þórarins V. Þórarinssonar, fram-
vkæmdastjóra VSÍ, oft á góma. En
þetta getur náttúrlega ekki gerst
fyrr en eftir kosningar - og óbreytt
ástand....
Umsjón Haukur L Hauksson
Netfang: sandkorn @ff. is