Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1999, Page 9
MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 1999
9
r
Batnandi mönnum er best að lifa:
Gore gaf stór-
til líknarmála
Indónesía:
Örðugt að halda
úti heiðarlegum
kosningum
Andrúmsloft ofbeldis og bar-
áttu kann að koma í veg fyrir að
hægt sé að halda heiðarlegar
kosningar í
Indónesíu í júni
næstkomandi.
Þetta er skoðun
Suhartos, fyrrver-
andi forseta lands-
ins, en hann veitti
sitt fyrsta viðtal í
gær frá því hann
yfirgaf forsetastól-
inn i mai á síðasta ári.
Suharto segir það áhyggjuefni
að stjómmálaflokkum hafi fjölgað
úr þremur í 48 að undanförnu.
„Þegar flokkarnir voru aðeins
þrír gat verið örðugt að halda úti
heiðarlegum kosningum. Ég dreg
í efa að það sé mögulegt þegar 48
flokkar eru í framboði," sagði
Suharto. Hann viðurkenndi þó að
almennar kosningar væru ein
leið til umbóta, en núverandi
ástand væri til þess fallið að ýta
undir áhrif kommúnisma í land-
inu.
Grænland:
Al
fé
A1 Gore, varaforseti Bandaríkj-
anna, og Tipper eiginkona hans
bættu svo sannarlega ráð sitt í
fyrra. Hjónin gáfu þá hvorki meira
né minna en sem svarar rúmlega
einni milljón íslenskra króna til
góðgerðarmála. Árið á undan gáfu
þau ekki nema um tuttugu og fimm
þúsund krónur og þótt mörgum
skrýtið.
Þetta kemur fram í upplýsingum
um tekjur og skatta varaforsetans,
og forsetans líka, sem embættis-
menn Hvíta hússins gerðu opinber-
ar í gær. Samkvæmt skattaskýrslu
þénuðu Gore-hjónin 224.376 dollara,
eða nálægt 16 milljónum króna, ár-
ið 1998 sem er nokkur hækkun frá
árinu 1997 þegar þau þénuðu 197.729
dollara.
Bill Clinton forseti og Hillary
þénuðu nokkru meira, eða 504.109
Al Gore bætti ráð sitt í fyrra og gaf
rausnarlega til líknarmála.
dollcira, sem jafngildir rúmum 35
milljónum króna. Það er nokkru
minna en árið á undan þegar tekjur
forsetahjónanna námu 569.510 doll-
urum.
Embættismenn Hvíta hússins
gerðu sérstakt far um að benda á
hve raunsnarlegur varaforsetinn
hefði verið við góðgerðarstofnanir.
Framlög hans til líknarmála runnu
til heimilisleysingja og geðsjúkra,
auk þess sem hann styrkti kirkju-
og menntastofnanir.
Gore, sem að öllum líkindum
verður forsetaefni demókrata í
forsetakosningunum á næsta ári,
mátti þola háð og spott fyrir
góðgerðargjafir sínar 1997.
Repúblikanar gengu meira að segja
svo langt að uppnefna hann
nískupúka. En batnandi manni er
best að lifa.
Forsetakosningar í Alsír:
Óttast kosningasvik
Mesti demanta-
fundur til þessa
Mikið magn demanta fannst
nýlega á Grænlandi. Að sögn
heimastjómarinnar er það fyrir-
tækið Minerals og Monopros Ltd
sem á heiðurinn af fundinum.
Hans Kristian Schonwandt,
sem veitir auðlindastofnun Græn-
lands forstöðu, segir fundinn stórt
skref fram á við í demtanarann-
sóknum. Demantafundurinn nú
er hundraðfalt stærri en sá síðasti
á Grænlandi.
Lest seinkar
Að minnsta kosti eins árs seink-
un verður á því að fyrirhugað jarð-
lestakerfi í Kaupmannahöfn verði
tekið í notkun.
Að því er danska blaðið Jyllands-
Posten sagði í morgun er það
danska ríkisendurskoðunin sem
upplýsir þetta í leynilegu bréfi.
Fyrirtækið sem vinnur verkið
skýrði frá því í fyrra að jarðlestin
yrði ekki tilbúin á réttum tima árið
2000 en til þessa hefur ekki verið
ljóst hve mikil seinkunin yrði.
Sex frambjóðendur í forsetakosn-
ingunum sem verða í Alsír á
fimmtudag hafa óskað eftir fundi
með fráfarandi forseta til að stöðva
kosningasvik sem þeir segja að séu
þegar hafin fyrir hönd frambjóð-
anda hersins.
Búist var við að sexmenningamir
hittu forsetann í morgun. Frambjóð-
endurnir ræddu saman í gær og að
þeim fundi loknum sendu þeir frá
sér yfirlýsingu þar sem þeir sögðust
hafa sannanir fyrir kosningasvindli
í herbúðum þar sem hermenn, lög-
regluþjónar og tollverðir byrjuðu að
kjósa á mánudag.
Jack Kevorkian fer í steininn.
Sjálfsmorðs-
læknirinn dæmd-
ur í fangelsi
Bandaríski læknirinn Jack
Kevorkian, sem frægur er fyrir að
aðstoða dauðvona sjúklinga við
að stytta sér aldur, var dæmdur í
10 til 25 ára fangelsisvistar í gær
fyrir iðju sína. Mál var höfðað
gegn honum fyrir aö aðstoða fár-
sjúkan mann frá Michigan. Atvik-
ið var tekið upp á myndband og
sýnt í sjónvarpsþættinum 60 mín-
útum.
Kevorkian hefur lengi barist
fyrir lögleiðingu sjálfsmorðs með
aðstoð. í myndbandsupptökunni
skoraði hann á saksóknara að
sækja sig til saka svo hægt væri
að gera út um mál þetta í eitt
skipti fyrir öll.
Ekkja mannsins sem Kevorki-
an, eða doktor dauði, eins og
hann var kallaður, var dæmdur
fyrir að aðstoða bað dómarann að
sýna miskunn við ákvörðun refs-
ingarinnar. Allt kom þó fyrir
ekki.
Kevorkian hefur aðstoðað að
minnsta kosti 130 manns yfir
móðuna miklu.
Yfir fimm hundruð námsmenn söfnuðust saman við hús hæstaréttar í Kuala
Lumpur í gær til þess að sýna fjármálaráðherranum fyrrverandi, Anwar
Ibrahim, stuðning. Vopnaðar sveitir leystu upp fundinn. Símamynd Reuter
Anwar dæmdur til fangavistar:
Brást ókvæða við
Anwar Ibrahim, fyrrverandi fjár-
málaráðherra Indónesíu, brást
ókvæða við dómi sem kveðinn var
upp yfir honum í gær. Samkvæmt
dómnum er Anwar Ibrahim gert að
sitja í fangelsi næstu 24 árin. Ákær-
umar snerta kynlífsháttalag ráð-
herrans fyrrverandi, en hann var
einnig sakaður um að hafa reynt að
hafa áhrif á- rannsókn málsins með
því að gefa lögreglu fyrirskipanir.
Anwar hafði gert ráð fyrir
tveggja ári fangelsisdómi og því
var úrskurðurinn í gær mikið áfall.
„Þetta er forkastanlegt og klass-
ískt dæmi um pólitíska spillingu
sem kollríður öllu hér á landi,“
sagði Anwar í yfirlýsingu sem
hann flutti fyrir utan dómhúsið í
gær.
Enn frekari réttarhöld bíða
Anwars sem á yfir höfði sér fimm
spillingarákærur og því gæti fang-
elsisdómur hans lengst enn frekar.
BEIHÞYN N I N G
[Jeinþynning er sérstakiega vandamái meðal aldraðra þar sem beinþéttnin rýrnar með
aldri. Ætla má að um 1000 beinbrot á ári tengist beinþynningu hér á landi, þar at eru
meira en 300 mjaðmarbrot og hvert slíkt brot kostar eina og hálfa milljón króna í meðferðar-
kostnað. Góð lyf eru nú til gegn beinþynningu þegar það á við. Frekari rannsókna er þó þörf
á hvernig best er unnt að hindra beinþynningu og beinbrot aldraðra sem virðast meira
vandamál hér og á hinum Norðurlöndunum en víðast annars staðar í heiminum.
Gunnar Sigurðsson, prófessor