Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1999, Side 16
16
MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 1999
MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 1999
33
Iþróttir
íþróttir
Bland á »oka
Kevin Keegan og lærisveinar hans
í Fulham unnu sér sæti í ensku B-
deildinni með því að sigra Gilling-
ham, 3-0, í C-deildinni. Walsall
vann góðan útisigur á Bour-
nemouth, 0-1, og er í 2. sæti deild-
arinnar. Bjarnólfur og Sigurður
Ragnar voru varamenn hjá
Walsail. Oldham sigraði Bristol
Rovers, 2-1. Þorvaldur Örlygsson
lék ekki með Oldham vegna
meiðsla. Þá unnu Hermann
Hreiðarsson og félagar hans í
Brentford 1-3 útisigur á Chester.
Hermann átti góðan leik.
Bayern Miinchen tapaði sínum
þriðja leik í þýsku A-deildinni í
knattspymu í gær þegar liðið lá
fyrir meisturum Kaiserslautem,
2-1. Önnur úrslit: Stuttgart-Núm-
berg 0-0, Frankfurt-Wolfsburg 0-1,
Bremen-Hamburg 0-0, Schalke-H.
Rostock 1-0.
Tveir leikir vora í deildabikar-
keppninni í knattspyrnu í gær. FH
sigraði Aftureldingu, 4-3, og Víðir
vann Hauka, 1-2.
Stefán Arnarson hefur verið ráð-
inn þjáifari 1. deildarliðs Víkings í
handknattleik kvenna. Stefán tek-
ur við af Ingu Láru Þórisdóttur.
Inga Lára og Vibekke Larsen leika
ekki meö Víkingi á næstu leiktíð
en þær em á leið til útlanda.
-GH/-SK
Skoða Þýskaland
- nokkur þýsk handboltalið sýna Gunnari Berg Viktorssyni áhuga
Nokkur þýsk handknattleikslið hafa sýnt áhuga á að fá
Gunnar Berg Viktorsson, Eyjamanninn í liði Fram, til
liðs við sig fyrir næstu leiktíð. B-deildarliðin Solingen og
Dtisseldorf hafa sett sig í samband við umboðsmann
Gunnars og þá er eitt lið úr A-deildinni með Gunnar í
sigtinu.
Samningur Gunnars Bergs við Framara rann út eftir
tapleikinn gegn FH i fyrrakvöld en hann hefúr leikið
með Safamýrarliðinu undanfarin tvö keppnistímabil.
„Ég er svona að fara yfir stöðuna og í dag er óvíst hvað
ég mun gera. Ég reikna nú samt með því að skoða þetta
í Þýskalandi áður en ég ákveð framhaldið. Fari svo að ég
verð hér heima þá myndi ég telja mestar líkur á að ég
verði áfram hjá Fram,“ sagði Gunnar Berg Viktorsson í
samtali við DV í gær.
Ekki er búist við miklum breytingum á liði Fram fyr-
ir næstu leiktíð því allir leikmenn liðsins að Gunnari
Berg undanskildum eru á samningi. Útlendingamir
tveir, Oleg Titov og Andrei Astafiev, em með uppsegjan-
lega samninga af hálfu Framara en ekki hefur verið tek-
in ákvörðun hvort þeim verður sagt upp.
Spumingin sem brennur á vörum stuðningsmanna
Fram og fleiri er sú hvaða þjálfari tekur við Fram-liðinu
af Guðmundi Guðmundssyni.
„Það hefur ekki verið tekin nein ákvörðun enn um það
hver tekur við liðinu en nú þegar við erum úr leik för-
um við á fulla ferð í þessi mál. Við erum með nokkra
menn í sigtinu hér heima og einn erlendan og ég vonast
til þess að botn komist í þessi mál mjög fljótlega," sagöi
Knútur G. Hauksson, formaður handknattleiksdeildar
Fram, viö DV.
-GH
Haukar vilja fá Svala
Svali Björgvinsson er efstur á óskalista Hauka um að taka
viö þjálfun á úrvalsdeildarliði félagsins í körfuknattleik fyr-
ir næstu leikíö og eru viðræður þegar famar af stað þess
efhis. Svali þjálfaði lið Vals í vetur en hefur ákveðið aö láta
af störfum hjá Hlíðarendaliðinu.
Haukar vilja fá Svala til aö leysa Jón Arnar Ingvarsson af
hólmi. „Ég ætla að einbeita mér að spilamennskunni á
næstu leiktíð. Ég tel mig eiga mikið inni og ég ætla að
leggja 100% metnaö minn á að bæta mig sem leikmaður. Það
Tekur Svali við er mikiU hugur í okkur eftir dapurt tímabil í vetur,“ sagði
liði Hauka? Jón Arnar í samtali við DV í gærkvöldi. -GH
Fetar Love í fótspor Normans?
Ástralski kylflngurinn
Greg Norman á samúð
margra áhugamanna um golf
þessa dagana eftir að hafa
enn einn ganginn misst af
stórum titli á lokaspretti.
Golfsérfræðingar eru nú
farnir að velta því fyrir sér
hvort Davis Love III, sem
varð annar á US Masters um
liðna helgi, muni taka við
vafasömu hlutverki Normans
á stórmótunum.
Love hefur tvívegis orðið
annar á US Masters og árið
1996 varð hann annar á US
Open. Þá þrípúttaði Love á
síðustu holu og tapaði með
eins höggs mun.
Greg Norman hefur tvíveg-
is sigrað á stórmóti og átta
sinnum orðið í öðru sæti og
það er met.
-SK
Úrslitin í nótt:
Cleveland-Washington .... 86-77
Kemp 32, Person 24, Declerq 11 -
Strickland 19, Richmond 17, Thorpe 13.
Miami-Chicago.............90-74
Mouming 19, Hardaway 18, Mashbum
17 - Kukoc 25, Harper 15, Larae 15.
New York-Philadelphia . .. 91-72
Thomas 18, Johnson 17, Sprewell 16 -
Hughes 12, Iverson 11, Hill 10.
Portland-LA Lakers......113-86
Stoudamire 16, Rider 16, Grant 13 -
Shaq 24, Bryant 20, Fox 17.
Dallas-San Antonio .......92-86
Finley 25, Trent 18, Nowitzki 12 -
Robinson 22, Duncan 21, Daniels 13.
Milwaukee-Atlanta ........91-84
D.Curry 20, Robinson 18, Allen 18 -
Mutombo 21, Blaylock 18, Long 12.
LA Clippers-New Jersey . 109-101
Murray 22, Nesby 20, Taylor 18 -
Van Horn 33, Marbury 23, Kittles 16.
Sacramento-Utah . . (frl.) 100-105
Williamson 22, Divac 17, Webber 16 -
Malone 30, Russell 24, Stockton 12.
-VS
Guðriður Guðjónsdóttir í kröppum dansi gegn Björk Ægisdóttur í
FH í ieik liðanna í gærkvöld. DV-mynd ÞÖK
Davis Love III.
2-0, 3-1, 6-3, 8-4, 9-6, 10-7, (11-9),
14-10,15-11,15-15,17-17,19-19, 22-21.
Mörk Fram: Jóna Björg Pálma-
dóttir 8, Svanhildur Þengilsdóttir 4,
Arna Steinsen 3, Díana Guðjónsdóttir
2, Olga Prohorova 2, Guðríður Guð-
jónsdóttir 2, Marina Zoueva 1/1.
Varin skot: Hugrún Þorsteinsdótt-
ir 13.
Mörk FH: Guðrún Hólmgeirsdótt-
ir 5, Dagný Skúladóttir 5, Þórdis
Brynjólfsdóttir 4/2, Björk Ægisdóttir
3, Drífa Skúladóttir 2, Hildur Erlings-
dóttir 2.
Varin skot: Jolanta Slapikiene 24.
Brottvísanir: Fram 2 mín., FH 4
min.
Dómarar: Guðjón L. Sigurðsson
og Ólafur Haraldsson.
Áhorfendur: 150.
Maður leiksins: Jolanta Slapiki-
ene, markvörður FH.
„Ef stuðningsmenn liðanna geta
mætt á karlaleikina þá geta þeir al-
veg eins mætt á kvennaleikina,“
sagði Hildur Erlingsdóttir, fyrirliði
FH, og hvatti áhorfendur til að mæta
á leik FH og Fram sem verður í
íþróttahúsinu Kaplakrika annað
kvöld og hefst kl. 20.
Teitur Örlygsson skoraði 14 stig fyrir Njarðvík gegn Keflavík í gærkvöld. Hér er hann með knöttinn en
til varnar er Falur Harðarson. DV-mynd ÞÖK
4
^ Þjálfaramál KR í körfunni:
Oskar og Jón?
Forráðamenn körfuknattleiksdeildar KR
hafa rætt við Óskar Kristjánsson varðandi
þjálfun meistaraflokks karla á næsta tíma-
bili en Óskar náði sem kunnugt er frábær-
um árangri með kvennalið félagsins á ný-
liðnu tímabili. DV hefur heimildir fyrir
þvi að KR-ingar vilji fá Óskar og Jón Sig-
urðsson, fyrrum þjálfara KR, saman til að
stýra liðinu á næsta tímabili og taka við
starfi Bandaríkjamannsins Keith Vassells
sem ekki mun þjálfa liðið áfram.
„Ég neita því ekki að ég hef átt einn
fund með formanni deildarinnar um þessi
mál en það hefur engin ákvörðun verið
Óskar Kristjánsson. Jón Sigurðsson.
tekin í þessu sambandi og eins hvort ég
held áfram með stelpumar. Það yrði ekki
leiðinlegt að þjálfa KR á 100 ára afmælinu
og ég tala nú ekki um í nýja íþróttahús-
inu,“ sagði Óskar í samtali við DV í gær en
hann lék með KR-liðinu í vetur.
-GH
Sagt eftir
leikinn
Fannar Ólafsson,
Keflavik
„Við náðum ekki að leika
á þeim hraða sem við viljum
og létum þá stjóma hraðan-
um. Við vorum að spila
skelfilega vörn í fyrri hálf-
leik og misstum þá langt
fram úr okkur. Eins vildu
skotin ekki detta í þessum
leik og við þurfum að hitta
betur í næsta leik ef ekki á
iila að fara ásamt því að laga
vamarleikinn. Það er nokk-
uð ljóst að við verðum að
mæta brjálaðir í næsta leik.“
Siguróur Valgeirsson, aó-
stoðarþjálfari Keflavikur:
„Við erum ails ekki sáttir
við þessa stöðu. Viö veröum
að laga vamarleikinn fyrir
næsta leik ef ekki á illa að
fara. Við vomm að spila
skelfilegan fyrri hálfleik og
munurinn var of mikill til að
ná að vinna hann upp á móti
sterku liði eins og Njarðvík.
Núna tökum við okkur sam-
an í andlitinu og ég lofa að
þetta er ekki búið þó við
séum í slæmri stöðu eins og
er og minni á að staöan er
bara 1-0.“
Friórik Stefánsson,
Njarðvik:
„Þetta var mikill baráttu-
sigur og Njarðvíkurhjartað
sá um að koma honum í
höfn. Við mættum vel
stemmdir til leiks og stað-
ráðnir að gefa allt í leikinn.
Skotin vom ekki að detta hjá
þeim og við getum ekki gert
ráð fyrir að hittnin hjá þeim
verði svona í næsta leik. Það
verður sama barátta í næsta
leik í Njarðvik og við tökum
vel á móti þeim þar.“
Friðrik Rúnarsson, þjálf-
ari Njarðvíkur:
„I sjálfu sér eru þetta ólík
liö þar sem við stólum ekki
eins mikið á 3ja stiga skotin.
Viö leystum þá stöðu mjög
vel í seinni hálfleik að halda
þeim frá okkur og ég er mjög
ánægður með það. Viö verð-
um að halda áfram að vera
„fókusaðir" allan timann og
einnig lít ég á að það þarf að
vinna 3 leiki til að vinna ein-
vígið og skiptir þá engu máli
hvenær þeim þremur er
landað eða hvar.“ -BG
Njarðvík tók forystuna gegn Keflavík:
- skildu liðin að er Njarðvík sigraði, 79-
Keflavík og Njarðvík háðu sinn fyrsta
leik um íslandsmeistaratitilinn í Keflavík
í gærkvöld og fór svo að gestimir úr
Njarðvík höfðu betur, 79-89, eftir mikinn
baráttuleik. Þar með leiða Njarðvíkingar
einvígið, 1-0, en það lið sem fyrr vinnur
3 leiki kemur til með að hampa bikarnum
þegar upp verður staðið.
Bæöi lið spiluðu nokkuð hratt í byrjun
og virtist það vera það sem koma skyldi
en Njarövíkingar fóru að hægja á sínum
aðgerðum og hentaði það þeim miklu
betur. Eftir 10 mínútna leik höfðu
Njarðvíkingar náð 12 stiga forastu, 15-27,
og áttu ekki í miklum erflðleikum að
Keflavík (39) 79
Njardvík (54) 89
2-4, 9-13, 15-19, 15-27, 22-31, 26-43,
34-47, (39-54), 46-54, 54-62, 58-65,
60-72, 69-78, 74-84, 79-89.
Stig Keflavíkur: Damon Johnson 23,
Falur Harðarson 14, Fannar Ólafsson
12, Gunnar Einarsson 11, Birgir
Birgisson 9, Guðjón Skúlason 5,
Kristján Guðlaugsson 2, Hjörtur
Harðarson 2, Sæmundur Oddsson 1.
Stig Njarðvikur: Brenton Birming-
ham 29, Friðrik Stefánsson 15, Frið-
rik Ragnarsson 14, Teitur Örlygsson
14, Hermann Hauksson 9, Páll Krist-
insson 8.
Vítanýting: Keflavlk 11/19, Njarðvík
24/28.
3ja stiga körfur: Keflavlk 8/34,
Njarðvík 7/21.
Fráköst: Keflavík 35, Njarðvík 45.
Dómarar: Leifur Garðarsson og
Kristinn Albertsson, Leifur var mjög
góður en Kristinn gerði nokkur mis-
tök.
Áhorfendur: 900.
Maöur leiksins: Friðrik Stefáns-
son, Njarðvík.
brjóta vörn Keflavlkur sem var mjög
slök. Stuttu setnna breytti Sigurður
Ingimundarson yfir í svæðisvöm en það
vafðist ekki fyrir gestunum sem héldu
áfram að skora trekk f trekk. Hittni
Keflvíkinga var mjög slök allan fyrri
hálfleikinn og stóluðu þeir mikið á 3ja
stiga skotin, sem hafa reynst þeim vel í
vetur, en aðeins 2 fóru niður fyrir hlé.
Damon Johnson var sá eini sem var að
klára færin sín og Fannar Ólafsson
kláraði sín skot en aðrir voru í
vandræðum. Allir leikmenn Njarðvíkur
spiluðu vel fyrir hlé og stjórnaði Friðrik
Ragnarsson sóknarleiknum einstaklega
vel með góðum sendingum og keyrði upp
hraöann þegar þaö átti við og hægði svo
á þegar þess þurfti með.
Fastur varnarleikur Keflvíkinga í
síðari hálfleik kostaði þá margar villur
og var Damon kominn með 4 villur þegar
13 mínútur voru eftir af leiknum og
þurfti að fara út af. Þegar 10 mínútur
voru eftir vora Njarðvíkingar komnir
með skotrétt og átti það efth að koma sér
vel fyrir þá þar sem þeir voru tíðir gestir
á vítalinunni það sem eftir lifði leiks og
nýttu vítin mjög vel. Keflavik náði
muninum ekki nema i 7 stig og Njarðvík
svaraði alltaf þegar Keflvíkingar gerðu
sig líklega til að ógna að einhverju ráði.
Bestu menn Njarðvíkurliðsins voru
Friðrik Stefánsson og Brenton Birm-
ingham og átti Friðrik sinn besta leik í
langan tíma. Hann reif niður 16 fráköst
og varði 3 skot, ásamt því að skora 15 stig
og hefði getað verið með yfir 20 stig en
var óheppinn með nokkur skot. Nafni
hans Ragnarsson var einnig mjög góður
og náði þrefaldri tvennu, skoraði 14 stig,
tók 10 fráköst og gaf 10 stoðsendingar.
Keflvíkingar geta nagað sig í
handarbökin og svona frammistaða
skilar ekki íslandsmeistaratitlinum. Það
er óafsakanlegt af leikmönnum að leggja
sig ekki 100% í vamarleikinn, eins og
gerðist í fyrri hálfleik. Leikur þeirra
lagaðist til muna i seinni hálfleik og þá
sérstaklega í vörn, en munurinn var of
mikill til að góð barátta næöi að vinna
hann upp. Einnig var hittni leikmanna
liðsins ekki góö og því enn meiri ástæða
að gefa allt í vömina. Damon Johnson
átti ekki góðan leik en var í strangri
gæslu allan tímann. -BG
Aðalfundur Frjálsíþróttadeildar Breiðabliks
verður haldinn í íþróttahúsinu Smáranum,
þriðjudaginn 20. apríl 1999, kl. 20.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Önnur mál.
Stjórnin.
Eiður Smári bjargaði
Bolton í gærkvöld.
Eiður Smári með
sigurmark Bolton
Eiður Smári Guðjohnsen tryggði Bolton sigur á Bristol
City i ensku B-deildinni í knattspymu í gær. Eiður skoraði
eina mark leiksins á 7. mínútu. Guðni Bergsson var á vara-
mannabekknum hjá Bolton sem er í 6. sæti deildarinnar.
Sunderland tryggði sér sæti í A-deildinni með 2-5 sigri á
Bury og skoraði Kevin Phillips 4 mörk fyrir Sunderland.
Grimsby lagði QPR, 1-0, Port Vale og Bradford gerðu 1-1
jafntefli og sömuleiðis WBA og Swindon.
Fram (11) 22
FH (9)21
Bland í poka
KR varð Reykjavíkur-
meistari kvenna í knatt-
spyrnu á sunnudags-
kvöldið með því að sigra
Fjölni, 8-0. KR dugði
jafntefli eftir að hafa
sigrað Val á dögunum,
4-0, og var ekki í vand-
ræðum með að tryggja
sér titilinn.
TBR sigraði i deilda-
keppni Badmintonsam-
bands íslands sem lauk
um síðustu helgi. BH úr
Hafnarflrði varð í ööra
sæti, Hrunamenn i
þriðja, ÍA i flórða, TBA
frá Akureyri í fimmta og
Víkingar ráku lestina.
Tryggvi Erlingsson er
íslandsmeistari í 2. flokki
1 snóker en hann vann
Þórð Elvarsson, 5-1, i
úrslitaleik á Billiardstofu
Hafharfjarðar. Magnús
Harrýsson og Ingvar
Hilmarsson urðu í 3.-4.
sæti. Tryggvi sigraði á
dögunum í stigatvímenn-
ingi ásamt Sveinbirni
Hannessyni og er því
kominn með tvo íslands-
meistaratitla.
Eins og fram hefur
komið heimsækja ís-
lands- og bikarmeistarar
ÍBV í knattspymu HB í
Þórshöfn sem era Fær-
eyja- og bikarmeistarar,
á sumardaginn fyrsta,
flmmtudaginn 22. apríl
nk.
Farið er snemma að
morgni beint frá Eyjum
og komið heim seinni
partinn daginn eftir.
Leikurinn fer fram í
Þórshöfn á fimmtudegin-
um kl. 18. Þeir sem hafa
hug á að fara með era
vinsamlegast beðnir að
hafa samband strax viö
skrifstofu knattspymu-
deildar, sími 481 2060 eða
698 9645, og láta skrá sig.
Friórik Ingi Rúnars-
son, þjálfari Njarðvík-
inga i körfuknattleik,
náöi að setja nýtt met í
gærkvöld er lið hans
sigraði Keflavík í fyrsta
úrslitaleik liðanna. Frið-
rik stýrði liði til sigurs í
úrslitum í 13. skipti en
næstur honrnn kemur
Jón Kr. Gíslason með 12
sigra. -VS/GH/-SK
Úrslitakeppni 1. deildar kvenna í handbolta:
„Heppnin var
okkar megin“
- Fram vann nauman sigur á FH, 22-21
„Fjögurra liða úrslitaleikimir eru svona, þessi lið
eru mjög jöfn og hafa stefnt að þessu í allan vetur,
svo það má búast við því að leikimir verði svona,"
sagði Hugrún Þorsteinsdóttir, fyrirliði Fram, eftir
sigur Fram á FH í fyrsta leik þessara liða í undan-
úrslitum íslandsmótsins.
Upphafsmínútur leiksins gáfu forsmekkinn að því
sem koma myndi, taugaveiklunar gætti í báðum lið-
um sem gerðu sig sek um mörg mistök. Þau glopr-
uðu bæði fyrstu sóknum sínum og markmenn
beggja liða tóku skot úr dauðafæmm. En Framarar
settu fyrstu tvö mörkin og um leið mikla pressu á
hið unga lið FH. FH lét mótlætið hins vegar ekkert
á sig fá og hélt í við bikarmeistarana fram í hálfleik-
inn, en þá leiddi Fram, 11-9.
Sögulegar lokamínútur
Hafi taugatitringurinn verið mikill í fyrri hálfleik
þá var sá seinni svakalegur. Mistökin vom mý-
mörk, en á móti kom að markverðirnir vom að
verja vel úr hraðaupphlaupum og dauðafærum, en
FH komst meira og meira inn í leikinn og náði að
jafna, 15-15, þegar 12 mínútur voru liðnar af hálf-
leiknum.
Lokamínútumar vora sögulegar. Þjálfarar lið-
anna tóku sitt hvort leikhléið þegar 4 mínútur voru
til leiksloka og staðan 20-20, Jóna Björg Pálmadótt-
ir kom Fram í 21-20 og í næstu sókn, þegar klukk-
an sýndi 27:30, vildi Dagný Skúladóttir meina að
Olga Prohorova hefði sparkað í sig eftir skottilraun
og hrinti Olgu, sem sló til Dagnýjar. Dómarar leiks-
ins vísuðu Dagnýju af leikvelli, sem var réttur dóm-
ur, en slepptu Olgu við refsingu og því léku FH-ing-
ar einum færri næstu tvær mínútur. Þær náðu þó
að jafna leikinn með marki frá Þórdísi Brynjólfs-
dóttur en Svanhildur Þengilsdóttir tryggði Fram
sigurinn með marki á lokamínútunni.
„Heppnin var okkar megin“
„Heppnin var okkar megin að hluta til, við erum
búnar að spila í úrslitunum síðustu ár og vitum al-
veg hvað við erum að fara í og að við þurfum að
hafa fyrir þessu. Við vorum að gera alltof mikið af
mistökum í þessum leik. FH-liðið er á stöðugri upp-
leið og verða erfiðar heim að sækja," sagði Hugrún.
„Við ætlum ekki að hætta að berjast"
„Þetta var rosalega spennandi en við vomm að
klikka á dauðafærum, við vomm að nýta færin okk-
ar alveg hrikalega illa, við vomm að fá á okkur
klaufamörk og missa boltann í sóknarleiknum alveg
eins og byrjendur. Það segir sig alveg sjálft að þeg-
ar lið spilar svona þá vinnur það ekki leik. Það sem
við þurfúm að gera núna er að taka okkur saman í
andlitinu og breyta þessu. Það er engin spurning að
við eigum góða möguleika á sigri á móti þessu liði,
við ætlum ekki að hætta að berjast heldur bæta
við,“ sagði Hildur Erlingsdóttir, fyrirliði FH.
Hugrún Þorsteinsdóttir, Svanhildur Þengilsdóttir,
Jóna Björg Pálmadóttir og Ama Steinsen léku best
í liði Fram en hjá FH var Jolanta Slapikiene best
ásamt þeim Guðrúnu Hólmgeirsdóttur og Dagnýju
Skúladóttur.
-ih
<
-C
1“'
<