Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1999, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1999, Síða 18
MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 1999 Mígleki af brjósthaldinu Getur Jennifer Aniston horft framan í heiminn eftir uppákom- una á súsjíbamum í Los.Angeles á dögunum? Brjóstahaldið henn- ar fór að mígleka og stúlkan varð rennandi blaut. Þannig er ■ að leikkonan fræga og kærasta Brads Pitts fór út að borða með nokkrum vinum sínum og var í vatnsfylltu brjóstastækkandi brjóstahaldi. Einn vinurinn tók þá upp á þeim óskunda að stinga gat á brjóstahaldið og því fór sem fór. Neeson öfundar konurnar smá írska leikaranum Liam Neeson finnst dálítið erfitt að átta sig á kvenfrelsishreyfingunni. Sjálfur öfundar hann þó konur fyrir hversu opnar þær eru. „AUt i fina með kvenfrelsið, en á sama tíma erum við karlamir dálítið smeykir við það,“ segir hann i viðtali við tímaritið Movieline. „Við vorum ekki hafðir með í ráðum í þessari frelsisbaráttu," segir stórleikarinn enn fremur. Sviðsljós Erkipopparinn Michael Jackson tárfellir: Michael Jackson brast í grát þeg- ar hann ræddi um þær sálarkvalir sem fylgdu því að vera stimplaður barnaníðingur. 1r' „Ég mundi frekar skera mig á púls en gera barni mein. Ég gæti aldrei gert það. Enginn getur ímyndað sér hvað þessi viðurstyggi- legi orðrómur hefur valdið mér miklum þjáningum," segir poppar- inn í viðtali við breska blaðið Mirr- or. Jackson hefur ekki fyrr opinber- að tilfinningar sínar vegna þessa. Eins og lesendur eflaust muna sakaði þrettán ára piltur Jackson um að hafa misnotað sig kynferðis- lega. Það var árið 1993. Jackson neitaði ásökunum piltsins, en greiddi honum engu að síður stórfé. Talið er að greiðslan hafi numið um einum milljarði íslenskra króna. Sjálfúr á Jackson tvö böm með ^eiginkonu sinni, hjúkrunarkonunni Debbie Rowe. Oléttumynd af Michael Jackson og Debbie Rowe. Jackson tekur mjög nærri sér orðróminn um að hann sé barnaníðingur. „Ég elska bömin mín mjög heitt. Þau hafa breytt mér og afstöðu minni til lifsins," sagði popparinn. Það skyggir þó á gleðina, sagði hann, að orðrómurinn um meinta misnotkun á börnum hefur ekki dá- ið. Og orðrómur þessi var nærri bú- inn að binda enda á söngferil Jacksons. „Ég vildi bara óska þess að fólk léti mig friði. Ég vil bara vera heið- arlegur og láta gott af mér leiða, gera fólk hamingjusamt,“ sagði Jackson. Popparinn hefur sent frá sér nýja plötu sem hann tileinkar flótta- mönnunum frá Kosovo. Allur ágóðu af sölu plötunnar rennur til fómar- lamba þjóðernishreinsana Serba. „Ég verð svo dapur þegar ég sé myndirnar af þessum vesalings börnum. Þær koma mér til að gráta á hverjum einasta degi,“ sagði popp- arinn Michael Jackson. Latínuskutlan Jennifer Lopez þykir einhver kynþokkafyllsta leikkonan í Hollywood um þessar mundir. Og skal eng- an undra. Kynbræður hennar og systur eru líka stórhrifin af henni og sýndu það í verki í vikunni. Þá fékk hún verð- laun fyrir leik sinn í kvikmyndinni Out of Sight með hnjáskelfinum George Clooney. Robbie drekkir sorgum sínum Breski verðlaunapopparinn Robbie Williams drekkti sorgum sínum með hinni undurfögru Andreu Corr eftir að hann frétti að stóra ástin í lífi hans, Jacqui Hamilton-Smith, ætlaði að ganga í það heilaga. Robbie og Jacqui vom saman í heilt ár áður en upp úr slitnaði. Pilturinn brast í grát þegar honum bárust tíðind- in. Samt er hann nú orðinn ald- -arfjórðungs gamall. Brúðkaups- tíðindin urðu bara til að minna Robbie á að núverandi samband hans við dýringastúlkuna Nicole Appleton er í algjöru hassi. Söngfugl og leikkona óvinir Söngfuglinn Mariah Carey og leikkonan Cameron Diaz þola hvor aðra ekki. Sérstaklega er söngkonunni þó i nöp við leikkonuna eftir aö sú síðar- nefnda lýsti yfir vanþóknun sinni á tónlist þeirrar fyrr- nefndu í blaðaviðtali. Reyndar sagði Cameron að ef einhver vildi pína hana væri árangurs- ríkasta leiðin sú að binda hana og þvinga til að hlusta á plötur með Mariuh Carey. Kryddbarnið í þotugengið Ekki er ráð nema í tíma sé tekið. Kryddpían Victoria ætlar að venja mánaðargamlan sinn við þotulifinu. Strax í næstu viku halda þau til Suður-Frans til að dvelja í glæsikofa Eltons Johns gleraugnapoppara og í vikunni þar á eftir verður farið með bamið til New York. Það er nú eins konar ferð til upprunans því þar kom sá stutti undir, nán- ár tötekið í Brooklyn. Mundi aldrei nokkurn tíma gera barni mein

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.