Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1999, Blaðsíða 26
42
MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 1999
Fólk í fréttum
Magnús Pétursson
Magnús Pétursson, forstjóri Rík-
isspitalanna, Silungakvísl 18,
Reykjavík, telur að nokkur hundruð
milljónir vanti upp á að endar nái
saman við rekstur stóru sjúkrahús-
anna á yfirstandandi ári. Þetta kom
fram í DV-frétt á mánudaginn var.
Starfsferill
Magnús fæddist i Reykjavík 26.5.
1947. Hann lauk stúdentsprófi frá VÍ
1968, BA-prófi í hagfræði frá Uni-
versity of York í Englandi 1971,
stundaði framhaldsnám í þjóðhag-
fræði við Lundúnaháskóla 1973-74
og framhaldsnám í hagfræði og
skipulagsfræði við háskólann í Um-
eá í Svíþjóð 1974-76.
Magnús var kennari við MÍ og
Gagnfræðaskólann á ísafirði
1971-73, sérfræðingur hjá Fjárlaga-
og hagsýslustofnun frá 1976, skrif-
stofustjóri þar 1980-81, hagsýslu-
stjóri ríkisins 1981-88 og 1990-91,
varafulltrúi Norðurlanda í stjóm
Alþjóöagjaldeyrissjóðsins í Was-
hington DC 1988-90, ráðuneytis-
stjóri i fjármálaráðuneytinu 1991-98
og hefur verið forstjóri Rikisspítal-
anna frá 1998.
Magnús var ritari nefndar um
verkaskiptingu ríkis og sveitarfé-
laga 1976-80, sat í stjórn Nordisk
Ministerráds Budgetutskott 1977-79,
í stjóm Norræna hagrannsóknar-
ráðsins 1982-85, í stjóm Steinullar-
verksmiðjunnar hf. á Sauðárkróki
1982-86, í stjóm Stjómunarfélags ís-
lands 1987-88 og frá 1990, í stjóm
Slippstöðvarinnar hf. á Akureyri
1991-93, í stjóm SKÝRR 1992-95 og
SKÝRR hf. 1995-96,
stjórnarformaður Söfn-
unarsjóðs lífeyrisréttinda
frá 1993 og hefur setið í
fjölda stjómskipaðra
nefnda um fjármál og
heilbrigðismál.
Fjölskylda
Magnús kvæntist 29.8.
1970 Jensínu Hildi Eiríks-
dóttur, f. 30.7. 1947, kenn-
ara. Hún er dóttir Eiríks
Guðbjarts Ásgeirssonar,
f. 1.7. 1921, d. 13.10. 1983, og k.h.,
Katrínar Oddsdóttur, f. 17.3. 1923, d.
27.4. 1982, húsmóður.
Dóttir Magnúsar og Karólinu
Erlu Sveinsdóttur er Helga Björk, f.
2.6. 1968, þroskaþjálfi í Reykjavík.
Böm Magnúsar og Hildar era Ei-
ríkur Tómas, f. 29.3. 1971, bifvéla-
virki í Reykjavík; Jón Ragnar, f.
13.4. 1975, rafvélavirki í Reykjavík;
Katrín, f. 14.4. 1981, nemi.
Albróðir Magnúsar er Pétur Óli
Pétursson, f. 29.3. 1949, fram-
kvæmdastjóri, búsettur í Rússlandi.
Hálfsystkini Magnúsar, samfeðra,
eru Guðmundur Ágúst, f. 25.4. 1953,
félagsfræðingur, búsettur í Reykja-
vík; Ingibjörg, f. 28.11. 1954, félags-
ráðgjafi, búsett í Þýskalandi; Pétur,
f. 3.11.1956, jarðfræðingur, búsettur
í Reykjavik; Guðrún, f. 20.4.1961, fé-
lagsfræðingur, búsett í Reykjavík.
Foreldrar Magnúsar: Pétur Pét-
ursson, f. 21.8. 1921, d. 27.10. 1996,
skrifstofustjóri og alþm. í Reykja-
vík, og f.k.h., Ragnheiður Magnús-
dóttir, f. 28.12. 1924, húsmóðir.
Ætt
Pétur var sonur Péturs,
vinnumanns á Álftá, Pét-
urssonar, b. í Efrilág í
Eyrarsveit, Péturssonar.
Móðir Péturs vinnu-
manns var Andrea Andr-
ésdóttir.
Móðir Péturs alþm. var
Ólafia, vinnukona í Álft-
árstekk og síðar verka-
kona í Reykjavík, Eyjólfs-
dóttir, b. í Brautarholti
og í Álftárstekk, Erlends-
dóttir, b. í Skíðsholtakoti, Þórðar-
sonar. Móðir Eyjólfs var Margrét
Jónsdóttir. Móðir Ólafíu var Hall-
dóra Guðrún, systir Sigríðar, ömmu
Bjöms Á. Guðjónssonar, trompet-
leikara og hljómsveitarstjóra. Hall-
dóra Guðrún var dóttir Jóns, b. á
Ferjubakka, Tómassonar og Guð-
rúnar Guðmundsdóttur.
Ragnheiður er dóttir Magnúsar,
b. á Vindheimum í Skagafirði, Sig-
mundssonar, b. á Vindheimum,
bróður Katrínar, ömmu Guðmund-
ar í. Guðmundssonar ráðherra og
Svanhvítar, móður Davíðs Gunnars-
sonar, fyrrv. forstjóra Ríkisspítal-
anna og nú ráðuneytisstjóra heil-
brigðisráðuneytisins. Bróðir Sig-
mundar var Eyjólfur, faðir Þórðar,
prófessors og hæstaréttardómara,
föður Magnúsar, upplýsingafulltrúa
NATÓ. Annar bróðir Sigmundar
var Magnús, prófastur og alþm. á
Gilsbakka, faðir Péturs ráðherra,
föður Ásgeirs, fyrrv. sýslumanns og
Stefáns bankastjóra, föður Einars
augnlæknis. Sigmundur var sonur
Andrésar, alþm. í Syðra-Langholti,
bróður Helga í Birtingarholti, föður
Ágústs alþm. Andrés var sonrn'
Magnúsar, alþm. í Syðra-Langholti,
Andréssonar, og Katrínar, systur
Kolbeins á Hlemmiskeiði, langafa
Guðríðar, ömmu Guðlaugs Tryggva
Karlssonar. Katrín var dóttir Ei-
ríks, ættföður Reykjaættar, Vigfús-
sonar, og Ingunnar Eiríksdóttur,
ættföður Bolholtsættar, Jónssonar.
Móðir Sigmundar var Katrin Eyj-
ólfsdóttir frá Snorrastöðum, systir
Guðmundar, langafa Þorsteins borg-
arfógeta, föður Ástríðar Thoraren-
sen forsætisráðherrafrúar. Móðir
Magnúsar í Vindheimum var Mon-
ika, systir Helgu ljósmóður, ömmu
Indriða G. Þorsteinssonar, rithöf-
undar og fyrrv. ritstjóra. Helga var
einnig amma Sveins, föður Jóhanns
Péturs, fyrrv. formanns Sjálfsbjarg-
ar sem nú er látinn. Monika var
dóttir Indriða, b. á írafelli, Ámason-
ar, og Sigurlaugar ísleifsdóttur.
Móðir Ragnheiðar var Anna Jó-
hannesdóttir, b. í Neðra-Nesi á
Skaga, Jóhannessonar, b. í Björgum
á Skagaströnd, Loftssonar, b. í
Björgum, Magnússonar. Móðir Jó-
hannesar í Neðra-Nesi var Guðný
Guðmundsdóttir, b. á Ósi á Skaga-
strönd, Oddssonar. Móðir Önnu var
Margrét Stefánsdóttir, b. í Syðra-
Mallandi, Jónssonar, b. á Selá, Sig-
urðssonar. Móðir Margétar var
Ragnhildur Gottskálksdóttir, b. á
Mallandi, Eirikssonar, og Valgerðar
Ámadóttur.
Magnús Pétursson.
Afmæli
Kristján Adolfsson
Kristján Adolfsson, bifreiðarstjóri
og fyrrv. skipstjóri, Stuðlaseli 21,
Reykjavík, er fimmtugur i dag.
Starfsferill
Kristján fæddist í Vestmannaeyj-
um og ólst þar upp. Hann stundaði
nám við Stýrimannaskólann í Vest-
mannaeyjum og lauk þaðan skip-
stjómarprófum 1971.
Kristján stundaði sjómennsku frá
1965, varð fyrst stýrimaður er hann
var nítján ára og skipstjóri er hann
var tuttugu og þriggja ára á mb.
Magnúsi Magnússyni VE 112.
Kristján var fyrst á Ingþóri VE 75
en lengst af á skuttogaranum Klakki
VE 103 þar sem hann var yfirstýri-
maður og afleysingaskipstjóri.
Kristján kom í land 1988. Hann
ekur nú eigin sendibifreið auk þess
sem hann er stjórnarformaður
Sendibílastöðvar Kópavogs.
Kristján sat lengi í trúnaðar-
mannaráði Skipstjóra- og stýri-
mannafélagsins Verðandi í Vest-
mannaeyjum og var formaður fé-
lagsins 1982-85. Hann sat í stjórn
Farmanna- og fiskimannasambands
íslands 1983-85 og hefur verið
stjómarformaður Sendibílastöðvar
Kópavogs frá 1995.
Fjölskylda
Kristján kvæntist 25.12. 1974
Guðríði Óskarsdóttur, f. 23.12.
1952, húsmóður. Hún er dóttir
Óskars Markússonar, f. 12.8. 1918,
d. 12.2.1996, verkamanns
á Patreksfirði, og k.h.,
Svövu Einarsdóttur, f.
9.7. 1914, d. 17.7. 1980,
verkakonu.
Börn Kristjáns og
Guðríðar era Andri, f.
20.2. 1990; Dagný, f. 5.1.
1994.
Systkini Kristjáns era
Sólveig, f. 1946, fisk-
vinnslukona og starfs-
maður við Sjúkrahús
Vestmannaeyja; Kristín,
f. 1947, kaupkona í Ólafs-
firði; Jóna, f. 1950, bakari og ræst-
ingakona á Akranesi; Guðrún, f.
1952, starfar við heimilishjálp, bú-
sett í Kópavogi; Guðmundur, f.
1955, húsamiður í Hafn-
arfirði; Sofiía, f. 1959,
sjúkraliði og lyfjatækn-
ir, búsett í Reykjavík.
Hálfsystir Kristjáns,
sammæðra, er Þorgerð-
ur Amórsdóttir, f. 1945,
kaupkona í Reykjavík.
Hálfsystir Kristjáns,
samfeðra, er Hafdís, f.
1947, hjúkrunarkona.
Foreldrar Kristjáns era
Adólf Magnússon, f.
12.2. 1922, skipstjóri í
Vestmannaeyjum, og
k.h., Þorgerður Sigríður Jónsdótt-
ir, f. 19.7. 1922, húsmóðir.
Kristján Adólfsson.
Ólafur Gunnarsson
Ólafur Gunnarsson,
deildarsérfræðingur hjá
Ríkisendurskoðun,
Kaplaskjólsvegi 57 A,
Reykjavík, er fertugur í
dag.
Starfsferill
Ólafur fæddist í
Reykjavík. Hann lauk
stúdentsprófi frá Flens-
borgarskólanum í Hafn-
arfirði 1979, viðskipta-
fræðiprófi frá HÍ 1986,
stundaði nám í heilsuhag-
fræði við Endurmenntunarstofnun
HÍ 1991-92 og stundaði síðan nám í
ýmsum greinum fyrirtækjakjarna,
einkum á endurskoðunar- og stjóm-
unarsviði við HÍ 1993-95. Þá stund-
aði hann nám við Tónlistarskóla
Hafnarfjarðar og lauk
þaðan 7. stigs prófi í
klassískum gítarleik 1983.
Ólafur var starfsmaður
hjá Framkvæmdastofnun
ríkisins sumrin 1982 og
1983, stundakennari við
MK 1985-86, við Flens-
borgarskóla 1986-87, var
viðskiptafræðingur hjá
Verðlagsstofnun 1986-87
og 1988-90, kennari við
Samvinnuskólann á Bif-
röst 1987-88 og hefur ver-
ið deildarsérfræðingur
hjá Ríkisendurskoðun frá 1990.
Ólafur var garðprófastur á Nýja
Garði 1983-85, sat í nefnd viðskipta-
ráðuneytisins um vanda verslunar í
dreifbýli 1989, í stjórn orlofssjóðs
starfsmanna Alþingis og Ríkisend-
urskoðunar frá 1992 og í stjórn
Starfsmannafélags Rikisendurskoð-
unar frá 1995.
Fjölskylda
Ólafur kvæntist 20.2. 1993 Helgu
Sveinbjörgu Hilmarsdóttur Knud-
sen, f. 20.6. 1963, BS í líffræði og
flugfreyju. Hún er dóttir Hilmars
Knudsen, f. 5.10. 1941, yfirverkfræð-
ings í Reykjavík, og k.h., Ólafar
Birgisdóttur Knudsen, f. Kjaran,
30.3.1942, BA í þýsku og myndlistar-
manns.
Synir Ólafs og Helgu Sveinbjarg-
ar era Hilmar Birgir, f. 18.7. 1989;
Gunnar Bimir, f. 28.2.1994.
Systkini Ólafs eru Anna María, f.
19.11. 1960, húsmóðir og kennari,
búsett í Hafnarfirði; Stefán, f. 26.9.
1963, garðyrkjufræðingur, búsettur í
Kópavogi; Vigdís, f. 5.10. 1965, leik-
kona í Reykjavík; Þóra Rósa, f. 5.10.
1965, líffræðingur, búsett í Reykja-
vík.
Foreldrar Ólafs era Gunnar Héð-
inn Stefánsson, f. 5.4. 1925, d. 29.3.
1981, flugumferðarstjóri í Reykja-
vík, og Þóra Soffia Ólafsdóttir, f.
18.4. 1931, fulltrúi í Reykjavík.
Ætt
Gunnar Héðinn var sonur Stefáns
Guðnasonar, skósmiðs og verk-
stjóra í Reykjavík, og k.h., Vigdísar
Sæmundsdóttur.
Þóra Soffía er dóttir Ólafs Gunn-
arssonar, útvegsb. á Kljáströnd í
Höfðahverfi, og k.h., Önnu Maríu
Vigfúsdóttur.
Ólafur Gunnarsson.
Til hamingju
með afmælið
14. apríl
90 ára
Jón Sigurgeirsson,
Spítalavegi 13, Akureyri.
75 ára
María Lilja Jónsdóttir,
Hafrafellsfrmgu 1, Kópaskeri.
70 ára
Páll
Jóhannesson
múrarameistari,
Leirabakka 8,
Reykjavík.
Margrét Þorvaldsdóttir,
Lækjarsmára 4, Kópavogi.
Áslaug Jónasdóttir,
Munkaþverárstræti 33,
Akureyri.
60 ára
Guðlaug Pálsdóttir,
Ljósheimum 6, Reykjavík.
Birgir Finnsson,
Langagerði 5, Reykjavík.
Þorsteinn Theódórsson,
Gullsmára 5, Kópavogi.
Karl Arnar Helgason,
Heiðarholti 28, Keflavík.
Agnar Sigurþórsson,
Bleiksárhlíð 25, Eskifirði.
50 ára
Sigrún Kristjánsdóttir,
Höfðavegi 28, Húsavík.
Helga Jónsdóttir,
Brekkugötu 8, Reyðarfirði.
Svandís Rafnsdóttir,
Einbúablá 17, Egilsstöðum.
Sigurður E. Jóhannesson,
Engjavegi 55, Selfossi.
Jóhann Gíslason,
Kirkjuhúsi, Eyrargötu,
Eyrarbakka.
Gerhard Martin König,
Sólheimum, Grímsnesi.
40 ára
Magnús Ægir
Karlsson
rafvirki,
Bæjargili 64,
Garðabæ.
Björg Dan Róbertsdóttir,
Nökkvavogi 19, Reykjavík.
Dana Dung Thi Quach,
Ljósheimum 12 A, Reykjavík.
Katrín Sigurþórsdóttir,
Kleppsvegi 118, Reykjavík.
Elín Bára Birkisdóttir,
Laugamesvegi 72, Reykjavík.
Ólafur Gunnarsson,
Kaplaskjólsvegi 57 A,
Reykjavík.
Brynjólfur Gunnarsson,
Aðallandi 3, Reykjavík.
Sigríður Kjartansdóttir,
Þverási 2, Reykjavík.
Magnús Jóhann
Jóhannsson,
Mánabraut 4, Kópavogi.
Arnaldur Amarson,
Sæbraut 19, Seltjaraarnesi.
Haraldur Sveinn
Gunnarsson,
Melabraut 33, Seltjarnamesi.
Svanhildur Þórarinsdóttir,
Miðvangi 63, Hafnarfirði.
Ólafur Einarsson,
Gesthúsavör 6,
Bessastaðahreppi.
Rósinkar Aðalbjamarson,
Ásabraut 16, Keflavík.
Skarphéðinn Jónsson,
Borgarbraut 3, Hólmavík.
Sigrún S. Þór Björnsdóttir,
Vallargötu 1, Siglufirði.
Bernard Hendrik
Gerritsma,
Kringlumýri 17, Akureyri.
Svanborg Svanbergsdóttir,
Fellshlíð, Eyjafjarðarsveit.
Þorsteinn Finnbogason,
Hásteinsvegi 56,
Vestmannaeyjum.
Eva Ulrik Schmidhuber,
Högnastíg 52, Flúðum.