Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1999, Síða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1999, Síða 29
J3V MIÐVIKUDAGUR 14. APRÍL 1999 r 5 Fjölbreytni einkennir verkin í Ný- listasafninu. Ef ég stjórnaði heiminum Samsýning átta myndlistar- manna frá Glasgow stendur nú yfir í Nýlistasafninu, Vatnsstíg 3b í Reykjavík. Sýningin ber heitið If I Ruled the World og sýnendur eru listamennirnir Claire Barclay, Roddy Buchanan, Martin Boyce, Ross Sinclair, Bryndís Snæbjöms- dóttir, Simon Starling, Rose Thomas og Clara Ursitti. Ef ég stjórnaði heiminum er titill á dæg- urlagi sem Tony Bennett gerði frægt, en þetta er jafnframt sú yf- irskrift sem hópurinn hefur valið sýningunni. í verkum sínum draga þau upp, hvert fyrir sig, mynd af nýjum raunveruleika samsiða þeim sem hefur verið ráð- andi á tuttugustu öldinni. Lista- Sýningar mennirnir vinna í blandaða tækni og í margvísleg efni. Claire Barclay vinnur með efni og form úr umhverfmu, sem hún endurvinnur og gefur nýtt nota- gildi. Roddy Buchanan vinnur með samfélögin i samfélaginu. Textaverk Martin Boyce er mynd- ræn lýsing af ferð í eyðimörkinni. Ross Sinclair skapar rýmisverk sem byggjast á smækkaðri mynd af heiminum. Bryndís Snæbjöms- dóttir vinnur með endurmat á tengslum mannsins við menningu sina og umhverfi. Simon Starling vinnur með tímaferli og orku og tilflutning hennar. Rose Thomas vinnur aðallega með gerninga, sem síðan eru endurfluttir á myndbandsformi og Clara Ursitti sýnir verk sem höfðar til lyktar- skynsins. Sýningarnar eru opnar daglega frá kl. 14-18 og þeim lýkur 2. maí. Um dýrið innra Félag íslenskra fræða boðar til fundar í Skólabæ í kvöld, kl. 20.30, með Aðalheiði Guðmundsdóttur bók- menntafræðingi. Erindi Aðalheiðar nefnist Um dýrið innra. Varúlfar í is- lenskum miðaldabókmenntum. Að er- indi loknu verða almennar umræður. Hugræktarnámskeið fyrir konur Didi, sem er leikskólastjóri og jóga- kennari, heldur fjögurra kvölda hug- ræktarnámskeið fyrir konur að Þorra- götu 1 og hefst það í kvöld, kl. 20. Á námskeiðinu kennir hún konum að sigrast á öryggisleysi, kvíða- .og ótta- tilfinningu og hvemig megi sækja andlegan styrk og sjálfstraust úr iðr- um andans. Samkomur Listaverk og tví- tekningar þeirra Á morgun, kl. 12, flytur Roger Poui- vet, dósent í heimspeki við Rennes-há- skóla í Frakklandi, fyrirlestur sem hann nefnir The Work of Art and Its Doubles (Listaverk og tvítekningar þeirra) og verður hann fluttur á ensku í stofu 201 í Árnagarði. í þessum lestri mun Roger Poivet ræða um vem- fræðilega stöðu listaverka og „tvítekn- inga“ þeirra, til dæmis viðgerðir, eft- irlíkingar og upptökur. Fyrirlesturinn er öllum opinn. íslenskur módern- ismi Ólafur Gíslason, sérfræðingur við Listasafn íslands heldur fyrirlestur í fyr- irlestraröðinni íslenskur módemismi í Listasafni íslands í kvöld kl. 20.15. Gaukur á Stöng: Órafmögnuð og rafmögnuð Sóldögg Hin vinsæla hljómsveit Sóldögg ætlar í fyrsta skipti að koma fram órafmögnuð (unplugged) í kvöld á Gauki á Stöng. Mun hljómsveitin leika mikið af frumsömdum lögum í breyttum útsetningum, eins og lagið Geng í hringi, sem er nýjasta smá- skifulagið af plötu þeirra, Sóldögg, sem kom út fyrir síðust jól, en það lag er farið að heyrast í útvarpi um þessar mundir. Annað kvöld skemmtir Sóldögg einnig á Gaukn- um, en þá verður klónni stungið í samband og mun sveitin leika mik- ið af eigin lögum. Það kvöld verður jafnframt síðasta kvöld Ásgeirs Ás- geirssonar, gítarleikara hljómsveit- arjnnar, sem er að halda af landi brott til frekara tónlistamáms. Skemmtanir Hans sæti í Sóldögg tekur Gunnar Þór Jónsson, sem meðal anars hefur leikið með Spur. Á laugardagskvöld leikur Sóldögg á Bárunni á Akra- nesi. Tríó Björns og Egill Boðið verður upp á góða tónlist á veitinga- og skemmtistaðnum Ála- foss fot bezt í Mosfellsbæ annað Sóldögg leikur á Gauknum í kvöld. kvöld, þegar tríó gítarleikarans Bjöms Thoroddsen ásamt söngvar- anum geðþekka, Agli Ólafssyni, mæta á staðinn. Auk þeima skipa hljómsveitina Gunnar Hrafnsson á bassa og Ásgeir Óskarsson á tromm- ur. Tónleikamir hefjast kl. 22. Bubbi á Fógetanum í kvöld heldur Bubbi Morthens tónleika á veitingastaðnum Fóget- anum. Á dagskránni verða gamlir gullmolar í bland við nýtt og óút- komið efni. Tónleikarnir hefjast stundvíslega klukkan 22.00. Veðrið í dag Hægviðri og léttskýjað Á sunnanverðu Grænlandshafi er allmikil 1036 mb hæð sem hreyfist suður á bóginn, en yfir S-Skandin- avíu er víðáttumikil 984 mb lægð sem þokast norðvestur. Minnkandi norðvestanátt er á Austurlandi og léttir til, en annars víða hægviðri og léttskýjað. Suð- vestangola eða kaldi og dálítil snjó- koma eða slydda á Vesturlandi, en gengur í norðaustan stinningskalda með éljum á Vestfjörðum í nótt. Frost víða 1 til 5 stig í dag en hlán- ar vestanlands og með suðurströnd- inni yfir daginn. Á höfuðborgarsvæðinu verður norðan gola og léttskýjað, en suð- vestna gola eða kaldi og dálítil snjó- koma eða slydda. Hæg norðlæg átt og úrkomulítið í nótt. Minnkandi frost og hiti 0 til 3 stig síðdegis. Sólarlag í Reykjavík: 20.57 Sólarupprás á morgun: 05.57 Síðdegisflóð í Reykjavík: 17.26 Árdegisflóð á morgun: 05.43 Veðrið kl. 6 í morgun: Akureyri léttskýjaö -10 Bergsstaöir Bolungarvík alskýjaö -2 Egilsstaöir -4 Kirkjubœjarkl. léttskýjaö -5 Keflavíkurflv. léttskýjaö -5 Raufarhöfn léttskýjaö -6 Reykjavík skýjaö -6 Stórhöföi léttskýjaö -5 Bergen alskýjaö 0 Helsinki skýjaö 4 Kaupmhöfn léttskýjaó 5 Ósló úrkoma í grennd 4 Stokkhólmur 5 Þórshöfn slydda 2 Þrándheimur skýjaó 4 Algarve heiðskírt 15 Amsterdam snjóél. á síö. kls. 2 Barcelona skýjaö 11 Berlín rigning 3 Chicago léttskýjaö 5 Dublin léttskýjaö -3 Halifax snjóél á síö. kls. 1 Frankfurt skýjaó 4 Glasgow snjóél -1 Hamborg þokumóða 2 Jan Mayen skýjaö -5 London léttskýjaö 1 Lúxemborg skýjaö 2 Mallorca skýjaö 7 Montreal léttskýjaö 4 Narssarssuaq rigning 1 New York heiöskírt 9 Orlando heiöskírt 15 París rigning 4 Róm hálfskýjaó 9 Vin léttskýjaö 8 Washington heiöskírt 8 Winnipeg 9 Pétur og Ingibjörg eignast systur Litla telpan sem er á milli systkina sinna fædd- ist 4. janúar síðastliðinn, kl. 22.17. Hún var við fæð- ingu 3140 grömm að Barn dagsins þyngd og 50 sentímetra löng. Foreldrar hennar eru Arnbjörg Pétursdóttir og Haraldur Ólafsson. Systkini hennar tvö heita Pétur Ingi, sem er sjö ára, og Ingibjörg, fimm ára. Hálka á Norðurlandi Góð færð er í nágrenni Reykjavíkur og um Vest- urland. Mokstur hófst á Bröttubrekku í morgun. Á Vestfjörðum var einnig í morgun verið að moka Steingrímsfjarðarheiði. Nokkm- hálka er á Norður- landi og mokstur hefur verið í gangi austan Akur- Færð á vegum eyrar og með ströndinni til Vopnafjarðar. Einnig var verið að moka um Mývatns- og Möðrudalsöræfi, Vopnafjaröarheiöi og alla aðalvegi á Austfjörðum. Góð færð er svo þaðan suður um til Reykjavíkur. Ástand Skafrenningur E3 Steinkast 121 Hálka CD Ófært 0 Vegavinna-aBgát H Öxulþungatakmarkanir III Þungfært © Fært fjallabdum Öskubuska (Drew Barrymore) og prinsinn (Dougray Scott). Öskubuska Ever After, sem Regnboginn sýn- f ir, er ævintýri sem gerist á sautj- ándu öld. Aðalpersónan er Danielle, gáfuð og falleg stúlka sem hefur dá- læti á góðum bókmenntum. Getur hún auðveldlega haldið uppi sam- ræðum um bókmenntir og vitnar i Útópíu eftir Thomas More þegar það á við. Þótt með sanni megi segja að Ever After sé Öskubuskuævin- týri, þá er það ekki sama ævintýriö og amma sagði, enda hafði leikstjór- inn og handritshöfundurinn Andy Tennant alltaf að leiðarljósi aö Danielle væri sjálfstætt hugsandi stúlka. Hún velur að búa hjá vondri stjúp- ’///////// Kvikmyndir móður eftir að faðir hennar deyr og er langt í frá að vera hjálparvana þegar í harðbakkann slær. Því líkist hún mun meira sjálf- stæðum nútímakonum en ungum og vel uppöldum stúlkum af aöalsætt- um á sautjándu öld. Með hlutverk Daniellu fer Drew Barrymore. Auk hennar leika í myndinni Anjelica Huston, Dougray Scott, Patrick Godfrey, Jeroen Krabbé, Timothy West og Jeanne Moreau. Nýjar myndir i kvikmyndahusum: Bíóhollin: Payback Saga-Bíó: Jack Frost Bíóborgin: One True Thing Hóskólabíó: A Civil Action Háskólabíó: Dóttir hermanns grœtur ei Kringlubíó: Mighty Joe Young Laugarásbíó: Blast From the Past Regnboginn: Life Is Beautiful Stjörnubíó: Still Crazy Krossgátan 1“ 2« 3« 4« 5« 6« 7« 8° D ° 9« o ° 10« D 11« D “ o ° 12« 13« “ 14« 0 15« ° 16« D B D 17« 0 18« n 19« ° a 20« ° 21« B n 22« a Ð o Lárétt: 1 kjáni, 8 grandi, 9 ask, 10 þráðarkeflið, 12 svik, 14 áflog, 16 blása, 17 blóm, 19 nískupúka, 21 sjór, 22 skop. Lóðrétt: 1 komumann, 2 mjúk, 3 ösl- aði, 4 strákar, 5 furða, 6 stilla, 7 geymi, 11 gubbaðir, 13 kvenmanns- nafn, 15 eyðir, 16 handlegg, 18 berja, 20 öðlast. Lausn á síðustu krossgátu. Lárétt: 1 gómar, 6 aá, 8 æði, 9 sótt, 10 fálkana, 13 ultu, 14 rak, 16 skarpur, 18 maðka, 20 mó, 21 áni, 22 átak. Lóðrétt: 1 gæfu, 2 óð, 3 miltað, 4 ask- ur, 5 róar, 6 at, 7 áta, 11 álkan, 12 nauma, 15 krók, 16 smá, 17 pat, 19 ká. Gengið Almennt gengi LÍ14. 04. 1999 kl. 9.15 Eining Kaup Sala Tollgengi Dollar 72,670 73,050 72,800 Pund 117,680 118,280 117,920 Kan. dollar 48,730 49,030 48,090 Dönsk kr. 10,5700 10,6280 10,5400 Norsk kr 9,4060 9,4580 9,3480 Sænsk kr. 8,7960 8,8440 8,7470 Fi. mark 13,2080 13,2880 13,1678 Fra. franki 11,9720 12,0440 11,9355 Belg. franki 1,9468 1,9585 1,9408 Sviss. franki 48,9500 49,2200 49,0400 Holl. gyllini 35,6400 35,8500 35,5274 Þýskt mark 40,1500 40,3900 40,0302 ít. lira 0,040560 0,04080 0,040440 Aust. sch. 5,7070 5,7420 5,6897 Port. escudo 0,3917 0,3941 0,3905 Spá. peseti 0,4720 0,4748 0,4706 Jap. yen 0,609700 0,61340 0,607200 Irskt pund 99,720 100,320 99,410 SDR 98,860000 99,45000 98,840000 ECU 78,5300 79,0100 78,2900 Símsvari vegna gengisskráningar 5623270

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.