Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1999, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1999, Blaðsíða 2
2 MÁNUDAGUR 19. APRÍL 1999 Fréttir Stuttar fréttir r>v Enn umbrotatímar á smásölumarkaði: Nóatún, 11-11 og KÁ vilja hlut í 10-11 - stór hlutur í fyrirtækinu til sölu hjá Eignarhaldsfélaginu Alþýðubankanum Kaupás hf., rekstrarfélag Nóa- túnsbúða, 11-11 og verslana Kaupfé- lags Árnesinga, hefur þreifað á kaupum á 27% eignarhlut Eignar- haldsfélagsins Alþýðubankans í Vöruveltunni hf. sem rekur á annan tug 10-11 búða og undirbýr opnun fleiri búða. Talið er að kaupvirði þess hlutar gæti numið hálfum milljarði króna, enda þótt 10-11 eigi fæstar þær fasteignir þar sem búð- imar eru til húsa. Ljóst er þó að „hinum valkostinum" í verslunar- geira landsmanna, keppinaut Baugsbúðanna, nægir ekki rúmur fjórðungshlutur í 10-11, meira þarf til að fara með stjóm fyrirtækisins. Þorsteinn Pálsson, stjórnarfor- maður Kaupáss hf., sagði i gær að það væri rétt að félagið hefði kann- að marga kosti til að styrkja stöðu sína. Einn þeirra væm bréfin sem Eignarhaldsfélag Alþýðubankans vill gjarnan losna við. Það væri svo allt annað mál hvort af kaupum yrði. Margir hafa áhuga „Við keyptum þessi bréf á síðasta hausti til aö selja þau og það verður gert. Það hafa margir áhuga á þess- um bréfum," sagði Sigurður Jón, fjármálastjóri eignarhaldsfélagsins Alþýðubankans. Hann hvorki játaði né neitaði að Kaupáss-menn væru að bera víurnar í hlutabréfin í 10-11. „Við tilkynnum þegar búið er að ganga frá sölusamningum," sagði Sigurður Jón. Rekstur 10-11 búðanna undir stjórn Eiríks Sigurðssonar kaup- manns hefur gengið vel, hagnaður frá fyrsta degi árið 1992. Eiríkur íslandsmótið í skyndihjálp fór fram í gær í íþróttahúsi Fjölbrautaskólans í Breiðholti. Þar var keppt um hverjir yrðu keppendur íslands á Evrópumóti Rauða krossins í skyndihjálp í Austurríki. Rauði krossinn hefur um áratuga- skeið breitt út þekkingu í skyndihjálp með námskeiðum og þjálfun leiðbein- enda. DV-mynd GVA o X JOÖOÖÖ0C Sigurðsson, forstjóri 10-11, er sagð- ur lítt ánægður með hina nýju aðila sem vilja koma inn í fyrirtækið, keppinautar á markaðnum, en hann er eigandi að 25% hlutafjár sem skráð er á nafni konu hans, Helgu Gísladóttur. Þrátt fyrir eign minni- hluta hefur Eiríkur tögl og hagldir í fyrirtækinu og ræður stórum meiri- hluta, að talið er. I umræðunni er talaö um að Baugur eigi stóran hlut í 10-11 en Jóhannes Jónsson kaup- maður hafnaöi því þegar DV ræddi við hann í gær. Hann viðurkennir hins vegar að við stofnun 10-11 hafi þeir Eiríkur unnið við að koma fyr- irtækinu á fót. í nóvember var 75% hlutafjár í 10-11 selt og annaðist íslandsbanki söluna. Fyrirtækið Fagbréf eignað- ist stóran hluta í 10-11 en það félag samanstendur af eigendum Heklu, Tryggingastöövarinnar, Sambíó- anna og fleiri fjárfesta. Tilkynnt hefur verið að bréfin fari á markað í þessum mánuði. -JBP Ingibjörg hafnar gagnrýni kennara: Tala um óskiljanlegt frumhlaup borgarstjóra Formenn svæðafélaga Kennara- sambands íslands, sem funduðu í Vestmannaeyjum í gær, lýstu yfir „megnri óánægju með ummæli og vinnubrögð borgarsfjórans í Reykja- vík“, eins og segir i fréttatilkynningu. „Borgarstjórinn blandar saman tveimur ólíkum hlutum, annars vegar launaukakröfum grunnskólakennara í Reykjavík og hins vegar drögum að tilraunaverkefni á vegum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarafé- laganna. Þetta frumhlaup Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur er óskiljanlegt og gæti lagt í rúst það jákvæða starf sem fulltrúar kennara og sveitarfélag- anna hafa unnið að undir heitinu „Nám á nýrri öld“. Fundurinn telur eölilegt að kennarar í Reykjavík fái launaauka í samræmi við það sem hefur verið samið um víða um land,“ segir í fréttinni sem undirrituð er af formönnum 8 svæðisfélaga. „Auðvitað er ég ekki að rugla neinu saman. Ég hef tengt þetta tvennt saman frá fyrstu tíð, annars vegar því að við þyrftum að sjá fram á breytingar á vinnufyrirkomulagi i skólunum á næsta skólaári til þess að við værum tilbúin að borga þennan launaauka. Þannig að það hefur alltaf verið ljóst gagnvart kennurum i Reykjavik að þetta tvennt væri sam- tengt,“ sagði Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir í samtali við DV. Ingibjörg sagði að Reykjavíkurborg væri fullgildur aðili að launanefnd sveitarfélaga sem semur við kennara og fleiri fyrir hönd borgarinnar. Hún segir að launaaukinn sem slíkur sé ekki samningsatriði, það sé samning- ur í gildi. Hvert sveitarfélag fyrir sig verði að ákveða fyrir hvað það er til- búið að greiða einhvem launaauka. „Reykjavík og Kópavogur eru í sömu sporam. Auðvitað hefur þetta alltaf verið með nokkuð öðrum hætti en hjá sveitarfélögum úti á landi þar sem það hefur tíðkast að greiða ákveðnum hópum kaupauka. Það hef- ur verið leið sveitarfélaganna til að keppa við höfuðborgarsvæðið um menntað vinnuafl," sagði Ingibjörg. -JBP Stærsta hafrannsóknaskipið heitir Árni Friðriksson: Nærri tuttugu komu til sjósetningar Nærri tuttugu manna íslensk sendinefnd var viðstödd þegar nýju hafrannsóknaskipi var gefið nafn í skipasmiðastöðinni Asmar í Talcahuano í Chile á laugardaginn við sjósetningu þess. Það var Ingi- björg Rafnar, eiginkona Þorsteins Pálssonar sjávarútvegsráðherra, sem gaf skipinu nafnið Árni Friö- riksson. íslensku gestirnir eru frá Hafrannsóknastofnun, Jóhann Sig- urjónsson forstjóri, auk Jakobs Jak- obssonar, forvera hans í starfi, sem var í bygginganefndinni. Þá voru fulltrúar útgerðarmanna mættir á staðnum, sem og ráðuneytismenn og makar. Skipið er 1.200 brúttó- rúmlestir að stærð og er stærsta skip sem Hafró hefur eignast. Reikningurinn til útgerðar- innar Reiknað er með að kostnaðurinn við smíðina muni verða hátt i millj- arður króna en ráðist var í smíðina þegar útgerðarmenn gengust undir að láta skattleggja greinina um milljarð á næstu árum til að fá full- komið hafrannsóknaskip. „Þetta mun breyta miklu fyrir okkur, stærra og öflugra skip en við höfum áður haft, aðbúnaður verður allur betri til visindarann- sókna,“ sagði Gunnar Stefánsson, aðstoðarforstjóri Hafró, við DV í gærkvöld. Hann sagði að með nýja skipinu mundi leggjast af leiga á stærstu togurum flotans til rannsókna á djúpslóð. Slík leiga væri í dag ein til tvær milljónir króna á dag. Enn- fremur kæmi nýi Ámi Friðriksson sterkur inn í togararallið, það hefði þann kraft sem til þarf til þeirra rannsókna. Skipið er 70 metra langt og 14 metra breitt, búið fjórum 100 kw vélum. Ganghraði þess verður um 16 sjómílur. Reiknað er með að skipið komi til landsins í haust tilbúið til haf- rannsókna og þá verða komin í það öll fullkomnustu siglinga- og vís- indatæki. Kjölur skipsins er óvenjulegur, svokallaður fellikjöl- ur, sem gerir kleift að sökkva berg- málsmælingatækjum jafnvel við talsvert öldurót. Um borð eru vist- arverur fyrir 32, áhöfn og vísinda- menn. Árni Friðriksson mun bera skrá- setningamúmerið RE 200 og skipa- skrárnúmer 2350. -JBP Bónus í Póllandi? Jón Ásgeir Jóhannesson, for- stjóri Baugs hf., segir að Bónus sé með til athugunar I samvinnu viö norskan sam- starfsaðila að opna Bónus- verslun í Pól- landi og víðar. Telur Jón Ás- geir í viðtali í Morgunblaðinu að íslensk sér- vöruverslun geti á næstu árum orðið samkeppnisfærari en nú við erlenda sérvörusala. Tekjur af bílum í máli Boga Pálssonar, for- manns Bílgiæinasambandsins, á aðlfundi sambandsins kom fram að bílgreinin er ein mikilvægasta tekjulind ríkissjóðs og á þessu ári stefnir i að tekjur ríkissjóðs verði yfir 30 milljarðar króna og er þá miðað við 35% aukningu í inn- flutningi á nýjum bílum. Það sem af er árinu hefur aukningin verið 45%. D-listi eykur fylki sitt Sjálfstæðisflokkurinn á Norð- urlandi eystra hefur aukið fýlgi sitt verulega að undanförnu ef marka má skoðanakönnun Rann- • sóknarstofnunar Háskólans á Ak- ureyri sem unnin var fyrir Dag. Hefur flokkurinn 37,7% fylgi hjá þeim sem afstöðu tóku. Sam- kvæmt þessari könnun fengi Sam- fylkingin aðeins 14,7% atkvæða, VG 20,6% og Framsóknarflokkur 26,2%. Lætur smíða skip í Kína íslendingar eiga fyrsta fiski- skipið sem smíðað er fyrir Evr- ópubúa í Kína. Útgerðarmaður- inn Öm Erlingsson, sem gerir út fi'á Keflavík, er eigandi fjölnota skips sem nú er í smíðum í Kína. Sameinast Búið er að sameina Slysavarna- félag íslands og Landsbjörgu í eitt félag og verður nafn þess Slysa- vamafélagið Landsbjörg, landssamband björgunar- sveita. Frá þessu var geng- ið um helgina og er verðandi formaður sam- takanna Ólafúr Proppé. Lítið til félagsmála Útgjöld til félagsmála á Evr- ópska efnahagssvæðinu eru lægst á íslandi og íslendingar verja minnstum fiármunum til fiöl- skyldu- og bamamála af öllum löndum á Norðurlöndum. Þetta kemur fram í bæklingi sem jafn- réttisráð hefúr gefið út um stöðu fiölskyldunnar hér á landi. 150 millóna kr. halli Hallinn á rekstri Kaupfélags Borgfirðinga á síðasta ári nam 157 milljónum króna samkvæmt rekstrarreikningi. í fyrra nam tapið 43 milljónum. KB segir að rekja megi stóran hluta tapsins til reksturs fimm hlutdeildarfélaga. Skattleggja kvótann Steingrímur J. Sigfússon full- yrðir að Rikisskattstjóri hafi sent sér bréf þar sem segir að hægt sé að skattleggja kvótagróða. Að sögn Stein- gríms er sam- kvæmt þessu bréfi misskiln- ingur hjá for- sætisráðherra að þessi skatt- lagning gangi gegn stjórnar- skránni. Steingrimur segist ætla að birta bréfið næstu daga. Sjón- varpið sagði frá. Gamalt fólk ánægt í viöhorfskönnun sem Gallup gerði um hagi fólks á aldrinum 65 til 80 ára kemur í ljós þegar á heOdina er litið að fólk á þessum aldri er afar ánægt með lífið-HK.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.