Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1999, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1999, Blaðsíða 23
MÁNUDAGUR 19. APRÍL 1999 35 Fréttir Sólar/öryggisfilma Einangrun rofin í Fljótunum DV, Fljótum: Ólafsfiarðarvegur í Fljótum var mokaður 1 síðustu viku og komust þá tveir fremstu bæimir í sveitinni í vegasamband á ný, eftir nær þriggja mánaða einangrun vegna ófærðar. Þarna er um að ræða bæ- ina Þrasastaði og Depla í Austur- Fljótum, sem eru um 7 kílómetrum framan við Skeiðsfossvirkjun, sem er næsta byggð neðar í sveitinni. Ólafsfjarðarvegur um Fljótin er að stærstum hluta gamali og niðurgraf- inn og því er vonlaust að halda hon- um færum í snjóavetrum eins og nú er. Leiðin er því frekar opnuð þegar von er til að mesta vetrarríkinu fari að linna. „Ég vonast til að leiðin haldist að mestu opin hér eftir til vors. Það er búið að vera ófært á bíl hingað fram eftir síðan um áramót, ef undan eru skildir nokkrir dagar í febrúar. Við höfum geymt bílinn niðri í sveit og farið á milli á snjósleða, en óneitan- lega er þægilegra að komast heim á bílnum," sagði íris Jónsdóttir, hús- freyja á Þrasastöðum, í samtali við fréttamann daginn eftir að vegurinn varð fær. íris er uppalin á Suðurlandi en hefur búið á Þrasastöðum í fimm ár ásamt manni sínum, Jóni Núma- syni. Þau eiga liðlega tveggja og hálfs árs gamlan son. íris segir að tíðarfar í vetur hafi verið óstöðugt og frekar leiðinlegt, en þó betra en veturinn 1994-1995, sem var sá versti síðan hún flutti í Fljótin. „Á svona stað veltur á að birgja sig vel up af allri nauðsynjavöru áður en vetur sest að á haustin. En hvað samgöngumar varðar er alveg ómissandi að eiga góðan snjósleða. Þá kemst maður oftast á milli, en verður einfaldlega að sitja heima þegar vont er. Alla vega förum við ekki með barnið á sleðanum í mjög vondu veðri,“ sagði íris. Ö.Þ. Flateyri: Pakkar og pening- ar á sama stað DV, Vestfjörðum: „Sparisjóðurinn og íslandspóstin gerðu með sér samstarfs- Eiríkur Finnur Greipsson sparisjóðsstjóri og Kol- brún Jónsdóttir að störfum í nýjum húsakynnum Sparisjóðs Önundarfjarðar. DV-mynd Guðm. Sig. sammng um sameig- inlegan rekstur í hús- næði íslandspósts hér á staðnum. Það er töluverð hagkvæmni í þessu. Við náum að samnýta starfsfólk beggja stofnananna auk þess sem þetta nýja húsnæði hentar betur þörfum spari- sjóðsins heldur en gamla húsnæðið," segir Eiríkur Finnur Greipsson sparisjóðs- stjóri á Flateyri. Sparisjóður Ön- undarfjarðar á Flat- eyri hefur gert samn- ing við íslandspóst um afgreiðslu fyrir póstinn á Flateyri og hefur afgreiðsla sparisjóðsins verið flutt í pósthúsið þannig að nú eru pakkar og peningar á sama stað. Þetta form hefur þegar verið tekið upp á nokkrum stöðum á landinu og þótt takast vel. „Þegar komin verða tilskilin leyfi frá hinu opinbera mun sparisjóður- inn stefna að því að yfirtaka póstaf- greiðsluna á staðnum og póstaf- greiðslufólkið verður starfsmenn sparisjóðsins. Það vantar lagaheim- ild til þess að bankastofnanir geti rekið pósthús og á meðan sú heim- ild er ekki til verða stofnanimar að gera með sér samstarfssamning. Ráðamenn hafa lýst vilja sínum til að þessum reglum verði breytt þannig að við erum ósmeykir og þetta á að ganga upp. Það leið vika frá því aö við skrifuðum undir þennan samstarfssamning þar til sparisjóðurinn var opnaður á nýja staðnum. Þetta er alveg ótrúlegt og heföi ekki gengið upp nema vegna góðs starfsfólks beggja stofnana," sagði Eiríkur. -G.S. Guðbjörn Óskarsson, vélamaður hjá Steypustöð Skagafjarðar, stjórnaði Payloadernum við snjómoksturinn. DV-mynd Örn Sól- og öryggisfilma á rúCur. Vernd gegn hita/birtu - upplitun og er góö pjofavörn. Litater filmur inn á bílrúöjr, gera bílinn öruggari, þægilegri, glæsilegri og seljanlegri. Asetning meöhita - fagmenn ffíói (/: Dalbrekku 22, Kóp. S. 544 5770 í tilefni af 10 ára afmæli Aliraltanda og flutningi beirra i nýtt Mónustuver opnar nýtt dekkjaverkstæði Umfelgun fólksbíla kr. 2.880.- Verð 155 SR13 Kr. 2.720- 175/70 SR13 Kr. 2.800- 105/70 SR13 Kr. 3.540- 105/70 SR14 Kr. 3.550- 205/70 SR14 Kr. 4.250 - 185/05 SR14 Kr. 3.580. 185/05 SR15 Kr. 4.250- Gylfaflöt 9 - Dekkjaverkstæði s: 5401300 - Hópferðir s: 5401313 - Fax 5401310 FO-4500 • Prentar á A4 pappir • Laserprentun • 1 mb í minni (ca 50 síður) • 50 blaða frumritamatari • 650 blaða pappírsgeymsla F-1500M Faxtæki, sími, símsvari, Windows prentari, skanni, tölvufax.og Ijósriti í einu tæki Sjálfvirkur deilir fax/sími Hitafilmu prentun Prentar á A4 pappír 20 blaða frumritamatari 300 blaða pappírsbakki FÖ-2600 • Innbyggðursími • Prentar á A4 pappír • Sjálfvirkur deilir fax/sími • Símsvara tengimöguleiki • Laserprentun • 512 kb minni • 20 blaða frumritamatari •100 blaða pappírsbakki FO-1460 • Innbyggðursími • Sjálfvirkur deilir fax/sími • Símsvara tengimöguleiki • Hitafilmu prentun • Prentar á A4 pappír • 20 blaða frumritamatari • 200 blaða pappírsbakki

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.