Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1999, Blaðsíða 26
38
MANUDAGUR 19. APRÍL 1999
Hver verða úrslit kosn-
inganna á Suðurlandi?
Þorgils Torfl Jónsson markaðs-
stjóri: Sjálfstæðisflokkurinn sigrar
og fær þrjá þingmenn, Framsókn
| tvo og Samíylking einn. Svo fær
Fijálslyndi flokkurinn ekki nema
1 400 atkvæði.
Sólveig Lúðvíksdóttir, vinnur
við heimahlynningu:
Samfylkingin fær allt of mikið fylgi
w en heldur tveimur mönnum. Hún
7 vinnur fylgi á kostnað Framsókn-
arflokksins.
Siggeir Ingólfsson trésmiður:
Samfylkingin verður sigurvegari
og fær þijá menn. Framsókn fær
einn og Sjálfstæðisflokkurinn tvo.
J
I:
1
Gunnar Amarson hestamaður:
Það verða litlar breytingar. Sjálf-
stæðismenn bæta við sig manni á
kostnað Samfylkingar.
Gunnar Granz málarameistari:
Þetta verða 2-2-2 eins og siðast. En
Sjálfstæðisflokkurinn sigrar í kosn-
jjjngunum.
Helga Dagrún Helgadóttir og
Helga Þóra Steinsdóttir:
Þetta verður jafnt. Skiptist jafnt á
milli þriggja flokka eins og síðast.
Barátta um upp-
bótarþingmann
Hið pólitíska landslag á Suðurlandi
hefur tekið töluverðum breytingum
frá síðustu kosningum eins og í öðr-
um kjördæmum. Þá buðu fram
gömlu fjórflokkarnir, auk Kvenna-
lista og Suðurlandslista Eggerts
Haukdals sem nú býður fram undir
merkjum Frjáls-
lynda flokksins.
í síðustu kosn-
ingum hlaut
Sjálfstæðisflokk-
urinn tvo þing-
menn, Fram-
sóknarflokkur-
inn tvo, Alþýðu-
bandalagið einn
og Alþýðuflokk-
urinn uppbótar-
þingmann í kjördæminu þrátt fyrir
að hafa aldrei fengið minna fylgi í
kjördæminu. Þá hlaut Alþýðuflokk-
urinn tæplega 900 atkvæði sem var
um 200 atkvæðum minna en Suður-
landslisti Eggerts Haukdal. Sam-
fylkingin hefur því tvo þingmenn í
kjördæminu. Samkvæmt kosninga-
spá Vísis, sem byggist á safni eldri
skoðanakannana og kosninga 1995
og á niðurstöðu síðustu skoðana-
könnunar sem hefur birst opinber-
lega, heldur Samfylkingin báðum
þingmönnum sínum. Kosningaspá-
in er nákvæmt reiknilíkan sem tek-
ur mið af kosningalögum. Skv.
spánni verða þó einhverjar breyt-
ingar á þingmönnum kjördæmisins.
Frambjóðendurnir
Einn þingmaður, sem kjörinn var
á þing í kjördæminu í síðustu kosn-
ingum, lætur af störfum sem þing-
maður. Það er Þorsteinn Pálsson úr
Sjálfstæðisflokki sem hefur verið
skipaður sendiherra í London.
Hann hefur verið þingmaður kjör-
dæmisins frá 1983. Leiðtogi sjálf-
stæðismanna í kjördæminu er nú
Ámi Johnsen alþingismaður sem
áður skipaði annað sætið á fram-
boðslista flokksins en hans sæti tek-
ur Drífa Hjartardóttir bóndi. Skv.
kosningaspá Vísis frá 15. þ.m. bætir
Sjálfstæðisflokkurinn hins vegar
við sig manni á kostnað Framsókn-
arflokksins og fær þá þrjá gangi
spáin eftir. Þriðji maður á lista
Sjálfstæðisflokksins er Kjartan Þ.
Ólafsson framkvæmdastjóri. Ef
Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig
manni mun sá þingmaður verða
uppbótarþingmaður. Baráttan
stendur því í dag að nokkra leyti
milli Framsóknarflokksins og Sjálf-
stæðisflokksins en sá fyrrnefhdi
verður að fá fleiri atkvæði en Sam-
fylkingin til að halda sínum manni.
Þá munu Sjálfstæðisflokkurinn og
Samfylkingin berjast um uppbótar-
þingmanninn ef Sjálfstæðisflokkur-
inn heldur því fylgi sem hann hef-
ur verið að fá í
skoðanakönnun-
um, sem er mjög
líklegt.
Hjá Framsókn-
arflokknum skip-
ar Guðni Ágústs-
son alþingismað-
ur fyrsta sæti
listans. Hann hef-
ur sterka stöðu í
kjördæminu og
hefur verið þingmaður þar frá ár-
inu 1987. Hann er einnig einn af
varaforsetum Alþingis. Þá var faðir
hans, Ágúst Þorvaldsson, þingmað-
ur í kjördæminu. Annað sætið hjá
Framsóknarflokknum skipar ísólf-
ur Gylfi Pálmason alþingismaöur.
Þeir eiga á brattann að sækja skv.
kosningaspá Vísis og verða eins og
áður segir að verða stærri en Sam-
fylkingin til að hljóta tvo þingmenn.
Samfylkingin státar af öflugum for-
ingja, Margréti Frímannsdóttur.
Hún hefur verið þingmaður í kjör-
dæminu í 12 ár auk þess sem hún
Suðurland
É Þingmenn fl Landskjörnir
Stjórnarandstaöa
sat nokkuð mikið á þingi sem vara-
þingmaður fyrir Garðar Sigurðsson,
fyrrum þingmann Alþýðubanda-
lagsins í kjördæminu. Samfylkingin
á möguleika, þótt hann teljist ekki
mikill, á verða sigurvegari kosn-
inganna í kjördæminu, einkum
þar sem Margrét býður þar fram.
Kjördæmi leiðtoga framboðanna
hafa ávallt verið sterk. Framsókn-
arflokkurinn fékk tæp 47 prósent í
kjördæmi formanns flokksins á
Austurlandi i síðustu kosningum
og Sjálfstæðisflokkurinn rúm 42
prósent í Reykjavík, kjördæmi for-
mannsins, þannig að Samfylkingin
getur náð sterkri stöðu i komandi
kosningum á Suðurlandi. Annað
sætið hjá Samfylkingunni skipar
Lúðvík Bergvinsson, sem var kjör-
inn á þing fyrir Alþýðuflokkinn í
síðustu kosningum.
Eggert Haukdal er oddviti
Frjálslynda flokksins. Hann bauð
síðast fram sér lista án þess að
koma manni að en náði engu að
síður 1200 atkvæðum. Líklegt verð-
ur að telja að hann nái nokkru
fylgi en ólíklegt að hann nái inn
manni. Frjálslyndi flokkurinn
mælist nú með 1,7 prósenta fylgi í
kjördæminu.
Hjá Vinstri hreyfingunni -
grænu framboði er Ragnar Alex-
ander Þórsson, leiðsögumaður odd-
viti listans. Hið nýja framboð er lít-
ið kynnt í kjördæminu en mælist
með 4,2 prósenta fylgi skv. kosn-
ingaspá Vísis. Erfitt er að spá fyrir
Frá Stokkseyri. DV-mynd Hilmar Þór
Fréttaljós
Hjálmar Blöndal
X
Framboðslistar á Suðurlandi
Framsóknar-
flokkurinn
1. Guðni Ágústsson alþing-
ismaður, Selfossi.
2. ísólfúr Gylfi Pálmason
alþingismaður, Hvolsvelli.
3. Ólafia Ingólfsdóttir,
bóndi og skrifstofum., Ár-
forstöömBljKfestmanna-
5. Elin Einarsdóttir kenn-
ari, V-Skaftafellssýslu.
6. Árni Magnússon. að-
stoðarmaður ráðherra,
Hveragerði.
7. Sigríður Anna Guðjóns-
dóttir íþróttakennari, Sel-
fossi.
8. Bergur Pálsson bóndi,
Rangárvallasýslu.
9. Hrönn Guðmundsdóttir
skógarbóndi, Þorlákshöfn.
10. Sigurjón Jónsson tré-
smiður, V-Skaftafellssýslu.
11. Lára Skæringsdóttir
hárgreiðslumeistari, Vest-
mannaeyjum.
12. Pétur Skarphéðinsson
læknir, Biskupstungum.
Frjálslyndi-
flokkurinn
1. Eggert Haukdal, fyrrv.
alþingismaður, Bergþórs-
hvoli.
2. Þorsteinn Árnason
véifræðingur, Selfossi.
3. Guði
Björnsdi
Austur-1
4. Siguri
skipstjór:
iur
innari,
lum.
arinósson
orlákshöfn.
5. Halldór Magnússon
skrifstofumaður, Selfossi.
6. Stigur Sæland bóndi,
Biskupstungum.
7. Halldór Páll Kjartans-
son fiskvinnslumaður,
Eyrarbakka.
8. Einar Jónsson, sjó-
maður og nemi, Selfossi.
9. Ema HaUdórsdóttir
verslunarmaður, Selfossi.
10. Guömundur Guð-
jónsson bóndi, Eystra
Hrauni, V-Skaftafellss.
11. Benedikt Thorarens-
sen, fyrrv. framkvæmda-
stjóri, Þorlákshöfn.
12. Karl Karlsson
skipstjóri, Þoriákshöfn
Húmanista-
flokkurinn
1. Sigrún Þorsteinsdótt-
ir verkefnisstjóri,
Vestmannaeyjum.
2. Einar Logi Einars-
son grasalæknir,
Reykjavik.
3. Magnea Jónasdóttir
4. Grimur nákónarson
háskólanHi, llykjavík.
5. Hörður Sigurgeir
Friðriksson verkamað-
ur, Vestmannaeyjum.
6. Sigurður Elíasson
hafnarvörður, Vest-
mannaeyjum.
4»
Samfylkingin
1. Margrét Frímannsdóttir
alþingismaður, Stokkseyri.
2. Lúðvik Bergvinsson al-
þingismaður, Vestmanna-
eyjum.
3. Katrin Andrésdóttir
dýralæknir, Reykjum.
4. Björg\ in G. Sigurösson
háskólaneiffi^^irði, Gnúp-
verjahreppfi
5. Guðjón Æ&ir Slgurjóns-
son lögmaðurTaelfossi. ,
6. Elin Björg Jónsdóttir,
formaður FOSS, Þorlákshöfn.
7. Drífa Kristjánsdóttir
forstöðumaður, Biskups-
tungum.
8. Kristjana Harðardóttir
skrifstofumaður, Vest-
mannaeyjum.
9. Þorsteinn Gunnarsson
bóndi, Vatnsskarðshólum,
Mýrdal.
10. Aðaiheiður Ásgeirs-
dóttir snyrtifræðingur,
Hveragerði.
11. Guðni Kristinsson há-
skólanemi, Skarði, Holta- og
Landssveit.
12. Sigriður Jensdóttir
tryggingafulltrúi, Seifossi.
Sjálfstæðisflokk-
urinn
1. Ámi Johnsen alþingis-
maður, Vestmannaeyjum.
2. Drifa Hjartardóttir
bóndi, Keldum, Rangárvöll-
um.
3. Kjartan,Þ,.Ólafsson
framkvæmdastjóii Hlöðu-
4. Ólafur Björnsson hæsta-
réttarlögnjMÉSsélfossi.
5. Óli Rúnar Ástþórsson
framkvæmdastjóri, Selfossi.
6. Kjartan Bjömsson rak-
ari, Selfossi.
7. Kristín S. Þórarinsdótt-
ir hjúkrunarfræðingur, Þor-
lákshöfh.
8. Þórunn Drífa Oddsdótt-
ir húsmóðir, Steingríms-
stöð.
9. Jón Hólm Stefánsson
bóndi, Gijúfri, Ölfusi.
10. Víglundur Kristjáns-
son hleðslumeistari, Heliu.
11. Helga Þorbergsdóttir
hjúkrunarfræðingur, Vík.
12. Þorsteinn Pálsson sjáv-
arútvegsráðherra, Reykja-
vik.
Vinstri hreyfingin
- grænt framboð
1. Ragnar A. Þórsson
leiðsögumaður, Árborg.
2. Katrin Stefanía Klem-
enzdóttir stuðningsfuil-
trúi, Árborg.
3. Andrés Rúnar Ingason
nemi, Viiliigaholtshreppi.
4. ÞorsteimKMafsson
nemi, Laugarvatni.
6. Broddi Hilmarsson
landvörður, Kirkjubæjar-
klaustri.
7. Viðar Magnússon loð-
dýrabóndi, Ártúni, Gnúp-
verjahreppi.
8. Níels Álvin Níelsson
sjómaður, Árborg.
9. Lárus Kjartansson
nemi, Ólafsvík.
10. Bergþór Finnboga-
son, fyrrv. kennari, Ar-
borg.
11. Klara Haraldsdóttir
húsfreyja, Kaldbaki, Rang-
árvöllum.
12. Sigurður Björgvins-
son, fyrrv. bóndi og loft-
skeytamaður, Reykjavík.