Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1999, Side 8
8
MÁNUDAGUR 19. APRÍL 1999
tiæKur um aut miui
himins og jarðar!
Útlönd
Loftárásir NATO þær hörðustu til þessa:
Tugir fjöldagrafa
finnast í Kosovo
Eftirlitsvélar NATO tilkynntu í
gær að þær hefðu séð ummerki 43
fjöldagrafa í Kosovo. Það var
Guiseppe Marani yfirliðsforingi
sem skýrði frá þessu á fréttafundi
NATO í gær. Hann kvað Serba
neyða stríðsfanga sína til að grafa
fómarlömbin.
Ekkert lát er á straumi flótta-
manna frá Kosvo. Flóttamanna-
stofnun S.þ. áætlar að nú séu 339
þúsund flóttamenn í Albaníu, 129
þúsund í Makedóníu og rúm 70 þús-
und í Svartfjallalandi. Straumurinn
jókst til muna í gær en hjálparstofn-
anir, sem starfa í Albaníu, sögðu að
hugsanlega yrði að bjarga um 130
þúsund flóttamönnum loftleiðina
frá Kosovo. Belgar tóku við 1200
flóttamönnum í gær. Þjóðverjar
hafa tekið við tíu þúsund en hingað
til hafa um 16 þúsund flóttamenn
veriö fluttir til Evrópulanda.
Fimm Kosovo-Albanar létu lífið í
gær þegar bifreið hafnaði á jarð-
sprengju. Fólkið hugðist freista þess
að komast yfir landamærin til Al-
baníu þegar vopnaðar sveitir Serba
skipuðu því að snúa við með fyrr-
greindum afleiðingum. Sprengingin
varð aðeins nokkra metra frá landa-
mærunum. Þrjú börn létust í
sprengingunni.
Mestu árásir til þessa
Loftárásir NATO héldu áfram af
krafti um helgina og voru sagðar
þær mestu til þessa. Herflugvélar
NATO vörpuðu m.a. sprengju á iðn-
aðarhverfi i Belgrad með þeim af-
leiðingum að mikinn reyk lagði um
borgina. Óttuðust menn um tíma að
umhverfisslys væri i uppsiglingu en
af því varð ekki því reykurinn eydd-
ist. Hraðbrautin á milli Belgrad og
Podgoritsa, höfuðborgar Svartfjalla-
lands, var lögð í rúst og herflugvöfl-
ur í nágrenni höfuðborgarinnar.
í gær var von á 24 árásarþyrlum
af Apachegerð tfl Tirana í Albaníu.
Notkun þeirra er ætlað að herða
mjög á árásargetu NATO. Þá slitu
Júgóslavar stjómmálasambandi við
Albaníu í gær.
Útiloka ekki landher
Umræðan um landher gerist æ
háværari en Javier Solana, fram-
kvæmdastjóri NATO, og Madeleine
Albright, utanríksráðherra Banda-
ríkjanna, sögðu í gær að landher
væri ekki á dagskránni nú. Þau úti-
lokuðu þó ekki að slíkur her yrði
notaður síðar. „Við munum halda
okkur við loftárásirnar," sagði Sol-
ana. Albright sagði hins vegar að ef
mat manna á stöðunni breyttist
myndi NATÓ bregðast skjótt við.
Breska dagblaðið Observer
greindi frá því í gær að NATO byggi
sig undir flutning 100 þúsund her-
manna tfl Kosovo í lok maí.
Albanskir flóttamenn frá Kosovo koma til Fraipont í Vestur-Belgíu í gær. í hópnum voru 170 flóttamenn en alls ætla
Belgar að taka á móti 1200 flóttamönnum á næstunni. Straumur flóttamanna frá Kosovo jókst til muna um helgina
og er talið að þeim eigi enn eftir að fjölga. Símamynd Reuter
Þú getur pantað útsölubækurnar
á netinu og fengið þær sendar hvert á
land sem er fyrir aðeins 200 króna
sendingargjald.
Útsalan stendur
. 19.-30. apríl!
BiGBRCmec
CONOMfCS
fcCHEMISTRY B
Bg?STTKJB38ICS..i 53
■•9 f ífi*...Tlrotfi '•v.v* * 9
I iwmttkascfTHCsemweiBd
CAKXX5SH i.Ml.s
IBífWllM m
HARMACQLOGYí
Jfc.’pwu* .vnmr
UVO CHT
bók/ðJð^ /túderxtð,
w w w. h o ksa La. I s
Engu nær um
sprenginguna
Breska lögreglan, Scotland Yard,
er engu nær um sprenginguna sem
varð nærri Iceland-stórmarkaðnum
í Brixton í Suður-Lundúnum í gær.
Enginn lést en 39 slösuðust, þar af
tveir alvarlega. Um naglasprengju
var að ræða og voru margir hinna
særðu með nagla á kafi í útlimum
og búk. Bresk yfirvöld útiloka ekki
að kynþáttahatur liggi að baki
sprengjuárásinni en Brixton er að
mestu byggt blökkumönnum.
Enginn hafði lýst verknaðinum á
hendur sér í gærkvöld.
Grænland og Fæh
eyjar bjóða aðstoð
Grænlendingar og Færeyingar
hafa lýst yfir áhuga á að taka við
flóttamönnum frá Kosovo, ef danska
stjómin æskir þess. Edmund Joen-
sen, lögmaður Færeyja, sagði í við-
tali við Berlingske Tideme í gær að
Færeyingar vildu leggja sitt af
mörkum og að aðstoð við flótta-
menn frá Kosovo væri verkefni sem
allt danska ríkið ætti að vinna sam-
an að.
Kosningar í Tyrklandi:
Allt útlit fýrir
sigur Ecevits
Þing- og sveitarstjómarkosningar
fóra fram í Tyrklandi i gær. Þegar
fjórðungur atkvæða hafði verið tal-
inn i gærkvöld benti allt til þess að
Bulent Ecevit, forsætisráðherra og
leiðtogi Vinstri lýðræðisflokksins,
væri sigurvegari kosninganna.
Vinstri lýðræðisflokkurinn hafði
hlotið 23,4% atkvæða. Keppinautur
Ecevits, íslamski hreintrúarflokkur-
inn, hafði hlotið 16% atkvæða og
öfgasinnaðir hægrimenn 17,3%. Alls
era 550 þingsæti á tyrkneska
þinginu en í gærkvöld var ekki Ijóst
hvemig þau myndu skiptast.
Ríkisstjóm Ecevits hefúr átt
auknum vinsældum að fagna und-
anfarið og er ástæða þess m.a. talin
vera handtaka leiðtoga kúrdíska
verkamannaflokksins, Abdullah
Öcalans. Endanleg kosningaúrslit
lágu ekki fyrir þegar blaðið fór í Bulent Ecevit, forsætisráðherra
prentun. Tyrklands, var sigurviss í gærkvöld.
Stuttar fréttir i>v
Mannfall á Sri Lanka
Að minnsta kosti 19 meðlimir
frelsissveita Tamíla á Sri Lanka
létust í átökum við her landsins
um helgina.
Hillary til Albaníu
Hillary Clinton, forsetafrú
Bandaríkjanna, hyggur á ferð til
Albaníu á allra
næstu dögum til
þess að sjá með
eigin augum að-
búnað og ástand
þúsunda flótta-
manna. Hillary
er stödd í New
York og mun
hitta forráðamenn góðgerðar-
stofnana í dag og ræða vanda
flóttamannanna frá Kosovo.
Milosevic kvartar
Slobodan Milosevic, íbúi í
London, segist búinn að fá sig
fullsaddan af ágangi fiölmiðla
undanfamar vikur. Milosevic,
sem jafnan er kallaður Dan, seg-
ist ekkert skyldur forseta
Júgóslavíu og þaðan af síður
vilji hann ræða við breska fiöl-
miðla um skoðanir sinar á
ástandinu á Balkanskaga.
Mótmælin halda áfram
Ekkert lát er á mótmælum
stuðningsmanna Anwars, fyrr-
um ráðherra Malasíu, sem var
nýlega dæmdur til fangavistar.
Lögregla í Kuala Lumpur spraut-
aði vatni á æstan múginn í borg-
inni í gær.
Stjórnarmyndun
Kongressflokkurinn á Indlandi
reynir nú stjómarmyndun eftir
að stjóm Vajpayees féll á laugar-
dag. Líklegt þykir að flokkurinn
biðli til vinstri- og landsbyggðar-
flokka.
Vill ekki ráðherradóm
Hinn valdamikli borgarstjóri
Moskvu, Yuri Luzhkov, hafnar
því að Borís
Jeltsín hafi boð-
ið sér stól for-
sætisráðherra.
Hann myndi
ekki þiggja
hann þótt hann
væri í boði.
Rússneskir fiöl-
miðlar hafa gefið í skyn að Jeltsín
sé alvarlega að íhuga brottrekstm-
Prímakovs forsætisráðherra.
Luzhkov hefur verið orðaður við
forsetaembættið þegar Jeltsín
hættir.
Lýsa ábyrgö
Stjórnvöld í Indónesíu lýstu í
gær yfir ábyrgð á mannfalli í Dili,
höfuðborg A-Tímor, á laugardag.
Á Qórða tug manna féllu í átökum
við vopnaðar sveitir Indónesa.
Urða kjarnaúrgang
Rússar hyggjast urða rúmlega
hundrað kjarnorkukafbáta í freð-
mýram á Novaja Semljaeyju i N-
íshafi. Frosin jörð á eyjunni er
hugsuð sem einangran.
Loka landamærum
ísraelsk stjómvöld hafa ákveð-
ið að loka landamæram sínum
við Gasasvæðið og Vesturhakk-
ann á morgun. Tilgangurinn er
að hindra komu Palestínumanna
til ísraels á minningardegi um
fallna hermenn á morgun og á
þjóðhátíðardegi landsins á mið-
vikudag.
Leiðtogar styðja Arafat
Leiðtogafundur Abdullah
Jórdaníukonungs, Arafats leið-
toga Palestinu-
manna og
Gaddafis Líbýu-
leiðtoga fór
fram um helg-
ina. Á fundin-
um samþykktu
Ahdullah og
Gaddafi að
styðja hugmynd Arafats um frest-
un stofnunar Palestínuríkis þar
til kosningar í ísraels era
afstaðnar í byrjun maí.