Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1999, Blaðsíða 14
14
MÁNUDAGUR 19. APRÍL 1999
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ÓLI BJÖRN KÁRASON
Aðstoðarritstjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjóri: PÁLL ÞORSTEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiösla, áskrift: ÞVERHOLTI11, 105 RVÍK,
SÍMI: 550 5000
FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5999
GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777
Stafræn útgáfa: Heimasíöa: http://www.skyrr.is/dv/
Vísir, netútgáfa Frjálsrar fjölmiðlunar: http://www.visir.is
Ritstjórn: dvritst@ff.is - Auglýsingar: auglysingar@ff.is. - Dreifing: dvdreif@ff.is
AKUREYRI: Strandgata 25, simi: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605
Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Filmu- og plötugerð: (SAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF.
Áskriftarverð á mánuði 1900 kr. m. vsk. Lausasöluverö 170 kr. m. vsk., Helgarblað 230 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Draumur rætist
Eitt stærsta fyrirtæki landsins verður opnað í dag fyrir
almenningi, þegar sala á hlutabréfum í Baugi hf. hefst. Þar
með hefst lokakaflinn i þróun er hófst á síðasta ári, þegar
fjölskylda Pálma Jónssonar, stofnanda Hagkaups, seldi
Fjárfestingarbankanum og Kaupþingi hlut sinn í fyrirtæk-
inu. Þá sameinuðust fimm félög undir nafni Baugs; Hag-
kaup, Bónus, Bónusbirgðir, Aðfóng og ísþor. Þegar frá upp-
hafi var það yfirlýst markmið að félagið yrði opnað og al-
menningi og stofnanafjárfestum boðin hlutabréf til kaups.
Samhliða voru gerðar róttækar breytingar á skipulagi fyr-
irtækisins og nú eru reknar fjórar verslanakeðjur á vegum
fyrirtækisins - Hagkaup, Nýkaup, Bónus og Hraðkaup -
sem samtals veltu um 18,7 miHjörðum króna á liðnu ári.
Sala hlutabréfa Baugs sýnir hversu mikið íslenskur
hlutabréfamarkaður hefur þróast á örfáum árum. Erfitt, ef
ekki útilokað, hefði verið fyrir nokkrum árum að stíga þau
skref sem nú hafa verið tekin. Gamall draumur Pálma
Jónssonar, um að gera Hagkaup að hlutafélagi í eigu al-
mennings, er því að rætast.
Á blaðamannafundi í júní á liðnu ári, þegar salan á Hag-
kaupi var kynnt, sagði Sigurður Gísli Pálmason, sonur
stofnandans, meðal annars: „Áður en Pálmi Jónsson, faðir
okkar og stofnandi Hagkaups, féll frá árið 1991 hafði hann
í nokkur ár haft þá skoðun að rétt væri þegar fram liðu
stundir og hentugar aðstæður sköpuðust að gera Hagkaup
að almenningshlutafélagi. Hugsun Pálma var ætíð sú, að ef
vel tækist til mundi slík eignaraðild styrkja félagið mjög.
Margir smáir hluthafar, sem jafnframt væru viðskiptavin-
ir Hagkaups, yrðu kjölfesta sem félaginu væri nauðsynleg
til að vaxa og dafna. Jafnframt var það sjónarmið hans og
einnig okkar nú i dag, að með þessum hætti mundi al-
menningur í landinu njóta góðs af góðri afkomu Hagkaups.
Við teljum eðlilegt og sanngjarnt að einstaklingar, starfs-
fólk og viðskiptavinir Hagkaups eigi þennan möguleika.“
Nú á tíminn einn eftir að leiða í ljós hversu vænleg
hlutabréf Baugs verða fyrir almenning og stofnanafjár-
festa. Baugur starfar á hörðum samkeppnismarkaði, en
ytri aðstæður hafa verið félaginu hagstæð undanfarið,
enda efnahagslegur uppgangur í þjóðfélaginu. Forráða-
menn fyrirtækisins gera ráð fyrir að afkoman verði enn
betri á þessu ári en því síðasta, enda kostnaður sem fylgir
breytingum að baki.
Staða Baugs á íslenskum markaði er gífurlega sterk, en
mikil samþjöppun hefur átt sér stað á islenskum matvöru-
markaði undanfarin ár. Áætlað er að velta á matvöru-
markaði á liðnu ári hafi verið um 37 milljarðar króna og
er Baugur með 44% hlutdeild. Forráðamenn Baugs sjá enn
frekari sóknarfæri á innlendum markaði, en fyrirtækið
hefur þegar haslað sér völl í öðrum löndum og hyggur á
enn frekari sókn.
Þegar Pálmi Jónsson stofnaði Hagkaup 1959 innleiddi
hann nýja verslunarhætti á íslandi og síðan hafa fleiri
fylgt í kjölfarið og byggt á sömu hugmyndafræði. Með
sama hætti og Hagkaup braut blað í íslenskri verslunar-
sögu má halda því fram að þeir feðgar Jóhannes Jónsson
og Jón Ásgeir Jóhannesson hafi markað djúp spor með
stofnun Bónuss árið 1989. Neytendur hafa notið verka þess-
arra manna.
Þær verslunarkeðjur sem eru innan vébanda Baugs hafa
notið gífurlegrar hylli og velgengni og tugir þúsunda
landsmanna eiga við þau viðskipti í viku hverri. Nú kem-
ur í ljós hvort sá mikli velvilji sem virðist ríkja meðal al-
mennings í garð verslananna endurspeglist í mikilli eftir-
spum eftir hlutabréfum.
Óli Bjöm Kárason
„Það sem landsfundur lofar svíkur forystan jafnharðan," segir Össur m.a. í grein sinni. - Frá landsfundi Sjálf-
stæðisflokksins á dögunum.
Flokkurinn
svíkur aldraða
ráðherrann að því
hve mikil útgjöld
hann áætlaði að fylgdi
þvi að hrinda loforð-
inu í framkvæmd.
Met í ábyrgðar-
leysi
Svar ráðherrans
var óvænt. Hann
sagði að kostnaðurinn
lægi ekki fyrir. Mar-
grét Frímannsdóttir
spurði forviða hvem-
ig í ósköpunum stæði
á því að útgjöld vegna
svo dýrs kosningalof-
orð hefðu ekki verið
metin. Geir H. Haarde
skýrði það efnislega á
þann veg að sam-
„Hér er beinlínis verið að
blekkja aldraða kjósendur. Það
sem landsfundur lofar svíkur
forystan jafnharðan. Sjálfstæð-
isflokkurinn ætlar sér bersýni-
lega ekki að standa við loforðið,
ef marka má orð fjármálaráð-
herrans.”
Kjallarinn
Össur
Skarphéðinsson
alþingismaður
Á nýlegum landsfundi sagði
Davíð Oddsson að Sjálfstæðis-
flokkurinn hefði alltaf haft skiln-
ing á stöðu þeirra sem væru hjálp-
arþurfi. í fyrirspurnartíma á
landsfundinum sagöi hinn góð-
hjartaði forsætisráðherra: Ég tel
að öryrkjar og aldraðir megi búast
við því að kjör þeirra batni veru-
lega á næstu mánuðum og misser-
um.“
Loforð Sjálfstæðisflokksins
I framhaldi af þessu samþykkti
landsfundurinn nýja stefnu um
bætur til aldraðra þar sem lofað
var að tekjur þeirra sem væru 67
ára og eldri ættu ekki að skerða
lífeyrisgreiðslur frá hinu opin-
bera. Þetta vakti mikla gleði í röð-
um aldraðra enda var samþykktin
langþráð breyting á stefnu flokks-
ins í málefnum aldraðra og ör-
yrkja.
Augljóslega var henni ætlað að
vera svar við þeirri hörðu gagn-
rýni sem Sjálfstæðisflokkurinn
hefur sætt meðal aldraðra fyrir að
hafa borið hlut þeirra fyrir borð.
Samþykktin var tímasett í aðdrag-
anda kosningabaráttunnar og átti
vitaskuld að þjóna þeim tilgangi
að laða aldraða kjósendur til fylg-
is við Sjálfstæðisflokkinn.
Sjálfstæðisflokkurinn upplýsti
hins vegar aldrei hve mikiö þetta
kosningaloforð myndi kosta ríkis-
sjóð. í umræðuþætti á RÚV spurði
Margrét Frímannsdóttir, talsmað-
ur Samfylkingarinnar, fjármála-
þykktin væri ekki kosningaloforð
heldur væri um að ræða stefhu
„langt fram i tímann!
Orð ráðherrans var ekki hægt
að skilja öðruvísi en
svo að loforðið frá
landsfundinum væri
bara „allt-í-plati“ og
stæði ekki til að upp-
fylla það á næsta
kjörtímabili. Svipuð
orð hrutu af vörum
hans í samtali við
mig á Stöð 2 sl.
sunnudag. Þetta
framferði Sjálfstæðis-
flokksins gagnvart
öldruðum slær öll
fyrri met í pólitísku
ábyrgðarleysi. Hér er
beinlínis verið að
blekkja aldraða kjós-
endur. Það sem
landsfundur lofar
svíkur forystan jafn-
harðan. Sjálfstæð-
isflokkurinn ætlar
sér bersýnilega
ekki að standa við
loforðið ef marka
má orð fjármála-
ráðherrans. Á vör-
um aldraðra mun
því eftirfarandi
spuming brenna
fram að kosning-
um:
Hvor er mark-
laus í þessu efni,
forysta Sjálfstæð-
isflokksins eða landsfundurinn
sjálfur? Eru loforð flokksins bara
grín?
Össur Skarphéðinsson
Skoðanir annarra
Eftirlitsþjóðfélagið
„Reynslan hræðir og því ber þeim, sem umhugað
er um rétt einstaklingsins til að lifa lífi sínu í friði á
íslandi, að fylgjast grannt með þróuninni erlendis í
átt til eftirlitsþjóðfélagsins. Forsjárhyggjumenn á ís-
landi hafa óvenju rika tilhneigingu til að stjóma lífi
meðbræðra sinna og þeir munu taka fagnandi þeim
auknu möguleikum, sem nýrri tækni fylgja. Jafn-
framt er þessi þróun fallin til að styrkja í sessi það
kerfi, sem þegar er við lýði, er skapar fólki störf við
að vilja öðrum vel og hafa eftirlit með gjörðum
þeirra og athæfi.“
Ásgeir Sverrisson, í Mbl. 16. apríl.
Fjármálahátíðin mikla
„Hver hátiðin af annarri gengur nú í garð. Bless-
aður forsetinn startar tveggja ára kristnitökuhátíð
og biskupinn þakkar guði sínum fyrir að þurfa ekki
að taka afstöðu eða ákvarðanir ... En allt er þetta
hjóm eitt ef miðað er við fjármálahátíöina miklu
sem nú stendur yfir og enginn viðurkennir að muni
nokkru sinni taka enda ... Arðsemi og sjóðastreymi
gengur kaupum og sölum og pappíramir sem sanna
eignarhald á tölvuútskriftum vixlakontóra em orðn-
ir verðmeiri og eftirsóknarverðari en svokallaðar
auðlindir til sjávar og sveita ... Spáð er 4-6% verð-
bólgu á árinu. Nú væri kærkomið að lánafélög aug-
lýstu dyggilega hvaða áhrif það hefur á skuldastöðu
lánatakenda."
Oddur Ólafsson, í Degi 16. apríl.
Strætó Landssímans
„Vandi fyrirtækjanna er ekki sá að þjóðvegir
gagnaflutninga séu lélegir og beri litla umferð og lít-
inn hraða. Vandinn er sá að Landssíminn rígheldur
í það að annast ekki aðeins þjóðvegina heldur öll
ökutæki sem um þá fara. Vilji einhver senda pakka
eða ferðast um þjóðvegina neyðist hann til að setjast
upp í hægfara strætó Landssímans, sæta því að
stoppa á þeim stöðum þar sem vagnstjórinn vill og
Landssíminn heimtar. Aðrir ferðamöguleikar eru
ekki fyrir hendi. Þessa strætóa býður Landssíminn
undir nafni háhraðanets, eða nú síðast ATM.“
Fjalar Sigurðarson, I Viðskiptablaðinu 14. apríl.