Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1999, Side 25
MÁNUDAGUR 19 APRÍL 1999
37
Frá Borgarnesi, miðsvæði kjördæmisins.
DV-mynd Teitur
esturland
en efsti maður húmanista er Sigmar
B. Hilmarsson.
Stefnumálin og jöfnunarsæti
Sem og í öðrum kjördæmum lands-
byggðarinnar leggja flokkamir
áherslu á atvinnu- og byggðamál.
Stærstu málefni kjördæmisins eru að
auki samgöngumál. Bættar samgöng-
ur hafa orðið í kjördæminu með til-
komu Hvalfjarðarganganna, en flokk-
amir leggja áherslur á að setja bund-
ið slitlag á þar sem það vantar og að
bæta vegi i sveitum. Landbúnaður er
mikill í kjördæminu, sem og sjávar-
útvegur. Því verður einnig slegist um
kvótakerfið og munu Samfylkingin,
VG, Frjálslyndi flokkurinn og
Húmanistar vilja gera á því stórar
breytingar í þessu kjördæmi, sem og
annars staðar. Enginn stór málefnaá-
greiningur er um einstök mál kjör-
dæmisins.
Það verður barátta um þingsæti,
það er ljóst. Berjast aðallega þing-
mennirnir Magnús Stefánsson
Framsóknarflokki og Gísli S. Einars-
son hjá Samfylkingunni. Þá á Hall-
dór Brynjúlfsson möguleika á þing-
sæti, en hann þarf að bæta töluverðu
fylgi við sig auk þess sem ljóst er að
hann á líklega aðeins möguleika á
jöfnunarsæti. Framsóknarflokkur-
inn, Sjálfstæðisflokkurinn og Sam-
fylkingin eiga allir góða möguleika á
því að verða sigurvegarar kosning-
anna. En til þess að Framsóknar-
flokkurinn nái að sigra verður hann
að bæta við sig fylgi.
Oddvitar bjartsýnir
á gengi síns flokks
Ingibjörg Pálmadóttir:
Ekki auðvelt að
halda tveimur
„Það er ljóst að það verður
mikil barátta að
halda tveimur
mönnum,“ segir
Ingibjörg Pálma-
dóttir, heilbrigð-
isráðherra og
oddviti Fram-
sóknarflokksins.
„Baráttan stend-
ur milli Sjálf-
stæðisflokksins, Samfylkingai'mn-
ar og Framsóknarflokksins um
þingsæti. Magnús Stefánsson, sem
skipar annað sæti Framsóknar-
flokksins, er úngur og framsýnn Ög
ég á von á þvi að hans störf fyrir
kjördæmið verða metin til verð-
leikum," segir Ingibjörg. „Atvinnu-
og samgöngumálin eru mikilvæg-''
asti málaflokkamir í kjördæminu.
Þó svo að margt hafi áunnist í
þessum efnum á kjörtímabilinu, þá
eru spennandi verkefni framundan
í samgöngubótum. Ég er bjartsýn á
að viö náum að skapa fleiri og
fjölbreyttari störf á landsbyggðina
á næsta kjörtímabili," segir Ingi-
björg.
Sigurður R. Þórðarson:
Ekki óraunhæft
að fá tvo
Sigurður R. Þórðarson, efsti
maður á lista Frjálslynda flokks-
ins, segir að
kosningarnar
framundan legg-
ist vel í liðsmenn
flokksins. „Þess-
ar kosningar
leggjast vel í okk-
ar. Sérstaklega
vegna þess að við
teljum okkur
vera að berjast fyrir stærsta mann-
réttindamáli aldarinnar - afnámi
kvótakerfisins," segir Sigurður.
„Við teljum ekki óraunhæft að
reikna með tveimur mönnum, mið-
að við hina þungu undiröldu óá-
nægju sem við veröum vör við
meðal hinna minni bræðra. Til
þess er leikurinn gerður, við berj-
umst fyrir sigri réttlætisins," segir
hann. Sigurður telur að að þeir
sem hafi varið núverandi fiskveiði-.
stjómunarkerfi eigi á brattann að
sækja í kjördæminu. „Allir þeir
sem gjörspillt fiskveiðistjórnar-
stefna hefur gert að landflótta ör-
eigum, og eru að hrökklast suður,
eiga á brattann að sækja,“ sagði
Sigurður.
Sigmar Hilmarsson:
Fólk kjósi
með hjartanu
„Ef við náum
kjördæmakjöm-
um þingmanni í
Reykjavík, þá
ætti að vera góð-
ur möguleiki að
ná jöfnunarsæti
á Vesturlandi,"
segir Sigmar _________
Hilmarsson, efsti maður á lista
Húmanistaflokksins. „Við vonum
að fólk láti ekki skoöanakannanir
ráða því hvað það kýs. Fólk á að
kjósa með hjartanu." Sigmar telur
að enginn sérstakur andstæðingur
sé í kosningunum - nema helst
flokkakerfið. „Það er aðeins þetta
siðspillta flokkakerfi. Sitjandi þing-
menn hugsa aðeins um að halda í
vinnuna sína,“ segir hann. „Við
emm að byggja upp flokkinn á
landsvísu og það er auðvitað afrek
út af fyrir sig að við getum nú boð-
ið fram í öllum kjördæmum. Mark-
miðið í framtíðinni verður að
heimamenn skipi framboðslista
flokksins,“ segir Sigmar.
Jóhann Arsælsson:
Bjartsýnn
á aö fá tvo
„Ég er mjög bjartsýnn á að við
fáum tvo menn kjörna. En til þess
að það gerist,
verðum við að
standa okkur vel
í kosningabarátt-
unni,“ segir Jó-
hann Ársælsson,
efsti maður á
lista Samfylking-
arinnar. Hann
telur að erfitt sé
að spá fyrir um úrslit kosninganna
því að töluverður hópur kjósenda
sé enn óákveðinn. „Við höfum upp-
lifað að Sjálfstæðisflokkurinn er
sterkur í kjördæminu, eins og um
allt land, en Framsóknarflokkur-
inn er að tapa fylgi. Enda þótt
kannanir sýni að svo sé, tel ég að
þær séu ómarktækar - því úrtakið
í þeim könnunum sem gerðar hafa
verið er allt of lítið," segir Jóhann.
„En viö lítum björtum augum til
kosninganna og ætlum að bæta við
okkur fylgi jafnt og þétt,“ sagði
hann.
Sturla Böðvarsson:
Tvísýnar
kosningar
Sturla Böðv-
arsson, efsti
maður á lista
Sjálfstæðis-
flokksins, telur
að kosningarnar
i ár séu mjög tví-
sýnar. „Þrátt
fýrir að skoðana-
kannanir sýni að Sjálfstæðisflokk-
urinn hafi forskot á aðra, getur svo
farið að það verði mjótt á munun-
um milli flokkanna," segir Sturla.
„Staða okkar er sterk í öllum skoð-
anakönnunum og það er auðvitað
vísbending um að okkar gengi hafi
verið að vaxa. Við eigum raun-
hæfa möguleika á því að fá flest at-
kvæði í kjördæminu," segir hann.
Sturla telur að ekki megi vanmeta
Vinstri hreyfinguna - grænt fram-
boð. „Ef Vinstri hreyfingin nær
hér fótfestu, sem ég tel að hún
muni gera, og ef við gefum okkar
að hún nái um 10 prósenta fylgi, þá
stendur slagurinn ekki um það
hvort Sjálfstæðisflokkurinn fái
tvo, heldur frekar milli Framsókn-
arflokksins og Samfylkingarinnar
um sinn annan rnann."
Halldór Brynjúlfsson:
Von um
jöfnunarsæti
„Ég geri nú ekki ráð fyrir því að
ná kjöri sem kjördæmakjörinn
þingmaöur, en ég held að það sé
fúllkomlega raunsætt að við getum
náð jöfnunarsætinu í kjördæm-
inu,“ segir Hall-
dór Brynjúlfs-
son, efsti maður
[ :Já lista Vinstri
hreyfingarinnar
- græns ffarn-
boðs. „Ég tel að
fylgið sem Al-
þýðubandalagið
hafði í síðustu
kosningum skili sér ekki að stærri
hluta til VG, það er nokkuð ljóst.
En ég kem nú t.d. sjálfur úr Al-
þýðubandalaginu og vona að fylgið
frá Alþýðubandalaginu skili sér að
einhverju leyti til okkar,“ segir
Halldór og tekur fram að framboð
VG sé ekki gamalt, heldur nýtt
ffamboð. „Ég finn fyrir stuðningi
víða að, en ég tel mjög mikilvægt
að þingmaður verði kjörinn héðan
úr miðju kjördæmsins, því hér hef-
ur ekki verið þingmaður í langan
tíma,“ segir Halldór.
Mikilvægustu
málin í
kjördæminu
Framsóknarflokkurinn
1. Atvinnumál.
2. Samgöngumál.
3. Mennta- og heilbrigðismál.
4. Velferðarmál.
5. Efling kjördæmisins.
Frjálslyndi flokkurinn
1. Áfnám kvótakerfisins.
2. Málefni bænda.
3. Félags- og heilbrigðismál.
4. Menntamál.
5. Velferðarmál.
Húmanistaflokkurinn
1. Afnám fátæktar.
2. Mannréttindi séu virt.
3. Nær vaxtalaus lán.
4. Ný kynslóð þingmanna. T
5. Sameiginlegur lífeyrissjóður.
Samfylkingin
i 1. Byggðamál.
2. Samgöngiunál.
3. Menntamál.
4. Opinber þjónusta.
5. Breytt fiskveiðistjórnunar-
kei-fi.
Sjálfstæðisflokkurinn
1. Bætt afkoma atvinnulífsins
2. Frekari uppbygging
vegakerfisins.
3. Bætt staða fiölskyldunnar.
4. Menntamál.
5. Uppbygging ferðaþjónust-
unnar.
grænt framboo
1. Atvinnu- og byggðamál.
2. Landbúnaðarmál.
3. Umhverfismál.
4. Samgöngumál.
5. Efling miðsvæðis
kjördæmisins.