Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1999, Síða 44
*
Vinningstölur laugardaginn: 10. 0'
32
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Vinningar Fjöldi vinninga Vinnings- upphæð
1. 5 af 5 0 3.381.270
2. 4af5+<s? 3 105.670
3. 4 af 5 60 9.110
4. 3 af 5 2.015 630
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
Jókertölur
vikunnar:
:...........................................
9 3 9 8 3 1
_____________
550 5555
FR J ALST, OHAÐ DAGBLAÐ
MANUDAGUR 19. APRIL 1999
Borgarbyggð:
Viðræðum
frestað
^Forseti Lettlands
í heimsókn
Opinber heimsókn herra Guntis
Ulmanis, forseta Lettlands, og eigin-
konu hans, frú Aina Ulmane, hófst í
gær þegar forsetinn kom til lands-
ins. Móttökunefnd tók á móti hon-
um á flugvellinum í Keflavík í gær.
Heimsóknin stendur til 21. apríl.
Móttökuathöfti fyrir forsetann verð-
ur á Bessastöðum í dag kl. 9.30 þeg-
ar forseti íslands, hr. Ólafur Ragnar
•Grímsson, tekur á móti forsetahjón-
unum ásamt ríkisstjórn og handhöf-
um forsetavalds. í kvöld verður svo
hátíðarkvöldverður til heiðurs for-
setahjónunum á Bessastöðum. For-
sætis- og utanríkisráðherrar beggja
landanna munu eiga fundi saman.
Þá mun forseti Lettlands heimsækja
fyrirtæki og skoða náttúru íslands.
-hb
íslandsmótið í parakeppni í bridge
fór fram um helgina með þátttöku
46 para. Öruggir sigurvegarar, sem
voru í forystu nær allt mótið, urðu
^Bryndís Þorsteinsdóttir og Ómar Ol-
geirsson. DV-mynd S
MA EG ÞA FREKAR
BI9JA UM
BÓNUSTÖLU!
Skothríð
á Bíldudal
Viðræður fóru fram í gær milli
► Borgarbyggðarlistans og Framsókn-
arflokksins um myndun nýs meiri-
hluta i Borgarbyggð. „Það var ein-
róma samþykkt að vel athuguðu
máli að ganga til viðræðna við
Framsóknarflokkinn. Við þurftum
að vinna mjög vel undirbúnings-
vinnu til að geta tekið ákvörðun um
hvom flokkanna við myndum byrja
að ræða við. Við byrjuðum að ræða
saman klukkan fimm og héldum
áfram fram eftir kveldi og það er of
snemmt um það að segja hver nið-
urstaðan verður," sagði Guðrún
Jónsdóttir af Borgarbyggðarlistan-
um við DV. Viðræðum verður fram
haldið i kvöld. DVÓ
Lögreglan á Patreksfirði hefur nú
til rannsóknar mál þar sem skotið
var af haglabyssu á skúr við höfnina
á Bíldudal. Málið er litið mjög alvar-
legum augum því slíkt athæfi setur
fólk á staðnum að sjálfsögðu í mikla
hættu. Engin vitni urðu að atburðin-
um sem lögreglan telur líklegt að hafl
gerst aðfaranótt laugardags. -GLM
Lögreglan í
Framsóknarhús
Miðbæjargestir í Reykjavík voru
tiltölulega rólegir á fóstudags- og laug-
ardagskvöld. Þó þurfti að kalla lög-
regluna til aðfaranótt sunnudags
vegna gleðskapar sem farið hafði úr
böndunum í sal sem leigður er út á
þriðju hæð í Framsóknarhúsinu við
Hverfisgötu. Glasi hafði verið hent af
svölum salarins og lent á bíl, dældað
hann og rispað. Um fimmtíu manns
voru í húsinu en ekki fékk upplýst
hver henti glasinu eða hvort um
óviljaverk hefði verið að ræða. -GLM
Þær eru margar myndirnar sem náttúran skapar allt árið um kring, hvort sem er vetur, sumar, vor eða haust. í kulda-
tíðinni undanfarið hafa þessar súlur úr ís myndast í helli sem er rétt austan við Vfk f Mýrdal. Þar hjálpar að áður en
kólnaði var búið að vera hlýtt og mikil bráðnun. Diljá Ösp virðir hér fyrir sér voldug grýlukertin í hellinum.
DV-mynd NH
Baugs-útboðið virðist vekja áhuga:
Bolvikingar i leit
Bílbruni
í Kópavogi
Slökkviliðið í Reykjavík var kall-
að út um kl. 18 í gærdag vegna
brennandi bíls sem stóð við hús trú-
félagsins Krossins í Kópavogi. Lík-
ur eru leiddar að því að kveikt hafi
verið í bílnum sem skemmdist mik-
ið. Enginn hefur verið handtekinn
vegna málsins. -GLM
að kennitolum
„Frábært - það er það eina sem
ég get sagt, ef þetta speglar áhuga
almennings á fyrirtækinu okkar,“
sagði Jóhannes Jónsson í Bónusi í
gær þegar hann heyrði af áhuga
fólks úti á landi þar sem kennitölu-
söfnun er hafin til að ná sem mest-
um hlut í stóru og öflugu verslunar-
fyrirtæki. Baugur, eigandi nærri 30
stórra verslana, hefur ákveðið að
selja 10% af eigninni til almennings
fyrir nærri milljarð.
Jón Ásgeir Jóhannsson, forstjóri
Baugs, sagði í viðtali að hann von-
aðist til að 5 þúsund íslendingar
eignuðust hlutdeild í fyrirtækinu,
að dreifingin yrði mikil.
DV frétti strax í gær af miklum
viðbrögðum og jafnvel kennitölusöfn-
un vestur á Bolungarvík. Þar voru i
það minnsta tveir starfsmenn Rauða
hersins svokallaða önnum kafnir í
símanum við að safna kennitölum til
að eignast sem mest af hlutabréfum í
Baugi hf. Reiknað er að með að svip-
uð staða komi upp og hjá Búnaðar-
bankanum, að hlutur hvers og eins
verði ærið rýr.
Gunnar Torfason í Bolungarvik
kannaðist við að fram færi kenni-
tölusöfnun en hann sagði að það
væri aðeins í litlum mæli og ekki
frásagnarvert. Hann sagði að útboð-
ið væri byrjað og það væri „svo sem
ekkert i gangi“ hjá þeim. -JBP
Einar Klemenzson sýnir Gígju
frænku sinni arnhöfðótt lamb úr
fyrsta burðinum.
Mýrdalur:
Sauðburður
Rækjuveiðar í sögulegu lágmarki aö byrja
DV, Hólmavik:
Veiðar á innfjarðarrækju i
Húnaflóa þennan vetur hafa náð sögu-
legu lágmarki. Gefinn var út 1000
tonna byrjunarkvóti en hann var síð-
an skorinn niður um helming eða í 500
tonn þegar mat hafði verið lagt á veiði-
þolið við könnun sem fram fór eftir
áramótin. Þarf að fara alla ieið aftur
til 1986-1987 til að fá sambærilegar
aflatölur. Einn bátur frá Hólmavík er
þessa daga að sækja síðustu tonnin.
Að sögn Gunnlaugs Sighvatssonar,
framkvæmdastjóra Hólmadrangs hf.,
hafa viðræður farið fram á milli sveit-
arstjórnarmanna og útgerðaraðila á
þéttbýlisstöðunum við Húnaflóann og
fulltrúa í sjávafútvegsráðuneytinu
um aflabrestinn og þá tekjuskerðingu
sem hann veldur. Þær hafa leitt það af
sér að vel hefur verið tekið í tillögur
um að svæðinu verði að einhverju
leyti bættur skaðinn með auknum
veiðiheimildum í bolfisktegundum á
næsta flskveiðiári. -Guðfinnur
DVVík:
Það er alltaf spennandi hjá ung-
viðinu að fara út í sveit og skoða
lömbin þegar þau eru nýfædd. í
Mýrdal er farið að koma eitt og eitt
lamb. Um og upp úr næstu helgi má
búast við að allt fari á fulla ferð í
sauðburðinum.
Hjá Einari bónda í Presthúsum í
Mýrdal var ein borin á sunnudag.
Sagðist hann búast við að fleiri
færu að létta á sér á næstunni.-NH.
Veðrið á morgun:
Skúrir
sunnan-
lands
Á morgun verður suðaustan-
stinningskaldi suðvestanlands en
annars gola eða kaldi. Skúrir
sunnanlands en annars skýjað
með köflum og úrkomulaust. Hiti
rétt ofan við frostmark á norðan-
verðu landinu en 2 til 7 stig sunn-
anlands.
Veðrið í dag er á bls. 53.
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
Á