Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1999, Qupperneq 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 4. MAÍ 1999
Viðskipti__________________________________________________________________________________ p
Petta helst: ...Viðskipti á Verðbréfaþingi 419 m.kr. ... Úrvalsvísitala Aðallista hækkar lítillega
...Ávöxtunarkrafa húsbréfa þokast niður í 307 m.kr. viðskiptum ... Hlutabréfa Baugs lækka um 0,7% í
9*98 ... Vaki fiskeldiskerfi hf. á Vaxtarlista á morgun ... Dow Jones vísitalan yfir 11.000 ...
Trúverðugleiki og ráðdeild í ríkisfjármálum
- er lykillinn að árangri í hagstjórn, segir Davíð Oddsson
Islandia
TAL kaupir
í síðustu viku var gengið frá
kaupum Tals á Islandia Internet, en
það var íslenska útvarpsfélagið sem
átti fyrirtækið en jafnframt á það
þriðjung í Tali. í fréttatilkynningu
Tals kemur fram að kaupin séu í
samræmi við þá framtíðarsýn fyrir-
tækisins að símtækni og tölvutækni
séu að renna saman í eina heild.
Markaðshlutdeild Islandia Internet
er um 20% á einstaklingsmarkaði
og ljóst er að kaupin munu efla
þjónustu Tals og styrkja í sam-
keppni við Landssímann.
Markmið Tals er að ná forystu í
þróun þráðlausra samskipta með
notkun GSM-símkerfisins. Á fyrsta
starfsári fyrirtækisins hefur það
náð um 20% markaðshlutdeild og
komið fram með ýmsar nýjungar og
stuðlað að því að verð á markaðn-
Internet
um hefur lækkað. Með kaupum Tals
á Islandia Internet er staðfestur
aukinn styrkur félagsins og áform
þess að hasla sér völl á fleiri sviðum
og bjóða viðskiptavinum fleiri nýja
möguleika. Tækniþróun í gagna-
flutningi GSM-síma er afar hröð og
Tal telur að efla þurfi þróun lausna
sem henta íslenska markaðnum. Ör
þróun í gerð farsíma og ferðatölva
býður upp á áður óþekkta mögu-
leika. Nú þegar er hægt að bein-
tengja ýmsar upplýsingaveitur frá
vefsíðum til farsíma og innan tíðar
mun verða hægt að flytja lifandi
mynd í farsímakerfum. Ljóst er að
innkoma Tals hefur stóraukið sam-
keppni hér á landi og þessi kaup
munu herða þá keppni enn frekar
og koma markaðnum til góða.
íslenska eymdarvísitalan
Forsætisráðherra Valdatímabil Vísitaia Röð
Davíð Oddsson 1996-1999 19.6% 1
Davíð Oddsson 1991-1995 8.5% 2
Bjami Benediktsson Ólafur Jóhannesson 1964-1970 5.8% 3
1972-1974 54% 4
Þorsteinn Pálsson 1988 -9.7% 5
Steingrímur Kemtannsson 1989-1990 -10.5% 6
Steingrímur Hennannsson 1983-1987 -17.5% 7
Geir Hallgrímsson 1975-1978 -18.9% 8
Ólafur Jóhannesson Benedikt Gröndal (3 mán.) 1979 -32.4% 9
Gunnar Thoroddsen 1980-1982 -334% 10
IToSýi
Árangur í hagstjóm er ekki auð-
mældur. DV gerði tilraun á dögun-
um og bjó til eymdarvísitölu fyrir
íslenskan efnahag. Eymdarvísitalan
mælir hagstjómarárangur og því
má kannski segja að nafnið á henni
sé misvísandi því þeir sem eru
Atvinnuleysi
minnkar enn
Hagstofa íslands gerði vinnu-
markaðskönnum fyrir skömmu.
Samkvæmt henni vora 2,2%
vinnuaflans á íslandi án vinnu.
Þetta jafngildir því að 3.400 ein-
staklingar voru án vinnu um
miðjan apríl. Á sama tíma í fyrra
var atvinnuleysið 3,1% og 4.700
manns án atvinnu. Sem fyrr er
atvinnuleysi meðal kvenna
nokkra meira en hjá körlum en
2,8% kvenna vora án atvinnu en
aðeins 1,6% karla.
Atvinnuþátttaka mældist í
þessari könnun 82,5% sem er
nokkru meira en árið áður og
vinnandi fólki hefur fjölgað um
5.800 miðað við sama tima í fyrra.
Meðalfjöldi vinnustunda á viku
hefur aukist nokkuð eða úr 43,3
klst. í 43,5 klst. nú í apríl en árið
1997 var sambærileg tala 42,7 klst.
Þetta atvinnuleysi er með því
minnsta sem þekkist i heiminum
og ljóst að ástandið á vinnumark-
aðnum er mjög gott um þessar
mundir. -BMG
efstir hafa náð bestum árangri. Nið-
urstaðan kom ekki á óvart og náði
Davíð Oddsson forsætisráðherra
tveimur efstu sætunum.
DV leitaði viðbragða frá Davíð og
spurði að hvaða leyti hagstjórnarár-
angur síðustu ára væri ríkisstjóm-
inni að þakka. Davíð sagði að efna-
hagsárangur þjóðarinnar væri ekki
eingöngu vegna ytri skilyrða, eins
og margir vilja halda fram. Erlend
matsfyrirtæki hafa verið dugleg að
benda á ýmis atriði sem stuðlað
hafa að þessari þróun, t.d. einka-
væðing ríkisfyrirtækja, skattalækk-
anir, niðurgreiðsla erlendra skulda
ríkissjóðs, hætt handstýringu krón-
unnar og gefið fjármagns- og vöra-
flutninga frjálsa. Vissulega hafa
ýmis ytri skilyrði verið hagstæð en
margt hefur horft til verri vegar á
móti. Álverð hefur verið mjög lágt,
afli í Barentshafi hefur verið lítill,
rækjuafli og loðnu-
veiði hefur brugð-
ist, svo nokkuð sé
nefnt.
Það sem vekur
kannski mesta at-
hygli er hversu
góður hagstjórnar-
árangur náðist á
árunum 1992-94
þrátt fyrir að mjög
hafi hallað á ís-
lenskan efnahag.
Sagan segir okkur
að efnahagurinn er
sveiflukenndur og
því eðlilegt að
spyrja um lykil að hagstjórnarár-
angri þegar síga tekur á ógæfuhlið
efnahagsins. „Hagstjórnin á þessum
árum byggðist fyrst og fremst á því
að skera niður útgjöld og láta af
stýringu atvinnulífsins, en fara ekki
á taugum. í niðursveiflu er mikill
þrýstingur á að halda útgjöldunum
uppi og að beita sértækum lausnum
til að bjarga hinu og þessu fyrir-
tæki. Slíkar efnahagslegar skottu-
lækningar framlengja hins vegar
vandann, þótt þær séu auðveld
skammtímalausn fyrir vaklandi
stjómmálamenn," segir Davíð.
Framtíðin góð
Horfur í íslenskum efnahag eru
ágætar og líkur á áframhaldandi
hagvexti. Davíð sagði að aðalatriðið
væri að halda efnahagslegum skil-
yrðum stöðugum og leyfa athafnalíf-
inu að blómstra. „Stjórnmálamenn
Davíð Oddsson forsætisráðherra.
eiga að plægja jarðveginn, en láta
öðram eftir að sá og uppskera.
Grandvallaratriði er að ríkið sýni
ráðdeild í fjármálum en láti ekki sí-
fellt undan kröfugerð dagsins. Það
þarf að halda áfram að lagfæra
skattaumhverfið og lækka skatta
þar sem þess er kostur. Eins þurfa
aðilar vinnumarkaðar að geta
áfram treyst hagstjóminni svo við
byrjum ekki aftur að eyða fjölda
vinnudaga ár hvert í verkfoll og
sóun. Þá er mikilvægt að halda
áfram að virkja allan almenning til
þátttöku í atvinnulífmu, eins og
gert var til dæmis með hlutafjárút-
boðum ríkisbankanna. Slíkar að-
gerðir auka spamað og efla þær
greinar sem færðar era frá ríkinu
til fólksins," segir Davíð. -BMG
viðskipta-
molar
4,5% hagvöxtur í
Bandaríkjunum
Nýverið vora birtar hagvaxtar-
tölur í Bandaríkjunum. Sam-
kvæmt þeim var hagvöxtur 4,5%
á ársgrandvelli fyrstu þrjá mán-
uði ársins. Vöxturinn er helst
rakinn til mikillar neysluaukn-
ingar. Einkaneyslan jókst um
6,7% á þessu tímabili og er það
mesta aukning sem mælst hefur í
tíu ár. Þrátt fyrir þessa neyslu-
aukningu verður ekki vart við
aukna verðbólgu og atvinnuleysi
er í sögulegu lágmarki eða um
4,2%. Þessar fréttir höfðu nokkur
áhrif á skuldabréfamarkaði því
þar óttast menn verðbólgu í kjöl-
far svo mikillar neysluaukningar.
Atvinnuleysi
minnkar á Spáni
Spánverjar gera ráð fyrir að
störfum fjölgi um 2,8% á þessu
ári og atvinnuleysi minnki eitt-
hvað minna. Þetta er meir en
þrefalt meiri aukning en að með-
altali í löndum Evrópusam-
bandsins. Horfur á Spáni eru nú
bjartari en oft áður.
Þjóðverjar lækka
fyrirtækjaskatta
Áætlanir era nú uppi um að
lækka skatta á þýsk fyrirtæki
niður í 25%. Skatturinn er nú
45% sem er með því hæsta sem
þekkist og hefur reynst þýsku at-
vinnulífi erfiður.
Atvinnuleysismet
í Japan
Atvinnuleysi í Japan mældist
í síðasta mánuði 4,8% en var
4,6% mánuðinn á undan. Þetta
er mesta atvinnuleysi sem mælst
hefur í Japan frá upphafi mæl-
inga. Á sama tíma lækkaði vísi-
tala neysluverðs um 0,8%.
Baugur
kaupir Útilíf
Baugur hf. hefur skrifað undir
kaupsamning við eigendur versl-
unnarinnar Útilífs i Glæsibæ. Þetta
kemur fram á á viðskiptasíðu Vísis.
Framtíðarstaðsetning fyrirtækisins
er ekki ljós en talið er mögulegt að
reksturinn verði fluttur í húsnæði
Baugs í Smáralind.
01
nn 1 nn
Veflausn framtíðarinnar
mmmmmm^mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm^mmmmm{er fáanleg nuna
SflVl
Meö S3.Vef gefst kostur á mótun og viðhaldi vefs á afar
einfaldan hátt. S3.Vefur sparar mikinn tíma og peninga
við viðhald vefs fyrirtækisins. Starfsmenn fyrirtækisins
verða sjálfir þátttakendur l að viðhalda þeim upplýsingum
sem birtast á Internetinu og ekki þarf að kalla til
Premíum Partner
Dreifingaraðili Lotus Notes á tslandi
sérfræðing í hvert skipti sem upplýsingar eru uppfærðar.
Auðvelt er að tengja aörar S3.Lausnir við
vefinn. Þannig má t.d. birta á vefnum
handbækur, starfsmannalista,
vörulista og aörar upplýsingar
sem geymdar eru í Lotus Notes.
Skaftahlíð 24 • Sími 569 7790
http://www.nyherji.is
NÝHERJI