Dagblaðið Vísir - DV - 04.05.1999, Page 28
36
ÞRIÐJUDAGUR 4. MAÍ 1999 DV
onn
Ummæli
BHhBIBwlí11
agsmumr
í verkalýðs-
baráttunni
„Því miður er það svo að
sumir forystu-
menn verkalýðs-
i hreyfingarinnar
! virðast vera upp-
, teknari af því að
, tryggja eigin
stöðu en að
sinna hagsmun-
um félags-
manna sinna.“
Guðmundur Gunnarsson,
form. Rafiðnaðarsambands-
ins, í Degi.
Ágætt í kvikmynd
eftir Hrafn
„í það heila eru laglínumar
bara óþægileg tónbil upp og
niður og hljómsveitarpartur-
inn myndi sóma sér ágætlega í
kvikmynd eftir Hrafti Gunn-
laugsson."
Jónas Sen, um verk eftir Jón
Leifs, í tónlistarumfjöllun
ÍDV.
Samfylkingin
„Samíylkingunni
fer ekki að ganga
vel fyn- en fer að
ganga illa í land-
inu.“
Davíð Oddsson
forsætisráðherra,
í Morgunblaðinu.
Ef illa fer...
„Ef illa fer þá verður að
hugsa fyrir jarðarför með
pomp og prakt. Það yrði öllum
til sóma og Vestmannaeyjar
kæmust í heimspressuna enn á
ný, jafnvel klukkum yrði
hringt og Ámi Johnsen mundi
spila á gítarinn sinn.“
Jón Kr. Gunnarsson, sem
hefur efasemdir um heilsufar
Keikos, í DV.
Hannes og
kosningamar
„Hannes (Hólmsteinn) talaði
mikið en virtist
leiðast, fannst
, varla taka því að
kjósa, en átaldi
mig fyrir út-
sendingu að
kunna ekki að
fagna tilhlýði-
lega því aö fá
að vera á dögum um leið og
Davíð Oddsson og fá að vera
þegn hans.“
Guðmundur Andri Thorsson,
ÍDV.
Lætur ekki undan
„Ég læt ekki flæma mig úr
starfi með galdrabrennum."
Ingvar Ásmundsson, skóla-
stjóri Iðnskólans í Reykja-
vík."
Reynir Sveinsson, forstöðumaður Fræðasetursins í Sandgerði:
Fæddur og uppalinn á rafmagnsverkstæði
DV, Suðumesjum:
„Mér líst vel á nýja starfið enda
ekki ókunnugur því þar sem ég hef
starfað með fyrrverandi forstöðu-
konum fræðasetursins frá stofnun
þess,“ segir nýráðinn forstöðumað-
ur Fræðasetursins í Sandgerði,
Reynir Sveinsson.
Fræðasetrið var sett á stofn árið
1992 og þar er unnið að því að safna
saman sögu útgerðarhverfanna í
Miðneshreppi. Á efri hæð hússins
að Garðvegi 1 er fræðasetr-
ið og aðsetur fyrir fræði-
menn sem dveljast við störf
á setrinu en á neðri hæð-
inni rekur rannsóknarstöðin verk-
efnið Botndýr á íslandsmiðum
ásamt sjávarsetrinu sem tekið var í
notkun í desember síðastliðnum.
„Hér er ýmislegt á döfmni og nýlega
var rannsóknarstöðin tilnefnd sem
einstök vísindaaðstaða á vegum
Evrópubandalagsins og í tengslum
við þessa tiinefningu munu fjöl-
margir erlendir vísindamenn starfa
við rannsóknir hér í stöðinni og
gista í Fræðasetrinu og í húsnæði
annars staðar í bænum. Auk mín
starfa hér í húsinu tíu bráðhressar
og myndarlegar konur.“
Reynir hefur í áratugi verið raf-
virkjameistari á Suðurnesjum og
var meðal annars rafverktaki að
endurbyggingu húsnæðis þess sem
fræðasetrið er i, en hvað kemur til
að hann gerist forstöðumaður nátt-
úrufræðistofnunar. „Það var
kannski kominn tími til að skipta
um starfsvettvang. Ég hef unnið við
rafvirkjun frá fjórtán ára aldri, enda
fæddur og uppalinn á
raftnagnsverkstæði, og
þegar faðir minn, Sveinn Aðalsteinn
Gíslason rafvirkjameistEU'i, hætti
rekstri rafmagnsverkstæðis 1970
stofnaði ég ásamt fleirum Rafverk
hf. og hef starfað við rekstur þess til
dagsins í dag en nú er ætlunin að
selja fyrirtækið. Ein aðalástæða
þess að ég hef hætt vinnu við raf-
virkjun er sú að ég er með svokall-
aða psoriais-gigt í höndunum og ég
losna víst ekkert við hana.“
Reynir segist eiga sér mörg
áhugamál. „Mestur tími minn
hefur þó farið í alls konar fé-
lagsmálastörf. Ég var ofvirk-
ur í björgunarsveitinni Sig-
urvon í 23 ár ásamt starfi við
SVD-flugelda.“ Þá hefur Reyn-
ir verið formaður sóknar-
nefndar Hvalsneskirkju í tæp
10 ár en nefndin hefur staðið
fyrir miklum framkvæmdum á
kirkju og kirkjugarði að und-
anfomu ásamt byggingu
safnaðarheimilis
Sandgerði. Formað-
ur sjálfstæðisfé-
lagsins í Sand-
gerði hefúr
Reynir ver-
ið í 12 ár og
setið í bæj-
arstjóm
Sandgerð-
is í níu ár.
Lionsklúbbi Sandgerðis til margra
ára og verið starfandi í leikfélaginu
ásamt ýmsu fleira. Síðan hef ég haft
ljósmyndadellu frá fermingu og á
gott safn mynda frá ýmsum atburð-
um.
Við fjölskyldan eigum sumarbú-
stað og þar hef ég gaman af að
dunda við ýmislegt.“
Reynir er innfæddur Sandgerð-
ingur en sótti konuefhið í nágranna-
byggðina Garð en kona hans heitir
Guðmundína Þor-
björg Kristjáns-
dóttir frá Ás-
byrgi í Garði.
Þau eiga þrjú
börn. Gísla 23
ára vélfræð-
ing, Sigríði 19
ára hjúkrun-
arfræðinema
og Guðbjörgu
14 ára.
-AG
„Ég hef
starfað
með
DV-mynd Arnheiður
Maður dagsins
Alþjóðleg hönnun og
íslenskar ljósmyndir
Á Kjarvalsstöðum standa
yfir tvær sýningar. Þetta em
sýning á alþjóðlegri hönnun
eftir þá Jasper Morrison,
Marc Newson og Michael
Young og ljósmyndsýning
Spessa. Þeir Jasper Marc og
Michael era nú á meðal
hinna fremstu á alþjóðavett-
vangi á sviði hönnunar.
Verk þeirra era kynnt í öll-
um helstu hönnun-
arritum samtím-
ans og listinn yfir
þau fýrirtæki sem
þeir starfa fyrir er nær sam-
hljóða skrá yfir virtustu
hönnunarfyrirtæki heims.
London er hlekkurinn sem
tengir verk þeirra, ýmist
hafa þeir lært eða búið í
borginni sem löngum hefur
verið háborg hins iðnvædda
heims, markaðstorg við-
skipta með fjármagn og hug-
myndir. Ekki ber þó að líta á
verkin á þessari sýningu
sem breska hönnun. Þess i
stað má segja að hér komi
saman margvísleg áhrif,
vinnuferli og hæfileikar.
Ljósmyndir Spessa (Sigur-
þórs Hallbjömssonar) eru
myndaröð sem hann nefnir
Bensín en hún er myndræn
afurð ferðalags ljósmyndar-
ans og sýnir islenskar bens-
ínstöðvar frá ýms-
um tímum. Mynd-
imar lýsa afstæð-
um og mótsagna-
kenndum fegurðarsjónar-
miðum sem endurspeglast í
þessum alþjóðlegu fyrirbær-
um og menningarlegri ein-
angmn þeirra í íslensku
landslagi jafht í sveit sem
borg. Sýningamar standa til
24. maí.
Sýningar
Yfirdráttarheimild Myndgátan hér að ofan lýsir orðtaki.
Guðrún Ásmundsdóttir og Er-
lingur Gíslason hafa leikið hlut-
verkin tvö í Rommf í marga mán-
uði.
Rommí
Eitt vinsælasta leikrit vetrar-
ins er Rommí eftir D.L. Cobum
en leikritið hefur gengið í allan
vetur í Iðnó i Reykjavík og á Ak-
ureyri og fengið góðar viðtökur
hjá áhorfendum og eru sýningar
orðnar fjölmargar. Aðeins tveir
leikarar era í verkinu, Guðrún
Ásmundsdóttir og Erlingur
Gíslason, og hafa þau, ekki síður
en verkið í heild, fengiö góða
dóma fyrir túlkun sína.
Leikhús
Guðrún og Erlingur, sem leika
hin hugljúfu Fonsíu og Weller,
hafa þekkst lengi. Þau voru
bekkjarfélagar í leiklistarskóla
Þjóðleikhússins en höfðu ekki
leikið saman í leikriti síðan þau
léku saman í Brúðuheimilinu
hjá Þjóðleikhúsinu fyrir tuttugu
og fimm áram þar til þau endur-
nýjuðu kynni sín í Rommí.
Rommí var sýnt í Iðnó fyrir tutt-
ugu áram og þá vora það Sigríð-
ur Hagalín og Gísli Halldórsson
sem fóru með hlutverk Fonsíu og
Wellers.
Leikstjóri er Magnús Geir
Þórðarson. Snorri Freyr Hilmars-
son er leikmynda- og búninga-
hönnuður og Láras Bjömsson sér
um ljósahönnun. Tónlistin í
Rommí er frumsamin en það er
hljómsveitin Skárr’en ekkert sem
semur og leikur. Næsta sýning á
Rommí er á fimmtudagskvöld.
Brídge
Hér er spil úr úrslitaleik sveita
George Jacobs og Steve Robinson í
Vanderbilt-keppninni í Bandaríkj-
unum í marsmánuði. Sveit Jacobs
vann öraggan sigur í leiknum,
184-106, og græddi 12 impa á þessu
spili. Michael Becker og Michael
Kamil fundu ágæta fórn yfir fjórum
hjörtum (sem standa). Sagnhafi
fann hins vegar ekki rétta íferð i
tígulinn (tígli spilað á gosann) og
fór 500 niður í spilinu. Hugsanlegur
gróði var því aðeins 120 í stað 420
(620 fást fyrir 4 hjörtu). Sagnir
gengu þannig á hinu borðinu, suður
gjafari og allir á hættu:
4 652
* G8542
* D
* ÁK85
4 ÁD1087
* Á106
* 972
* 74
4 93
4» KD973
4 Á10
* D962
Suður Vestur Norður Austur
Woolsey Versace Stewart Lauria
1 * 2 ♦ 444 44
pass pass 5* dobl
pass pass p/h 5* dobl
Fred Stewart tók ranga ákvörðun
þegar hann sagði 5 lauf því hægt er
að hnekkja 4 spöðum. Þó verður að
vanda sig í vöm-
inni því hún verð-
ur að taka tíg-
ulstunguna (eða
sagnhafi hitti ekki
í tígulinn sem
verður að teljast
gegn líkum). Sagn-
hafi komst ekki
hjá þvi að gefa 3 slagi í 5 hjörtum
dobluðum og sveit Jacobs græddi
því 12 impa á spilinu.
ísak Öm Sigurðsson
4 KG4
4 KG86543
* G103
N
V A
S