Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1999, Síða 9
MIÐVIKUDAGUR 12. MAÍ 1999
9
I>v Stuttar fréttir
Risastórt vopnabúr
Sjö tonn af vopnum fundust í
austurhluta S-Afríku. Talið er að
Eugene de Kock, lögreglustjóri á
tíma aðskilnaðarstefnunnar, hafi
safnað vopnunum.
Nyrup ánægður
Poul Nyrup Rasmussen, forsæt-
isráðherra Danmerkur, er ánægð-
ur með samning
Færeyinga og
Breta um lög-
sögumörk milli
Hjaltlandseyja
og Færeyja.
Ekkert er nú
lengur í vegi
fyrir því að leit-
að verði útboða til olíuleitar í fær-
eyskrilögsögu.
Tugir létust í loftárás
Nær þrjátíu létu lffiö og sextán
særðust í loflárás stjórnvalda á
tvo bæi í haldi skæruliða í Lýð-
veldinu Kongó í gær.
Lúxusfangelsi
Stjórnmálamaðurinn Jeger í
Slavgorod í Síberíu vill að sett
veröi sjónvarp, ísskápur og bað í
klefa þeirra fanga sem hafa efni á
að borga fyrir þægindin.
Skólaverkfall
Þúsundir kennara og nemenda
í Argentínu efindu í gær til verk-
falls td að mótmæla fyrirhuguð-
um niðurskurði innan skólakerf-
isins.
Friðarsamningur í hættu
Gerry Adams, leiðtogi Sinn
Fein, sagði í gær ársgamlan frið-
arsamning á N-írlandi í hættu.
Stjórnun Gro gagnrýnd
Breytingamar og umbætumar
innan Alþjóða-
heilbrigðismála-
stofnunarinnar
undir stjóm Gro
Harlem
Brundtland
ganga of hægt,
að mati breska
læknaritsins British Medical Jo-
urnal.
Gömul sprengja
Loka varð alþjóðlega flugvellin-
um í Berlin í gær á meðan veriö
var að gera 500 kílóa sprengju frá
seinni heimsstyrjöldinni, sem
fannst nálægt vellinum, óvirka.
Útlönd
Benjamin Netanyahu hræddur við kosningarnar:
Grátbiður gamla
vini um stuðning
Benjamin Netanyahu, forsætis-
ráðherra ísraels, grátbað í gær
gamla samherja og vini um að snúa
nú aftur heim og greiða honum at-
kvæði sitt i kosningunum næstkom-
andi mánudag. Samkvæmt skoðana-
könnunum er allt eins útlit fyrir að
Netanyahu biði lægri hlut.
Netanyahu, sem nýtur minni vin-
sælda en Ehud Barak, leiðtogi
Verkamannaflokksins, flutti ákall
sitt bæði í sjónvarpi og útvarpi.
„Ég hef aldrei haldið því fram að
ég sé gallalaus," sagði forsætisráð-
herrann þegar hann reyndi að lokka
aftm- í flokksfaðminn alla þá sem
höfðu gerst honum fráhverfir að
undanfómu.
Benjamin Netanyahu virðist vera
orðinn örvæntingarfullur.
Barak hefur aukið forskot sitt á
Netanyahu jafnt og þétt en allt
bendir þó til að hann fái ekki hrein-
an meirihluta í kjörinu um forsætis-
ráðherra þar sem fimm frambjóð-
endur leiða saman hesta sína. Því
verður líklega að kjósa aftur milli
hans og Netanyahus 1. júní.
Nýjasta hneykslið sem skekiö hef-
ur ísrael í kosningabaráttunni snýst
um rabbína einn sem stendur Net-
anyahu nær. ísraelsk sjónvarpsstöð
sýndi í gær upptöku þar sem
rabbíninn mælir með því að Rabin,
þáverandi forsætisráðherra, verði
drepinn. Upptakan var gerð aðeins
nokkmm mánuðum áður en Rabin
var svo myrtur.
OJ Simpson fær
forræðið yfir
börnum sínum
OJ Simpson heldur forræðinu
yfir börnum sínum eftir að hann
náði samkomulagi við foreldra
fyrrverandi eiginkonu sinnar sem
var myrt. Vegna samkomulagsins
verða engin ný réttarhöld í mál-
inu, að sögn lögmanns mðnings-
kappans fyrrverandi.
Lou og Juditha Brown, foreldr-
ar Nicole, fyrrverandi eiginkonu
Simpsons, munu aðstoða við upp-
eldi bamanna.
Nicoie Brown-Simpson og vin-
ur hennar, Ronald Goldman, vora
myrt fyrir fimm árum. Simpson
var ákærður fyrir morðin og
vöktu réttarhöldin yfir honum at-
hygli um allan heim. Simpson var
sýknaður og árið 1996 fékk hann
forræðið yfir bömum sínum. For-
eldrar Nicole reyndu að fá þeim
úrskurði hnekkt.
Lltleiga á alls konar
leiktækjum
f bamaafmæli
Herkúles
Þessir fallegu lemúrar eiga heima í dýragarðinum í Frankfúrt í Þýskalandi. Hér bíða þeir spenntir eftir að fá eitthvað
í gogginn úr hendi starfsmanna garðsins. Lemúrmamman eignaöist tvíbura í mars og er matarlyst þeirra góð.
Sími 568-2644
GSM 891-9344
Elizabeth Dole hvergi bangin:
Byssumennirnir
teknir á beinið
Elizabeth Dole, sem sækist eftir
að verða forsetaefhi repúblikana-
flokksins i Bandaríkjunum, tók
mikla pólitíska áhættu í gær þegar
hún herti árásir sínar á þrýstihópa
byssueigenda. Hún sagði það „rangt
að leyfa fólki að bera falin vopn.“
Dole greindi frá afstöðu sinni á
fundi með kvennasamtökum í Was-
hington. Þar hvatti hún líka til þess
að byssuframleiðendur yrðu skyld-
aðir til að setja bamaöryggislæsing-
ar á byssur sínar.
George W. Bush, ríkisstjóri í
Texas, sem talinn er lík-
legastur til að hljóta út-
nefningu repúblikana tók
annan pól í hæðina á
mánudag þegar hann
sagðist fylgjandi því að
byssuframleiðendur réðu
sjálfir hvort þeir settu
barnaöryggislæsingar á
vöm sína.
Einn ráðgjafa Dole
sagði að með ræðunni
hefði Dole viljað gera
skýran greinarmun á af-
stöðu sinni og Bush svo
hann færi ekki fram hjá
kjósendum.
Dole veittist einnig að
byssumönnum á fundi
frambjóðenda í New
Hampshire í síðustu viku.
Samtök byssueigenda
hafa lengi verið dyggir
stuðningsmenn repúbiik-
anaflokksins og þar á bæ
hafa fáir þorað að setja sig
upp á móti þeim.
Elizabeth Dole er ekki hrædd við samtök byssu-
eigenda í Bandaríkjunum þótt þaö geti kostað
hana forsetatilnefningu repúblikana.
Líttu vel Út.