Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1999, Síða 6
»
ég kyssti rjóðan vanga, þennan
Hulda Bjarnadóttir, 26 ára dagskrárgerðarkona á FM957, hefur alla
tíð reynt að gleyma fyrsta kossinum slnum. Henni fannst hann ömurleg-
ur.
„Ég hugsaði að ef þetta væri það sem biði mín þá væri framtíðin ekki
björt,“ segir Hulda sem var kysst í fyrsta skipti í partíi þegar hún var 12
ára og lítur enn á það sem eitt það hræðilegasta sem hún hefur lent í.
„Ég var reyndar hrifin af stráknum sem kyssti mig og ég veit ekki bet-
ur en hann hafi líka verið hrifinn af mér. Við sátum í sama stólnum og
allt í einu kom kossinn. Vandræðalegur og og klaufalegur. Allt of mikið
slef. Ég veit ekki hvort það var hann sem slefaði svona mikið eða ég. En
þetta var allavega mjög blautt og eins langt frá því að vera rómantískt og
hægt var,“ segir Hulda um kossinn sem hún vill helst gleyma.
„Næsti koss var hins vegar miklu betri enda skapar æfingin meistar-
ann. Ég held að gæði kossa komi frá náttúrunnar hendi. Fólk kyssir mis-
vel og á sömuleiðis misvel saman. Strákurinn sem kyssti mig fyrstur
manna er giftur í dag og á bam. Ég ætla rétt að vona að hann kyssi kon-
una sína betur en mig þarna forðum daga.“
Sindri Freysson, 28 ára rithöfundur og blaðamaður, var heima hjá sér í unglingasam-
kvæmisleiknum Sannleikanum og kontor þegar hann kyssti stelpu í fyrsta skipti.
„Fyrsti kossinn minn olli mér miklum vonbrigðum. Ég held að ég hafi verið 12 ára og
var ásamt nokkrum krökkum í bekknum mínum í þessum vinsæla leik. Þetta var á þeim
tíma sem lög Duran Duran og Wham þóttu æðisleg og menn voru með hárið sítt að aftan.
Ég man mjög vel eftir þessu. Við hlustuðum á tónlistina úr lélegu kassettutæki og ljósin
voru slökkt. Svo valdi ein stelpan „kontor“ og fékk þau fyrirmæli að kyssa mig. Við sátum
í homsófa og þetta átti að vera ægilega flott móment. Það varð hins vegar klígjulegt. Koss
þessi var fram úr hófi stífur, varimar harðar og tungan fór eins langt og hún komst," seg-
ir Sindri og bætir því við að eftir þetta hafi farið fram miklar æfingar og hann er ekki frá
því að þær hafi skilað árangri.
„Ég tel mig hafa komist af steinaldarstigi kossa yfir á tækniöld," segir Sindri.
Fyrsti kossinn er nokkuð
sem enginn gleymir.
Kossinn sem hugsað
var um í margar vikur
eftir að hann átti sér
stað og rifjast síðan
upp öðru hverju það
sem eftir er ævinnar.
Hann getur komið hvar
sem er og hvenær sem
er. í leik eða alvöru, á
láði sem legi, í fjöl-
menni eða undir fjórum
augum. Sumum þótti
kossinn góður en aðrir
minnast hans með
óbragð í munni. Fókus
fékk nokkra til að opna
lásinn á dagbókinni
og deila minningunni um
fyrsta kossinn.
Rúnar Júlíusson, 54 ára tónlistarmaður, man mjög vel eftir fyrsta
kossinum sínum.
„Ég man eftir fyrsta kossinum mínum í tvennum skilningi. Fyrsti koss-
inn var fyrsta lagið sem ég söng inn á hljómplötu og fyrsta kossinn kyssti
mig stúlka sem er eiginkona min í dag,“ segir Rúnar sem var 14 eða 15
ára þegar þau hjónin kysstust fyrst.
„Þá var hún í hljómsveit og í hléinu kysstumst við undir sviðinu í sam-
komuhúsinu í Sandgerði. Við kysstumst þannig fyrir lífstíð enda erum
við búin að kyssast oft síðan. Auðvitað datt mér ekki í hug að hún yrði
konan mín en kossinn var greinilega góður, við kysstumst aftur og aftur
og gerum það enn,“ segir Rúnar.
Margeir Ingólfsson, 24
ára vefforritari og plötu-
snúður, vill ekki gleyma
fyrsta kossinum sinum
enda kom hann honum
þægilega á óvart.
„Ég bjóst við mömmu-
kossi þar til ég fann blauta
tunguna stingast upp í
mig. Mér dauðbrá. Þetta
var æðislegt. Ég sagði
samt engum frá, þetta var
mikið feimnismál," segir
Margeir sem var 13 ára
þegar hinn ógleymanlegi
koss átti sér stað.
„Stelpan sem kyssti mig
var með mér í bekk og
hún á alltaf eftir að eiga
sinn stað í hjarta mínu
fyrir að leyfa mér að upp-
lifa þetta. Við vorum
kærustupar. Ég hafði beð-
ið hana um að byija með
mér nokkru áður og hún
^ sagði já. Kossinn kom
nokkrum dögum seinna
þegar við vorum heima
hjá henni eitt kvöldið.
Mér fannst mjög gott að
kyssa hana, jafnvel þó við
værum bæði byrjendur í
í kossamálum.“
Ragnheiður Eiríksdóttir, 28
ára söngkona, var ein í herbergi
með strák úr bekknum þegar hún
kyssti fyrst fyrir 16 árum.
„Ljósin voru slökkt og þetta var
allt saman mjög óafslappað, vand-
ræðalegt og glatað. Ég var skotin í
allt öðrum strák en varð að kyssa
þennan af því að við vorum í
Sannleikanum og kontor,“ segir
Heiða.
Eins og einhverjir muna, bygg-
ist sá leikur á því að annaðhvort
velja menn að svara einhverri
spurningu satt og rétt eða fram-
kvæma eitthvað sem aðrir í leikn-
um ákveða. Heiða valdi kontor og
var skipað að kyssa viðkomandi
strák.
„Við fórum þá í þetta herbergi
og stóðum í myrkrinu og biðum
eftir því að eitthvað gerðist. Hann
tók þá af skarið og kyssti mig
kossi sem mér fannst eins og vond
karamella. Ég hugsaði mikið um
kossinn á eftir en náði aldrei að
sætta mig almennilega við hann,“
segir Heiða og vill meina að fyrsti
kossinn sem henni þótti góður sé
ekki nærri þvi eins minnisstæður.
6
f Ó k U S 14. maí 1999