Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1999, Side 13
%
I
Jafnvel áður en Björk varð frægasti íslendingur sögunnar
í kjölfar sólóferils síns var hún farin yfir frægð Halldórs
Laxness með veru sinni i Sykurmolunum. Og jafnvel
þegar Björk var í Tappa tíkarrass gat glöggum speking-
um dottið í hug að þessi hressa stelpa með sérstaka
útlitið gæti einhvern tímann orðið eitthvað meira en .
góð söngkona. En engan gat órað fyrir því hversu
frægð hennar yrði mikil. Gangtu á portúgalskri
smáeyju og spurðu grænmetissölumanninn hvort
hann þekki einhvem eða eitthvað frá íslandi.
„Bjerk“, mun hann svara og yppa öxlum þegar þú
ferð að nefna Jón Leifs eða Kjarval. Björk er hætt að
vera frá íslandi. Hún er ísland.
En Björk er ekki heimsfræg fyrir að vera góð söng-
kona eða fyrir að spila skemmtilega tónlist; það er al-
gjört aukatriði. Björk er heimsfræg vegna þess að hún
myndast vel og fjölmiðlafólki víðs vegar finnst sniðugt að
nota hana í miðlunum sínum.
í skugga
Friðrik Þór Friðriksson leigði sér limmu þegar
hann fór og fékk ekki óskarinn. Auk þess hefur
hann brotið listrænan verðlaunagrip í evrópskum
afkima og myndirnar hans eru sýndar á sérvitram
kvikmyndahátíðum (fyrir utan Cold Fever sem
var sýnd á Sky) og kannski á íslenskum dögum í
Turku í Finnlandi. En við getum spurt okkur sjálf
hversu margir mæta til að sjá filippseyska mynd á
filippseyskum dögum í Regnboganum.
Skaðræðishvalurinn Keikó er næstfrægasti
íslendingurinn, hvort sem okkur líkar betur
eða verr. Hann gnæfir álíka hátt yfir önnur
dýr og Björk gnæfir yfir aðra íslendinga. Þó
þjóðernisvitund okkar sé misboðið verðum
við að viðurkenna að hvalurinn knái er
mörg hundrað sinnum þekktari erlendis en
íslenski hesturinn, sauðkindin og hundurinn -
til samans. Keikó er frægur fyrir það sama og
Björk; hann þykir sniðugt fréttaefni.
Meint frægð óperusöngvarans Kristjáns Jó-
hannssonar í útlöndum hefur löngum verið höfð í
flimtingum enda er ekki um neina raunverulega
frægð að ræða. Þegar Mogginn segir frá stand-
andi lófataki eftir einhveija frumsýninguna í út-
löndum má næstum bóka að heimildarmaðurinn
er söngvarinn sjálfur eða skyldmenni. Auðvitað
getur Kristján þó sungið og hefur nóg að gera,
hefur m.a.s. sungið inn á bónusútgáfu af Aidu
(gefið út af Naxos í Hong Kong). Hans frægð er þó
bundin við smámunasömustu grúskara og forfolln-
ustu áhugamenn um óperusöng.
GusGus eru næstum búnir að
meikaða, það er ekki spuming, þó
skugginn af Björk hvíli iðulega á
þeim, t.d. með samanburði og til-
vitnunum í hana þegar bandið fær
gagnrýni í útlöndum. Það er sama
vandamál og allir íslenskir popptón-
listarmenn þurfa að glíma við. Er-
lendir blaðamenn virðast annars farnir
að átta sig á einhæfninni í skrifum sínum
og í þeim dómum sem GusGus hefur verið að fá
fyrir nýju plötuna sína er sjaldnar en áður minnst á ísdrottn-
inguna. Þetta bendir til þess að strákarnir í GusGus séu komn-
ir með eina tá út úr skugganum ægilega.
í tilefni hundrað ára ártíðar
Jóns Leifs hafa ýmsir stór-
bokkar í klassíska geiranum
reynt að koma þeim sann-
indum upp á okkur að „mik-
ill áhugi sé fyrir tónlist Jóns
Leifs erlendis", liklega i þeim
tilgangi að geta betlað aðeins
meira fyrir sjálfa sig úr opinber-
um sjóðum. Jú, jú, grófu goðafræði-
hlimkamir hans Jóns eru það frægasta
í íslenskri „klassík" og smám saman mun áhuginn eitthvað
aukast samhliða útgáfum sænska Bis-merksins. En hversu
mikið sem Atli Heimir og strákamir berja sér á brjóst og
fá forsetann á frumflutning einhvers meistaraverksins
verður Jón Leifs aldrei annað en smástyrni í heimi nú-
tímatónlistar - heimi sem hefur sama vægi í tónlistarheim-
inum og 50 km. ganga hefur á ólympíuleikunum.
„Við eigum stærsta hver í
heimi“, gátum við sagt með
stolti áður en skuggi Bjark-
ar grúfði sig yfir þjóðarsál-
ina. Nú uppgötvum við að
gamla þjóðargersemin er
bara ljót hola í jörðinni og
vatnið í henni varla heitt
lengur. Við getum huggað
okkur við að við náðum að
gera „geyser" að alþjóðlegu orði
yfir náttúrufyrirbærið og stolt getum
við litið til hommaklúbbsins Geysir í
Það veit engin á Islandi hvað StiUupp-
steypa er, svo frægð þeirra kemur öll að
utan - úr öfúgri átt miðað við aðra. Þetta
er tilraunatríó sem hefur verið starfandi
árum saman með bækistöðvar á megin-
landi Evrópu. Þeirra er oftar getið á Net-
inu en margra stórsnillinga sem hafa vælt
út ríkisstyrki svo árum skiptir - á þeirri
forsemdu að þeir
séu svo mikil-
vægir fyrir
menninguna
og kynningu
á landinu er-
lendis.
Sti,'uppsteypa
Eyjólfur Sverrisson er fótboltakappi
hjá Herta Berlin. Hann er í byrjunarlið-
inu og stendur sig að öllu leyti vel sam-
kvæmt íslenskum blöðum. Það má full-
yrða að hann sé stærsta og
skærasta stjarnan af öll-
um íþróttamönnum
okkar íslendinga, alla
vega hvað heima-
síðuígildin varðar.
Jón Arnar nær til
dæmis ekki helm-
ingnum af heima-
síðunum sem Eyjólf-
ur nær en samt
þyrfti 561 Eyjólfa til
að ná einni Björk.
Fyrir nokkrum árum var því slegið upp á forsíðum allra dagblaða og haft
sem fyrsta frétt í sjónvarpi ef útlendingar svo mikið sem prumpuðu í áttina
til íslands. Við hreinlega löptum í okkur fréttir um útlenskar fréttir sem
fjölluðu að einhverju leyti um ísland og íslendinga. Þessi minnimáttarkennd
blundar að nokkru leyti í okkur ennþá, en í dag eigum við hana Björkokkar.
Hún er hið langþráða meik þjóðarinnar. Við bundum að vísu miklar vonir
við Laxness fyrr á þessari öld, en höfum nokkurn veginn áttað okkur á því
að hann er nánast óþekktur sé hann miðaður við sjálfa Björk Guðmunds-
dóttur. Og þar liggur kannski vandi okkar. Björk hefur að miklu leyti rústað
sjálfsmynd íslendinga. Nú eru kröfurnar orðnar svo miklar að þegar hún
Alda kemst í sjöunda sætið í Bretlandi þá fær það nánast enga umfjöllun
hér heima. Okkur þykir það bara rétt ánægjulegt en ekkert til að hoppa
hæð sína yfir. Svo við búum eiginlega við það ástand að ekkert getur glatt
okkur hvað meikfréttir varðar. Þá skiptir engu máli þó íslendingur fengi
Norðurlandaverðlaunin, Gullpálmann, Gullbjörninn, Nóbelinn, Óskarinn,
Emmy, Grammy, Pullitzer eða hvað þetta heitir allt saman. Björk hefurhvort
eð er fengið eitthvað af þessu. Hún skyggir sem sagt á allt í kringum sig.
Lifandi eða látna. Hún er t.d. eini núlifandi íslendingurinn (fyrir utan forsetann
og kannski Vigdísi) sem ætti möguleika á jarðarför í beinni, greiddri af ríkinu.
Nema að líklega yrði urðun Keikós sýnd í sjónvarpi, en varla í beinni.
Við héldum að Jón Páll Sigmarsson væri orðinn heimsfrægur þegar hann var búinn að sanna að
hann væri sterkasti maður heims þrettán sinnum - eða eitthvað - í röð. Okkur langaði að frægð
hans drægi okkur upp úr landlægu minnimáttarkenndinni og við spurðum öragglega marga bar-
þjónana í útlöndmn hvort þeir þekktu ekki „vorlds strongest men“ í von um fjörlega umræðu um
Hófí og „vorlds pjúrest voter“. En barþjónarnir kærðu sig kollótta eins og heimsbyggðin öll.
Leifur Eiríksson (340 síður
á móti 1.305.470 hjá Col-
umbusi) hefur löngum ver-
ið okkar helsta von í meik-
inu. Lucky Leif, eins og
heimurinn þekkir hann, á
sína tryggu aðdáendur.
Hver man t.d. ekki eftir
plötunni „Lucky Leif and the
Longships“, þema-plötu sem
hinn heimsfrægi Robert Calvert (úr
Hawkwind, manstu?) gaf út 1975. Þama voru lög eins
og „Storm Chant of the Skraelings" og „Ragna
Rock“, og kannski hefur hr. forseti samband við hr.
Robert þegar hann kemur teiknimyndinni sinni á
koppinn. Það vantar jú alltaf gott sándtrakk.
Vigdís var mikið í út-
löndum á meðan hún
var forseti íslands.
Hún talaði frönsku og
var kynnt sem fyrsti
kvenforsetinn í öllum
heiminum. Fékk
myndir af sér í blöð-
um og við heima
héldum að þessi sjálf-
sagða kurteisi sem Vig-
dísi var sýnd væri merki
um að hún væri dáð og
dýrkuð í útlöndum. En auðvit-
að var þetta bara svipað og þegar Moggi
myndir af nýjum sendiherra Svíþjóð:
man eftir síðasta sendiherra Svía'
Þegar Ólafur Jóhann Ólafsson áritaði
bækur í Kringlunni fyrir nokkram árum
stóðu íslendingar spenntir og stoltir í
langri biðröð. Þá var hann forstjóri Sony
og upprennandi rithöfundur með samning
við Random House. En nú er viðmiðunin
Björk til og Ólafur er því ekkert annað en
penni í áttunda flokki og skrifstofublók hjá
fyrirtæki sem enginn man hvað heitir.
Einaramir Már
Guðmundsson („mest
útgefinn erlendis af
núlifandi íslenskum
rithöfundum" skv.
auglýsingum) og
Kárason þykja á ís-
landi hafa meikað það í
útlöndum. Þeir hafa fengið
bækur sinar þýddar og útgefnar hjá ýms-
um smáforlögum víða um heim og fengið
þessi flnu verðlaun. Þeir
flækjast um heiminn og
lesa upp í bókabúðmn, á
ráðstefnum og íslands-
kynningmn og era auð-
vitað landi og þjóð til
sóma. En era þeir fræg-
ir? Nei, það þyrfti 218
Einara til að fylla upp í
hvalinn Keikó.
ergamir 29
- og húsdýrið þeirra Keikó
Alnetið er óðum að verða sú reglu-
sem við mælum líf okkar og umhverfi með.
nwwei' upplagt til að nota sem stækkunargler á það hvar
við stöndum í samfélagi þjóðanna og hvaða íslendingar skara
fram úr. §
Ein leið til að finna út hversu hátt Björk gnæfir yfir öðru íslensku í
útlendinga er að sjá á hversu mörgum netsíðum nafn hennar birt-
r leitarvefnum AltaVista er beitt. AltaVista er fullkomnasti leitarvef-
(1 þekkist í dag. Nafn Bjarkar birtist 143.580 sinnum, oftar en aflt annað
ikt er, nema orðið „saga“ (553.472) og „Iceland" (403.130). Jafnvel nafn höf-
ihar fellur í skugga Bjarkar, þó það muni litlu. Reykjavík flnnst á 140.290
Keiko er sá eini sem kemst með kjaftinn þar sem Björk hefur hælana. Sam-
ppsta er Björk helmingi frægari en Keiko. Aðrir íslendingar mælast í svipuðu
'kistaflokkurinn við hlið Sjálfstæðisflokksins - komast varla á blað.
jkar skoðuð í samanburði við erlendar stórstjörnur sést að hún stendur vel.
Elvis og Bítlamir era að visu á fimm sinnum fleiri netstöðum (með rúmlega
irisi), en Celine Dion, Tori Amos, Alanis Moressette og jafnvel Abba lúta í
ni okkar.
ía virðist ein söngkvenna toppa Björk. Madonna er á rúmlega 700.000 netsíðum,
- það ekki alveg marktækt því „Madonna" er vinsælt orð og getur staðið fyr-
en ungfrú Ciccone (t.d. ófáa pitsustaði og sjálfa guðsmóðurina).
'alögmál gildir fyrir margt annað íslenskt. Erfiðlega gekk að kanna vinsæld-
okkar, því atriði eins og bærinn Alda í Nebraska, leikarinn Alan Alda og
ölvur í Þýskalandi settu strik í reikninginn. Sams konar strik komu við at-
igun á honum Erró okkar, Bellatrix okkar (t.d. sænskt netfyrirtæki) og jafn-
vel gyðjan okkar hún Hólmfríður Karlsdóttir lenti í vafa, því af þeim sex
netstöðum sem fundust átti alnafna hennar í Háskólanum íjórar.
Vissulega má uppfæra þetta vafalögmál upp á stórstirnið
Björk. Það eru auðvitað aðrar Bjarkir sem slæðst hafa inn á
Netið og kannski er timbursala í Noregi með þessu
nafni. Langstærsti hlutinn fefliu- þó örugglega í
skaut stúlkunnar okkar.
írverur: Steinunn Sigurðardóttir (98), Matthías Johannessen (84), Gyrðir Eliasson (78), Hrafn Gunnlaugsson (76), Baltasar Kormákur (75), Sophia Hansen (66), Ólafur Jóhann Ólafsson
(58), Davíð Oddsson (57), Karl Sigurbjörnsson (56), Kristinn Sigmundsson (53), Bubbi Morthens (46), Ólafur Skúlason (43), Thule Records (35), Sigurbjörn Einarsson (34), Þorgeir Þor-
geir-son (32), Jón Páll Sigmarsson (31), Gunnar Dal (28), Júlíus Kemp (26), Einar Örn Benediktsson (25), Kristmann Guðmundsson (19), Linda Pétursdðttir (16), Kristján Davíðsson (13).
pRC f Ó k U S 14. maí 1999 14. maí 1999 f ÓkUS
+
V