Dagblaðið Vísir - DV - 14.05.1999, Page 14
Dýrskal
Hannibal
verda
Sumt er öruggt 1 þessum heimi og
annað ekki. Hinn stórtæki kvik-
myndaframleiðandi Dino De
Laurentis telur eins og fleiri að
framhald The Silence of the Lambs
sé örugg fjárfesting og hefur því að
sögn Variety boðið
rithöfundinum
Thomas Harris
níu milljónir
dollara fyrir
réttinn af fram-
haldi sögunnar,
sem kemur fljót-
lega á markaðinn. Ef
af verður er þetta met. Á toppnum
áður voru Disney sem borgaði Mich-
ael Crichton 8 mifljónir dollara fyrir
réttinn á að kvikmynda Airframe og
Wamer sem borgaði John Grisham
sömu upphæð fyrir að fá að kvik-
mynda The Runaway Jury, en þótt
nokkuð sé um liðið frá því fyrirtæk-
in borguðu fyrir réttinn er ekkert
farið að gera í kvikmyndum skáld-
sagnanna. Ef allt á að ganga upp hjá
Dino verða Anthony Hopkins og
Jodie Foster að samþykkja að endur-
taka hlutverk sín frá Silence of the
Lambs og Jonathan Demme að leik-
stýra, en öll þrjú hafa þegar fengið
send handrit að skáldsögunni, sem
kemur út i Bandaríkjunum 9. júní.
Vesenið heldur
„ áfram með
Onnu og kónginn
Mikið hefur gengið á við gerð
Anna and the King, sem verið er að
kvikmynda í Malasíu með Jodie
Foster og Yun-Fat Chow í aðalhlut-
verkum. Fyrstu vandræðin komu
þegar átti að fara að gera myndina í
Tailandi. Stjómvöld þar tóku upp á
því á siðustu stundu að neita um
leyfi eftir að hafa lesið handritið
sem fjallar um kynni bresku
kennslukonunnar Önnu af konung-
inum í Siam, en stjórnvöld þóttust
sjá áróður gegn Taílandi í handrit-
inu. 1 Malasíu hafa seinkanir orðið
af ýmsu ástæðum og nú siðast hafa
sextiu statistar kært að-
búnaðinn og launa-
kjör þeirra til lög-
reglunnar. Aðalá-
stæðan er að þess-
ir sextíu áttu að
vinna einn dag.
Þegar komið var á
staðinn var þeim sagt
að bíða. Biðin varð að
þremur dögum án skýringa. Áætlað-
ur kostnaður við Önnu var 60 millj-
ónir dollara. Sú upphæð á eftir að
hækka mikið að sögn þeirra sem til
þekkja. Leikstjóri er Andy Tennant.
Fraser
hætt
kominn
Aðalhlutverkið í The Mummy
leikur Brendan Fraser, sem óðum er
að verða einn vinsælasti leikarinn í
Hollywood. The Mummy sló í gegn
og náði að verða vinsælasta kvik-
myndin yfir eina helgi í Bandarikj-
unum það sem af er árinu. í nýlegu
viðtali segist Brendan Fraser hafa
verið hætt kominn strax á öðrum
degi kvikmyndatökunnar. Hann átti
að vera í atriði þar sem hann hékk i
snöru. Fyrst áttu þjálfaðir áhættu-
leikarar að vera í atriðinu, en leik-
stjórinn, Stephen Sommers, vildi fá
nærmyndir af Fraser berjast um í
snörunni. Eitthvað fór úrskeiðis eins
og Fraser segir: „Allt
í einu vissi ég ekki
fyrr en ég vakn-
aði upp við að
einhver var að
segja: „Brendan,
vaknaðu“.“ Snar-
an hafði þrengst
að mér og vegna súr-
efnisleysis hafði ég misst meðvitund
og síðar var mér sagt að ég hefði
verið hætt kominn."
Ben (Ben Affleck)
lendir í alls konar
vandræöum á leið-
inni í eigiö brúðkaup.
r' á
mm
Háskólabíó hefur hafið sýningar
á rómantísku gamanmyndinni
Forces of Nature sem kemur úr
Draumasmiðju Spielbergs og fé-
laga. í henni leikur Ben Affleck
ungan mann, Ben, sem þarf að
komast frá New York til Savannah,
þar sem stendur til að hann giftist
unnustu sinni, Bridget. Ben er
sjálfsöruggur ungur maður sem
hefur fulla stjórn á lífi sínu þar til
ung stúlka, Sarah (Sandra Bull-
ock), nánast dettur inn í líf hans.
Sarah, sem er fagurt fljóð og
skemmtilegt, verður ferðafélagi
Bens eftir að hann bjargar lífi
hennar. Á ferð hans til Savannah
gerist allt sem ekki á að gerast og
það er eins og örlögin hafi tekið
völdin og meini Ben að komast til
sinnar heittelskuðu og þar vegur
ekki minnst að Sarah, sem líst vel
á pilt, hefur lítinn áhuga á að hann
nái leiðarenda.
Auk þeirra Söndru Bullock og
Ben Affleck leika í myndinni
Maura Tierney, sem leikur brúð-
ina sem bíður í Savannah, Steve
Zahn, Blythe Danner (móðir
Gwyneth Paltrow), Ronny Cox og
David Strickland, leikarinn úr
sjónvarpsþáttunum Suddenly Sus-
an sem nýlega framdi sjálfsmorð.
Leikstjórinn Bronwen Hughes er
A leiðinni frá New
York til Savannah
þar sem brúðurin
bíður lendir Ben í
vanda þegar hin
kynþokkafulla
Sarah nánast dett-
ur inn í líf hans
einn kvenleikstjóranna í
Hollywood sem eru að skapa sér
nafn. Forces of Nature önnur kvik-
myndin sem hún leikstýrir, áður
hafði hún gert Harriet The Spy,
sem byggð var á þekktri barnabók.
Hughes byrjaði í auglýsinga- og
tónlistarbransanum en hefur á
undanfórnum árum getið sér gott
orð fyrir heimildarmyndir. Meðal
mynda sem hún hefur gert í þess-
um flokki má nefna Machu Picchu:
The Search for Lost Worlds og El-
vis: Airbome, klukkutíma mynd
um skautadansarann Elvis Stojko.
-HK
bíódómur
Stjörnubíó
Deep End of the Oceon ★ ★
2JYjJ jJVarliJY
Vinsælasti þáttastjórnandinn í
Bandaríkjunum, Ophrah Win-
frey, tók upp á því fyrir rúmu ári
að mæla öðru hverju með bókum í
þáttum sínum og var ekki sökum
að spyrja - lofsyrði frá henni gerði
það að verkum að viðkomandi bók
rauk upp í sölu. Ein þessara bóka
er The Deep End of the Ocean eft-
ir Jacquelyn Mitchard sem kom-
ið hefur út í íslenskri þýðingu. Um
er að ræða dramatíska skáldsögu
um barnshvarf. The Deep End of
the Ocean er nú orðin að kvik-
mynd og það sannast sem oft áður
að það sem er gott á pappír þarf
ekki alltaf að vera gott í kvikmynd
og satt best að segja gerir myndin
ekki meira en vera sæmilega gott
sjónvarpsefni.
Mikil alúð hefur verið lögð í að
koma móðurumhyggjunni tU skila
í kvikmyndinni og Michelle
Pfeiffer sýnir oft og tiðum stór-
góðan leik í hlutverki móður sem
verður fyrir þeirri reynslu að ungt
barn hennar hverfur dag einn þeg-
ar hún er að gleðjast með fyrrum
skólafélögiun sem hittast á fimmt-
án ára útskriftarafmælinu. Allir
taka þátt í leitinni að barninu en
árangurslaust. Dagar líða sem
verða að mánuðum og ekkert kem-
ur fram sem gefur til kynna hvað
orðið hefur um barnið. Pfeiffer
sýnir í leik sínum mikil tiifinn-
ingaátök móður sem ásakar sjálfa
sig fyrir hvernig fór og neitar að
gefast upp en ákveður um síðir að
þessum kafla sé lokið í lífl hennar
og neitar að heyra nafn barnsins
nefnt. Þessi umskipti hafa mikil
áhrif á tvö börn hennar og eigin-
mann og má segja að fjölskyldan
sé í upplausn þegar dag einn,
nokkrum árum síðar, ungur
drengur ber að dyrum og býðst til
að slá blettinn.
Kvikmyndir um barnshvörf eiga
það til að verða um of dramatísk-
ar. Það er auðvelt að spila á til-
finningar fólks þegar börn eiga í
hlut. Þótt greinilega sé lagt upp
með það í The Deep End of The
Ocean að velta sér ekki upp úr til-
finningaseminni hefur leikstjór-
inn Ulu Grosbard (Georgia,
Straight Time) sem ekki er þekkt
fyrir tiifinningasemi, ekki komist
með báða fætur yfir þröskuld
væmninnar. Myndin verður þó
ekki um of melódramatísk meðan
á leitinni stendur og hræðslan og
einangrunin heltekur fjölskyld-
Mikil alúð hefur verið lögð í að koma móðurumhyggjunni
til skila í kvikmyndinni og Michelle Pfeiffer sýnir oft og
tíðum stórgóðan leik.
una, heldur eftir að vonin og bjart-
sýnin tekur völdin, þá brestur
múrinn og leikstjórinn nær ekki
að stýra myndinni á farsælan hátt
i gegnum tilfinningaflæðið.
Leikstjóri: Ulu Grosbard. Handrit:
Stephen Schiff eftir skáldsögu
Jacquelyn Mitchard. Kvikmynda-
taka: Stephen Goldblatt. Tónlist:
Elmer Bernstein. Aðalleikarar:
Michelle Pfeiffer, Treat Williams,
Whoopi Goldberg og Jonathan
Jackson.
Hilmar Karlsson
14
14. maí 1999
4