Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1999, Blaðsíða 21
20
FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 1999
FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 1999
21T
Sport
Sport
Iþróttaljós
Sterkur varnarleikur og heitir
sóknarmenn
„Styrkur liðsins liggur í sterkum
varnarmönnum og svo eru þarna
sóknarmenn sem eru mjög heitir í
dag. Þar má nefna Helga Sigurðsson
sem búinn er að skora 7 mörk með
liði sínu Stabæk í Noregi. Ríkharður
Daðason verður trúlega með honum
frammi og Þórður Guðjónsson fyrir
aftan þá. Þórður er mjög sterkur leik-
maður og hefur verið að leika ágæt-
lega með Genk í Belgíu. Auk þessara
framantöldu mun reyna mikið á Rún-
ar Kristinsson í sóknai’leiknum. Það
er svo spuming um vængmennina,
hvort það verða Hermann eða Auðun,
en það mun eflaust reyna á þá sókn-
arlega. Ég skil vel Guðjón að hann
vilji stilla upp því liði sem hann hef-
ur náð árangri með. Það er alveg á
hreinu að það eru stigin sem eru þýð-
ingarmest.
Passa sig að halda markinu
hreinu
Menn verða að passa að halda mark-
inu hreinu en þá þarf aðeins að skora
eitt mark til að vinna sigur. Það þarf
að þróa leikkerfið meira í sóknarátt
með því að færa tvo menn í fremstu
víglínu og einn fyrir aftan í staðinn
fyrir að vera með einn mann eins og
verið hefur. Ég trú því að íslenska lið-
ið vinni sigur og þá ekki síst fyrir
Brynjar Björn Gunnarsson, Helgi Sigurðsson,
Steinar D. Adolfsson og Guðjón Þórðarson eru hér
brosmildir á svip á æfingu landsliðsins þrátt fyrir
að stutt sé í alvöruna.
DV-mynd Hilmar Þór
532
en í 4. sæti í undankeppni Evrópumóts lands-
liða. Þetta er áttunda sinn sem ísland tekur
þátt í Evrópumótinu en fyrsta árið var þó
keppt með útsláttarfyrirkomulagi.
ísland hefur einnig aldrei náð að vinna þrjá
leiki í undankeppni Evrópumótsins og því
gætu íslensku strákarnir unnið metsigur
vinni þeir leikinn gegn Armenum á morgun.
Nú þarf sóknin að sýna sig
. íslenska landsliðið hefur þrisvar haldið
hreinu í síðustu 4 leikjum í Evrópukeppninni
og aðeins fengið á sig 2 mörk í 5 leikjum. Það
efast þvi enginn um getu liðsins til að spila
góðan vamarleik en það er kominn tími hjá
liðinu til að sýna sterkan sóknarleik á morg-
un. Það má búast við að Guðjón stilli upp mun
sókndjarfara liði en í fyrri leikjum og upp-
skriftin á morgun er að sigra og halda sér enn
í baráttunni um laus sæti upp úr riðlinum.
Fjórir aðrir leikir em á árinu, sá næsti er
strax á miðvikudag úti í Rússlandi en síðan
spilar liðið við Ukraínu heima
heimsmeistara Frakklands úti í haust.
Allir klárir
Þrátt fyrir að óvissa hafi verið i íslensku
herbúðunum um
að allir leikmenn
yrðu klárir fyrir
leikinn stefnir
nú í að svo verði.
Birkir Krist-
insson mark-
vörður, sem
meiddist með
ÍBV gegn Breiða-
bliki, er búinn að
ná sér, Eyjólfur,
hefur átt í
smámeiðslum
líkt og Ríkharður
en þeir eru báðir
í lagi og Auðun
og Helgason er að hressast eftir veikindi. Guðjón
tilkynnir byrjunarliðið sídegis í dag en vænta
má að hann spili mun meiri sóknarbolta en í
síðustu landsleikjum hér heima, gegn Frökk-
um og Rússum. -ÓÓJ
Island - Armenía
Eyjólfur Sverrisson leikur á morgun
sinn 50. landsleik en hann lék sinn
fyrsta landsleik fyrir 9 árum. í þeim
49 leikjum sem hann hefur leikið fyr-
ir landsliðið hefur hann skorað 5
mörk.
Þóröur Guöjónsson spilar sinn 30.
landsleik en hann lék sinn fyrsta
landsleik árið 1993. Mörk Þóröar með
landsliðinu eru orðin 7.
Rúnar Kristinsson spilar sinn 75.
landsleik og verður því aðeins tveim-
ur leikjum frá því að jafna lands-
leikjamet Guóna Bergssonar sem er
77 landsleikir. Rúnar hefur skorað 2
mörk i leikjunum 74.
Birkir Kristinsson markvörður leik-
ur sinn 60. landsleik en 11 ár eru lið-
in síðan hann lék sinn fyrsta lands-
leik.
Birkir veróur þar með níundi leik-
maðurinn sem nær 60 leikja markinu
en hinir átta eru: Guöni Bergsson
(77), Rúnar Kristinsson (74), Arnór
Guöjohnsen (73), Ólafur Þóröarson
(72), Sœvar Jónsson (69), Atli Eö-
valdsson (70), Marteinn Geirsson
(67), og Siguröur Jónsson (61).
-GH
Þurfa
stuðning
íslenska landsliðið í knattspymu á mjög
mikilvægan leik fyrir höndum í und-
ankeppni Evrópumótsins þegar það mætir
Armenum á Laugardalsvellinum klukkan
16 á morgun, laugardag.
Leikurinn hefur mikla þýðingu fyrir ís-
lenska liðið, með sigri er það enn í bullandi
toppbaráttu riðilsins og á möguleika á að
komast í úrslit á stórmóti í fyrsta sinn en
fari svo að ekki náist að vinna sigur minnka
möguleikarnir á að komast áfram til muna.
Það hefur verið mjög
gaman að fylgjast
JL^-------með uppgangi
landsliðsins á
undanfórnum
mánuðunum
og Guðjón
Þórðarson
landsliðsþjálf-
ari hefur svo
sannarlega
látið verkin
t / tala. Þessi sig-
ursælasti knatt-
.. spyrnuþjálfari
landsins hefur náð að breyta ímynd lands-
liðsins. Hann hefur náð að skapa lið sem er
tilbúið að fórna sér fyrir málstaðinn og í dag
eru landsliðsmennirnir sér meðvitandi um
að þeir þurfa að leggja sig 100% fram ætli
þeir að halda sæti sínu i liðinu.
Ái-angurinn hingað til er frábær en oft
þegar vel gengur verða væntingarnar of
miklar. Þessu hafa íslendingár oft fengið
að kynnast, til dæmis á íþróttasviðinu og
í Eurovision, svo eitthvað sé nefnt. Eitt
skref 1 einu er góð og gild regla og þetta á
við stöðu íslenska landsliðsins í 4. riðli
Evrópumótsins. Fyrsta skrefið nú er að
innbyrða sigur á Armenum og síðan tekur
við undirbúningur fyrir leikinn gegn
Rússum sem fram fer í Moskvu næstkom-
andi miðvikudag.
Guðjón hefur margoft sagt að íslenska
landsliðið sé lið þjóðarinnar og fólk eigi að
flykkja sér um það. Þetta eru orð að
sönnu, á morgun þurfa strákarnir í liðinu
að treysta á stuðning áhorfenda. Þeir eiga
það svo sannarlega skilið eftir það sem á
imdan er gengið.
Andstæðingarnir Armenar eru sýnd
veiði en ekki gefin. Því fékk íslenska
landsliðið að kynnast í fyrri viðureign
þjóðanna í Jerevan á síðasta ári þar sem
niðurstaðan var markalaust jafntefli.
Miklar kröfur eru gerðar til landsliðs-
ins en nú gerir liðið á móti kröfur til fólks
um að það mæti í Laugardalinn á morgun
og hjálpi liðinu að leggja Armenana að
velli.
„Góð stemning í lidinu“
- segir Logi Ólafsson, þjálfari ÍA og fyrrverandi landsliðsþjálfari
Logi Ólafsson, þjálfari Skaga-
manna og fyrrverandi landsliðsþjálf-
ari, er bjartsýnn fyrir leikinn gegn
Armenum og segir raunhæft að lið-
inu takist að ná jafntefli i Moskvu á
miðvikudag. Á góðum degi ætti að
vera möguleiki á sigri.
„Leikurinn við Armena kemur
mér þannig fyrir sjónir að hann gæti
orðiö erfiður vegna þess að liðið þarf
að breyta um leikaðferð frá því sem
verið hefur og hefur skilað árangri.
Það hefur falist í því að draga sig aft-
ur og vera þéttir fyrir og snöggir
fram. Núna er komin fram sú .krafa
að sigra og þeir hafa lýst þvi yfir
sjálfír að þeir ætli að sigra í leiknum.
Breytingar sem Guðjón hefur boðað
er að setja að minnsta kosti tvo menn
í fremstu víglínu og að auki þurfa
þeir að fara að stjórna leiknum. Ég
verð þó að segja að fyrir hönd lands-
liðsins er ég bjartsýnn fyrh’ leikinn
gegn Armenum,“ sagði Logi Ólafsson
í spjallinu við DV.
þær sakir að núna ríkir mikil stemn-
ing í kringum landsliðið. Liðið á
möguleika á að komast áfram og fyr-
ir vikið veröur áhuginn meiri.
Við verðum þó að varast eitt; það
er sá draugur sem hvílt hefur yfir is-
lensku íþróttalífi í gegnum tíðina, að
þegar væntingar eru miklar þá gerist
ekki neitt,“ sagði Logi.
Hæglega gætu náðst góð úrslit
í Moskvu
„í Rússaleiknum er allt annað upp
á teningnum en þar erum við komnir
með leikkerfi sem skilað hefur liðinu
þeim stigum sem það hefur fengið í
riðlinum. Rússar hljóta að vera
smeykir fyrir leikinn en breytingar
hafa orðið töluverðar hjá þeim og
þjálfaraskipti í kjölfar ósigursins í
Reykjavik í fyrri leiknum. Það gætu
hæglega náðst góð úrslit þar, í það
minnsta jafntefli, og með smáheppni
sigur,“ sagði Logi.
-JKS
Guðjón með
bestan árangur
Guðjón Þórðarsson, landsliðsþjálf-
ari íslands í knattspymu, er með
bestan árangur allra landsliðsþjálf-
ara íslands frá upphafi. Guðjón
hefur stjómað liðinu í 19 leikjum,
þar af 8 sigurleikjum, 6 jafnteflum
og 5 tapleikjum.
Guðjón er einnig með bestan ár-
angur ef bara teknir eru leikir í
keppni og leikir í Evrópukeppni.
Það er athyglisvert að Guðjón hef-
ur náð betri árangri í leikjum í
keppni (61,1%) heldur en í vináttu-
landsleikjum (55,0%). Hér til hliðar
má sjá graf þar sem Guðjón er
borinn saman við þá þjálfara sem
standa honum næstir í bestum
árangri með íslenska landsliðið.
Leikurinn við Armena verður 20.
landsleikur íslands undir stjórn Guð-
jóns og tíundi leikurinn í alþjóðlegri
keppni. Af fyrri 9 hefur liðið unnið 4,
gert 3 jafntefli og tapað 2. -ÓÓJ
„Verðum að vinna
heimaleikina“
- segir Bjarni Jóhannsson, þjálfari íslands- og bikarmeistara ÍBV
Islendingar taka á móti Armenum í 4. riðli
í undankeppni Evrópumóts landsliða á Laug-
ardalsvellinum á morgun, laugardag, klukkan
16.00. Guðjón Þórðarson og strákamir hafa
undirbúið sig vel fyrir leikinn og þrátt fyrir
að nokkur afföll virtust ætla að verða á hópn-
um hafa allir náð sér og ættu því að vera klár-
ir í að taka vel á móti Armeníu í Laugardaln-
um á morgun.
Allt er hægt í fótbolta
Guðjón Þórðarson hefur sýnt og sannað að
allt er hægt í fótbolta og frábær árangur lands-
liðsins, sem hefur ekki tapað í 10 landsleikjum
í röð en hækkað sig um mörg sæti á heims-
lista FIFA, gefur okkur tækifæri til að vera
bjartsýn fyrir leikinn gegn Armeníu.
Þessi góði árangur hefur líka myndað mikla
eftirvæntingu fyrir þessum fyrsta heimaleik
sumarsins sem ætti að þýða góðan stuðning
og marga áhorfendur á leiknum á
morgun. Er vonandi að svo verði.
Stemningin frá því á leiknum
gegn Frökkum er öragglega
enn í fersku minni.
Hér á síðunni má fmna fróðleik
um leikinn og þennan frábæra
árangur liðsins að undanfömu
auk þess sem DV fékk tvo
þekkta þjálfara í úrvalsdeild-
inni til að spá í leikinn.
ísland og Armenia gerðu
markalaust jafntefli í fyrri leik
þjóðanna í Armeníu en ís-
lenska hðið hefur enn ekki tap-
að leik í riðlinum og aðeins
fengið á sig 2 mörk i 5 leikjum.
Aldrei lent ofar en í 4.
sæti í EM
íslenska landsliðið er nú í 3. sæti i
riðlinum á eftir Úkrainu og Frakk-
landi en ísland hefur aldrei lent ofar
Upp um 40 sæti
á 21 mánuði
Bjarni Jóhannsson, þjálfari ís-
lands- og bikarmeistara ÍBV, er
bara nokkuð bjartsýnn fyrir hönd
íslenska liðsins þegar hann var
beðinn um að meta leikina gegn
Armenum í Reykjavík á laugardag
og Rússum í Moskvu á miðviku-
dag. Hann segir þó að liðið megi
alls ekki mæta of værukært í
Armeníuleikinn en hann sé viss
prófsteinn á liðið.
Armeníuleikurinn er hættu-
legur
„Armeníuleikurinn er svolítið
hættulegur fyrir islenska landslið-
iö að mörgu leyti. Viö erum komn-
ir í þannig mál að við verðum að
vinna heimaleikina ef við ætlum
að komast í þá stöðu sem enginn
hefur spáð okkur fyrir um eins og
Guðjón þjálfari hefur oft sagt.
Miðað við fyrri leikinn úti í
Armeníu þá era þeir með frískt
lið, fljóta og þeir era t.d. mun ag-
aðri en leikmennn Andorra. Við
þurfum að varast þá mjög og fara
ekki værukærir í leikinn. Hins
vegar finnst mér kominn þannig
karakter í íslenska landsliðið að
leikmenn ná að gera það sem þeir
þurfa og ég ætla að vona að svo
verði í þessum leik. Ég hallast að
því að við vinnum þennan leik
með tveimur mörkum. Þetta er
ákveðin prófraun á það að kunna
að nýta sér þessa velgengni sem
þeir hafa fengið til þessa í keppn-
inni,“ sagði Bjami í spjallinu við
DV.
- Heldur þú að leikinn verði
sóknarleikur frá upphafi?
„Já, ég á von á þvi að svo verði.
Armenar eru komnir til
Reykjavíkur til að verjast og eru
eflaust sáttir með það. Þeir spila
ekki upp á sigur sem slíkan heldur
leika af öryggi sem þýðir að við
verðum að taka framkvæðið frá
fyrstu mínútu," sagði Bjami.
- Strax í kjölfarið fylgir Rússa-
leikurinn. Hvemig líst þér á
það dæmi?
„Þar eflaust komum við til með
að leika aftarlega á vellinum. Sá
leikur verður mjög erfiður fyrir
okkar menn og að ná stigi þar
yrðu frábær úrslit að mínu mati.
Það hefur verið þó nokkurt rót á
rússneska liðinu og m.a. urðu
þjálfaraskipti og liðið hefur alls
ekki náð taktinum í keppninni.
Við vitum allir að þar er á ferð
mikil knattspyrnuþjóð og hefðin er
gríðarlega sterk. Rússaleikurinn
verður ekki síður erflður en viður-
eignin við Úkraínu ytra snemma í
vor. Það er mín von að stig náist
út úr
þeim leik
en það
yrði sig-
ur fyrir
okkur.
Að vinna
Armeníu
á laugar-
dag og
gera síð-
an jafn-
tefli í
Moskvu,
þá vær-
um við
komnir í
frábær
mál,“
sagði
Bjarni Jóhannsson.
-JKS
Hinn góði árangur Guðjóns með
landsliöið sést kannski best á
heimslista FIFA, þar sem íslenska
landsliðið hefur farið úr 88. sæti
(ágúst 1997) upp í 48. sæti (apríl og
maí 1999). Liðið hefur hækkað sig um
16 sæti á árinu 1999 en Armenía er
nú í 90. sæti á listanum.
-ÓÓJ
Guðjón Þórðarson landsliðsþjálfari gefur landsliðsmanninum Helga Kolviðssyni góð ráð á æfingu landsliðsins í gær.
DV-mynd Hilmar Þór
Besti árángur landsliðsþjálfara M
- súlur sýna sigurhlutföll þjálfarana
70%
60 - 57,9%
70,0%
50
40
30
20
10
O
61,1%
50,0%
45,7%
44,4%
38,9%
Guðjón Þórðarson
Guðni Kjartansson
Ásgeir Elíasson
Siegfried Held
Tony Knapp
37,5%
33,3%
1
I öllum leikjum
leikjum í keppni
í leikjum í EM
Tíu leikir í röð
- án taps undir stjórn Guðjóns Þórðarsonar
13. maí 1998 (ú) Island- Sádí Arabía 1-1 (Lárus Orri)
6. júnT1998 (ú)ísland-Suður Afríka 1-1 (Stefán Þór)
19. ágúst 1998 (h) Ísland-Lettland 4-1 (Þóröur G. 2, Ríkharður, Auöun)
5. september 1998 (h, EM) Ísland-Frakkland 1-1 (Ríkharður)
10. október 1998 (ú, EM)ísland-Armenía 0-0
14. október 1998 (ú, EM) Ísland-Rússland 1-0 (Sjálfsmark)
10. mars 1999 (ú) Ísland-Lúxemborg 2-1 (Arnar G., Helgi)
27. mars 1999 (ú, EM) Ísland-Andorra 2-0 (Eyjólfur, Steinar)
31. mars 1999 (ú, EM) Ísland-Úkraína 1-1 (Lárus Orri)
28. apríl 1999 (ú) Ísland-Malta 2-1 (Þóröur, Ríkharður)
Samtals:10 leikir, 5 sigrar og 5 jafntefli, 15 mörk skoruö, 7 mörk fengin á okkur
_______________________________________________________inrra
Island mætir Armeníu í sjötta leik okkar í 4. riðli undankeppni Evrópumótsins:
- Guðjón og strákarnir er klárir í slaginn til að taka vel á móti Armenum á morgun