Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1999, Blaðsíða 17
FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 1999
17
Fréttir
Frá Patreksfirði í Club 7:
Sveitarstjóri í
nektardansi
„Ég ætla að reyna að lyfta þessu á
hærra plan og vera með eitthvað
heilbrigt í starfseminni," sagði Ólaf-
ur Arnfjörð, fyrrum sveitarstjóri í
Vesturbyggð, sem opnar nektar-
dansstaðinn Club 7 í Alþýðuhúsinu
við Hverfisgötu í kvöld. „Ég er bú-
inn að ráða 12 dansmeyjar frá
Kanada og Bretlandi, allt toppstelp-
ur, klassa fyrir ofan það sem áður
hefur sést hér. Ég verð ekki með
neitt frá Austur-Evrópu eins og hin-
ir,“ sagði Ólafur, sem nýverið
keypti reksturinn í Alþýðuhúsinu
af Birni Leifssyni í World Class. Á
neðri hæðinni hefur verið rekinn
skemmtistaðurinn Spotlight sem er
samkomustaður homma og lesbía
og verður hann opinn áfram.
„Ég kalla staðinn Club 7 vegna
þess að þetta er sjöundi nektarstað-
urinn í Reykjavík. Það kostar þús-
undkall inn og svo geta menn keypt
sér einkadansa. Dýrasti dansinn
kostar 3.000 krónur og varir í fimm
mínútur," sagði Ólafur, sem að-
spurður sér ekki mikinn mun á því
að reka sveitarfélag á Patreksfirði
og nektarstað við Hverfisgötu:
„Hvort tveggja er erilsamt," sagði
hann.
-EIR
Undirbúningur í fullum gangi í Club 7 við Hverfisgötu. Á innfelldu myndinni sést sveitarstjórinn fyrrverandi,
Hún var glöð og ánægð, hún Heiður Hreinsdóttir frá Sauðárkróki, þegar hún
var komin með spræka fjórlembinga í fangið í heimsókn á Fyrir-Barði í Fijót-
um á dögunum. Ærin fylgdist vel með öllu, þó svo Heiður færi fagmannlega
að með litlu lömbin. DV-mynd Örn
Kaupfélag Skagfiröinga:
Kjötvinnsla opn-
uð í Færeyjum
DV, Sauöárkróki:
Kaupfélag Skagfirðinga ætlar að
freista þess að ná fótfestu í Færeyj-
um með afurðir úr dilkakjöti. Kjöt-
vinnsla KS hefur síðustu 4 árin
selt talsvert af vörum í neytenda-
pakkningum á færeyska markað-
inn og á næstunni verður skrefið
stigið til fulls með því að opna
kjötvinnslu í Þórshöfn. Það er í
samvinnu við sölu- og markaðsfyr-
irtækið Færey sem reyndar er í
eigu íslenskra aðila.
Kjötvinnsla KS byrjar átakið
með skagfirskum dögum 11.-15.
júní nk. Þeir eru haldnir í tengsl-
um við söngferð Karlakórsins
Heimis til Færeyja. Ætlunin er
kynna grillkjöt og koma Færeying-
um á bragðið og bændakórinn
skagfirski syngur á kynningunum,
sem verða í Þórshöfn, Klakksvík,
Suðurey og Nolsey. Ágúst Andrés-
son, framkvæmdastjóri Kjöt-
vinnslu KS, segir ánægjulegt að
tvinna þessa kynningu við söng-
ferð Heimis. Þá verður lögð
áhersla á að kynna Skagafjörð,
með bæklingi sem dreift verður
þessa daga.
„Við vonumst til að geta komið
Færeyingum upp á bragðið með að
grilla, en þeir hafa varla borið það
við til þessa. Ekki seldust nema 4
grill í stærstu versluninni í Þórs-
höfn allt síðasta sumar,“ segir
Ágúst. Búið er að útvega húsnæði
fyrir kjötvinnslu og KS leggur til
tæki fyrir vinnsluna og starfs-
mann, sem er á launum hjá dreif-
ingar- og markaðsfyrirtækinu,
þannig að vinnslan er ekki rekin
af KS.
„Við höfum verið að selja tals-
vert á færeyska markaðinn en
kvóti sem hefur verið á því hingað
til hefur sett okkur hömlur. Nú
hefur kvótinn verið afnuminn og
við stefnum að því að selja alla þá
framleiðslu sem er útflutnings-
skyld hjá okkur á færeyska mark-
aðinn. Það er okkar möguleiki til
að afsetja þessa framleiðslu því
sláturhúsið okkar hefur ekki vott-
un frá EB,“ segir Ágúst. -ÞÁ
Patreksfjörður:
Mannbjörg er
bátur forst
Áhöfnin á Bensa BA bjargaðist
í fyrrinótt þegar áhöfnin á Þor-
steini BA kom þeim til bjargar.
Báturinn Bensi BA tók að
sökkva um kvöldmatarleytið og
voru skipverjarnir komnir í
björgunarbát og búnir að vera í
þó nokkra stund þegar áhöfnin á
Þorsteini BA hætti veiðum og
kom þeim til bjargar. Báturinn
var staddur 22 mílur frá landi og
tók Þorsteinn BA Bensa BA í tog
og kom með hann til Patreks-
fjarðarhafnar um um nóttina.
Enginn meiddist í þessu ævin-
týri. -hvs
11-11 færir út kvíarnar á Selfossi:
Ný verslun í
hjarta bæjarins
11-11 opnar nýja og glæsilega
verslun á Selfossi. Verslunin er í
hjarta bæjarins og er kjörinn
áfangastaður fyrir íbúa Suðurlands,
Dreifisvæði Tals
stækkar
Dreifisvæði farsímafyrirtækis-
ins Tals hefur nú verið stækkað
með því að setja upp senda á
Hellu og Torfastaðaheiði. Þar
með eru sumarhúsalönd upp-
sveita Árnessýslu, Biskupstung-
ur, Flúðir, Laugarvatn og Úthlíð
komin í samband við þjónustu
Tals. Fyrir eru á dreifisvæði Tals
á Suðurlandi sendar sem þjóna
Hveragerði, Selfossi, Eyrarbakka,
Stokkseyri og Þorlákshöfn.
Síðar í sumar mun Tal setja
upp senda á Þingvöllum og í
Grímsnesi. -GLM
ferðamenn og þá sem dvelja í sum-
arhúsum í nágrenninu. Verslunar-
húsnæðið er um 300 fermetrar og
eru innréttingar þannig að við-
skiptavinir hafa góða yfirsýn varð-
andi vöruúrval verslunarinnar. Þá
er hún björt og mjög skemmtilega
skipulögð.
í tilefni af opnun hinnar nýju
verslunar á Selfossi býður 11-11 upp
á einstaklega hagstæð tilboð í öllum
verslunum fyrirtækisins á höfuð-
borgarsvæðinu. við nýju þúðina á
Selfossi verður sannkölluð grillhá-
tið þar sem matreiðslumeistarar
munu kynna gómsætt grillkjöt sem
viðskiptavinum stendur til boða í
versluninni. Boðið verður upp á SS
pylsur og Coke, ís og svala fyrir
bömin, rjómatertu og kaffi. Trúður
verður á svæðinu og 100 fyrstu við-
skiptavinirnir fá frítt Mackintosh.
Fjöldi fyrirtækja kynnir vörur sínar
í dag og á morgun. Einnig verður
tlugdrekasýning við verslunina.
Peningar vaxa
með barninu
2.278.000 kr.
leiðrétting
1.441.000 kr.
Vegna mistaka í DV í gær féllu
niður tölur í grafinu í gær og því
er hér hirt stytt útgáfa með nýju
grafi. Ef foreldrar byrja snemma
leggja fyrir í sjóð fyrir börn sin er
á auðveldan hátt hægt að létta
barninu lifið, sem og sjálfum sér.
Ef 5.000 kr. er lagðar til hliðar
mánaðarlega og gert ráð fyr-
ir 6% vöxtum getur barnið
átt við 5 ára aldur 349
þúsund krónur. Sjóður-
inn vex síðan með aukn-
um hraða og gera má
ráð fyrir að þegar
barnið er orðið tvi-
tugt sé sjóðurinn
orðinn 2.310.000 kr.
Það má ljóst vera að
slíkir sjóður getur bæði
létt undir með börnum og
foreldrum en full ástæða
er til að hvetja foreldra
til að leita sérfróðrar
ráðgjafar varðandi sparnað-
arform fyr-
ir börn sín
349.000 kr.
816.000 kr.
ifÍiggF
5 ár
10 ár
15 ár
20 ár
Safnað í sjóð fýrir barnið
- miðað við 5.000 kr. á mánuði í 20 ár