Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1999, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1999, Blaðsíða 36
FÖSTUDAGUR 4. JÚNÍ 1999 TVX7- nn Ummæli Eins og Guð almátt- ugur fyrirskipaði „Það kom glögg- lega fram, sérstak- lega á síðasta vetri, að stjómar- liðið undi því illa að formenn nefnda, sem komu úr liði stjómarandstöðunnar, sætu ekki og stæðu eins og Guð almáttugur fyrirskipaði í sérhvert sinnið.“ Össur Skarphéðinsson, um völd Davíðs Oddssonar, i Degi. Illa innrættur „Ég er svo illa innrættur að halda því fram að bankinn sé fyrst og fremst að gera þetta fyrir sjálfan sig og hann láti sig litlu varða afleiðingar slíkra lána fyrir heilsuhraust, langlift fólk síðasta hluta æv- innar og allan kvíðann sem kann að fylgja. Albert Jensen trésmiður, um fasteignalífeyri Búnað- arbankans, í DV. Landsliðsþjálfari „Ég hef tekist á við ýmis verkefni og hér í ráðuneyt- inu lít ég fyrst og fremst á mig sem verkamann, nokkurs konar landsliðsþjálf- ara sem um stuttan tíma kemur til að leiða liðið til sig- I \ I urs.“ Guðni Ágústsson landbún- aðarráðherra, um sjálfan sig, í DV. Miðaldaframkoma „Það þarf að leita aftur á miðaldir til að finna aðra eins framkomu gagnvart starfs- mönnum, að loka húsnæðinu þegar svona stendur á.“ Halldor Björnsson, formað- ur Eflingar, um að honum og trúnaðarmönnum Áburðarverksmiðjunnar var ekki hleypt inn í mötuneyti starfsmanna. Ríkisstjórn stöðugleik- ans ruggar bátnum „Þetta kemur mér mjög á óvart þeg- ar ríkisstjórn stöðugleikans sem mynduð var til að viðhalda stöðugleikanum er að rugga bátnum eins og þeir eru að gera núna.“ Jóhannes Gunnarsson, for- maður Neytendasamtak- anna, í DV. Sævar Pétursson bifvélavirki: Gerir upp forsetabílinn Sævar Pétursson bifvélavirki er maður dagsins. Hann er önnum kaf- inn þessa dagana, enda er hann að gera við forsetabíl Sveins Björns- sonar fyrir núverandi forseta ís- lands, Ólaf Ragnar Grímsson. Þetta hlýtur að vera draumaverk fyrir þá sem hafa fombíladellu og liggur beint við að spyrja Sævar hvernig hann hafi fengið verkefnið. „Ég hef lengi legið í gömlum bílum og á nokkra sjálfur og svo hef ég líka verið að gera við gamla bíla fyrir vini mína. Þeir hjá Bílgreinasam- bandinu báðu mig að taka verkefn- ið að mér og það gerði ég. Þetta hef- ur gengið bara ótrúlega vel. Þetta er reyndar seinunninn bíll og erfitt að fá varahluti í hann en það hefur þó gengið vonum framar." • Hlutverk Sævars er að taka bíl- inn algerlega í gegn, hann hefur nú rifið hann alveg niður og er ekkert eftir af bílnum nema grindin. „Ég hef þurft að taka hvem einasta hluta bílsins og rífa hann í frum- eindir, gírkassa, drif, bremsukerfi, og svo framvegis og svo byggt það upp aftur. Núna á ég bara eftir að byggja upp „boddíið“ á bílnum, og ganga frá honum. Það hefur verið mjög gaman að þessu og ég vona að Ólafur Ragnar muni geta notið bílsins jafnvel og Sveinn Bjömsson á sínum tíma og hélst bet- ur, því ég er búinn að lofa honum því. Það sem mestan tíma __________________ tekur í þessu er að bíða eftir varahlutum í bílinn er- lendis frá. Packard-bílar em erfiðir að því leyti. Ástæðan er sú að ekki voru framleiddir margir bíl- Maður dagsins ar af þessari teg- und á sínum tíma, eða árið 1942, á stríðsár- unum, og auk þess vora verksmiðj- umar lagðar niður. Þess vegna er svo erfitt að fá þessa varahluti. Ég á til dæmis miklu auðveldara með að panta varahluti í Ford sem ég á og er síðan 1930 en ég legg mikið upp úr því að hafa allt sem upprana- legast i bílnum, enda held ég að þetta verði stolt mitt í framtíðinni." I Hvemig er svo að aka |. svona bíl? „Ég ók bílnum %; strípuðum í gær á sýn- ingu í Laugardagshöllinni "um helgina og það var bara mjög gott.“ Getur | Ólafur Ragnar ferðast um ' allt land, jafnvel um holótta vegi Vestfjarða á bílnum eins og ekkert sé? T „Neeei, við skulum vona að hann eigi annan bíl í það, Packardinn verður að sleppa því. Ef Ólafur vill aka honum um Vestfirði held ég að hann ætti fyrst að reyna að laga ástandið á vegunum þar. Hann verður að aka honum um betri vegi.“ Sævar á einn son, Jóhann Hauk, sem er að læra bílasmíði og er kominn með bakteríuna eins og faðirinn, og uppeldisson sem er að læra hjúkrun. Maki Sævars er Ragnheið- ur Sigurðardóttir iðjuþjálfi. -hg Fjarviðhald fiskiskipa Klukkan eitt í dag, fóstudag, flytur Magnús Oddsson fyrir- lestur um meistaraprófsverk- efni sitt en það fjallar um fjar- viðhald í fiskiskipum og aðlög- unarhæfar greiningaraðferðir með tauganeti. Fyrirlesturinn verður haldinn í við verkfræði- deild Háskóla Islands, í stofu Fyrirlestur 158 í VRII við Hjarðarhaga 2-6. Fjarviðhald er aðferð til að fylgjast með viðhaldsþörf bún- aðar í fiskiskipum án þess að þurfa að vera í nálægð við hann. í verkefninu er gerð greining á því hvaða tækjabún- aður sé nauðsynlegur til að koma á slíku kerfi fyrir smá- báta. Kerfinu er ætlað að stuðla að auknu öryggi sjófar- enda og minni viðhaldskostn- aði. Með því að fylgjast vel með ástandi vélbúnaðar má greina bilun í tæka tíð áður en hann veldur frekari skemmd- um eða skapar hættuástand um borð. í verkefninu er meðal ann- ars tekinn til athugunar grein- ingarþáttur fjarviðhalds og skoðaðar aðlögunarhæfar að- ferðir sem greint geta mikið magn gagna á sjálfvirkan hátt. Niðurstöður verkefnisins sýna að með aðlögunarhæfum að- ferðum er hægt að þjálfa tauga- net til bilanagreiningar út frá einfóldum forsendum. Umsjón- amefnd skipa Magnús Þór Jónsson, prófessor í verkfræði- deild, en hann er formaður nefndarinnar, Guðmundur R. Jónsson prófessor, Ólafur P. Pálsson fræðimaöur og Sigurð- ur Brynjólfsson prófessor. Öllum er heimill aðgangur. Myndgátan Kjósendur Myndgátan hér að ofan lýsir lýsingarorði. Kvennakór Reykjavíkur heldur tónleika. Vortónleikar Kvennakórs Reykjavíkur Vortónleikar Kvennakórs Reykjavíkur verða haldnir í Graf- arvogskirkju sunnudaginn 6. júní kl. 20.30. Þessir tónleikar eru lokin í röð tónleika sem kórinn hefúr haldið fyrir utanfór til Bandaríkjanna. Kórinn hyggst syngja á þrenn- um tónleikum ytra, í Boston, New York og Baltimore. Auk þess mun Tónleikar hann syngja við minnismerki Lincolns og í íslenska sendiráðinu í Washington þann 17. júní. Á tónleikunum í Grafarvogs- kirkju syngur kórinn þau lög sem flutt verða í Bandaríkjaferðinni. Meðal þeirra er frumflutningur á lagi Ólafs Axelssonar við Bama- gælur, ljóð Vilborgar Dagbjarts- dóttur sem var samið sérstaklega fyrir kvennakórinn. Svo er einnig um tvö önnur íslensk lög sem flutt verða en að öðra leyti er dagskrá- in sambland af íslenskum og er- lendum lögum. Einsöngvari með kómum er Sigrún Hjálmtýsdóttir og píanóleikari er Þórhildur Bjömsdóttir en kórstýra er Sig- rún Þorgeirsdóttir. Bridge Sagnhafi ætti ávallt að hafa þá reglu í heiðri að hugsa sig vel um áður en hann setur i fyrsta slag. Þeir era margir samningarnir sem farið hafa niðm- vegna þess að sagn- hafi gleymdi að búa sér til spilaá- ætlun allt til enda. Skoðum hér eitt dæmi um spil þar sem mikil hætta er á að sagnhafi eyðileggi mögu- leika sína strax í fyrsta slag. Suöur gjafari og a-v á hættu: * K92 » 654 * Á * Á109652 * 10 * KG3 * KG87654 * 84 * ÁG73 W D87 * D9 * KD73 Suður Vestur Norður Austur 1 * * 3 ♦ 4 ♦ pass 5 * p/h Fjögurra tígla sögn norðurs er slemmuáskoran með stuttan tígul og góðan lauflit. Suður slær eðlilega af, en jafnvel 5 lauf virðast vera of mikið sagt á spilin. En lánið ieikur við sagnhafa, því vestur hefur leik- inn á því að spila út spaðatíu. Lík- legt má telja að vömin hefði getað tekið 3 slagi strax í upphafi á hjarta (eða 2 á hjarta og stungu i litnum). Margir sagnhafar myndu eflaust detta í þá gryfju að setja strax lítið spil í blindum og hleypa yfir á spaðagosa. Þar með væri ekki leng- ur hægt að vinna spilið, því þegar spaða væri spilað á kóng og níunni úr blindum, getur austur einfald- lega lagt drottninguna á og átt átt- una eftir sem hæsta spil í litnum. En ef sagnhafi drepur á kónginn í upphafi er hægt að vinna spilið. Trompin tekin tvisvar og spaðaníu spilað úr blindum. Ef austur setur drottninguna er yfirdrepið á ás, tígli spilað á ásinn og spaðasjöunni svín- að. Þannig fæst hjartaniðurkast á hendi norðurs. Sjálfsögð leið fyrir sagnhafa ef hann hugsar sig um. ísak Örn Sigurðsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.