Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1999, Blaðsíða 4
Verslunar-
mannahelgin
Stærsta helgi sumarsins er og
verður verslunarmannahelgin og i
ár er frídagur
verslunarmanna
2. ágúst. Líkt og
síðustu árin lítur
út fyrir að Vest-
mannaeyjar og
Akureyri berjist um hylli stuðfólks.
Dagskráin er farin að skýrast,
a.m.k. eru stærstu stuðbönd lands-
ins búin að bóka sig. SSSól, Land
og synir og Stuðmenn
skemmta i Eyj-
íþ um en á Akur-
eyri segja Skíta-
mórall og Sálin
„ hans Jóns míns
mm halló. Svo er
bara að sjá með hverjum Veðurstof-
an heldur.
Skítamórall
í pönkið
I
Skítamórals-platan „Skítamórall"
er þessa dagana í vinnslu erlendis.
Formlegur útgáfudagur er 17. júní.
Skítamóralsmenn sverja af sér allan
samanburð við fyrri verk og segja
ekkert lag hugsað sem „Farin 2“.
„Nei, þessi plata er allt ööruvísi,"
segir Addi Fannar. „Hún er fjölbreytt
en þó heilsteypt. Við erum m.a.s.
vissir um að eitt lagið, „Hei þú
(bannað)“, fáist ekki spilað á út-
varpsstöðvum. Það er hálfgert pönk.
Kannski förum við með það á X-ið.“
Strákarnir sömdu lög eins og of-
virkir póstmenn á Herbalife fyrir
þetta verkefni og stóðu uppi með 30
lög þegar upptökur hófust. Þeir
hættu sér ekki í tveggja diska
konsept-plötu, skáru niður og end-
uðu með 10 lög. Þegar hefur ballaðan
„Einn með þér“ heyrst en næsti
smellur verður lagið „Fljúgum
áfram“.
„Algjört sumar“, segir Addi um
það. „Þetta er mjög hresst lag og dá-
lítil gospel-lykt af þvi. Vinnsluheitiö
var „Sálmur".
Skítamórall ræðst ekki á garðinn
þar sem hann er lægstur um helgina
enda sjómannadagurinn á sunnudag-
inn. Strákarnir spila i Festi i Grinda-
vík i kvöld en á morgun verða þeir
meö mörg þúsund manna ball í Týs-
heimilinu í Vestmannaeyjum.
„Ef það er að vera nörd að hafa áhuga á einhverju þá er ég algjört nörd.“
Haraldur Ólafsson er veðurfræð-
ingur með stil og skoðanir. Hann er
mikið á móti stríðinu í Júgóslavíu og
tókst að koma andúð sinni að á nett-
an hátt um daginn þegar hann spáði
að það „viðraði vel til loftárása" í
Serbíu. Þetta varð fleyg setning sem
endaði sem titill á lagi á nýjustu
plötu Sigurrósar og Ragnar skjálfti
notaði hana sem niðurlag á nýlegri
grein. En fékk Haraldur orð í eyra
hjá fréttastofunni?
„Nei. Það er löng hefð fyrir því
að veðurfræðingar skjóti inn at-
hugasemdum um það hvernig
veðrið hefur áhrif á ýmsar athafn-
ir manna. Það vefengir heldur eng-
' inn að dimmviðri torveldi loftárás-
ir. Stundum er haft á orði að ýmsar
starfsstéttir, eins og t.d. sjómenn,
eigi líf sitt undir veðri og það virð-
ist nú eiga við þama suður frá, með
dálítið öðrum hætti reyndar. í stað
þess að óska að hann blási ekki upp
þá vilja menn að hann létti ekki til.“
Þú lemur ekki krakka
konuníðings
Haraldur lætur ekki þar við sitja
og er með Þjóðarátak gegn stríði
beintengt af heimasíðunni sinni.
„Ég hef áhyggjur af þessu stríði,
m.a. vegna þátttöku okkar í því. Þessi
meðferð á Albönum í Kosovo er
vissulega ófyrirgefanleg en áður en
menn grípa til aðgerða sem valda
gríðarlegri sorg og skaða verða þeir
að vera vissir um að afskiptin forði
frá enn meiri hörmungum. Hið gagn-
stæða hefur heldur betur sannast.
Það er auðvitað erfitt að horfa upp á
illa meðferð á náunganum, en ef ná-
granni þinn lemur konuna sína ferð
þú ekki og lemur krakkana hans og
kveikir svo i húsinu. Það myndi ekki
hjálpa konunni neitt. Ég hef rifjað
upp í þessu sambandi gamla amer-
íska hippaslagorðið: „Fighting for
peace is like fucking for virginity".
Það era sífellt fleiri að uppgötva að
leiðin að betri heimi verður ekki
radd með sprengjum."
Saknar golunnar
Haraldur er rúmlega þrítugur og
segist snemma hafa fengið áhuga á
veðrinu.
„Já, ég var á barnaskólaaldrinum.
Ég var fræðilega sinnaður og mældi
lítið. Ég var með hitamæli jú, en
hlustaði þeim mun meira á veðrið í
útvarpinu."
Voru veöurfrœdingarnir í sjónvarp-
inu þá þínar poppstjörnur?
„Já, það má kannski segja það. Ég
fékk þögn á heimilinu þegar veðrið í
sjónvarpinu var sent út. Ég hafði fyr-
ir leik stundum þegar ég hlustaði á
veðurlýsinguna í útvarpinu að giska
á hvernig veðrið væri á næsta stað
sem lesa ætti.“
Hvaö um þetta nýja m/s kerfi í staó-
inn fyrir gömlu góöu vindstiginn - af
hverju er verið aö fokka svona í manni
með þetta?
„Það er nú það. í mínum huga veg-
ur þyngst að það er betra að allur
heimurinn noti sömu einingarnar í
öllum eðlisfræðilegum viðfangsefn-
um. Metri og sekúndá era alþjóðlegar
Haraldur Ólafsson
er það mikið nörd
að hann veit ekki
einu sinni hvað það
er að vera nörd.
Hann er því kannski
súpernörd. En hann
hefur skoðanir og
liggur ekki á þeim.
Honum finnst jafn-
vitlaust að berjast
fyrir friði og að ríða
fyrir meydómi.
mælieiningar og það auðveldar allt
starf ef menn geta haldið sig við þær.
Ég sakna þó gömlu íslensku orðanna
eins og „gola“ og „stinningskaldi" og
mundi vilja halda þeim.
Á tíföldum hraða
Hinn friðelskandi veðurfræðingur
hefur vitaskuld áhuga á tungumálinu
esperanto, sem framsýnir fyrr á öld-
inni töldu að myndi sameina þjóðir
heimsins.
„Allir ættu að læra esperanto til að
auðvelda samskipti sín á milli," segir
Haraldur bjartsýnn.
Er esperanto ekki draumur sem er
löngu búinn?
„Það held ég ekki. Ég held að þjóð-
ir heimsins sætti sig ekki til lengdar
við ensku sem alþjóðasamskiptamál.
Enskan er svo mikið vandræðamál og
erfið fyrir Asíubúa. Esperanto er
miklu auðveldara. Ég held að það sé
tímaspursmál hvenær þessar stóru
þjóðir, t.d. i Asíu, sætti sig ekki við
það lengur að þeirra bestu menn
þurfi að eyða mörgum árum ævi
sinnar í að læra ensku þegar þeir
geta komist af með mál sem þær læra
á nokkrum vikum. Maður kemst á
tífóldum hraða inn í þetta tungumál
miðað við önnur. Það er gaman að
keyra á 200 km hraða þegar hinn
kosturinn er dráttarvél á 20.“
Algjört nörd
Veðrið og esperanto verða að telj-
ast fremur „nörduð" áhugamál.
Gengst Haraldur við að vera nörd?
„Ég veit nú ekki almennilega hvað
það merkir," viðurkennir hann. „Ef
það er að vera nörd að hafa áhuga á
einhverju er ég algjört nörd.“
Að lokum: Viðrar vel til loftárása
um helgina?
Hér skreppur Haraldur frá til að
líta í kortin. Spáir svo: „Það viðrar
vel til manndrápa á Austurlandi, en
heldur verr á Vesturlandi. Við verð-
um að vona að það fari enginn að
sprengja okkur. Hins vegar er tvisýnt
með Kosovo, mér sýnist ætla að verða
lægðardrag yfir Serbíu." -glh
HELVITI SVEIÍKJAbiDI ME Ð JUROVlSJON
ÞAB.NA í 3ÚR.ÓSALE M...
3A, ÞAU KLIKKUÐU A TEKTANUM...
HANN HEFOl FREKAR. ÁtT AO B'fRJA...
f Ó k U S 4. júní 1999