Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1999, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1999, Blaðsíða 16
 m > Sjónvarpsstöðin Omega er án efa stærsta kirkja landsins. Tíu þúsund manns stilla sig inn á hverju kvöldi til að heyra orð Guðs. Kristnir menn hvaðanæva af landinu mæta í myndver og tala út um sjálfan sig og Guð. Mikael Torfason mætti í beina útsendingu og fékk botn í hvað Bubbi Morthens, Davíð Scheving Thorsteins- son, Gunnar í Krossinum, Ómar Ragnarsson og Snorrí í Betel eiga sameigin- legt fyrir utan að vera heljarmikil karlmenni. P :':'X f- ' Wjm • : % l i $ T H*f 1 L 0 11 : ■á 1 I L * * „Viö erum bara eins og prent- smiðja hér í Omega. Menn koma inn og fá að prenta góðar bækur sem samræmast sannleikanum. Omega sjálf hefur enga skoðun aðra en að vera vettvangur fyrir lifandi trú,“ segir Eiríkur Sigurbjörnsson, sjón- varpsstjóri heitustu og frjálsustu sjónvarpsstöðvar landsins. Sjónvarpsstöðin Omega hefur starfað sleitulaust frá því í júlí ‘92 og verður því 7 ára í ár. Stöðin sendir út kristilegan boðskap ásamt tilkynn- ingum allan sólarhringinn, alla daga vikunnar. Lunginn úr efninu kemur frá útlöndum eða er endursýning á úpptökum Omega. En það er alltaf bein útsending kl. 20.30 á hverju kvöldi og hún stendur eitthvað fram eftir. Það er nokkuð Ijóst að Omega er frumlegasta sjónvarpsstöð lands- ins, í öðru sæti væri þá Skjár 1 með gamla Dallas-þætti og Hausverk um helgar og Omega er alveg örugglega komin til að vera. Hún er líka eina stöðin sem býður upp á „Pay per view“ kerfið. En það virkar þannig að þegar stöðin er læst, sem er á laugardögum og sunnudögum því þá er sýnd vönduð fjölskyldudagskrá, þá borgarðu bara fyrir það sem þú vilt horfa á. „Já. Við erum alveg óháðir hér í Omega," heldur Eiríkur áfram. „Þetta er sjálfseignarstofnun sem á sig sjálf.“ Útsending kvöldsins er að hefjast hjá þessari stöð sem hefur 4,7% jafn- aðaráhorf á kvöldin en það gera á tí- unda þúsund manns. Gestir þáttarins eru ekki af verri endanum í kvöld. Snorri í Betel mætir i spjall, Mike Fitzgerald og svo verður Guðlaug- ur Laufdal á gítarnum og stuð í hús- inu eins og vanalega. En í gegnum tíðina hafa ótrúlegustu menn komið í þáttinn og sagt frá sínum vitnisburði af Guði og syni hans Jesú. Þetta eru menn á borð við Bubba Morthens, Ómar Ragnarsson og Davíð Schev- ing Thorsteinsson. Beðið fyrir útsendingu Guðlaugur Laufdal krýpur fyrir framan upptökuvélarnar. Hann er að biðja fyrir útsendingunni og lítur ekki upp þegar við ryðjumst inn í sal- inn. Eiríkur útskýrir að hér sé allt leyfilegt svo lengi sem það þóknist Guði. Það er hvergi skilti sem á stendur: „Þögn - útsending." Nei, þú mátt öskra og Teitur ljósmyndari fær leyfi til að nota flass og jafnvel standa fyrir framan upptökuvélamar við að taka myndir. Guð og Jesús eru vemd- arar útsendingarinnar og því eru all- ar áhyggjur óþarfar. Snorri í Betel gengur í salinn ásamt fleiri gestum þáttarins og ein- hverjum áhorfendum. Eiríkur kynnir hann fyrir blaðamanni DV og Snorri segist samhryggjast undirrituðum. Talar um að einhver frá DV hafi hringt um daginn og beðið hann að vera í Með og á móti-dálkinum. Snomi segist hafa sagt: „Ekkert mál. Með hverju á ég að vera?“ En blaða- maðurinn sagði honum að hann ætti að vera á móti. „Eins og vanalega," segir Snorri og allir í salnum hlæja. „Ég fæ aldrei að vera með neinu, eins jákvæður og ég er.“ Bænin held- ur áfram og færist í raun yfir hópinn. Allir taka þátt. Einn af stjóm- endum kvölds- ins hefur sest við viðtals- borðið með Mike og þeir biðja saman. Snorri segir: „Hallelúja," og tekur bremsuna af sér. Talar tungum að hætti frelsaðra og enginn hefur neitt til að skammast sín fyrir. Þetta eru kristnir menn. Meirihlut- inn karlmenn og það engir smákarl- menn. Þetta eru heljarmenni sem faðmast og takast í hendur. Ganga augljóslega í buxum á sínu heimili og virðast gegnheilir. Máttarstólpar i sinni fjölskyldu og salt jarðar hvar sem þeir koma. Snorri náttúrlega kóngurinn þó hann myndi eflaust neita því og segja Jesúm konung í sínu ríki. En persónutöfrar Snorra em svo miklir að hann hefur áhrif jafnvel þó hann þegi, sem hann gerir sjaldan. Stærsta kirkja landsins „Við látum dagskrána bara leiðast af fmgrurn fram,“ hvíslar Eiríkur nokkrum sekúndum fyrir útsend- ingu. „Hvetjum fólk til að vera þátt- takendur og hringja inn. Hér á bak við eru sex símabásar og þar taka sjálfboðaliðar við þakkarbænum og fyrirbænum sem lesnar era upp í lok útsendingarinnar." Það eru líka allir velkomnir í beina útsendingu á Omega. Hver sem er getur tekið kvöldrúntinn og kíkt í stúdíóið á Grensásvegi 8 og tekið þátt í stærstu messu á íslandi. Biskupinn myndi allavega folna ef mætingin í messurnar hjá honum væri svipuð og áhorfið á Omega. Tíu þúsund manns. Sem dæmi um frjálsræðið í dag- skrá Omega þá, þrem sekúndum áður en þátturinn hefst, stekkur Ei- ríkur upp og rýk- 1 Snorri í Betei er með allt á hreinu: „Kynvilla er synd, fóstureyðing er synd og hjónaskilnaðir eru synd.“ 2 Mike á Lindinni er að opna útibú í Færeyjum og þar verður líklega talað tungum. 3 Eiríkur Sigurbjörnsson var sjálfur iangt leiddur í drykkju og rugli þegar hann fann Jesúm fyrir 24 árum. 4 Guðlaugur Laufdal er Elvis þessarar samkomu. 5 Elísabet Magnúsdóttir eignaðist lif- andi trú í gegnum Omega og vinnur nú hjá stöðinni. í sjálfboðavinnu, að sjálf- sögðu. 6 „Við látum dagskrána bara ieiðast af fingrum fram,“ segir Eiríkur sjónvarpsstjóri. 7 Jesús er væntanlegur! Hann kemur til að frelsa okkur frá Nató og ESB! Þau bera merki Dýrsins! ur að viðtalsborðinu. Hann sest við hliðina á Mike frá útvarpsstöðinn Lindinni og útsendingin hefst. Viðtalið er á léttu nótunum, lof sé Drottni. Fjallar um Lindina og Omega sem reknar eru að hluta með peningum frá guðhræddum Banda- ríkjamönnum. Þeir í Lindinni eru í stuði með Guði þessa dagana og eru art nm5 i'i+mú í Færeyjum. Eiríkur stingur upp á því að senda bara út með ljósleiðara og tala tungum á stöð- inni og útrýma með því öllum tungu- málamúrum. Töku- mennirnir þrír vanda sig við að ná öllum í mynd. Við- talið fjallar annars aðallega um framtíð miðlanna og alla þættina sem þá félaga Mike og Eirík langar að taka upp. Þetta minnir óneitanlega á markaðsfund hjá Skjá 1 og maður sér ný- útskrifaða Verzló-gæjana sitja við borð og ræða um væntanlega styrktaraðila. Hér eru sponsorarnir bara Jesús og Guð og amen sagt á eftir setningum. Það er eini munurinn. Jesús er væntanlegur „Hann snart mig, ó, hann snart mig,“ syngur Guðlaugur en hann hljómar eins og Elvis án fótaburðar- ins. „Ég er þinn Guð, sem læknar þig. Ég er Drottinn sem þig elskar," held- ur söngurinn áfram. „Beina leið í Drottins sveit.“ Snorri tekur undir og fylgist með nýjum spyrlum og enn nými gestum stíga á stokk. Ólafur Jóhannesson, formaður félagsins Vinir ísraels, mætir en hann hefur farið 22 sinnum til ísraels og hyggst fara tvisvar til viðbótar á þessu ári. Ef hann væri ísraeli og formaður Vina íslands væri viðtal við hann í öllum Qölmiðlum landsins. „Hjálpræðið kemur frá gyðingum. Sá sem blessar ísrael verður blessað- ur. Sá sem bölvar ísrael verður bölv- aður,“ er boðskapur Ólafs í hnot- skum. Elvis Guðs tekur annað lag og ekki laust við að það sé síonisk sveifla í mannskapnum. Snorri og Eiríkur setjast við borðið og taka á spjall þeg- ar Gulli rokk lýkur sér af. Eftir smákurteisishjal er Snorri lagður af stað. Ekkert stöðvar hann og sögurnar ryðjast upp úr honum. Hann er snortinn maður og kann vel við að tala. Segir sögu af honum Bibl- íu-Sigga sem seldi Biblíur mn allt land að fyrirskipan drottins. En um Omega og framtíð kristinna manna segir Snorri þetta vera spumingu upp á líf og dauða og að samstaðan sé það sem skipti mestu máli. Salurinn er svolítið að kaupa það og kallar amen og hallelúja. Enda er Snorri falleg manneskja. Hann er góð- lega útgáfan af Gunnari í Krossin- um. Þeir eru báðir jafningjar á víg- velli mælskunnar en það er eitthvað við útgeislun Snorra sem setur hann stalli ofar en kollega sinn. En Snorri hefur skoðun á öllu og er Evróvisjon engin undantekning. Hann minnist að sjálfsögðu á Dönu International og fullyrðir að hún sé ekki í vitlausum líkama. Hún var víst niðurlægð um síðustu helgi þegar hún datt á sviðinu. Þar var Guð að verki og augljóst að herrann lætur ekki að sér hæða. „Kynvilla er synd, fóstrueyðing er synd og hjónaskilnaðir eru synd,“ segir Snorri. Gömul tugga fyrir suma en heilagur sannleikur fyrir aðra. Svo fer Snorri vítt og breitt. Ræðir um sannar sögur Biblíunnar út frá Times og tekur svo til við að útskýra fyrir mönnum af hverju hann er viss um að Jesús Kristur sé væntanlegur aftur til jarðarinnar. í fyrsta lagi er það engillinn sem minnst er á í Opin- berunarbókinni. Sá er i raun spádóm- ur um sjónvarpspredikara sem kom fram fyrir 10 ámm. í öðm lagi er setningin: „Fallinn er Babýlon." En hebreska sögnin babylon þýðir að ragla og Snorri telur ruglið vera spír- itismann og nýaldarhreyfinguna. Dana er gott dæmi um ruglið sem er í gangi. Þriðja og síðasta vísbending- in um endurkomu Jesú er ESB. En það bendir víst allt til þess að ESB, í bóli með Nató sé sjálft Dýrið og ein- staklingamir bera merki þess. Þetta er allt fundið út með draumaráðn- ingu í draumi sem sagt er frá i Biblí- unni. Svo er ESB auðvitað með sinn Rómarsáttmála og það gefur fyrirheit um mikilmennskubijálæði í hæsta gæðaflokki. Ætli þetta sé ástæðan fyr- ir því að Davíð Oddsson vill ekki heyra minnst á Evrópusambandið? Hvað sem því líður þá er þátturinn búinn og það eina sem við getum gert er að vera rétt stillt og bíða róleg eft- ir Jesú. Mikael Torfason 24 f Ó k U S 4. júní 1999

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.