Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1999, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1999, Blaðsíða 18
7 Lifid ('ftir vmnu haf Á stóra sviði Þjóðleikhússins verður Litla hryll- ingsbúðin frumsýnd klukkan 20:00. Höfundur verksins er Howard Ashman en leikstjóri er Kenn Oldfleld sem er svo sannarlega orðinn „Islandsvinur". Hann hefur leikstýrt nokkrum stykkjum hér á landi, meðal annars Grease sem hlaut fádæma góðar viðtökur. Aðalhlut- verk í Hryllingsbúðinni leika Stefán Karl Stef- ánsson, Þórunn Lárusdóttir, Bubbi Morthens, Eggert Þorleifsson og Selma Björnsdóttir svo einhverjir séu nefndir. Um tónlist sér hinn margrómaði Jón Ólafsson. Uppselt er á frum- sýninguna. „Tónleikar næstu aldar" kallar útvarps- stöðin FM957 þriðjudagstónleika sína þann 22. júní. Þessa bjánalegu tímasetn- ingu réttlætir stöðin með þv[ að auglýsa: „Þú færð bara fri, svona tónleikar eru bara einu sinni á hverri öld“, sem er gotttrix hjá þeim. Land og synir, Skítamórall, SSSól og Sóldögg hita upp fyrir erlendu böndin (Republica, E17, Mercury Rev og Gar- bage). Það hitar reyndar enginn upp því út- varpsstöðin segir að það verði engin upp- hitun heldur „stanslaus keyrsla allan tlm- ann". Bjössi Baldvinsson, áður í Bleiku böstun- um, er aldeilis að gera það gott í Hollywood með hljómsveitinni sinni Lux. Strákarnir eru á þeysireið um Kaliforníu, spila m.a. á stærsta hommafestivali ver- aldar, Gay Pride í San Frans- isco, 13. júní og verða fimm dögum slðar í Viper Room, staðnum hans Johnny Depp. Þar verða haldnir tónleikar á vegum LA Weekly með bestu ósamningsbundnu böndunum í Los Angel- es. Lux er semsagt enn á lausu en hefur vakið mikla athygli og búist er við að sveitin fari á stórsamning fyrr en varir. Þá er einnig í farvatninu að Lux spili á íslandi seinna á árinu. Hitt húsið heldur tónleika á Ingólfstorgi í allt sumar með öllum helstu böndum þjóð- arinnar. Þessir tónleikar hafa i gegnum árin verið haldnir á föstudögum en nú vildu forráðamenn Hins hússins prófa eitthvað nýtt og því eru tónleik- arnir á „ d a u ð a r i tíma“ á miðviku- dögum á milli 17 og 18. Reynt verður aö mixa saman hljómsveitir sem ann- ars myndu varla koma fram saman, t.d. spila Quarashi og Sóldögg saman þegar tónleikaröðin fer af stað nk. miðvikudag. Steingrímur Njálsson kemur víða við eins og fram hefur komið í DV. En hann er ekki bara að hóta mönnum lífláti og ofsækja sakleysingja. Gestir 22 segja farir slnar ekki slétt- ar af kauða og hefur hann verið að abbastupp á þá. Talsmenn staðarins segj- ast þó hafa hemil á hon- . um og bara þurft að henda honum út einu sinni. Stengjaleikhúsið frumsýnir óperuleikinn Mað- ur llfandi klukkan níu á Litla sviði Borgarleik- hússins. Höfundur verksins er Árnl Ibsen, leik- skáld, Karólína Eirfksdóttir, tónskáld og Messíana Tómasdóttir myndskáld. Flytjendur eru leikararnir Þröstur Leó Gunnarsson og Ásta Arnardóttlr og söngvararnir John Speight, Sverrir Guðjónsson og Sólrún Braga- dóttir. Þetta er sviðsverk fyrir leikara, söngv- ara, leikbrúður og hljóðfæraleikara, í senn ópera, leikrit og leikbrúðuverk þar sem fjallað er um samskipti mannsins við Dauðann. Maður í mislitum sokk- um eftir Arnmund Back- man er í Hnífsdal klukk- an 20.30. Þessi farsi gengur og gengur og núna út um allt land. Enn eitt gangstykkið með „gömlu leikurunum" - að þessu sinni Þóru ^ Friðriksdóttur, Bessa Bjarnasyni og Guðrúnu Þ. Stephensen. Fyrir börnin t/ Brúðubíllinn verður á ferðinni við Austur- bæjarskóla klukkan 10 með leikritið Beöið eftir mömmu. Þar segir af ungviði sem allt á það sameiginlegt að vera að bíða komu móð- ur sinnar. Fyrra verkið fjallar um unga í hreiðri en seinna ævintýrið er hin alkunna saga um úlfinn sem með krít og fleiri sniðugum ráðum reynir að svindla sér inn í hús kiðlinganna. Klukkan 14 hefst svo sama sýning í Barða- vogi. 1 e i k h ú s • F undir Málfundur með yfirskriftinni Bændur berjast við gjaldþrot fer fram á vegum aðstandenda vlkublaðslns Militant að Klapparstíg 26, annarri hæð (Pathfinder-bóksalan). Fundarefni er barátta bænda við gjaldþrot, Kaupfélag Þingeyinga hlutað sundur, inneign skuldugra bændafjölskyidna í hættu, kreppan í landbún- aði og viðhorf bænda. Frásögn af vettvangi flytur Slguröur J. Haraldsson. félagi í Eflingu í Reykjavlk og Ungum sósíalistum. Fundurinn hefst klukkan 17.30. Spor t Þrir leikir verða I 3. deild íslandsmóts karla í kvöld. Á Grýluvelli í Hverageröi leika Hamar og KÍB. Á Akureyrarvelli leika Nökkvi og Kor- mákur. Á Krossmúlavelli leika HSÞ B og Neisti H og loks leika Einherji og Leiknir F á Vopnafjarðarvelli. Allir leikir kvöldsins hefjast klukkan 20. Laugardagur 5. júní t K 1 úbbar Aftur Represh á Thomsen. DMX Krew og DJ Mafphew frá Rephlex útgáfunni sem fyrr en núna er DJ Habit þáttakandi. fKrár Ari Jóns verður með tærnar þar sem Geir- mundur hafði hælana í gærkvöld. Hann tekur Úlfar Sigmundsson með sér í geimið á Naust- kránnl. Það verður Blátt áfram sem fullnægir stuð- þörf fólks I Grafarvogi í kvöld. Þið þurfið ekki annað en fara inn á Péturs-pub í Höfðabakk- anum. Kostar ekkert inn, ódýr bjór og hvað- eina. Gunnar Páll slær fingrum á hljómborð inni á Grand Hóteli. Frumraun Hallgríms Þúsundeyjasósa eftir Hall- grím Helgason er hádegis- leikrit sem Stefán Karl Stef- ánsson leikur !. Hann er auðvitað sprenghlægilegur en leikritið er sýnt í Hádeg- isleikhúsi Iðnó. Súpa og bjór fyrir opinbera starfsmenn og aðra þá sem fá sér ekki Herbalife í hádeginu. Bíóborgin Rushmore irtrk Rushmore fellur i flokk ágætra mynda, maður er ágætari á eftir þvf þetta er mynd sem býr klisjun- um ferskan búning og gætir þess jafnan að feta aðra stígu en á sem flest- ar aðrar troða. Þetta er saga um hvolpaást skóla- nemans Max Rscher á kennara sínum Rosemary. Max er umfram allt næmur listamaður og afkastamikið leikrita- skáld, nokkurskonar nútíma Ólafur Ijósvíkingur sem hefur tekið að sér að þjást fyrir fáskiptinn almúgann. Yfir myndinni er frísklegur blær og velkominn þegar svo margar myndir frá Amer- íku sem fjalla um unglingsárin gera lítið annað en að nema lyginnar land undir yfirskini skemmtunar. -ÁS Message In a Bottle irk Óskammfeilin róm-j antík, saga um missi og nær óbærilegan sökn- uð eftir þvt sem hefði getað orðið á öðrum enda vogarskálarinnar og örlagaríka samfundi og endurnýjun á hinum endanum. Ýmislegt þokka- lega gert, leikur er hófstilltur og látlaus, fram- vindan að mestu sömuleiðis og myndir fallegar. En einhvern veginn nær þetta ekki aö virka nægilega sterkt á mann, til þess er flest of slétt og fellt. -ÁS One True Thing Fjölskyldudrama í þess orðs bestu merkingu. Leikstjórinn Carl Franklin fer framhjá flestum hættum sem fylgja við- kvæmu efni sem hér er fjallað um, enda er hann með I höndunum vel skrifað handrit og fær góðan stuðning frá Willlam Hurt og Meryl Streep, sem eru leikarar í hæsta gæðaflokki. Þá sýnir hin unga Rene Zwelleger að hún er leikkona framtíðarinnar í Hollywood. -HK Slmon Blrch ★★ Slmon Blrch sem gerð er að hluta til eftir þekktri skáldsögu John Irvln á þó ekki margt sameiginlegt með sögunni nema það að söguhetjan er smávaxin. Leikstjórinn Mark Steven Johnson fer hefðbundna leið, sem svo oft sést í bandarískum sjónvarps- myndum og því verður myndin um of meló- dramatísk sem er slæmt þar sem leikarar I myndinni eru sérlega góðir. -HK Bíóhöllin She’s All That She’s All That segir frá llfi nokkurra krakka í Los Angeles High School þar sem ástamálin eru nokkuð flókin svo ekki sé meira sagt. Allt fer á annan endann þegar vin- sæiasta stúlkan í skólan- um segir kærastanum upp þar sem hún hefur hitt annan. Þar sem kærastinn fyrrverandi er forseti nemendaráðs- ins er erfitt fyrir hann að kyngja því að vera sett- ur út í kuldann. Payback ★★★ Leikstjóranum Brian Helgeland tekst ágætlega að búa til dökkmyndastemn- ingu, vel fléttaða, og kemur stundum jafnvel skemmtilega á óvart. Hins vegar er svolítið erfitt að trúa á Mel sem vonda gæjann, til þess er byrði hans úr fyrri myndum of þung. ÁS 8MM irk Þegar upp er staðið eins og sauður I úlfsgæru, jafn kjánalega og það hljómar; mynd sem á endanum reynist ansi miklu meinleysis- legri en hún vill I upphafi vera láta. Ekki skortir svo sem óþverrann og mannvonskuna, en mik- ið vantar upp á þá sannfæringu og dýpt sem geröi Seven, fyrri mynd handritshöfundarins Walker, að meistaraverki. -ÁS Permanent Midnlght ★★ Þrátt fyrir sterkan leik Ben Stillers er Permnent Midnight aldrei nema miðlungsmynd, formúlumynd af því tag- inu að þetta hefur allt sést áður. Það hlýtur að skrifast á reikning leikstjórans David Veloz að framvindan er öll hin skrykkjóttasta og það sem hefði getað orðið kvikmynd um hæfileika- ríkan handritshöfund sem taþar áttum verður aðeins kvikmynd um herólnneytanda og margar betri slíkar myndir hafa verið gerðar. -HK Varsity Blues k Varsity Blues er enn ein ung- lingamyndin þar sem gert er út á ungar íþrótta- hetjur, vinsældir þeirra meðal ungra meyja, villt líf eftir leik og samband þeirra við foreidra. Allt er þetta kunnuglegt, þekktar formúlur færðar I ný klæði sem í þetta sinn eru gegnsæ. -HK Mighty Joe Young ★★ Gamaldags ævintýra- mynd sem heppnast ágætlega. Sjálfur er Joe meistarasmlð tæknimanna og ekki hægt ann- að en að láta sér þykja vænt um hann. Það er samt ekkert sem stendur upp úr; myndin líður í gegn á þægilegan máta, án þess að skapa nokkra hræðslu hjá yngstu áhorfendunum sem örugglega hafa mesta ánægju af henni. -HK Plg in the City ★★ Mynd númer 2 er fyrst og fremst ævintýramynd og meira fyrir börn en fyr- irrennarinn. Má segja að teiknimyndaformið sé orðiö alls ráðandi og er myndin mun lausari í rásinni. Dýrin, sem fá mikla aðstoð frá tölvum nútímans, eru vel heppnuð og þótt oft sé gam- an að apafjölskyldunni og hundinum með aftur- Léttir sprettir taka meðalþungar rispur inn á milli á Kringlukránni. Múgurinn (sem Hitler sagði að væri heimskur og gleyminn) syngur með. Kaffi Reykjavík er fallega staðsett túrista- attraksjón en oft heyrist að mannfagnaðurinn þarna inni sé dáldið frá- skilinn og desperat. Ef- laust er það rangt. Að minnsta kosti ætti eng- inn að vera dapur þarna inni í kvöld því Blái fiðr- ingurinn virkar eins og besta algleymislyf. Engar aukaverkanir. Leynifjelagiö býður uþp á ýmis konar tónlist á Grand Rokk í kvöld, bæði fagmannlega fiutta og töff. Hljómsveitina skipa Pétur Valgarö Pétursson gítar, Birgir Thorarensen bassi, Gunnar Þorsteinsson (ekki í Krossinum) trommur og Sesselja Magnúsdóttir söngur. Þeir sem mæta fyrir miðnætti fá leynikokteil á kostnaðarverði. Rnt til að súpa á meðan hlýtt er á súperdúper- flutning bandsins á ýmsum góðum kóverum. Gullöldin í Grafarvogi býður bjórinn á 350 og Svensen og Hallfunkel hjálpa ykkur að renna honum niður. sem þessi þrífast illa án áfengis- og tóbaks- sölunnar svo verið dugleg að kaupa á barnum. Gildrumezz partíar áfram á Álafoss föt best með Pétri og Bigga Hrafns. Böl 1 Stjórnin leiðir dansinn i Leikhúskjallara. Gunni Didiar inn á milli. Gammel dansk er hágæða ánetjandi snafs frá Danmörku og hágæða ánetjandi band frá ís- landi. Hvort tveggja má nálgast á Næturgalan- um, hágæða ánetjandi skemmtistað við Smiðjuveginn. D j a s s Nú fer Jómfrúin við Lækjargötu aftur í gang , með sumardjassinn sinn. Á vaðið ríða Eðvarð Lárusson og Andrea Gylfadóttir og spinna ein- hvern hárfinan vef af blúsi, djassi og poppi. Leikið verður i garðinum fyrir utan ef veður i leyfir. Þetta atvik mun eiga sér stað klukkan : JLS.___________________________________£ • K1a s s í k V Heklumót 1999, söngmót 8 karlakóra á Norðurlandi, verður haldið að Laugarbakka í Miðfirði kl. 15.00 og Miðgarði í Skagafirði kl. 21.00. Mótiö er kennt við Heklu, samband norðlenskra karlakóra. Hver kór syngur 3 lög en síðan syngja kórarnir fimm lög sameigin- lega undir stjórn söngstjóra kóranna vestan Öxnadalsheiðar. Sameiginlegi kórinn telur tæplega 400 söngmenn og er það stærsti karlakór sem lengi hefur sungið hérlendis, ef þá nokkurn tlma. Kórarnir sem taka þátt í Heklumótinu eru Karlakórinn Lóuþrælar í Vestur-Húnavatnssýslu, Karlakór Bólstaða- hlíðarhrepps, Karlakórinn Heimir i Skagafirði, Karlakór Dalvíkur, Karlakór Eyjafjaröar, Gaml- ir-Geysisfélagar, Karlakór Akureyrar-Geyslr og Karlakórinn Hreimur [ Þingeyjarsýslu. í dag klukkan 15 leikur Sinfóníuhljómsveit ís- lands i Félagsheimilinu í Vík í Mýrdal. Þvi næst steðjar hún á Hvolsvöll og leikur í íþróttahúsinu þar klukkan 20.30. Sætt af henni að koma svona til móts við landsbyggð- arfólk. •S v eitin Við tvistum á Pollinum því Sín er á staðnum. Stuðbandalagið leikurl dal kenndum við Bíldu (hvað er þáð?). Nánari staðsetning: Félags- heimilið. Símon Pétur og postularnir gera kraftaverk á Catalínu i kvöld, þeir munu koma þér i stuð sem aldrei fyrr. Víkingasveitin skapar stemningu i Fjörugarði Fjórukrárinnar. Poppers keyrir allttil andskotans (vonda kalls kristinna manna) í kvöld á Kaffi Amsterdam. Djömmum! Vinnur svartur afgani á barnum? Nú mun hljómsveitin Stuðmenn magna upp orkuþrungna stemningu í Stapanum með fólki 20 ára og eldra. Stuðið verður tandurhreint og snyrtilegt eins og oftast þegar þeir eiga í hlut. Hot’n sweet er búin að koma sér rækilega fyr- ir á Búðakletti í Borgarnesi og lætur dansinn duna i alla nótt. Höfðlnn í Vestmannaeyjum skartar Buttercup á konukvöldl. Karla dansa, Sveinn Waage grínar, drykkir kynntir og svo mætti lengi telja. Sjómannadansleikur I samkomuhúsinu í hjólin þá eru dýrin úr fyrri myndinni, með Badda sjálfan í broddi fýlkingar, bitastæðustu persón- urnar. -HK Póddulíf kkk Það sem skiptir máli í svona mynd er skemmtanagildið og útfærslan og hún er harla góð. Sama skemmtilega hugmynda- flugið og gerði Mulan svo ánægjulega er hér enn á ferð og mörg atriðanna eru hreint frábær, bæði spennandi, fyndin og klikkuð. -úd Háskólabíó 200 Cigarettes kk Á gamlárskvöld árið 1981 fýlgjumst við með eitthvað á annan tug persóna á leið í partí. Komið er við á krám og veitingahúsum um leið og vandamálin koma upp á yfirborðið. Ákaflega yfirborðskenndar persónur í höndum ungra leikara sem eru allt of uppteknir af sjálfum sér til að kanna hvort eitt- hvað hafi verið öðruvísi 1981. Timburmennirnir eftir partið sýna fram á að það hefði verið hægt að gera betur. -HK Arlington Road kkk í það heila vel heppnuð spennusaga með umhugsunarverðum og ögrandi vangaveltum og sterku pólitisku yfir- bragði. Minnir um margt á samsæris- og para- nojumyndir áttunda áratugarins, t.d. The Paral- lax View eftir Alan Pakula, þar sem „óvinurinn" virðist ósýnilegur og leit aðalpersónunnar að sannleikanum ber hann út að ystu nöf, bæði andlega og siðferðislega. Handritið spilar ágæt- lega á innbyggðar væntingar okkar til hetju og illmennis alla leið að hrikalegum endinum sem situr þungt I manni eins og illur fýrirboði. -ÁS Forces of Nature ★ Fellibylurinn sem kemur litillega við sögu í lok þessarar myndar virðist áður hafa átt leið um hugi allra aðstandenda hennar þvi að satt að segja stendur ekki steinn yfir steini. Þetta er ein af þessum innilegu óþörfu myndum sem Hollywood sendir stund- um frá sér, eins og til að fýlla uppi einhvern kvóta eða skaffa stjörnunum eitthvað að gera. Hversvegna einhveiju viti bornu fólki dettur í hug að bjóða áhorfendum uppá þetta rusl er ofar mínum skilningi. -ÁS Waking Ned kkk Þetta er ómenguð vellíðunar (feelgood) kómedía og ánægjan er ekki hvað síst fólgin i að horfa á hvern snilldarleikarann á fæt- ur öðrum skapa skondnar persónur á áreynslu- lausan hátt. Það er afskaplega hressandi að sjá bíómynd þar sem gamalmenni fara með aðalhlut- verkin - þessir tilteknu gamlingjar eru sko langt i frá dauðir úr öllum æðum. -ÁS Deep End of the Ocean kk Það sem er gott á pappír þarf ekki alltaf að vera gott í kvikmynd, það sannast í Deep End of the Ocean, sem gerð er eftir verðlaunaðri skáldsögu. Satt best að segja er myndin ekki meira en sæmilega gott sjónvarpsefni. Mlchelle Pfelffer sýnir oft og tíðum stórgóðan leik í hlutverki móður sem verður fyrir þeirri reynslu að ungt barn hennar hverfur dag einn. -HK Idioterne kkk Nýjasta mynd Lars Von Trier og að sjálfsögðu gerö samkvæmt reglum Dogma 95. Hópur ungs fólks þykist vera fávitar og tekur þann leik nokkuð alvarlega. My Name Is Joe Hann heitir Joe og er alkó-- hólisti. Hann hefur verið edrú í 10 mánuði og þrátt fyrir tilmæli AA samtakanna, sem ráð- 26 f Ó k U S 4. júní 1999

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.