Dagblaðið Vísir - DV - 04.06.1999, Blaðsíða 6
varst
Laugardaginn 9. n
1986, klukkan 07.
0?
Magnús Skarphéöinsson varö mjög
ánægður þegar hann frétti aö hval-
bátunum heföi veriö sökkt.
„Á Kaffivagninum úti á Granda.
Ég heyrði þetta í útvarpinu þar og
varð mjög ánægður. Fór niður á
höfn og skoðaði þetta og fannst
tignarlegt mjög. FalIeg sýn. Ég hef
verið í Shea Shepherd í 15 á'r, sem
og öðrum 40 náttúrusamtökum. Ég
hef samt ekkert heyrt í þeim árum
saman en fæ fréttabréfið þeirra en
fyrst vinnuaðferðir Páls Watson
ekkert sérstakar. Ég held samt að
barráttan hafi gengið upp því ís-
lendingar munu ekki hefja hval-
veiðar aftur nema þeir vilji láta
sparka sér út af fiskmörkuðum úti
í hinum stóra heimi. Þessu tíma-
bili sögu okkar er lokið, líkt og
þrælahaldinu á árum áður. Eitt
hænufet í átt að Paradís.“
Snemma morguns þann 9. nóvember 1986
vöknuöu íandsmenn viö þær fréttir aö hvalþát-
unum í Reykjavíkurhöfn hefði verið sökkt.
Grunur lék strax á því aö Sea Shepherd-sam-
tökin stæöu fýrir verknaðinum. Þaö fékkst
fljótlega staðfest og þjðöin var I losti. Löggan
náði engum og stóð sig álíka illa og yfirleitt
þegar mikið liggur við. Það hefur allavega enn
ekki neinn verið handtekinn fyrir að sökkva
bátunum og málið er því í raun óupplýst nú,
13 árum síðar.
Brúðkaupsdagurinn er einn af
þessum dögum sem flokkaðir eru
með þeim eftirminnilegri um æf-
ina. Hjónabandið er reyndar talið
homsteinn fjöl-
skyldunnar og
fjölskyldan
hornsteinn
samfélagsins. í
gegnum árin
hefur því hins
vegar verið
haldið fram að
upplausn ríki í
samfélaginu,
fjölskyldan sé
að breytast og
að normið sé að
eiga fleiri
mömmur og
pabba. Það kom
hins vegar í
ljós, þegar Fók-
us fór á stjá, að
hjónabandið er
ekki í jafn-
miklu rugli og
félagsfræðingar
halda fram í
hinum og þess-
um könnunum.
Guðbjörg María Garðarsdóttir
og Theodór S. Friðgeirsson giftu sig í
Háteigskirkju á því gjöfula ári 1979.
Velferðarkapphlaupið
Könnun Fókuss var óformleg og
úrtakið er þau hjón sem sendu
brúðkaupsmyndina sína til Mogg-
ans sumarið ‘79 og fengu myndina
birta. Þetta voru 32 myndir af hjón-
um sem litu út eins og fólkið í
Glæstum vonum og Leiðarljósi.
Fallegir hattar, slör og klunnaleg
jakkafót. Einhver gæti ályktað sem
svo aö þá hefði lífsgæðakapphlaup-
ið verið að sliga þjóðfélagið líkt og
það gerir nú. En það er öðru nær.
Kristján Guðmundsson og
Ragnheiður Víglundsdóttir giftu
sig í Keflavik ‘79. Hún var þá 19 ára
og hann 24 ára. Þau segja að hjóna-
bandið sé að sjálfsögðu enginn
dans á rósum en þetta hefur gengið
vel hjá þeim. Þau hafa vaxið saman
og unnið úr öllum vandamálum
sem komið hafa upp.
„Við myndum ráðleggja ungu
fólki að kynnast vel og búa ekki
strax saman heldur gefa sér tíma í
þetta,“ segja þau og Ragnheiður
bætir því við að hún myndi um-
turnast ef 15 ára dóttir þeirra gifti
sig eftir 4 ár. „Ungt fólk fer allt of
fljótt út í velferðarkapphlaupið:
íbúð, bíll, hús. Þetta velferðarkapp-
hlaup er hreinlega að fara með
ungt fólk í dag
og er í raun
meinsemd á
þjóðfélaginu."
Ester Grét-
arsdóttir og
Hjörtur Jó-
hannsson í
Sandgerði eru
sammála þeim
Kristjáni og
Ragnheiði.
„Vandamálið
núna er að
fólk vill eiga
allt, lifsgæða-
kapphlaup-
ið er að
s 1 i g a
f ó 1 k
þannig að
það getur
ekki talað
saman. Síð-
an hleypur
fólkið hvort
í sína áttina
um leið og
eitthvað bjátar á,“ segir Ester en
hún og Hjörtur hafa eignast þrjú
börn á þessum tuttugu árum og eru
virkilega hamingjusöm í dag.
5 af 32 skildu
Það kom á óvart hversu fá hjón
af þessum 32 sem voru í Moggan-
um ‘79 skildu. Þau voru aðeins
fimm og til samanburðar má geta
þess að fern brúðhjón hafa flutt til
útlanda þannig að hlutfall brott-
fluttra og skilinna er svipað.
Sveinn Hall Másson vélstjóri og
Ingibjörg Þórarinsdóttir giftu sig
‘79 en skildu fyrir fimmtán árum.
Ingibjörg er nú búsett í Bandaríkj-
unum og gift Kana. Sveinn býr í
Reykjavík og er í sambúð. Þau Ingi-
björg áttu einn strák sem bjó í
Bandaríkjunum um tíma en starfar
nú á íslandi. Hann er tvítugur.
„Við vorum búin að vera saman
í fimm eða sex ár þegar við giftum
okkur,“ segir Sveinn og því ljóst að
þau vissu hvað þau voru að fara út
í. „Þetta lak síðan bara í burtu á
nokkrum árum.“
Var ekki erfitt skilja?
„Nei. Það er bara eins og gengur
og gerist," svarar Sveinn. „Þetta er
ekki mikil blóðtaka ef það er ekk-
ert eftir af hjónabandinu."
Hin árlega brúðkaupsvertíð er hafin. Það er því ekki úr
vegi að reyna að lesa í hvernig þetta mun fara hjá þeim sem
gifta sig í sumar. Fókus fletti 20 ára gömlum blöðum
og fann 32 brúðkaupsmyndir frá sumrinu ‘79. Sláandi
niðurstöður. Aðeins 5 hjón hafa skilið og 4 búa í útlöndum.
það
Ekki stór-
ar veislur
„Mér finnst að
eigi bara að bjóða sín-
um nánustu í brúðkaup
ið,“ segir Guðbjörg
Garðarsdóttir sem
giftist Theodór Friðgeirs-
syni í Háteigskirkju á því
gjöfula ári 1979. Þau eru nú
fara að eignast sitt fyrsta
barnabarn og eru mjög sátt við líf-
ið sem hefur blessað þau með
þremur börnum.
Já, flestir af þeim sem haft var
samband við voru sammála um að
brúðkaupsveislurnar sem haldnar
eru í dag séu orðnar frekar öfga-
fullar. Reynsla þessara hjóna hér á
síðunni segir að Séð og heyrt brúð-
kaup séu ekki vænlegur kostur ef
það á að endast. Lífsgæðakapp-
hlaupið, GSM-simarnir, nýju bíl-
amir, stressið og bankalánin eru
fljót að éta upp eitt lítið hjónaband
í risastórum alheimi.
Sigrún Karlsdóttir lyfjafræð-
ingur og Magnús Björn Brynj-
ólfsson héraðsdómslögmaður giftu
sig þegar þau voru bæði í háskóla-
námi og þeim sýnist fólk vera að
gifta sig eldra núna en þá. Þau
voru, svo dæmi sé tekið, 23 og 25
ára þegar brúðkaupið fór fram.
Hún var komin tvo mánuði á leið
Sigrún Karlsdóttir og Magnús
Björn Brynjólfsson segja gald-
urinn við að þrauka í 20 ár feiast
í því að skemmta sér saman en
ekki hvort í sínu lagi.
en það var ekki þess Vegna sem
þau giftu sig. Síðan þá hafa þau
eignast þrjú börn og finnst fólkið í
ungu hjónaböndunum gera of mikl-
ar kröfur.
„Fólk virðist ekki tilbúið að
leggja nógu mikið af mörkum
sjálft. Ung pör skemmta sér líka
mikið sitt í hvoru lagi og neita að
sleppa félögunum. Því fylgir sú
hætta að það gleymist að viðhalda
góðu sambandi við makann. Það er
að vissu leyti nauðsyn að geta
skemmt sér saman,“ segja Sigrún
og Magnús og þau ættu að vita það,
komin með 20 ára reynslu.
Skildu og giftu sig aftur
Auðvitað eru þau hjón sem haft
var samband við misjöfn. Eins og
áður sagði þá skildu fimm og
kannski eru einhver að endurskoða
allt sitt á þessum dögum. Sum
vildu alls ekki tala um hjóna-
bandið sitt og einu sinni kom
það meira að segja upp að karl-
vildi ólmur tala og ræddi
heimspekilega um hjónabandið
sem stofnun en þá kom konan
heim og skipaði honum að
skella á. Svo það er augljóst að
erfiðleikar í hjónabandi hverfa
ekki þótt fólk sé búið að vera
gift í 20 ár.
Rósa Ingvarsdóttir og Ólaf-
ur Björnsson giftu sig í Njarð-
vík fyrir tuttugu árum en
skildu þremur árum seinná. Þá
áttu þau barn og voru ekki al-
veg búin að höndla hjónaband-
ið en tveimur árum seinna tóku
þau saman aftur og endumýj-
uðu heitin. Síðan þá hefur
allt gengið eins og í sögu og
nú eiga þau tvö börn og
eru á leið til Mallorca til
að halda upp á brúð-
kaupsafmælið. Þau eru
sammála um að það sé
mjög mikil vinna að
halda ástinni við.
En hvaö finnst ykkur um skiln-
aöartíönina sem alltaf er veriö aö
tala um hjá ungu fólki?
„Aukið vinnuálag er örugglega
stór þáttur í skilnuðum. Þegar við
giftum okkur gátu krakkar byrjað
með minna og sætt sig við það. Nú
eru kröfurnar orðnar svo miklar að
um leið og börnin koma þá fer ailt
á annan endann.“
Rósa og Ólafur eru heldur ekki
sátt við þessi gæsa- og steggjapartí.
„Þau eru seinni tíma fyrirbæri sem
mættu gleymast," segja þau en þeg-
ac þau giftu sig tíðkaðist ekkert
svoleiðis.
En getiö þiö miölaö eitthvaö þess-
ari 20 ára reynslu til þeirra sem eru
aöfara aö gifta sig í sumar?
„Það er alla vega öruggt að það er
ekki til nein ein lausn á farsælu
hjónabandi. Grunnurinn er að fólk
sameinist um að takast á við vanda-
málin og flýja þau ekki. Ungt fólk
virðist guggna á því að finna lausn-
irnar sem þarf til að láta hjónaband
endast.“
Líkt og Superman og Clark Kent eru þessir tónlistarmenn einn og sami
maðurinn. Auðvitað er Hjálmar súpermaðurinn og hoppar inn í síma-
klefa þegar hann tekur niður sólgleraugun og setur kennaratyggjó á nef-
ið á sér. Svo gnæflr hann yfir listaheiminum, semur hvert meistaraverk-
ið af öðru, tjáir sig um mikilfengleik Jóns Leifs og bjargar konum úr
brennandi byggingum. Sem Rúnar Kent tekur Ofurmennið niður fyrir sig
og syngur dægurtónlist á Feita dvergnum og reynir að standast freisting-
ar spilakassa. Einn er spilafikill, annar styrkjafíkill, báðir frá Ísafírði og
með sítt að aftan. Þarf að segja meira?
Runar Þor Petursson.
Hjálmar Helgi Ragnarsson.
- og 4 hjón fluttu til útlanda
27 eru enn gift 32 hjónabönd
_____________
,
ca 15% skilnaðarhlutfal
4 hjón í útlöndum
5 hjón eru skilin
6
f Ó k U S 4. júní 1999