Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1999, Page 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 22. JÚNÍ 1999
Viðskipti
DV
Þetta helst... Lítil viðskipti á Verðbréfaþingi, 430 m.kr. ... Mest með húsbréf, 180 m.kr. ... Bankavíxlar, 150
m.kr. ... Hlutabréf, 91 m.kr. ... Úrvalsvísitala hækkaði um 0,48% ... Mest í FBA, 22 m.kr., og hækkaði gengið um 3,3% .
Búnaðarbankinn, 13 m.kr., og hækkunin 2% ... SR-mjöl hækkaði um 8,9% ... Landsbankinn hækkar um 4,4% ...
Rekstur og staða íslenskrar erfðagreiningar á huldu:
Fagfjárfestar þurfa
nákvæmar upplýsingar
I síðustu viku áttu sér stað
stærstu einstöku hlutabréfakaup á
íslandi þegar Landsbankinn, Bún-
aðarbankinn, FBA og Hof keyptu 17
prósenta hlut í DeCODE. Talið er að
verðmæti viðskiptanna hafi verið
um 6 milljarðar en kaupverðið hef-
ur ekki verið gefiö upp. Gengi bréfa
í DeCODE hefur lækkað töluvert
síðan það náði hámarki í apríl en
þá var hluturinn skráður á 26 en er
nú á 20. í Morgunpunktum Kaup-
þings hf. í gær er bent á ýmsa þætti
sem gera má athugasemd við. Upp-
lýsingastreymi frá íslenskri erfða-
greiningu er mjög lítið og í raun
Voruskiptin mun
hagstæðari en
í fyrra
Á fostudaginn í síðustu viku birti
Seðlabankinn tölur um viöskiptajöfn-
uð fyrir fyrsta árfjórðung 1999. Þar
kemur fram að hallinn hefur minnkað
verulega. Halli vöruskipta var 3,9
milljarðar á móti 12,3 miiljörðum i
fyrra. Fyrstu fjóra mánuði ársins voru
fluttar út vörur fyrir 46,7 milljarða en
inn fyrir 50,6 milljarða. Vöruskiptin
eru því 8,3 milljörðum betri en á sama
tima í fyrra. Heildarverðmæti útflutn-
ings jókst um 16,8% á fóstu verðlagi á
meðan innflutningur dróst saman um
3,1%.
Sjávarafurðir voru 69% alls útflutn-
ings og verðmæti þeirra 12% meira en
á sama tíma í fyrra. Sala á skipum og
flugvélum úr landi á einnig stóran
þátt í að virði vöruútflutnings er
meira í ár en í fyrra. Útflutningur á
iðnaðarvörum var svipaður og í fyrra.
Neysluvörur námu 20% alls inn-
flutnings og var verðmæti þeirra 12%
meira en á sama tíma í fyrra. Sam-
dráttur varð á innflutningi á eldsneyti
og smurolíum um 21% miðað við
sama tíma í fyrra.
Minnkandi vöruskiptahalli er já-
kvæðar fféttir fyrir íslenskan efnahag.
Annars vegar er hann merki um að
dregið hafi úr neyslu og fjárfestingum.
Hins vegar bendir þetta til að þær að-
gerðir sem ráðist hafi verið í til að ná
tökum á þenslu og verðbólguþrýstingi
séu að bera árangur. -bmg
vita fjárfestar ákaflega litið um hver
afkoma fyrirtækisins er. Bent er á
að stórir fagfjárfestar séu ófúsir að
fjárfesta nema ákveðnar grundvall-
arupplýsingar um rekstur liggi fyr-
ir. Hugsanlegt er að þetta breytist
með auknu framboði hlutabréfa hér
á landi. Hins vegar virðist þetta
hafa haft lítil áhrif á áhuga fjárfesta
og væntingar
um árangur
fyrirtækisins
eru miklar.
Þessar vænt-
ingar eru
hins vegar
byggðar á
sterkum
grunni því í
væntum
samningum
og í starfs-
fólki liggja
gífurlegir
möguleikar til tekjuöflunar.
Sérfræðingar Kaupþings benda á
að töluverð hlutafjáraukning hafi
átt sér stað á árinu. í fyrra var gef-
in út yfírlýsing um að hlutafjár-
aukning væri ekki á daskrá. Samt
sem áður var hlutafé aukiö og ekki
tilkynnt um það fyrr en að því kom.
Kári Stefánsson, forstjóri íslenskrar
erfðagreiningar, sagði í samtali við
DV að ekki stæði til að auka hluta-
fé frekar en hann geti ekki útilokað
það.
Hvað með krónuna
í Morgunkorni F&M er þeirri hug-
mynd velt upp hvort þessi kaup geti
haft veruleg áhrif á gengi krónunnar.
Hér er um 6 milljarða viðskipti að
ræða og ef þeirri upphæð væri allri
skipt í einu yfir í krónur er ljóst að
slíkt gæti haf veruleg áhrif á gengið.
Hins vegar benda sérfræðingar F&M
á að kaupendurnir ætli sjálfir að eiga
stóran hluta bréfanna um hríð en
þeir munu sjálfsagt skuldsetja sig í
doOurum til að halda gjaldeyrisjöfn-
uði sínum stöðugum. Einnig munu
einhverjir kaupendanna taka erlend
lán til að fjármagna bréfakaupin í
DeCODE. Ef þetta gengur svona eftir
er óvíst hvort árhif á gengi krónunn-
ar verða nokkur. -bmg
Mikið tap á bílatryggingum
Verðhækkanir á bílatryggingum
fyrr í þessum mánuði ollu miklum
titringi. Meginástæða þeirra var,
að sögn tryggingafélaganna, til
komin vegna nýrra skaðabótalaga
og slæmrar afkomu í bílatrygging-
um. Bæði neytendasamtökin og
stjómmálamenn hafa talið þessa
hækkun vera allt of mikla og telja
hana ekki geta staðist. Ef ársreikn-
ingar tryggingafélaganna eru skoð-
aðir sést að mjög mikið tap er á
ábyrgðartryggingum bíla. Þetta
mikla tap er meðal annars rakið til
þess að verð hefur lækkað eftir að
samkeppni jókst á hérlendum
markaði. Það er einkum innkoma
FÍB-tryggingar sem hefur stuðlað að
aukinni samkeppni. Ef hins vegar
þessar tölur eru skoðaðar virðist
ljóst að tryggingafélögin hafa rikan
hvata til að hækka tryggingar á bíl-
um. Svona mikið tap hlýtur að vera
fullkomlega óásættanlegt og því má
kannski segja sem svo að hækkun-
un sé eðlileg frá sjónarhóli trygg-
ingafélaganna.
Afkoma einstakra tryggingaliða
Sjóvá -Almennar Tryggingamiðstöðin vis
Eignatryggingar 153 36 8,5
Sjó- og farmtryggingar -19 251 -62
|Lögboðnar ökutækjatryggingar -141 -272 -125
Aörar ökutryggingar Ábyrgðartrygginar 82 33 -12 24 -7 64
Stysa- og sjúkratryggingar 22 55 143
Endurtryggingar 39 50 10,5
Samtals 169 132 32
Bent hefur veriö á að vátrygg-
ingaskuld félaganna sé geysilega
mikil og nota megi hana til að
lækka verð á tryggingum. Vátrygg-
ingaskuld er fé sem tryggingafélög-
in leggja til hliðar vegna áætlaðra
greiðslna tjóna sem þegar hafa orð-
ið en er eftir að greiða. Þessi skuld
hefur vaxið hröðum skrefum og
telja margir að tryggingafélögin hafi
verið einum of svartsýn í áætlunum
sínum. Hins vegar hlýtur hófleg
svartsýni að vera eðlileg í þessum
geira. Næstu skref í þessu máli
verða áhugaverð en miðað við þessa
slæmu afkomu virðist hækkun eðli-
leg því félögin hljóta að stefna að
því að hver einstakur liður standi
undir sér. -bmg
viðskipta
molar
Dollarinn ofmetinn
Margir fjármálasérfræðingar telja
að dollarinn sé ofmetinn um þessar
mundir en hins vegar lætur faÚ hans
á sér standa. Ástæða þessarar spár
er einfóld. í
Bandaríkj-
unum er
mesti við-
skiptahalli í
sögunni um
þessar mundir sem þýðir að dollarar
streyma úr landi. Þeir sem hafa
þessa dollara undir höndum munu á
endanum losa sig við þá en samt fell-
ur dollarinn ekki.
Einn þekktasti hagfræðingurinn í
Bandaríkjunum, Paul Krugman, tel-
ur að markaðurinn ofmeti dollarann
en um leið sé hann að gera mistök.
Einhvem daginn muni markaðurinn
átta sig á þessum mistökum og þann
dag falli dollarinn.
Minnsta atvinnuleysi í átta ár
Atvinnuleysi hér á landi var að-
eins 1,9 prósent í
síðasta mánuði. í
apríl var það 2,2
prósent en í maí
í fyrra mældist
atvinnuleysi 2,8 prósent. Atvinnu-
leysi hefur ekki mælst minna í átta
ár. Atvinnuleysi hjá körlum var 1,3
prósent en 2,8 prósent hjá konum.
Atvinnulausum fækkaði um 10,5 pró-
sent milli apríl og maí en atvinnu-
lausum hefur fækkað um 30,6 pró-
sent frá því í maí í fyrra. Því er spáð
að atvinnuleysi í júní geti farið nið-
ur í 1,7%.
Laun hækka lítillega
Launavísitala maímánaðar
hækkaði lítillega í síðasta mán-
uði, eða um 0,1%. Hagstofan
reiknar út launavísitöluna miðað
við meðallaun um miðjan mánuð-
inn.
Þór Þorláksson ráðin
Þór Þorláksson hefur verið ráð-
inn í starf framkvæmdastjóra
rekstrarsviðs Landsbankans. Þór
er fæddur 17. september 1958. Hann
útskrifaðist frá viðskiptadeild Há-
skóla íslands 1982 og stundaði fram-
haldsnám við háskólann i Freiburg
eftir námsárin, 1982-1984. Þór réðst
til starfa hjá Landsbankanum í jan-
úar 1985.
Byggingarkostnaður lækkar
Vísitala byggingarkostnaðar lækk-
aði um 0,2% fyrir þennan mánuð.
Hækkun vísitölunnar síðastliðna
þrjá mánuði jafngildir 0,2% hækkun
á árgrundvelli en síðastliðið ár hefur
Taktu flugið
Það skiptir ekki málí hvar þú ert. Mað IBM ThinkFad fartölvu art þú alltaf
í fararbroddi. Það er sama hvort þú sækist eftir afkastagetu,
sveigjanleika eða hagkvæmni, IBM ThinkPad íartölvur
sameina alla þessa kosti og gott betur.
S ~~~ ~rE Fljúgðu hærra mað IBM ThinkPad.
NÝHERJI
Skaítahlíö 24 • Sími 569 7700
http://www.nyherji.is