Dagblaðið Vísir - DV - 28.06.1999, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 28. JÚNÍ 1999
13
Fréttir
Stefnir í metár hjá Jafnréttisráði:
Ekki bara kerling-
ar að gera vesen
- segir Ingólfur Gíslason, ritari karlanefndar
„Ef svo heldur fram sem horfir
stefnir í metár hjá Jafnréttisráði.
Málafjöldinn það sem af er árinu er
orðinn hinn sami og allt árið i
fyrra,“ sagði Ingólfur Gíslason, rit-
ari karlanefndar ráðsins. „Fólk er
farið að sjá að starf Jafnréttisráðs
er annað og meira en kerl-
ingar að gera vesen. Þegar
ráðið er farið að vinna mál
fyrir Hæstarétti sjá menn að
það getur
borgað sig Ingólfur
að kæra.“ Gíslason.
Pilsamál Flugfreyjufélags-
ins gegn Flugleiðum var ný-
lega tekið fyrir í kærunefnd
Jafnréttisráðs og eru aðilar
nú að safna gögnum varð-
andi framhaldið.
„Ég skil nú ekki í Flugleið-
um að vera að standa í þessu þjarki
við flugfreyjur. Þeim hefði verið
nær að næla sér í alþjóðlega auglýs-
ingu með því að skikka flugliðana
til að ganga í pilsum," sagði Ingólf-
ur Gíslason.
-EIR
Heillandi kórsöngur og kirkja fylltist
DV, Hólmavík:
Blandaður kór Átthagafélags
Strandamanna í Reykjavik sótti
Strandir heim um siðustu helgi og
yljaði heimamönnum um hjartaræt-
umar með söng sínum. Kórinn hélt
tvenna tónleika í Hólmavíkurkirkju
á föstudagskvöld og í Árnesi á laug-
ardag. Efnisskráin var mjög fjöl-
breytt - lögin bæði innlend og er-
lend, létt og klassísk. Útsetningar og
söngur kórsins var eins og best
verður á kosið. Fylltu tónleikagestir
Hólmavíkurkirkju og létu óspart í
ljósi ánægju sína. Stjórnandi kórs-
ins er Þóra V. Guðmundsdóttir og
píanóundirleik annaðist Jón Sig-
urðsson. -GF
Tap á Hólma-
drangi hf.
„Við erum í viðræðum við
B.G.B. um sameiningu. Það
myndi styrkja okkur því nýtt
fyrirtæki væri með dreifðar afla-
heimildir. Við erum eingöngu í
rækju og umhverfið þar hefur
ekki verið upp á marga fiska
undanfarið," segir Gunnlaugur
Sighvatsson, framkvæmdastjóri
Hólmadrangs hf. Hólmadrangur
var að senda frá sér fréttatil-
kynningu um að tap hefði verið
á rekstri félagsins síðasta árið.
Fyrirtækið tapaði 61 milljón á
síðasta ári. Hagnaður af reglu-
legri starfsemi var um 43 millj-
ónir krónur. Hjá félaginu störf-
uðu 106 manns og námu launa-
greiðslur 204 milljónum króna.
Þrátt fyrir lélega afkomu á þessu
ári stendur fyrirtækið ágætlega.
-EIS
Ekki bara glæsileikinn, einnig
vellíðan, en aðalatriðið er öryggið!
Lituð filma innan á gler tekur ca 2/3 af hita
og 1/3 af glæru, upplitun.
Við óhapp situr glenð f filmunni og því er
minni hætta á að fólk skerist.
Ásetning meðhita - fagmenn
t (j/ó( /,/
Alltaf í góðu skapi
Gjaldkeri Háskólans í áratugi, Halldóra ísberg, lætur senn af störfum. Af því
tilefni efndi háskólarektor til kveðjuhófs. Kom fram í máli hans að hann hefði
aldrei heyrt kvörtunarorð um störf Halldóru. Um hendur hennar fara um 100
milljónir króna á mánuði og liggur mörgum á greiðslu. Páll rektor lauk máli
sínu á því, að Halldóra væri þekkt fyrir tvenns konar skap, gott skap og enn
betra skap. DV-mynd GTK
Dalbrekku 22, Kóp. S. 544 5770
A verkfæra
dögum 14.-30. júní
RSIORMSSON JJtlasCopco
WWW.UI llldÖUII.Id