Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1999, Side 16
16
Fréttir
FÖSTUDAGUR 2. JÚLÍ 1999
Smáauglýsingadeild DV er opin:
• virka daga kl. 9-22
• laugardaga kl. 9-14
• sunnudaga kl. 16-22
Tekið er á móti
smáauglýsingum
til kl. 22 til birtingar
nœsta dag
Ath.
Smáauglýsing í
Helgarblað DV
þarf þó að berast
okkur fyrir kl. 17
á föstudag
a\\t milli hirr)jnx
9/.
$rcn
Smáauglýsingar
nrai
550 5000
Taktu þátt, taktu til og góða skemmtun!
Reykjuvtkiuirorg
blómnöGil
■^UÍÍf S0RPA
Nánari upplýsingar: Verkefnastjóri sími 5632318,
www.reykjavik.is,www.reykjavik2000.is,
www.reykjavik.is,www.ys.is
Nýtímaáætlun
Samkvæmt ósk íbúa Reykjavíkur hefur nú verið lögð
fram lítillega breytttímaáætlun fyrir átaksvikur hverfanna
og er mikilvægt að borgarbúar kynni sér hvenær átakið
verður í þeirra hverfi. í lok hverrar viku verða hverfahátíðir
á vegum Bylgjunnar og borgarinnar í beinni útsendingu
á hverjum sunnudegi!
Átaksvikur hverfanna
Grafarvogur og Borgarholt:
4. -11-júlí._____________
Múlar, Háaleiti, Hvassaleiti, Kringla,
Smáíbúðahverfi, Bústaðahverfi, Fossvogur
og Blesugróf:
11.- 18-Júlí.___________
Kjalarnes:
18. - 25. júlí._________
Árbær, Ártúnsholt, Selás og Bæjarháls:
25. júlí - 1. ágúst.
Neðra-Breiðholt, Efra-Breiðholt og Seljahverfi:
1. - 8. ágúst.__________
Tún, Holt, Norðurmýri, Hlíðar og Suðurhlíðar:
8.-15. ágúst.____________
Melar, Hagar, Skjól, Grandahverfi, Skildinganes,
Háskólahverfi og flugvallarsvæðið:
15. - 22. ágúst.________
Laugarnes, Lækir, Kleppsholt, Laugarás, Sund,
Heimar og Vogar:
22. - 29. ágúst.
Miðbærinn, gamla höfnin, gamli Vesturbærinn
og gamli Austurbærinn:
29. ágúst - 5. september.
DV
Einar Gunnlaugsson fagnar hér sigri Sigurðar Arnar í heimsbikarmótinu í fyrra. Sigurður Arnar byrjaði í torfærunni
sem aðstoðarmaður hjá Einari en er nú farinn að skjóta honum ref fyrir rass. DV-myndir JAK
DV-Sport torfæran á morgun:
Spólað á Skaganum
Þriðja umferð DV-Sport íslands-
meistaramótsins í torfæru fer fram
á morgun. Til stóð að þessi umferð
mótsins færi fram á Egilsstöðum en
ákveðið var að færa Akranestor-
færuna fram um tvær vikur og
fresta Egilsstöðum ótímabundið.
Eins og jafnan hefst keppnin klukk-
an 11 um morguninn og verða þá
eknar tvær brautir. Eftir þær verð-
ur gert hádegishlé til kl. 13 en þá
heldur keppnin áfram.
Ásgeir Jamil Allansson er í forystu
DV Sport-íslandsmeistaramótsins á
Nesquick-skutlunni eftir tvær fyrstu
umferðimar og þegar DV hafði tal af
honum á þriðjudagskvöldið var hann
hinn hressasti. „Ég vil ekki breyta
bílnum frá því sem hann er núna,“
sagði Ásgeir Jamil. „Mér fmnst ég
þekkja hann svo vel.“ Var Ásgeir
Jamil að yflrfara bílinn fyrir keppn-
ina. Hafði hann fundið brotna legu-
festingu í afturdriflnu sem hann var
búinn að gera við. „Driflð hefði ör-
ugglega hrunið í fyrstu brautinni,"
sagði Ásgeir Jamil.
„Það hefði kostað mig dýrmæt stig
og valdið miklu álagi á mig og aðstoð-
armennina. Þessi keppni leggst vel í
mig og mér hefur yflrleitt gengið vel
á Akranesi,“ bætti Ásgeir Jamil við.
Fínstillingar
„Enn þá, en það verður vonandi
ekki lengi,“ sagði Einar Gunnlaugs-
son, sem er í öðru sæti, þegar hon-
um var bent á að Nesquick-skutlan,
„Götujeppinn" og Ásgeir Jamil All-
ansson héldu fyrsta sætinu í DV-
Sport íslandsmeistarakeppninni.
Einar sagðist hafa verið að vinna í
Gísli G. Sigurðsson sýnir jafnan tilþrifamikinn akstur í torfærukeppni.
Ekki tókst að ná í Gísla fyrir keppnina en ef að líkum lætur mun Komatsu-
jeppinn hans þeytast í loftköstum um gryfjurnar við Akrafjall.
því að finstilla innspýtinguna á 542
kúbiktomma Chevy-vélinni í Norð-
dekkdrekanum.
Einar hefur þurft að notast við
blöndung í tveimur fýrstu umferð-
um DV-Sport íslandsmeistaramóts-
ins. „Ætli ég verði ekki að flytja inn
sérstakt bensin,“ sagði Einar. „Flug-
vélabensínið dugir ekki þrátt fyrir
að ég setji oktanbuster í það.“
„Ég verð að taka þetta alvarlega og
beijast þar sem ég á möguleika á titl-
inum,“ segir Sigurður Arnar Jónsson
sem sigraði í annarri umferð DV-
Sport íslandsmeistaramótsins í Jós-
epsdal. Um undirbúning sinn fyrir
þessa keppni sagði Sigurður að hann
hefði gert töluvert að því að æfa sig í
að keyra, auk þess að yfirfara nýju
Dömuna.
„Það hrundi hjá mér skipting á
einni æfingunni en ég er búinn að
gera við hana. Ég vona að Daman
haldist í lagi í keppninni," sagði Sig-
urður. -JAK
Daníel G. Ingimundarson á Grænu þrumunni öslar hér drullupollinn í Jósepsdal en hann var einn þeirra sem lentu í
erfiðleikum í pollinum sem var mjög djúpur