Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1999, Síða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 02.07.1999, Síða 32
FRÉTTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 FRJÁLST, ÓHÁÐ DAGBLAÐ FÖSTUDAGUR 2. JÚLÍ1999 Geitfjárfélag íslands: Afleitt mál - segir formaður ' »*bV, Akureyri: „Þetta er alveg afleitt mál og slæmar fréttir," segir Hinrik Guð- mundsson, bóndi að Bóli í Biskups- tungum og formaður Geitfjárfélags íslands, um þann verknað að geit- hafurinn Blöndal sem býr í Reykja- hverfi í S-Þingeyjarsýslu var tekinn og geltur, að sögn án þess að eigandi hans vissi um verknaðinn. Gelding Blöndals er orðin að lögreglumáli eins og DV skýrði frá í gær og for- maður Geitfjárfélagsins er ekki ánægður með það sem gerðist. „Ég veit ekki nákvæmlega hvem- ig þetta var gert. Ef dýralæknir framkvæmir þetta og notar deyf- ingu er þetta allt í lagi en ef notuð * er klemmutöng, eins og ég hef heyrt að gert hafi verið i þesu tilfelfi, er þetta sársaukafull aðgerð fyrir haf- urinn þótt hún taki fljótt af sé kunn- áttumaður að verki," segir Hinrik. Hann segir það einnig mjög slæmt að þetta hafi verið gert, vegna þess hversu fáir geithafrar séu í landinu. „Það er verið að reyna að vernda þennan stofn sem ekki er orðinn nema um 400 dýr hér á landi og það er slæmt að missa hvern einasta hafur. Þótt eigandi ^Blöndals gæti fengið annan hafur þá er það talsvert mál, geitur geta feng- ið riðu eins og sauðkindur og það þarf leyfi til að flytja þær á milli svæða,“ segir Hinrik. -gk Nú er sólin loksins komin og þessar ungu stúlkur notuðu tækifærið og skelltu sér í sólbað. Sólarblíðan lék við höf- uðborgarbúa í gær og nýttu nokkur fyrirtæki sólinu og gáfu starfsfólki frí eftir hádegi. DV-mynd E.ÓI. Forseti borgarstjórnar: Ríkisforstjór- inn ætti að líta sér nær Helgi Hjörvar, nýkjörinn forseti borgarstjómar, segir í tÚefhi af orðum Þórarins V. Þórarinssonar, forstjóra Landssimans, í DV í gær um að Lands- síminn muni hafa vakandi auga með fyrirhugaðri flarskiptaþjónustu Orku- veitu Reykjavíkur, að rekstur og Qár- hagur Orkuveitunnar og Línu hf., dótt- urfýrirtækisins sem annast mun fjar- skiptaþjónustu, sé algjörlega aðskilið strax í upphafi. Ríkisforstjóranum Þór- ami V. Þórarinssyni hjá Landssíman- um væri nær að fara að þessu fordæmi og aðskilja rekstur Breiðbandsins og Landssimans. „Þórami færi betur að tala varlega um fjárfestingar í gagnaflutningskerf- um. Landssíminn hefur lagt milljarða í að leggja nýtt rikissjónvarp - Breið- bandið. Tekjur af hinu nýja ríkissjón- varpi em litlar, hallarekstur ríkissjón- varps Þórarins V. Þórarinssonar er mikiil og samfelldur og niðurgreiddur með símagjöldum ahnennings," sagði Helgi Hjörvar í morgun við DV. -SÁ Skipverjar á Odincovu búa við kröpp kjör: Hafa ekki efni á læknishjálp - mánuðum saman þjáðir af tannpínu. Sjómannafélag Reykjavíkur greiðir lækniskostnað Fallegt fólk í Helgarblaði DV er rætt ítarlega við dr. Halldór Þormar, vísindamann sem nýlega fann upp efni sem drepur kyn- sjúkdómaveirur og -bakteríur. Einnig er skoðað hvort útlitið skipti máli og hvort fallegt fólk njóti forréttinda. Rætt er við rússnesku tvíburabræðuma Yuri og Vadim Fjodorov, harmónikuleikara sem fara állnýstárlegar leiðir. Helgi Bjöms- ^son leikari afhjúpar drauma sína og Margrét Blöndal útvarpskona segir frá því hvað hún var ódæl. „Þeir eru búnir að kveljast í langan tíma, það gengur ekki. Við fórum með þá til tannlæknis, auk þess sem við erum búnir að fara með einn til læknis í dag,“ segir Jónas Garðarsson, formaður Sjó- mannafélags Reykjavikur, um kjör Lettanna fjórtán sem búið hafa um borð í skipi sinu við sultarkjör mánuðum saman. Dæmi eru um að menn hafi veikst en ekki haft efni á því að leita læknis. Þá hafa nokkrir verið þjáðir af tannpínu mánuðum saman án þess að hafa ráð á læknisaðstoð. Sjómannafélag Reykjavíkur hefur nú leyst úr heil- brigðisvanda- málum þeirra með því að leggja út fyrir nauðsynlegum lækniskostnaði. Sjómannafélagið hefur verið að vinna í málum Lettanna en get- ur lítið gert ann- að en lina þraut- ir þeirra meðan á biðinni stendur. Sjómennimir hafa nú vakið rækilega athygli á kjörum sínum með þvi að mála neyðarkall utan á skip sitt. „Við eram samt bundnir í báða skó því mjög erfitt er að gera Jónas Garðarsson. nokkurn skapaðan hlut. Það er alþjóð- legt að sjómenn eiga fyrsta veðrétt í skipinu ef það er boðið upp þannig að þeir ættu að geta fengið kaupið sitt ef það er gert. Aftur á móti er það mjög langt ferli og lög- fræðingurinn okkar hefur sagt að það taki marga mánuði. Við erum búnir að hafa samband út til Lett- lands og þar virðist öllum sama. Stjórnkerfið er mjög hægvirkt og allt tekur mjög langan tíma. Þeir ytra virð- ast líka hálfáhugalausir um þessi mál. Það er eins og þeir vilji ekki vita af þeim. Hið merkilega við þetta er að þetta er lettneskt fyrir- tæki og veðsett í botn hér á landi af bönkum og spari- sjóðum. Samt virðast skip- verjamir ekki eiga neinn veðrétt neins staðar. Þeir eiga inni laun fyrir fjórtán milljónir,11 segir Jónas Tannlæknir linaði þrautir lettneskra sjómanna f gær og Sjómannasambandið borgaði reikninginn. „Eigum ekki pening“ „Fyrirtækið á bara ekki pening núna. Þannig er það nú bara. Við höfum sent 10 manns heim og fengu þeir borgað upp í topp,“ segir Sæmundur Ár- elíusson en hann er eigandi skipsins. Samkvæmt heimild- um DV var verið að finna fleiri aðila til að koma inn í fyrirtækið með fjármagn en upp- ákoma skipverjanna hleypti öllu í uppnám. Hafði eigandi skips- ins samið við skip- verja Odincovu um að þeir fengju borgað síðasta fóstudag en þegar það dróst ákváðu þeir að vekja athygli á sér eins og allir vita. Hvað gerist næst er erfitt að segja en eigandi skipsins, Sæmundur Árelíus- son, á annað skip sem einnig er gert út frá Lettlandi en ekki er vitað hvemig rekstur þess skips gengur. Skipverjar Odincovu sögðust ekki fara neitt fyrr en þeir fengju borgað en hvenær það verður veit enginn. -EIS Veðrið á morgun: Súld aust- anlands Á morgun verður austan- og norðaustanátt, vindur 5-8 m/s. Súld verður með köflum austan- og suðaustanlands, en viða bjart veður annars staðar. Hitinn verð- ur á bilinu 8 til 18 stig, hlýjast suðvestanlands. Veðrið í dag er á bls. 29. Pantið í tíma dagaií Þjóðhátíð FLUGFÉLAG ÍSLANDS tg 570 3030 28

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.