Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1999, Síða 4
4
MÁNUDAGUR 5. JÚLÍ 1999
Fréttir
DV
Svik sérfræöings á Skattstofu Reykjaness:
Bókaverslun fór í fisk
- verður líklega krafinn um 30 milljónir króna
Viðskiptafræðingur sem starfaði
á virðisaukaskattsdeild Skattstofu
Reykjaness situr nú í gæsluvarð-
haldi, grunaður um stórfelld svik og
brot í starfi. Hann hefur játað að
hafa dregið sér um 11 milljónir
króna. Samkvæmt heimildum DV
féll grunur á manninn fyrir um
tveimur vikum. Hann var þó hafður
áfram í starfi þar til hann var hand-
tekinn sl. miðvikudag. Jafnframt
því sem hann var handtekinn var
húsleit gerð á heimili hans á Sel-
tjarnarnesi.
Talið er að svikin hafi átt sér stað
á um 14 mánaða tímabili. Maðurinn
hóf störf á Skattstofu Reykjaness
árið 1997 og mun fljótlega eftir það
hafa byrjað svikin. Þau virðast hafa
farið þannig fram að maðurinn átti
skrásett en óvirkt fyrirtæki, Fjörg-
ynn hf., sem skráð var á heimilis-
fang hans og fjölskyldu á Seltjarnar-
nesi. Skráður tilgangur félagsins
var bóka- og ritfangaverslun en
maðurinn tilkynnti fyrirtækjaskrá
um nýja og breytta starfsemi hjá
í þessari blokk á Seltjarnarnesi var gerviútflutningurinn á fiski stundaður.
DV-mynd S
Fjörgynn hf. - vinnslu og viðskipti segja að bókaverslunin hafi farið í
með fisk og fiskafurðir. Það má því flsk. Að svo búnu nýtti hann sér að-
!i JBBL'
stöðu sína í starfi og færði vikulega
inn upplýsingar um fiskútflutning
Fjörgynnjar hf. sem í raun átti sér
aldrei stað. Þegar virðisaukaskatts-
skýrslur bárust síðan inn í færslu-
kerfi skatta- og tollayfirvalda kom
fram í tölvunum hjá Tollstjóra að
Fjörgynn ætti inni innskatt. Þessi
innskattur var því næst greiddur
inn á reikninga Fjörgynnjar hf.
Maðurinn sem um ræðir er sem
fyrr segir viðskiptafræðingur að
mennt. í upphafi níunda áratugar-
ins keypti hann bókabúð við Hafn-
arstræti á Akureyri og rak hana
um tíma, ásamt tölvu- og mynd-
bandadeild, uns reksturinn fór í
þrot.
Reynist hann sannur að sök má
búast við að hann hljóti um
tveggja ára fangelsisdóm og verði
gert að greiða til baka tvöfalda þá
upphæð sem hann dró sér, auk
sektar og málskostnaðar. Gera má
ráð fyrir því að sú fjárhæð geti orð-
ið alls um 30 milljónir króna.
-SÁ
Suöurlandsvegur:
Alvarlegt umferðarslys
Reykjavík:
Hnífamaður
gripinn á
Keisaranum
Maður rændi aðfaranótt laug-
ardags 60 þúsund krónum í Bón-
usvídeói á Grensásvegi eftir að
hafa ógnað starfsfólki með hníf.
Starfsfólki tókst að bera kennsl
á manninn og lýsa honum fyrir
lögreglu. Lögreglan hóf leit að
manninum og fannst hann fyrir
utan veitingastaðinn Keisarann
um tuttugu mínútum síðar.
Hann hafði hent hnífnum frá
sér á leiðinni en hann fannst
skömmu seinna. Afbrotamaður-
inn var með nærri allan ráns-
fenginn á sér og hafði stungið
peningunum í sokkana. Afbrota-
maðurinn fékk að gista fanga-
geymslur lögreglunnar en hon-
um var sleppt þegar leið á
sunnudaginn og verður hann
ekki dæmdur í gæsluvarðhald.
- EIS
Mótorhjól ók aftan á kyrrstæðan
jeppa á Suðurlandsvegi í gær. Annað
mótorhjól, sem ók á eftir hinu, fór á
hliðina en ökumaður þess slasaðist
ekki alvarlega. Par sem var á hinu
hjólinu var -flutt á slysadeild en
meiðsli þess voru ekki talin mjög al-
varleg. Bæði gistu samt í nótt á
Sjúkrahúsi Reykjavíkur. Einn farþegi
sem var i jeppanum var fluttur á
slySadeild en var ekki alvarlega slas-
aður og fékk að fara heim að lokinni
skoðun. Umferð var stöðvuð á Suður-
landsveginum í nokkurn tíma og urðu
miklar tafir af þeim sökum. Að sögn
lögreglu var mikil og þung umferð á
leið í bæinn en þessi helgi er önnur
mesta ferðahelgi ársins. -EIS
Skornir niður úr snörunni
——
Uuujn/J
Þá er loksins komin niður-
staða í Lindarmálinu. Lands-
bankinn og starfsmenn Lindar
eru með hreinan skjöld sam-
kvæmt mati ríkissaksóknara.
Ekki þykir ástæða til ákæru
vegna meintrar refisverðrar
stjórnar á þessu eignarhaldsfé-
lagi Landsbankans.
Raunar er þetta gamalt mál og
flestum úr minni og hefur að
sjáifsögðu enga þýðingu lengur
og breytir ekki nokkrum sköpuð-
um hlut. Hér var um það að ræða
að bankinn stofnaði Lind til að
redda nokkrum skuldum Sam-
bands íslenskra samvinnufélaga
og voru fengnir nokkrir fram-
sóknarmenn til að annast rekst-
ur Lindar og tókst ekki betur til
en svo að fyrirtækið var lagt nið-
ur þegar tapreksturinn nam um
átta hundruð mihjónum króna.
Eitthvert fjaðrafok varð út af þessu tapi sem
blandaðist auðvitað inn í pólitískar ofsóknir á
hendur bankanum og Framsókn og sú umræða
varð til þess að bankaráð Landsbankans óskaði
sjálft eftir opinberri rannsókn á málinu. Forystu-
menn bankaráðsins sögðu frá upphafi að þarna
hefði ekkert saknæmt átt sér stað heldur bara
það eitt að fyrirtækið hefði tapað átta hundruð
milljónum sem er auðvitað ekkert mál en bank-
inn vildi hreinsa mannorð sitt og sýna fram á að
þetta hefði verið heiðarlegt tap og engin óráðsía
eða spilling eða refsivert athæfi heldur bara það
að grænn framsóknarmaður, sem líka hefði verið
grænn í viðskiptum, hefði ekki ráðið við verkefn-
ið og þvi fór sem fór.
Spilling og sukk í bankaviðskiptum varðar
ekki við hegningarlög. Ekki heldur pólitísk stýr-
ing eða pólitísk fyrirgreiðsla. Heldur ekki enda
þótt menn geri vinum sínum greiða eða fram-
sóknarmönnum greiða og það er
ekkert við það að athuga út frá
bæjardyrum ríkissaksóknara
séð, enda þótt banki allra lands-
manna ráði reynslulítinn en
ungan geðþekkan framsóknar-
strák til að leika sér með nokkur
hundruð milljónir króna af þeim
peningum sem viðskiptamenn
bankans leggja inn í hann.
AUur þessi monkíbísniss varð
til þess að Lind tapaði átta
hundruð milljónum króna en þá
var bara pakkað saman og fram-
sóknarstráknum útvegað jobb í
utanríkisráðuneytinu og fram-
sóknarráðherrann var endur-
kjörinn og fyrrverandi fram-
sóknarbankastjóri fær hreint
sakavottorð og getur núna snúið
sér að því að fá bankastjórastól-
inn i Seðlabankanum eins og
búið er að lofa honum.
Það er búið að skera þá alla niður úr snörunni,
eins og alltaf stóð til og allir vissu og banki allra
landsmanna hristir sig og snýtir sér og þakkar
fyrir niðurstöðu rikissaksóknara sem var ná-
kvæmlega eins og hún átti að vera og alltaf stóð
til- Svo sturta þeir þessu 800 milljóna króna tapi
niður í skolpræsið eins og öllum hinum óþverr-
anum. Dagfari
Hryllingur
Agúst Einarsson alþingismaður
vandar þeim ekki kveðjurnar á Vef-
síðu sinni, sem um Landssímann véla
um þessar mundir. Hann segir þar að
Landssímamálið og ný-
afstaðin forstjóraskipti
þar snúist ekkert um
rekstur eða hag-
kvæmni heldur valda-
baráttu stjórnmála-
flokka og stjórnmála-
manna sem gæti
hagsmuna tiltekinna
hópa. „Landssíminn hefur barist
gegn samkeppnisyfirvöldum af fullri
hörku og hefur fulltingi stjómmála-
manna og ráðherra til þess. Þetta mun
halda áfram og neytendur blæða,“ seg-
ir Ágúst og bætir við: „Einokun í okk-
ar fámenna landi er hryllilegt kerfi en
á meðan það er varið af stóru flokkun-
um með þegjandi samþykki hinna þá
er ekki von á góðu.“
Finni bjargað
Innan Framsóknaiílokksins telja
margir sig hafa vissu fyrir að Finnur
Ingólfsson hafi fengið Halldór Guð-
bjarnason til að segja af sér embætti
bankastjóra Landsbank-
ans gegn því að Halldór
yrðf gerður að seðla-
bankastjóra. Vinir
Halldórs segja fullum
fetum að frá þessu
hafi verið gengið.
Landsbankamálið
þróaðist hins vegar
allt öðruvísi en Finnur hugði og enn
er því óskipað í stól Framsóknar í yf-
irstjórn bankans, en hann losnaði þeg-
ar Steingrímur Hermannsson hætti.
Það er því talið pólitískt útilokað að
Finnur geti komið Halldóri þangað
enda leggjast áhrifamenn í Sjálfstæðis-
flokknum gegn því. Nú er hins vegar
búið að bjarga Finni því ríkisstjómin
hefur ákveðið að Seðlabankinn færist
undan Finni tU Davíðs Oddssonar.
Þannig er Finnur kominn af króknum
en Halldór mun una lítt glaður við
hlutskipti sitt enda engar líkur á því
að Davíð beiti sér fyrir ráðningu hans
Meiri mannúð
Græni herinn heimsótti m.a. Hofsós
fyrir nokkru og plantaði þar nokkur
þúsund trjám, málaði hús og afhjúpaði
bautastein með aðstoð vígslubiskupsins
á Hólum í Hjaltadal, sr.
Bolla Gústavssonar. Á
steininn var grafið ljóð
eftir hið ágæta borg-
firska skáld, Kristján
Árnason, en hann
heimsótti Skagafjörð
sem handverksmaður
fyrir aldarfjórðungi
og hefur dvalið þar síðan.
Eftir að hafa fylgst með framgöngu
Græna hersins á Hofsósi kastaði Krist-
ján fram eftirfarandi vísu:
Grœnn fyrir járnum geystist her
góóa viódvöl haföi hér
mannúöin var meiri þó
en mœlt er aö sé í Kósóvó.
Skuggasveinar
Nýjum þingmönnum gengur yfir-
leitt ekki vel að festa sig i sessi á Suð-
urlandi. Þrátt fyrir að hafa búið til
Framsóknarsömbuna gat ísólfur
Gylfl Pálmason þakk-
að Guðna Ágústssyni
að hafa að lokum dreg-
ið sig á þing. Hjá Sam-
fylkingunni var það
Margrét Frímanns-
dóttir sem hélt
Eyjakratanum Lúð-
vík Bergvinssyni á lífi eftir
að Ámi Johnsen tók hann gersam-
lega í nefið í Eyjum þar sem kjör-
dæmakönnun Gallups gaf Árna kring-
um 70% fylgi. Nú eru menn strax farn-
ir að tala um að Drífa Hjartardóttir,
annar maður á lista Sjálfstæðisflokks-
ins, muni við næstu kosningar falla
fyrir þriðja manninum, Kjartani
Ólafssyni, sem auk gríðarlegs fylgis
Árna í Eyjum er sagður hafa átt
drýgstan hlut í sterkri útkomu sjálf-
stæðismanna á Suðurlandi...
Umsjón Stefán Ásgrímsson
Netfang: sandkorn @ff. is