Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1999, Qupperneq 5

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1999, Qupperneq 5
5 MÁNUDAGUR 5. JÚLÍ 1999 dv Fréttir # # Hvaleyrarskóli 1 brautryðjendastarfi: Oflugt eineltisteymi - og sérstakt átak í kennslu kurteisi og aga Öflugt eineltisteymi starfaði í fyrsta skipti i Hvaleyrarskóla síð- astliðinn vetur. Þótti það starf bera mjög góðan árangur. Þá hefur verið í gangi sérstakt átak í kurteisi og agamálum í viku hverri í skólanum undanfarin ár. Skólinn hefur látið útbúa bækling sem starfið er byggt á. Efnisþættir í honum eru: kurteisi og agi, umgengnisvenjur í Hvaleyr- arskóla, skólareglur og viðurlög í öllum deildum, ferli við agabrotum nemenda, væntingar og skyldur, samvinna, samstaða og samábyrgð og loks reglugerð menntamálaráðu- neytisins um skólareglur og aga í grunnskólum. Bæklingnum er dreift til foreldra, nemenda og starfsfólks skólans. Margrét Karlsdóttir fagstjóri hef- ur haft umsjón með umræddu starfi, svo og eineltisteyminu; í því eru, auk hennar, hjúkrunarfræðing- ur, námsráðgjafi, sérkennari og for- stöðumaður félagsmiðstöðvarinnar Versins sem er til húsa í skólanum. Teymið hittist reglulega. Komi upp samskiptavandamál af einhverjum toga í bekk þá reynir viðkomandi kennari að leysa það. Sé málið stærra kemur til kasta teymisins og er hver einasti nemandi í viðkom- andi bekk tekinn í einstaklingsvið- töl. Lögð er áhersla á að fylgja mál- inu vel eftir. Eineltisteyminu hefur tekist að uppræta þau tilfelli sem komið hafa upp í skólanum í vetur. Aðrir skólar hafa sýnt þeim þætti starfs Hvaleyrarskóla að koma skipulega í veg fyrir einelti mikinn áhuga. Hafa komið sérstakar fyrir- spurnir til skólans vegna starfsemi eineltisteymisins. Hvað varðar átak skólans í kurt- eisi og agamálum segir Helga S. Friðfinnsdóttir skólastjóri að búið sé að þaulyfirfara reglur skólans. Foreldrum nemenda verði sendar þær og þeir beðnir um að skrifa undir þær þegar skólinn hefst. Börnin eiga svo að koma með þær undirritaðar daginn eftir. Með þessu sýna foreldrar að þeir eru hlynntir og samþykkja viðurlög skólans við agabrotum. Þar með er skólinn búinn að fá foreldra í sam- starf sem skólayfirvöld telja nauð- synlegt. Helga segir að agi og góður námsárangur haldist tvímælalaust í hendur. Þess má geta að nemendur í Hvaleyrarskóla voru með hæstu einkunnir á samræmdum prófum í vor af grunnskólunum fimm í Hafn- arfirði. -JSS Bið eftir seðlabankastjóra Enn hefur ekki ver- ið gengið frá skipan seðlabankastjóra eftir að Steingrímur Her- mannsson lét af störf- um fyrir rúmu ári. Ólafur G. Einarsson, formaður bankaráðs Seðlabankans, sagði í samtali við DV að meðan lög gerðu ráð fyrir að þrír seðla- bankastjórar væru í bankanum reiknaði hann með að von væri á manni í stað Stein- gríms. „Ég veit ekkert hvernig staðan er því þetta er ekki á forræði ins. Þetta er alfarið mál bankamálaráð- herrans þannig að bankaráðið hefur ekkert frumkvæði, aðeins umsagnarað- ild þegar þar að kemur,“ sagði Ólaf- ur. Hann taldi að það væri óþægilegt að hafa aðeins tvo seðlabankastjóra að óbreyttum lögum. „Þeir tveir seðla- bankastjórar sem nú eru hafa skipt á milli sín þeim störfum sem Steingrímur bankaráðs- sinnt sem gengur ágætlega en við Ólafur G. Einarsson, for- maður bankastjórnar Seðlabankans. reiknum með hinum þriðja," sagði hann. Nafn Halldórs Guðbjarna- sonar, fyrrum bankastjóra Lands- bankans og fyrrv. stjórnarfor- manns Lindar, hefur aðallega ver- ið nefnt sem nafn hugsanlegs seðlabankastjóra. Aðilar sem DV ræddi við töldu líklegt að nokkur bið yrði þar til gengið yrði frá ráðningu nýs bankastjóra. í stjórnarsáttmála stjómarflokk- anna er gert ráð fyrir að Byggða- stofnun verði færð undir við- skiptaráðuneytið og Seðlabankinn undir forsætisráðuneytið en það er ekki talið hafa áhrif á það að fulltrúi Framsóknarflokksins fái stól bankastjóra. -hb „Öll búum við í gulum kafbáti," sungu Bítlarnir eftirminnilega hér um árið. Þessir kafbátar eru að vísu gráir en ekki dró það úr aðdráttaraflinu þar sem fjöldi Reykvíkinga lagði leið sína niður að Faxagarði í gær til þess að berja þá augum. Kafbátarnir eru í för með þýska herskipinu Meersburg og þeir elstu í þýska flotanum, eða 25 ára gamlir. DV-mynd S Fasteignasala Reykjavíkurvegi 62 sími 5651122 Fax 5651118 valhus@Islandia.is Valgeir Kristínsson hrl., lögg. fasteignas. Kristián Þórir Hauksson sölumaður og Kristián Axelsson sölumaður. Krókahraun - Hf. Góð 3ja herbergja 94 fermetra í búð á þessum frábæra stað, ásamt bíl- skúrsrétti. Fyrstur kemur fyrstur fær. Verð 9,2 millj. Hafnfirðingar, ath. Okkur vantar allar stærðir og gerðir eigna á skrá! Einbýli, raðhús, parhús og hæðir Sr» Öldutún — sérhæð. Falleg 122 fm efri sérhæð í góðu þríbýli. Fjögur góð svefnherbergi. Húsið er klætt að utan með stení- ; klæðningu. Verð 11,5 millj. Grænahlíð - Rvík. Vorum að fá í einkas. stórglæsilega 110 fmhæð á besta stað í Hlíðunum. Nýlegt parket á gólfum, góðar innréttingar ogmjög gott útsýni. Þetta er toppeign. Verð 11,7 millj. Lækjarhjalli - Kóp. Um er að ræða 218 fm sérhæð á besta íKópavogi. Gegnheilt parket á gólfum, góð lofthæð, sérsmíðaðar innréttingar,vönduð tæki, flísalagður bílskúr, tvennar flísalagðar svalir. Þetta ereign í algjörum sérflokki. Verð 18,9 millj. Holtið - Hf. Fallegt parhús á góðum stað á holt- inu, samtals 190 fm,þar af 28 fm bíl- skúr. Fallegar innréttingar og gólfefni. isgiijaPÉfe^1' ■ Gamli bær - Hf. Fallegt 5 herbergja 144 fm einbýli sem hefur verið gert upp á smekkle- gan máta. Góður garður. Bílskúrsréttur fylgir eigninni. Viðarrimi -á einni hæð. Fallegt og vel frágengið raðhús á einnihæð, samtals um 150 fm, þar af 23 fm bílskúr. Fallegar innréttingar og gólfefni. Sólpallur með heitum potti. Asar - Rvík. Gott stórt einbýlishús á tveimur hæðum á góðum stað.Möguleiki er á að skipta húsinu í 2 íbúðir og það eru til teikningar. Verð 23,0 millj. 4 til 7 herb. Norðurbær - Hf. Góð 5 herb. íbúð á 4. hæð ásamt bílskúr. íbúðin ermjög björt og skemmtileg, Elnstakt útsýni. Verð 9,9 millj. Garðabær - eldri borgarar. Falleg 4ra her- bergja í búð í lyftublokk. Verö 9,2 millj. Smárinn - Kópav. Góð 4ra herbergja íbúð í nýju fjölbýli. Skilast tilbúin undir tréverk eöa fullbúinn. Vesturbær - Rvk. Stórglæsilegar lúxusíbúðir, 2ja-3jaog 4ra herbergja meö bílskúr. Húsiö skilast fullbúið jafnt að utan sem innan. Seljahverfi - Rvk. Mjög góð 3ja herb íbúö í snyrtilegu fjölbýli á2 hæðum ásamt stæði í bílskýli. Verð 8,0 millj. Laugavegur - Rvík. Góð 3ja herbergja íbúð í nýlegu fjölbýli á 3.hæð. Fallegt útsýni. Verö 9,5 millj. Tjarnabraut - Hf. Góð 3ja horbergja íbúð í kjallara viö þessa skemmtilegu götu í Hafnarfirði. Verð 5,7 millj. 3ja herb. Hraunstlgur - Hf. Góð 3ja herbergja Ibúð i góðu húsi viö þessa fallegu götu. Nýtt parket á gólfum og nýjar fallegar innréttingar. Þverbrekka - 4, S Kóp. Vorumaðfáí .' > Jv , . einkasölu góða ■ 1 2 ij ■ 3jaherbergja ' 8 ; Ibúðál.hæðl L ST | ■' snyrtilegri lyf- ,, f tublokk. t | Tm w 1 • Verð 6,2 millj. 2ja herb. UJ P . Vorur wm m -JÉ.. Miöbær - Rvík. Vorum að fá i einkas. glæsilega íbúð í bakhúsi í miðbænum. (búðin er ca 54 fm. Parket á gólfum. Verð 5,1 millj. Reykjavíkurvegur - Hf. Nýuppgerö 2ja herbergja íbúð. Allar innréttingar og gólfefni eru ný. Miðtún - Rvík. Góð tveggja herbergja íbúð á jarðhæð, samtals 83 fm. Allt sér. Verð 7,0 millj. Oldugata - Hf. Góð 2ja herbergja risíbúð I 2ja íbúða húsi. Góðíbúð I góðu hverfi. Oldugata - Hf. Vorum að fá I sölu góöa, ósamþykkta, 2ja herbergja 58 fm ibúö I kjallara í tvíbýlishúsi. Atvinnuhúsnæði Aðalstræti - Rvík. Mjög gott 1.600 fm skrifstofu- og iðnaðarhúsnæði ítraustri útleigu. Byggingarmöguleiki á lóð. Flatahraun - Hf. Um er að ræða skrif- stofuhúsnæði, samtals 90 fm. Verð 6,7 millj. Flatahraun - Hf. Um er að ræða 105 ferm ásamt 45 ferm millilofti.Stórar Innkeyrsludyr og hátt til lofts. Verð 7,2 millj. Grettisgata - Rvtk. Samtals 166 fm atvinuhúsnæði sem er I dag í góðri leigu. Verð 13 millj. Áhvíl 10 millj. Möguleiki á að taka 3 millj f viðskiptaneti. Höfði - Rvk. Um 400 ferm húsnæði sem hentar vel undir t.d.bifvélaverk- stæði, sprautuklefi á staðnum, wc og skrifstofa. Góðar innkeyrsludyr. Verð aðeins kr 49.700 á ferm eða kr. 19,9 millj. Oskað er eftir • 2ja-3]a-4ra herbergia ibúðum i norðurbæ Hf. • Allar gerðir elgna í Setbergslandi - Hf. • Vantar allar gerðlr eigna i Garðabæ. • Vantar allar gerðir eigna i Kóp.-Rvík

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.