Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1999, Page 8
MÁNUDAGUR 5. JÚLÍ 1999
Bílakaup
Bílasala
Innflutningur
Ráðgjöf
Sími 553 5555
GSM 899 5555
Fax 581 2474
Til sölu:
SsangYoung Musso E32
'96, svarbl., ek. 84 þús. km.
Mjög vel búinn bíll.
Til sölu:
Opel Fonterra 2.8 TDI '96,
ek. 72 þús. km, mjög vel búinn
og fallegur bíll.
Bílastill er bílasala fyrir fólk sem gerir kröfur um glæsilegt útlit og gæði,
_______á góðu verði.lnnfl. notaðra, nýlegra bila á hagstæðu verði._
^ Löggildur söluaðili - Útvegum bílalán. v
afmælistilboð
í tilefni af 75 ára afmæli Metabo bjóðum við 20% afslátt
af afmælisframleiðslu eftirtalinna véla.
641 03375
600 wött, borvél með
Impulse (skrúfulosun)
og sjálfherðandi Futuro Plus patrónu.
Frábær borvél!
Verðnúkr. 11.535
641 05575
800 wött, hjólsög sem sagar
frá 0-52 mm á dýpt.
Metabo S-kúpling.
Smiðir, skoðið þessa!
Verðnúkr. 13.776
641 04475
500 wött, bor- og brotvál.
Hörkuvél!
Verð nú kr. 21.978
naust
Sími 535 9000 • Fax 535 9040 • www.bilanaust.is
Útlönd
Deilt um friðargæslu í Kosovo:
Rússar sagðir
æfir út í NATO
Sendinefnd NATO hélt í gær til
Moskvu til að ræða við rússneska
ráðamenn um hlutverk Rússa í frið-
argæslu í Kosovo.
Rússar höfðu undirbúiö flutning
friðargæsluliös sem senda átti til
Kosovo þegar tilkynning barst frá
NATO um að flutningi liðsins yrði
frestað.
Rússneskir ráðamenn hafa ekki
sent frá sér formlega yfirlýsingu
vegna málsins en heimildir herma
að þeir séu æfir út í NATO. Þeir
hafa gert mikið úr þætti sínum í
friðargæslu heima fyrir og þykir
fresturinn vera ögnm af hálfu
bandarískra yfirvalda. Þá munu
rússneskir ráðamenn óánægðir með
framkomu Ungverja, Rúmena og
Búlgara sem að beiðni NATO neita
þeim um að fljúga um lofthelgi sína.
Talsmaður rússneska utanríkis-
ráðuneytisins sagði í gær að 100
friðargæsluliðar yrðu sendir áleiðis
til Kosovo í dag.
Talsmenn NATO segja vonir
standa til að viðræðumar í dag
verði til þess að lausn finnist á mál-
inu og hægt verði að ákvarða hvert
starfssvið Rússa verður í friðar-
gæslunni. Rússar hafa um hríð
haldið flugvelli einum í grennd við
Pristínu en við það eru Bandaríkja-
mann afar ósáttir.
Þjóðhátíðardagur Bandaríkjamanna var haldinn hátíðlegur í gær og notaði
George Bush, sem sækist eftir tilnefningu repúblikana til forseta, tækifærið
og brá sér í skrúðgöngu í New Hampshire. Hér heilsar Bush upp á Sám
frænda, sem að sjálfsögðu lét sig ekki vanta í gönguna. Símamynd Reuter
Atvinna í boði
Frjáls fjölmiðlun og DV óska eftir að ráða í eftirtalin störf:
Umbrot
Vinna við umbrot og útlitshönnun
Þekking á Quark, Freehand, Photoshop, Word og
Netinu nauðsynleg.
Grafísk hönnun
Gerð grafa, myndvinnsla og fleira
Þekking á Quark, Freehand, lllustrator, Photoshop,
Word, Netinu og öllum helstu forritum til grafagerðar.
í boði eru fjölbreytt störf í nútíma-fjölmiðlaumhverfi
og þátttaka í spennandi umbótastörfum.
í báðum tilfellum er um vaktavinnu að ræða.
Eldri umsóknir óskast endurnýjaðar.
Umsóknir berist DV, Þverholti 1 1, merkt: DV - atvinna.
FRJÁLS 4 Ifjölmiðlun hf.
11
Byssumaður
myrðir tvo
Lögregla í Chicago hefur um
helgina leitað manns sem grunað-
ur er um að hafa skotið tvo til
bana og sært sjö manns, þar af
einn alvarlega.
Fyrsta tilræðið átti sér stað á
fóstudagskvöld þegar maðurinn
skaut Ricky Byrdsong, þekktan
hafnaboltaþjáifara, til bana þar
sem hann var á göngu ásamt
börnum sínum. Á laugardag varð
hópur gyðinga fyrir árás manns-
ins og særðust sex.
Svo virðist sem maðurinn ferð-
ist um og skjóti á fólk úr bíl sín-
um og í gær barst leikurinn til
Bloomington í Indíanaríki. Þar
drap tilræðismaðurinn mann
sem var aö koma úr kirkju.
Lögregla telur sig hafa vissu
fyrir hver maðurinn er og stend-
ur nú yflr áköf leit í miðvestur-
ríkjum Bandaríkjanna.
Nick Leeson
fullur iðrunar
Fjármálabraskarinn Nick
Leeson kom heim til Bretlands í
gær eftir að hafa setið í fangelsi í
Singapúr í fjögur ár. Vegna við-
skipta Leesons fór einn elsti banki
Bretlands, Baringsbankinn, á
hausinn.
Leeson kvaðst við komuna sjá
eftir öllu saman og viðurkenndi að
hann hefði hegðað sér heimsku-
lega. Hann bætti við að hann hefði
tekið út sína refsingu og nú vildi
hann fá að lifa i friði.
Stuttar fréttir i>v
Fimmtíu taldir af
Óttast er flmmtíu manns hafl
farist í sjóslysi í Kyrrahafi,
skammt undan strönd Chiapas í
Mexíkó á fóstudag. Fólksins hefur
verið leitað alla helgina en án ár-
angurs.
Meö alltof há laun
Launagreiðslur til Elísabetar
Englandsdrottningar hafa verið
ofreiknaðar síð-
ustu átta árin.
Að sögn breska
fjármálaráðu-
neytisins hafa
Elísabet og eig-
inmaður henn-
ar fengið um
tveimur millj-
örðum íslenskra
króna of mikið. Ástæðan kvað
vera sú að gert var ráð fyrir meiri
verðbólgu en síðar varð á um-
ræddu tímabili.
Kínverjar tvöfalt eldri
Lífslíkur Kínverja hafa tvöfald-
ast á hálfri öld. Nú getur kin-
verskur karlmaður gert ráð fyrir
að verða 75 ára og kona 79 ára.
Árið 1951 urðu Kínverjar að með-
alatali ekki eldri en 42 til 45 ára.
Jrakar hæfa flugvél
Vflrvöld í írak segjast hafa
sannanir fyrir því að vestræn
flugvél hafi verið skotin niður
þegar hún var á flugi yfir norður-
hluta landsins. Bandaríski flug-
herinn segir þetta rangt.
Sígaunar flýja
Um 120 sígaunar, ættaðir frá
Slóvakíu, komu til Finnlands á
föstudag þar sem óskuðu eftir
pólitísku hæli. Fólkið á ættingja í
Finnlandi.
Ráðherra á ný
David Levy verður utanríkis-
ráðherra í nýrri ríkisstjórn Ehuds
Baraks. Levy
var utanríkis-
ráðherra í ríkis-
stjóm Benja-
mins Netanya-
hus en sagði af
sér fyrir 18 mán-
uðum vegna óá-
nægju með
framgang friðar-
viðræðna við Palestínumenn.
Levy gerðist liðsmaður Verka-
mannaflokksins fyrir kosningarn-
ar sem haldnar voru í maí sl.
Bændur mótmæla
í brýnu sló með belgískum
bændum og lögreglu í Brussel í
gær. Bændurnir, sem vom um
fimm þúsund, kröfðust þess að yf-
irvöld greiöi þeim skaðabætur
vegna díoxínhneykslisins.
Beöiö eftir eldgosi
Neyðarástandi hefur verið lýst
yfir í grennd við fjalliö Mayon á
Filippseyjum en talið er að eld-
gos heflist þar á næstu dögum.
Jarðskjálftar hafa verið tíðir og
er unnið að brottflutningi íbú-
anna.
Clinton hittir Sharif
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
átti í gær fund meö Nawaz Sharif,
forsætisráðherra Pakistans. Leið-
togarnir ræddu málefni Kasmírs
en Indverjar hafa hafnað tilboði
um viðræður til lausnar deilunni.
Talar gegn ofbeldi
Kúrdíski skæraliðaleiðtoginn
Abdullah Öcalan, sem dæmdur
hefur verið til dauða í Tyrklandi,
hvatti liðsmenn
sína í gær til að
gripa ekki til of-
beldisaðgerða.
Öcalan sagði
slíkar aðgerðir
auka líkurnar á
að dauðadómn-
um yfir sér yrði
fullnægt. Liðs-
menn Öcalans
hafa undanfarið hótað hrinu
hryðjuverka vegna daúöadóms-
ins.
Ástæðan kvað