Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1999, Side 10
10
MÁNUDAGUR 5. JÚLÍ 1999
Fréttir________________________________________________________________________________________pv
Útgerö frystitogarans Júlíusar Geirmundssonar ÍS:
Tapaði 100 milljónum á ári
- furða mig á öllum þessum skuldum, segir Guöni Geir Jóhannesson
Sameining íshúsfélags ísfirðinga
hf. og Gunnvarar hf. á ísafirði við
Hraðfrystihúsið hf. í Hnífsdal er að
verða að veruleika. Það var þó ekki
gert með góðu og gríðarleg skulda-
staða fyrrnefndu fyrirtækjanna hef-
ur fengið ýmsa til að reka upp stór
augu, ekki síst suma innanbúðar-
menn sem töldu útgerðarþáttinn
vera að mala gull.
Mánudaginn 29. júní sl. afsöluðu
eigendur sér 2/3 hlutabréfa í íshús-
félagi ísfirðinga hf. og Gunnvöru hf.
eignarhlut sínum til íslandsbanka.
Fór þessi gjörningur fram undir
miklum þrýstingi bankans eftir að
ljóst var að meirihlutaeigendur fyr-
irtækjanna gætu ekki náð sam-
komulagi við eigendur Hraðfrysti-
hússins í Hnífsdal um sameiningu
fyrirtækjanna.
„Ég kom fyrst að þessu máli fyrir
nokkrum árum þegar Gunnvör
keypti Ishúsfélagið og ég tók þá að
mér að sitja í varastjórn. í vetur var
skipt um stjórn, eins og menn vita,
og gerðar ýmsar ráðstafanir í því
augnamiði að rétta reksturinn við.
Fyrirtækin voru þá komin að fótum
fram og orðin verulega skuldug.
Okkur tókst að snúa vörn í sókn
og losa um eignir upp á 160 milljón-
ir og greiða lausaskuldir félagsins.
Við tókum þá mjög erfíðar ákvarð-
anir, sögðum upp fólki, eftir að ljóst
var að í frystihúsinu voru allt of
margar hendur um hvern fisk. Þá
var húsið 10 til 20 árum á eftir tím-
anum hvað alla hagræðingu varðar.
Við settum þá í gang ákveðna áætl-
un sem við fylgdum síðan stíft eftir.
Jafnhliða því vorum við að leita fyr-
ir okkur við önnur fyrirtæki um
samvinnu eða sameiningu.
Sameining mistókst
Við fórum í samningaviðræður
um samvinnu eða hugsanlega sam-
einingu við Sjólastöðina í Hafnar-
firði. Þær viðræður stóðu í nokkrar
vikur en ekki gekk saman. Ef af
slíkum samruna hefði orðið hefði
hugsanlega komið hér inn á svæðið
sex þúsund tonna kvóti og tvö skip,
frystitogarinn Haraldur Kristjáns-
son og Sjóli. Þvi miður gekk hins
vegar ekki saman með okkur.
Eftir þetta fórum við í sameining-
arviðræður við Hraðfrystihúsið hf. í
Hnífsdal sem reyndar hafði staðið
lengi yfir en með hléum. Það kom
þó fljótlega í ljós að okkur greindi
verulega á í einu atriði en það var
hvar landvinnslan ætti að vera. Ég
var alla tíð harður á þvi að hún ætti
að vera í húsnæði íshúsfélags ísfirð-
inga. Ég taldi þá og tel enn að það sé
mun betra húsnæði en húsið í
Guðni Geir Jóhannesson, fyrrver-
andi stjórnarformaður íshúsfélags
ísfirðinga hf. DV-mynd Hörður
Hnifsdal.
Mín rök voru einfaldlega þau að
það var búið að fjárfesta þar í laus-
frysti upp á 50 milljónir króna og
húsið var með vinnslu sem gekk
mjög vel. Þar var um að ræða
pækilsaltaðan fisk sem frystur var á
Spánarmarkað þar sem markaður-
inn var vaxandi og ágæt framtíð í
því. Það batterí kemst að mínu mati
ekki fyrir í húsunum úti í Hnifsdal.
Hins vegar kemst vinnslan í Hnifs-
dal vel fyrir í húsnæði íshúsfélags-
ins. Þetta er hins vegar mitt per-
sónulega mat og auðvitað blandast
inn í þetta miklar tilfinningar.
Gríðarlegar skuldir
Eftir að ég kynnti mér stöðu fyr-
irtækjanna nánar furðaði ég mig á
því hversu skuldug þau voru í raun
og veru. Opinberlega hefur verið
talað um að samanlagðar skuldir ís-
húsfélagsins og Gunnvarar hafi ver-
ið 2,5 milljarðar króna. Ég hygg að
það sé nokkuð nærri lagi.
Það sem ég taldi vera gullkálfinn
í dæminu, Júlíus Geirmundsson ÍS,
skuldaði þá 1,7 milljarða króna. Það
er þrátt fyrir að skipið skilaði ná-
lægt andvirði sínu í aflaverðmæti á
hverju ári. Þetta samsvarar um 100
milljóna króna tapi á ári.
Þar sem eigendur að tveim þriðju
hluta í fyrirtækjunum töldu að
vegna ágreinings um bolfiskvinnsl-
una næðu fyrirtækin ekki saman
væri best að eigendur Gunnvarar og
íshúsfélagsins seldu íslandsbanka
sinn hlut. Það var siðan ákvörðun
eigenda að fara þessa leið og það
Óvæntur gestur frá Síberíu:
„Aðmíráll" heimsótti Akureyri
DV, Akureyri:
„Ég var í reykpásu úti í portinu
hér á bak við þegar ég sá þetta
stærðar fiðrildi og tókst að hand-
sama það og koma því krukku,“ seg-
ir Ágúst Axelsson, starfsmaður
verslunarinnar Radíónausts á Ak-
ureyri, en hann fékk óvæntan gest í
heimsókn til sín í reykpásuna.
Um var að ræða stórt mjög litfag-
urt fiðrildi, ólikt þeim fiðrildum
sem við eigum að venjast að sjá hér
Ágúst Axelsson og Róbert Friðriks-
son í Radíónausti á Akureyri með
„aðmírálinn" í krukku á milli sín.
DV-mynd gk
á landi. Starfsmenn Radíónausts
leituðu til Akureyrarseturs Nátt-
úrufræðistofnunar og fengu þar þær
upplýsingar að um væri að ræða
svokallað aðmírálsfiðrildi og yfir-
gnæfandi líkur væri á því að það
hefði borist hingað til lands frá Sí-
beríu eftir að hafa lent í uppstreymi
og háloftavindum sem hefðu feykt
því til íslands.
„Aðmírállinn" er með 5-6 cm
vænghaf og er afar litfagur sem fyrr
sagði. Fiðrildið mun enda lífdaga
sína í hjá Náttúrufræðistofnun á
Akureyri þar sem það verður svæft
og síðan „sett upp“ og haft til sýnis
fyrir gesti safnsins.
-gk
var gert að skilyrði við íslands-
banka að kvótinn yrði ekki seldur
burt úr byggðarlaginu. Önnur skil-
yrði gátu eigendur ekki sett. Þetta
skilyrði var svo efnt með því að
selja Hraðfrystihúsinu hf. í Hnífsdal
þennan meirihluta.
Nú er þetta búið og gert, en það
sem kom mér gríðarlega á óvart
hversu snöggir menn voru að segja
upp með það í huga að loka íshúsfé-
laginu. Ég hélt nú að þeir myndu
kannski halda rekstrinum eitthvað
áfram og skoða hvort reksturinn í
húsinu væri raunhæfur. Það var
búið að gera samanburð á rekstri ís-
húsfélagsins og Hraðfrystihússins í
Hnífsdal. Þá kom í ljós að þau stóðu
nánast jafnfætis hvað framlegð
snerti. Það er þvi að mínu mati mis-
skilningur að halda því fram að
frystihúsið í Hnífsdal væri eitthvað
betui- rekið eftir að búið var að fara
í þessar tiltektir hjá íshúsfélaginu,"
sagði Guðni Geir Jóhannesson.
-HKr.
Bréf lífeyrissjóöa:
Fjármálaeft-
irlit rök-
styðji neitun
Úrskurðarnefnd um upplýs-
ingamál hefur skrifað Fjármála-
eftirlitinu og óskað eftir að stofn-
unin geri athugasemdir við kæru
blaðamanns DV sem óskar að fá
aðgang að bréfaskriftum eftirlits-
ins og lifeyrissjóða Vestfirðinga
og Vestmannaeyja vegna kaupa á
hlutabréfum í fyrirtækjum í
heimabyggð.
í bréfi Kristjáns Andra Stefáns-
sonar, formanns úrskurðarnefnd-
arinnar, er Fjármálaeftirlitinu
gefinn frestur tU að skila athuga-
semdum við kæru blaðamanns og
koma að frekari rökstuðningi fyr-
ir neitum sinni að afhenda gögn-
in fyrir kl. 12 á hádegi mánudag-
inn 5. júlí næstkomandi.
Jafnframt óskar Úrskurðar-
nefnd eftir því að henni verði lát-
in í té sem trúnaðarmál afrit af
þeim gögnum sem kæran lýtur
að. -JBP
HafnarQörður:
Búðareigendur vilja Tívolíið burt
- menn almennt ánægöir, segir bæjarstjóri
Tívolíið hans Jörundar Guð-
mundssonar er nú í Hafnarfiröi,
nánar tiltekið á planinu fyrir
framan verslunarkjarnann Fjörð-
inn. Tívolíið var á sama stað fyrir
ári, flestum Hafnfirðingum til
mikillar ánægju, en þó ekki öllum.
Sumir verslunareigendur hafa
kvartað mikið yfir yfirgangi bæj-
arstjómar og segja það fráleitt að
planta tívolíinu þarna, það skapi
mikið ónæði og minnki sölu hjá
þeim til muna.
Stórtöpum á þessu
„Það er einfaldlega verið að
skemma fyrir öðrum. Ég þurfti að
loka kl. 16 í fyrra. Fólk kemur ekki
inn í búðina þegar það getur ekki
talað saman fyrir hávaða. Það var
ótrúlega mikil söluminnkun á þess-
ari viku sem tívolíið var hérna,“
segir Jón Ásgeir Jóhannesson,
verslunarmaður í Koffortinu við
Fjarðargötu.
„Það er eins og það sé ekkert til-
lit tekið til okkar búðareigenda sem
stórtöpum á þessu. Ég sendi Magn-
Tívolíið hans Jörundar Guðmundssonar er nú í Hafnarfirði, nánar tiltekið á planinu fyrir framan verslunarkjarnann
Fjörðinn.
úsi bæjarstjóra harðort bréf í fyrra
og hann lofaði okkur að þetta
mundi ekki vera þarna aftur. það
er á mörkunum að maður pakki
saman og hypji sig. Þar að auki er
þetta stórhættulegt. Það sannast
best á slysinu sem varð hérna í
fyrra þegar bíll keyrði á lítið barn
hjá tívolíinu. Það væri miklu vitur-
legra að hafa þetta niðri á höfn.“
Góðar undirtektir
„Menn eru almennt mjög ánægðir
með veru tívolísins þarna á planinu
fyrir utan Fjörðinn. Það var þarna á
sama stað í fyrra við góðar undirtekt-
ir bæjarbúa. Ég veit ekki betur en að
flestir verslunarmenn fagni þessu
enda trekkir tívolíið að mikið af fólki
og allt lifnar við. Það voru einhverjir
ósáttir. Þetta mál hefur verið heimil-
að af bæjarráðinu, búið að ræða það
vel og vandlega, síðast í gær. Bæjar-
búar hljóta að fagna því þegar eitt-
hvað er að gerast í hjarta bæjarins,"
sagði Magnús Gunnarsson, bæjar-
stjóri í Hafnarfirði, í gær. -hvs