Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1999, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1999, Page 15
MÁNUDAGUR 5. JÚLÍ 1999 15 I leit að samnefnara Þátttaka var lítil í kosningunum til þings Evrópusambandsins; innan við helmingur at- kvæðisbærra manna nennti að kjósa, í Bret- landi aðeins fjórði hver maður. Yfir þessu hafa menn verið að klóra sér bak við eyru og flestir tekið upp þá skýringu að almenningur sé bæði þreyttur á stjórn- málum og trúi síst á að það skipti máli að kjósa menn á þing ESB enda sé það valdalítið. Skiplagt að ofan? Vikuritið Economist — bætti því við í sinni umfjöllun, að það væri ekki enn búið að smíða hið evrópska ídentitet eða sjálfumleika, með öðrum orðum: ekki búið að kenna þegnum Evrópuríkja nokkuð sterka samkennd og samstöðu um að þeir séu fyrst og síðast Evrópu- menn. Blaðið sagði líka sem svo, að það þýddi lítið að láta stofnanir ýmiss konar smíða þennan sam- nefndara upp á háu valdaplani og senda hann svo niður til almenn- ings og út um allar þorpagrundir. Kjallarinn Arni Bergmann rithöfundur „Karlamagnús hinn franski er orðinn að langafa Evrópusam- bandsins - og þegar áfram er haldið á sömu braut verður Júlíus Sesar langalangafi þess Napóleon afinn.“ Nei, sagði blaðið, Evrópusam- kenndin verður að skapast smátt og smátt niðri við grasrætumar og það fekur tíma. Economist virtist sem sagt ekki hafa mikla trú á því að Evrópu- menn fyndu andlegt samfélag hrislast um sig við að kjósa til Evrópuþings eða hugsa um Evr- una og fallandi gengi hennar gagn- vart dollara. Ekki heldur í þeirri vmnu sem unnm er að því að berja sam- an kennslubækur í sögu þar sem fortíð- in er túlkuð sem tuttugu alda barn- ingur við að koma á hinni evrópsku samkennd, stríð sem lýkur loks far- sællega með stofn- un ESB; Við sjáum stundum ávæning af þessari endur- smíð sögunnar í vondum sjónvarps- myndum samevr- ópskum þar sem til dæmis Karlamagn- ús hinn franski er orðinn að langafa Evrópusambandsins - og þegar áfram er haldið á sömu braut verður Júlíus Sesar langalangafi þess en Napóleon afinn; hins veg- ar eru menn enn í dag feimnir við að nefnda pabbann, þvi of margir koma til greina og ekki allir frýni- legir. Fótboltinn og sjónvarpið Blaðið breska nefhir allt aðra hluti og nálægari almenningi og einkum þrennt sem verða mætti til að hin evr- ópska samkennd geti eflst stór- lega: Ef allir þegnar ESB væru komnir með eina og sömu gjaldskrá fyrir GSM-síma. Ef Evrópumenn venjast á að halda með knatt- spyrnufélögum óháð þjóðerni, yfir landamæri. Og ef að Evrópumenn fara að horfa á sömu sjónvarpsrásir. Ég veit ekki, GSM-símtöl verða sjálfsagt jafnódýr um allan heim fljótlega, svo varla styrkir það Evrópuvitundina sérstaklega. Menn hafa lengi haldið með til dæmis einhverjum enskum fót- boJtafélögum þótt þeir byggju í Noregi eða á íslandi, og það hefur en Hvað er hver og hver er hvað og hver er ekki hvað? enn ekki dregið úr áhuga á eigin landsliði (en það er ljóst að Economist telur það standa Evr- ópuvitund fyrir þrifum ef menn halda um of í slíka þjóðernis- hyggju). Og bráðum hverfur kannski öll samstaða með fótbolta- liðum sem hvert um sig eru bara markaðseiningar, settar saman úr kaupum á úrvalsspörkurum frá öllum heimi. Skrýtnust er sú von að Evrópu- menn fari almennt að horfa á sömu sjónvarpsrásir - og hefði engum dottið hún i hug nema enskumælandi mönnum, sem flnnst alltaf sjálfsagt að allir skilji ensku. Því menn horfa ekki á sömu sjónvarpsrásir um alla álf- una nema þeir noti eina og sömu tungu - og það hefur ítölum, Spán- verjum, Þjóðverjum og Frökkum ekki dottið í hug til þessa. Dönum og Hollendingum ekki heldur. En gáum að því að þetta stóð í blaði eins og Economist, sem flallar um fyrirtæki og verðbréf og markaði; á þeim vettvangi hefur enskuvæð- ingin þegar gengið yfir. Með svo róttækum hætti að starfsmönnum norskra stórfyrirtækja og þýskra verðbréfasala er skipað að tala saman á ensku í vinnunni, svo að þeir verði þeim mun ólíklegri til að reynast þeir sveitamenn í til- svörum að muna eftir því hvar þeirra rætur standa í mold. Árni Bergmann Sameignin gul Byggingarfulltrúaembættið í Reykjavík gerir kröfur til eigna- skiptayfirlýsinga án lagastoðar. Gögnum er til dæmis vísað frá ef teikningar eru ekki litaðar. Engin ákvæði eru í gildandi lögum og reglugerð um að lita beri teikning- ar. Embættið hefur ekki heimild til að setja sérreglur. Yfirferð gagna er illa samræmd. Fólk verð- ur að lúta geðþóttaákvörðunum „Starfsmenn byggingarfulltrúans í Reykjavík hafa með öðrum orð- um sjálfir ákveðið án lagastoðar að allir ráðgjafar skuli lita teikn- ingar vegna þess að kennari á námskeiði mælir með þvíl Það eru geðþóttaákvarðanir. “ þegar yfirferðarmenn setja sér reglur að eigin geðþótta. Geðþóttaákvarðanir Byggingarfulltrúi fer yfir allar eignaskiptayfirlýsingar til að sannreyna að þær séu í samræmi við lög og reglugerð. Engum yfir- lýsingum fæst þinglýst nema að þær hafi hlotið samþykki embætt- isins. Störf embættismanna, sem yfirfara skjölin, eru illa samræmd. Einn samþykkir atriði sem annar hafnai’. Menn vísa þannig skjölum frá með geðþóttaákvörðunum. Ástæður á borð við „(Ég) vil ekki sjá ..“ hafa til dæmis verið ritaðar á gögn sem hefur verið vísað frá. Dæmi eru um flölmörg atriði sem orka tvímælis í embættisfærslu yf- irferðarmanna. í þessari grein er þó aðeins eitt gert að umræðuefni. Með eignaskiptayfirlýsingum þarf að skila teikningum af viðkom- andi mannvirkjum. Byggingarfull- -------------, trúi gerir þá kröfu að þær séu litaðar. Tugir ráðgjafa hafa fengið skjöl end- ursend með þeirri athuga- semd að teikn- ingar séu ólitað- ar. Embættið vís- ar með öðrum orðum skjölum frá af þessari ástæðu. Ekki er heldur sama hvemig litað er. Sam- eign allra skal vera gul og sameign sumra græn. Ófáum eignaskiptayf- irlýsingum hefur verið vísað frá vegna þess að rými í sameign allra var ekki litað gult. Þá hefur orðið að útbúa nýjar teikningar og lita samkvæmt kröfum embættisins. Krafan um litun er hins vegar lög- leysa sem veldur því að skjöl verða lélegri og gerð yfirlýsing- anna dýrari. Gildandi eignaskipta- yfirlýsingum er þinglýst hjá við- komandi sýslumanni. Þangað fer fólk og biður inn afrit. Afritin eru ljósrit sem starfsfólk sýslumanns- embættisins tekur af þinglýstu skjölunum. Ljósritin verða auðvit- að svart-hvít þó að frumgögnin séu lituð svo á þeim koma eng- ar litamerkingar fram. Litaðir fletir verða einfaldlega mis- jafnlega dökkar kless- ur. Þessi svart-hvítu ljósrit eru þau skjöl sem fólk mun nota en ekki gögnin sem ráð- gjafinn litaði í upp- hafi. Ljósrit af skjöl- um sem lituð hafi ver- 1 1 1 ið samkvæmt kröfum embættisins eru oft ógreinileg eða iUlæsiIeg. Auk þess er kostnaðar- samt að lita og litljósrita teikning- ar Lögleysa Eignaskiptayfirlýsingar eiga að uppfylla ákvæði þeirra laga og reglugerðar sem um þær flalla. Geri yfirlýsingamar það eru þær fullgildar. Hvorki er í lögunum né i reglugerðinni að finna ákvæði um að lita skuli teikningar. Fyrir- mæli byggingarfulltrúans í Reykjavik em þess vegna sérregl- ur embættisins. Þær hafa þó hvorki verið gefnar út eða til- kynnt um gildistöku þeirra. Kjallarinn Stefán Ingólfsson verkfræðingur Reyndar má telja víst að slíkar reglur þó til væru stæðust ekki. Embættið þyrfti að hafa lagaheimild til að setja sérreglur. Slíkar heimildir er hvergi að finna. í kennsluefni fyrir lög- gildingu er í sýni- dæmum rými litað á teikningum. Á ein- um stað í eíhinu er vikið að litun rýma og meðal annars bent á að góð regla sé að sameign allra sé lit- uð gul og sameign sumra ljósgræn. Þeg- ar gengið er á starfs- menn byggingarfull- trúaembættisins um skýringar á því hvers vegna lita skuli teikn- ingar er visað í áðumefnt kennslu- efni en ekki reglugerðina. Starfs- menn byggingarfulltrúans í Reykjavík hafa með öðrum orðum sjálfir ákveðið án lagastoðar að allir ráðgjafar skuli lita teikningar vegna þess að kennari á nám- skeiði mælir með þvi! Það eru geð- þóttaákvarðanir. Þeim verða allir að lúta. Byggingarfulltrúi má ekki leyfa starfsmönnum sínum að vinna eftir slíkum ákvörðunum. Borgaryfirvöldum ber að sjá til þess að embættismenn starfi að lögum. Stefán Ingólfsson Með og á móti Er um hópuppsagnir kennara að ræða? Vel á þriðja hundrað kennarar í grunnskól- um Reykjavíkur hafa nú sagt upp störfum. Margir hafa orðið til að gagnrýna þessar fjöldauppsagnir. Þær raddir hafa heyrst að f reynd sé ekki um einstaklingsuppsagnir að ræða heldur hópuppsögn. Hún gangi gegn lögum þar sem kjarasamningar séu ekki lausir. Talsmenn kennara segja að ekkí sé um hópuppsagnir að ræða. Hannes Þorsteins- son, fufltrúf Kenn- arasambands ís- lands. Ekki hópuppsagnir „Þetta eru ekki hópuppsagnir. Hópar i einstökum skólum hafa sagt upp, en er það þá orðið hópuppsagn- ir? Þetta fólk er vant að stjórna sér og sínum málum. Það er mjög misjafnt hvað það ætlar að gera. Sumir vonast til að ástandið batni og ætla þá að draga uppsögn- ina til baka. Ég veit um marga sem eru búnir að fá aðra vinnu og ætla ekkert að koma inn aftur. Forsendur þessa fólks eru því eins mismunandi og það er margt. En stéttarfélagið stendur ekki að baki þessu. Það stendur ekki fyrir upp- sögnum, það leiðir hópana ekki í gegnum þetta. Það sem kennararnir eru að segja er að þeir vilja fá greitt fyrir þau atriði sem bæst hafa við kennarastarfið en er ekki talað um í kjarasamningum, s.s. skólanámskrá, innra mat og nýjar aðalnámskrár. Það er stórt mál að segja starfi sínu lausu. Það gerir enginn að gamni sínu. Að segja fólki upp er stjórn- valdsákvörðun og um það gilda ákveðnar skráðai' leikreglur. Launa- maður getur hins vegar sagt sínu starfi lausu án þess að uppfylla ein- hver ákveðin skilyrði. Þetta gengur ekki á sama hátt í báðar áttir. Launa- greiðandi getur ekki sagt fólki upp af geðþótta. Hann þarf að hafa málefna- legar ástæður fyrir því.“ Átta mig ekki á þess- um hræðsluáróðri „Þarna er ótvírætt um hópupp- sagnir að ræða, samkvæmt vinnulög- gjöfinni. Þetta er brot á lögum um stéttarfélög og vinnudeilur, því þetta er ólögmæt hópaðgerð til að knýja fram breytingar á kjörum. Þessi lög gilda fyrir allan vinnumarkaðhm, ekki einungis al- menna markaðinn heldur einnig op- inbera starfs- ;nn. Þau frávik sem eru i vinnu- löggjöf fyrir opin- bera starfsmenn eru þá í sérlögum. Það eru engin sér- lög sem heimila þeim að grípa til slíkra aðgerða. Hvað varðar afleiðing- ar slíkra aðgerða á gerð kjarasamn- inga bendi ég á að það sem vinnuveit- andinn er að kaupa með kjarasamn- ingum er friðarskylda. Hann er að kaupa staifsfrið til að skipuleggja vinnuna, þannig að hún gangi snurðulaust fyrir sig. Ef þessu tæki er beitt þegar kjarasamningar eru í gildi þá hefur hann verið að kaupa svikna vöru. Slíkt hlytur að rýra gildi kjarasamningsins verulega. Ráðning- arvernd opinberra starfsmanna er miklu meiri en á almennum vinnu- markaði. Þarna eru menn aö um- gangast ráðningarsambandið með kæruleysislegum hætti. Ef annar að- ilinn gerir það þá veldur það ef til vill því að gagnaðUinn verður kærulaus með svipuðum hætti. Þá er um það að ræða að beita uppsögnum eða hótun- um um uppsagnir í einhverjum til- gangi öðrum en áður hefur verið gert. Vinnuveitendur gætu farið að nota slíkt í kjaralegu samhengi ef hópar starfsmanna sýna fordæmi. Þá er kominn upp nýr flötur i kjaradeilum. Það er í valdi sveitarfélaga að fara þá leið sem þeim er opin í þessu, sem er að sækja málið fyrir dómstólum." Hanncs G. Sigurös- son, aöstoöarfram- kvæmdastjóri Vinnuvcitendasam- bands íslands.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.